Fréttablaðið - 28.10.2005, Blaðsíða 75

Fréttablaðið - 28.10.2005, Blaðsíða 75
 28. október 2005 FÖSTUDAGUR Höfðabakka 1 - sími 587 50 70 Dúndur tilboð Aðeins í dag föstudag. Ekki láta þetta fara framhjá þér, 25% afsláttur Skötuselur og öll lúða í dag með 25% afslætti. FÓTBOLTI Knattspyrnumaðurinn Ingvi Rafn Guðmundsson er á góðum batavegi eftir að hafa fót- brotnað illa í leik Keflavíkur og ÍBV í 2. umferð Landsbankadeild- arinnar í sumar. Ingvi Rafn er með skrúfur og bolta í sköflungnum og má ekki byrja að hlaupa fyrr en undir jól en á samt ekki von á öðru en að ná stærstum hluta undirbún- ingstímabilsins í vor. „Þetta hefur gengið vel og beinið er í góðu lagi en skrúf- urnar valda því að ég er stífur í löppinni,“ segir Ingvi Rafn en fjórir mánuðir eru liðnir síðan hann lenti í skelfilegu návígi við Pál Hjarðar, leikmanni ÍBV, með fyrrgreindum afleiðingum. „Ég er í mikill endurhæfingu en má ekki hlaupa. Ég hjóla og syndi mikið og er að vinna upp tapaðan massa í löppinni,“ segir Ingvi Rafn, sem var í sex vikur í gifsi og rýrnaði fóturinn mikið við það. „Þetta er búinn að vera erf- iður tími og ég neita því ekki að það greip oft um sig óþolinmæði í sumar þegar maður þurfti að horfa á æfingar á leiki. En nú hugsa ég bara fram á veginn og get ekki beðið eftir að því að byrja að spila á ný.“ - vig Keflvíkingurinn Ingvi Rafn Guðmundsson er risinn úr rekkju: Á góðum batavegi eftir fótbrot RÚMLIGGJANDI Þessi mynd var tekin dag- inn eftir fótbrotið. Vináttulandsleikur: PÓLLAND-ÍSLAND 37-38 (17-18) Mörk Íslands (skot): Ólafur Stefánsson 10/3 (16), Guðjón Valur Sigurðsson 8/1 (13), Jaliesky Garcia Padron 4 (9), Snorri Steinn Guðjónsson 4 (6), Alexander Peterson 4 (5), Einar Hólmgeirsson 3 (5), Sigfús Sigurðsson 3 (4), Róbert Gunnarsson 2 (3). Varin skot: Hreiðar Guðmundsson 8, Birkir Ívar Guðmundsson 6. Iceland Express-deild karla: FJÖLNIR-ÞÓR AK. 90-80 HÖTTUR-ÍR 72-98 GRINDAVÍK-HAMAR/SELFOSS 114-84 Stig Grindavíkur: Páll Axel Vilbergsson 34 (Hitti úr 13 af 17 skotum sínum. Þar af 8 þriggja stiga körfur), Damon Bailey 17 (13 fráköst, 6 stoðs.), Þorleifur Ólafsson 16, Páll Kristinsson 12 (9 frák- öst), Guðlaugur Eyjólfsson 9, Björn Brynjólfsson 6, Davíð Hermannsson 6, Ármann Vilbergsson 5, Eggert Pálsson 5, Hjörtur Harðarson 3, Ágúst Dearborn 1. Stig Hamars/Selfoss: Clifton Cook 33 (14 fráköst, 9 stoðsend.), Svavar Pálsson 19, Friðrik Hreinsson 15, Atli Gunnarsson 8, Hallgrímur Brynjólfsson 5, Rúnar Sævarsson 2, Bragi Bjarnason 2. NJARÐVÍK-HAUKAR 78-74 SKALLAGRÍMUR-KR 70-98 Stig Skallagríms: Jovan Zdravevski 21, Chris Man- ker 19, Axel Kárason 10, Hafþór Gunnarsson 9, Pétur Sigurðsson 7, Bjarni Kristmarsson 3, Áskell Jónsson 1. Stig KR: Skarphéðinn Ingason 21, Ashley Champ- ion 20, Pálmi Freyr Sigurgeirsson 19, Darri Hilm- arsson 10, Steinar Kaldal 9, Níels Dungal 6, Ellert Arnarsson 5, Baldur Ólafsson 4, Jón H. Baldvins- son 4. Evrópukeppni kvenna: PAYS DIAIX-HAUKAR 99-59 (59-27) Stig Hauka: Kesha Tardy 25 (13 fráköst), Helena Sverrisdóttir 15 (5 fráköst, 5 stoðs.), Jelena Jovanic 8, Hanna Hálfdanardóttir 4, Pálína Gunnlaugs- dóttir 4, Kristrún Sigurjónsdóttir 2, Sigrún Ámund- adóttir 1. ÚRSLIT GÆRDAGSINS KÖRFUBOLTI Heimamenn í Fjölni unnu nokkuð þægilegan tíu stiga sigur sem var fyllilega verð- skuldaður. „Við leiddum alveg frá upphafi og vorum klárlega betri aðilinn og áttum sigurinn skil- inn,“ sagði Benedikt Guðmunds- son, þjálfari Fjölnis, eftir leikinn. „Þetta var kannski ekki skemmti- legasti körfuboltinn sem boðið hefur verið upp á en stigin skipta öllu. Við vorum þar að auki með nýjan Kana sem var ekki alveg komin með kerfin á hreint þannig að það þarf að fínpússa ýmsa hluti hjá okkur.“ Sá fáséði atburður átti sér stað í leikhléi að Þórsarinn Jón Orri Kristjánsson braut aðra körfuna í húsinu. Hann ætlaði þá að troða með miklum látum en kannski ekki eins miklum látum og raun bar vitni því karfan splundraðist líkt og sést á stundum í NBA-bolt- anum. Sem betur fer voru fleiri körfur í húsinu svo það var hægt að klára leikinn. - hbg Karfa brotnaði Það gekk mikið á þegar Fjölnir tók á móti Þór í Grafarvogi í gær. Meðal annars var karfa brotin. SKÖMMUSTULEGUR Jón Orri Kristjánsson sést hér skömmustulegur á minni myndinni eftir að hafa brotið körfuna með eftirminnilegri troðslu í leikhléinu. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.