Tíminn - 19.10.1975, Blaðsíða 1

Tíminn - 19.10.1975, Blaðsíða 1
Stjórnlokar Olíudælur Olíudrif % 0 /#* JU C— _________U-i_____, Landvélar hf PRIMUS HREYFILHITARAR I VÖRUBÍLA OG VINNUVÉLAR HF HÖRÐUR GUNNARSSON SKÚLATUNI 6 -SIMI (91)19460 Loðnumjölinu er síður hætt við þrónun og hitaskemmdum en öðru mjöli Gsal-Reykjavik. — Fituinnihald loönumjöis lækkar óverulega, þó aö það sé geymt i allt að þvi hálft ár við venjuleg skilyrði. I. a'kkunin nær ekki i neinu titviki II, 5%. Af þvi má ljóst vera, að loðnumjöli er miklu siður hætt við oxun ( þránun) og. hita- skemmdun en mjöli úr flestum öðrum feitfiskum. Þetta eru niðurstöður rannsóknar, sem gerð var á veg- um Rannsóknarstofnunar fisk- iðnaðarins i Vestmannaeyjum á s.l. loðnuvertiö og staðíesti raiinsóknin kenningar um stöðug- leika loðnumjöls. Sprengja frá stríðs- árunum liggur á víða- vangi - gæti verið virk NÝ RÆKJU- VINNSLA Á KÓPA- SKERI M Ó-Rey kjav ik . Nýjar rækjupillunarvélar eru væntanlegar til Kópaskers á næstunni, og verður þvi væntanlega unnin þar rækja i fyrsta sinn á komandi vetri. Kristján Árnason, kaup- félagsstjóri á Kópaskeri, bjóst við að rækjuvinnslan gæti veitt 10-15 manns at- vinnu og yrði mikil lyftistöng fyrir allt atvinnulif á staðn- um. Nú stendur slátrun yfir á Kópaskeri, og verður þar slátrað um 30 þúsund fjár. Er það 8% aukning frá i fyrra. Meðalþungi dilka er nú 15,5 kg, en var i fyrra 14,8 kg- Hólfri milljón stolið Gsal-Reykjavik — Reykvikingur nokkur brá sér að heiman hálfan annan tima siðari hluta aðfara- nætur laugardags. Þegar heim kom tók hann eftir þvi að rótað hafði verið i ibúðinni og skömmu siðar varð lionum ljóst, að hálf milljón kr. sem liann var með heima hjá sér, — var horfin. Far- ið hafði verið inn um glugga á ibúðinni á timabilinu milli kl. hálf fjögur og sex, og var lögrcglunni lilkynnt um þjófnaðinn um kl. 7. Rannsóknarlögreglan var i gær að kanna hvort rétt væri, að maðurinn hefði i raun og veru geymt hálfa milljón króna i pen- ingum heima hjá sér. — 1 sjálfu sér getum við alls ekki rengt manninn, en við eigum þvi ekki að vénjast, að fólk geymi svona miklar f járhæðir undir koddanum hjá sér, sagði rannsóknarlög- reglumaður við Timann i gær. FB—Reykjavik — Minjar striðs- áranna er enn að finna viða um land. Sumar eru þær hættulausar, en aðrar eru það ekki, og þar á meðal er að öllum likindum sprerigja ein, sem liggur við flug- vélarflak á svonefndum Völu- hjalla i Krossanesfjalli norðan við fjarðarmynni Reyðarfjarðar. Fyrir skömmu skrifaði Geir Hólm á Eskifirði Timanum bréf og sendi með mynd af sprengj- unni, sem birtist hér fyrir ofan fréttina. Geir hefur hvað eftir annað reynt að fá yfirvöld til að athuga þessa sprengju, en án árangurs. 1 bréfi sinu segir Geir: „Árið 1941, i mai eða byrjun júni, fórst þýzk herflugvél við Reyðarfjörð, nánar tiltekið i Krossanesfjalli norðan við fjarð- armynnið. í flugvélarbrakinu, sem liggur á svonefndum Völu- hjalla i fjallinu, er ósprungin sprengja, og er myndin, sem hér fylgir með, tekin af sprengjunni um miðjan september sl. Ég furða mig á þvi kæruleysi að láta sprengjuna liggja i 34 ár, án þess að gengið sé úr skugga um það, hvort hún sé hættulaus. Alltaf eru að heyrast fréttir af skotglöðum mönnum og ungling- um, sem skjóta á hvað sem fyrir augu ber, og virðist ekki ómögu- legt að slikir menn gætu farið sér að voða með óvitaskap, varðandi þessa sprengju. Fyrir um það bil tveimur árum fannst ósprungin sprengikúla i fjalli milli Fljótsdalshéraðs og Eskifjarðar, og var þegar sendur maður til þess að gera hana hættulausa. Þegar ég frétti þetta, fór ég til sýslumanns Suð- ur-Múlasýslu og sagði honum frá sprengjunni, og að mér fyndist ekki minni háski að henni en þeirri, sem eyðilögð var. Þegar ár var um liðið og ekkert hafði verið gert, reyndi ég að koma þessu aftur á framfæri, og þá gegnum Slysavarnafélag Islands. Ég fékk það svar, að upplýsingar ættu að koma eftir öðrum leiðum, þ.e. liklega frá sýslumanni. Skýrði ég þá forstöðumanni al- mannavarna frá málinu. Nú hef ég orð hans fyrir þvi, að hann hafi gefið Landhelgisgæzlu Islands upplýsingar um málið, en ekkert hefur enn gerzt.” Að sögn Geirs Hólm er um það bil tveggja tima gangur af akvegi að flugvélarbrakinu, og á Eski- firði og i nálægum byggðarlögum vita allflestir fullorðnir um sprengjuna. Er þvi alltaf hætta á að fólk fari að forvitnast, og gæti þá orðið alvarlegt slys, ef sprengjan spryngi. Virðist furðu- legt, að yfirvöld skuli i öll þessi ár hafa látið málið eins og vind um eyru þjóða, þrátt fyrir það að at- hygli þeirra hafi hvað eftir annað verið vakin á hættunni, sem af sprengjunni kann að stafa. Ein afleiðing þránunar i mjöli er rýrnun á næringargildi þess, og er rýrnun þrenns konar. 1. Orkugildi mjölsins lækkar Eggjahvita mjölsins spillist m.a. vegna hitamyndunarinnar. 3. Skaðleg efni myndast i mjölinu sem draga úr vexti alidýra. t Tæknitiðindum Rannsóknar stofnunarinnar, þar sem frá áðurnefndri rannsókn er greint, segir. að þessar staðreyndir hafi lengi verið kunnar, en þeim hafi heldur litill gaumur verib gefinn af framleiðendum. einfaldlega vegna þess. að kaupendur hafi i þessu tilliti ekki gert greinarmun á góðu og lélegu mjöli. Hins vegar virðist það nú vera að breytast. Öllu fiskmjöli er ekki jafnt hætt við skemmdum vegna þránunar. Þar gilda tvær meginreglur. annars vegar aö þvi feitara sem mjölið er, þeim mun meiri verða skemmdirnar. Mjöl úr feitfiskum er þvi viðkvæmara en beinamjöl. Hins vegar, þvi hærri sem joðtala fitunnar, er, þeim mun viðkvæmara er mjölið. Joðtala er mælikvarði á magn ómettaðrar fitu. Joðtala loðnulýsis er lág. og loðnumjöli þvi ekki eins hætt við þránun eins og t.d. sildarmjöli, en sildarlýsi hefur mun hærri joðtölu. í Tæknitiðindunum segir, að erlendir fiskimjölsfram- leiðendur munu nú orðið i flestum tilfellum revna að koma i veg fyrir þránun með þvi að úða þráavarnarefnum yfir mjölið við framleiðslu þess, en hins vegar geri islenzkir framleiðendur það ekki. Eins og áður segir, sýndu niðurstöður rannsóknarinnar i Vestmannaeyjum glöggt, að fitu- innihald loðnumjöls lækkar óverulega. þó að það sé geymt i hálftár.A það er hins vegar bent i Tæknitiðindunum. að á siðustu árum hafi sumir mjölkaupendur óskað eindregið eftir þvi að notuð verði þráavarnarefni i fiskmjöl. — islenzkir fiskmjölsfram- leiðendur ættu að sjálfsögðu að vera við öllu búnir i þessum efn- um. en það er sjálfsagt fyrir þá að benda á sérstöðu loðnumjöls i þessu sambandi. með þeim rök- um. sem lram koma i þessari skýrslu. segir að lokum i Tæknitiðindum. þar sem frá áðurnefndri rannsókn er greint. FYRSTA UM- FERÐ í DAG FJ-ReykjaVik. Fyrsta umferð svæðamótsins i skák verður tefld að Hótel Esju i dag og hefst hún klukkan 14:00. Dregið var um töfluröð keppenda i gærkvöldi og mótið sett.Tveir islendingar taka þátt i mótinu Björn Þorsteinsson og Friðrik Ólafsson, stórmeistari. sem á góða möguleika á að vera annar þeirra tveggja sem úr mótinu komast áfram á millisvæðamót. Á myndinni hér til hægri sjást islenzku keppendurnir, Björn og Friðrik við skákborðið.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.