Tíminn - 21.10.1975, Page 5
Þriöjudagur 21. október 1975
TÍMINN
5
Hafa skipt um
skoðun
Sem kunnugt
er, snerist
Sjálfstæðis-
flokkurinn
harkalega
gegn Fram-
kvæmdastofn-
un rikisins,
þegar hún var
sett á fót undir
forystu rikis-
stjórnar Ólafs Jóhannessonar.
Siðan hefur mikið vatn tii
sjávar runnið, og skoðanir
ýmissa áhrifamanna innan
Sjálfstæðisflokksins til þessa
máls hafa breytzt veruiega,
einkum eftir að Sjálfstæðis-
flokkurinn fór i stjórn og tók
að hafa áhrif á störf stofnun-
arinnar. Þetta kemur berlega
fram i viðtali við Sverri Her-
mannsson alþm., sem birtist i
Mbl. s.l. sunnudag, en sem
kunnugt er veitir Sverrir
Framkvæmdastofnuninni for-
stöðu, ásamt Tómasi Árnasyni
alþm. Þingmaðurinn vill að
visu ekki viðurkenna, að störf
Framkvæmdastofnunarinnar
fari fram i anda þeirra laga,
sem vinstri stjórnin kom á, en
grunntónn kenninga hans er
sá, að Framkvæmdastofnunin
sé þörf stofnun, enda „vanti
i meiri pólitiska stjórn á þetta
þjóðféiag”, eins og hann
kemst að orði. Samkvæmt
þessu virðast Sjálfstæðismenn
horfnir frá þeirri stefnu sinni,
að leggja beri Framkvæmda-
stofnunina niður, og greiniiegt
er, að Sverri Hermannssyni
likar vistin vel.
Fulltrúi hverra?
t sjónvarpinu
s.I. föstudag
fór fram at-
hyglisverður
umræðuþátt-
ur um bygg-
ingariðnaðinn
og laun bygg-
ingarmanna.
Kom fram i þættinum, að
timakaup iðnaöarmanna get-
ur komizt upp i 3 þús. kr. og
þaðan af meira. Sigurður
Jónsson, framkvæmdastjóri
Breiðholts hf., sem er stærsta
byggingafélag landsins og
hefur beitt sér fyrir ýmsum
nýjungum i byggingatækni,
upplýsti, að iðnaðarmenn
tækju ekkert tillit til þess, þótt
nýrri tækni væri beitt. Þar af
leiðandi væri illmögulegt að
lækka byggingarkostnaðinn.
Fulitrúar „uppmælingaað-
alsins”, sem stundum er kall-
aður svo, voru Gunnar Björns-
son og Sigurjón Pétursson. At-
hygli vakti, að Sigurjón Pét-
ursson, sem jafnframt er
borgarráðsmaður Alþýðu-
bandalagsins, hélt uppi vörn-
um fyrir þetta kerfi, sem aug-
Ijóslega á sinn þátt I þvi að
halda íbúðaverði uppi. Kemur
það heim og saman við þá
kenningu, að Alþýðubanda-
lagið sé ekki lengur neinn sér-
stakur verkalýðsflokkur.
A.m.k. hljóta ýmsir almennir
verkamenn, sem stutt hafa AI-
þýðubandalagið, að fyllast
efasemdum, er þeir verða
vitni að slikri vörn fyrir há-
tekjumenn eins og Sigurjón
hélt uppi i þættinum. —a.þ.
Myndin er af snjóbilnum og eftirtöldu fólki, t.f.v.: Siguröur Þórarinsson, starfar fyrir Rauðakrossfé-
lagið á Húsavik, Gunnar Karlsson, Einar Njálsson, form. Lionsklúbbs Húsavikur, Sigrún Pálsdóttir,
form. slysavarnadcildar kvenna á Húsavik, Þórður Breiðfjörð, formaður Kivanisklúbbs Húsavikur,
Jónas Egilsson, formaður söfnunarnefndar, Sigurjón Jóhannesson, form. Rauðakrossdeildarinnar á
Húsavik, og séra Björn H. Jónsson forseti Rotaryklúbbs Húsavikur.
Á FULLNEGLDUM
^&OTlUm VETRARHJÓLBARDAR
(NEGLDIR) RADIAL Kr.
145 SR 12 OR 7 5.950,—
165 SR 14 OR ; 7 8.990,—
^&OTtum VETRARHJÓLBARÐAR
(NEGLDIR) DIAGONAL Kr.
520 12/4 OS 14 4.720.—
550 12/4 OS 14 5.520.— -
590 13/4 OS 14 7.010,—
640 13/4 OS 14 8.310.—
615/155 14/4 OS 14 6.750.—
700 14/8 OS 14 9.920.—
590 15/4 OS 14 7.210.—
600 15/4 OS 14 9.210.—
640/670 15/6 os 14 9.530,—
670 15/6 os 14 9.530.—
600 16/6 NB 1 6 m/stöngu 10.070,—
650 16/6 TP 7 m/slöngu 11.790,—
750 16/6 TP 7 m/slöngu 13.240,—
TEKKNESKA BIFREIDAUMBODID
Á /SLAND/ H/F
AUÐBREKKU 44 KÓPAVOGI SÍMI 42606
Garðahreppur: Hjólbarðaverkstæðið Nýbarði
Akureyri: Skodo verkstæðið ó Akuroyri h.f. Óseyri 8
Epilsstaðir: Varahlutaverzlun Gunnars Gunnarssonar
Lögin heimiluðu ekki tollfrían
innflutning á öryrkjabílnum
ÖRYRKJABANDALAGIÐ fékk
fyrir skömmu hingað til lands bil
sérstaklega útbúinn til þess að
flytja fólk i hjólastólum. Banda-
lagið sótti um niðurfellingu tolla á
bílnum, þar sem það hafði ekki
efni á að leysa hann út. Því var
hafnað af hálfu ríkisvaldsins á
þeim forsendum, að ekki væri til
heimild I lögum fyrir sliku, en þar
er aðeins að finna ákvæði um toll-
frjálsa bila til handa ráðherrum
og sendiráðsstarfsmönnum.
Bandalaginu var hins vegar boð-
ið, að bifreiðin skyldi sett i sama
tollflokk og sjúkrabílar, eða 15%.
öryrkjabandalagið hafði þrátt
fyrir þetta ekki efni á að leysa bif-
reiðina út.
Frá þessu var skýrt i hádegis-
fréttum útvarpsins á fimmtudag.
1 kvöldfréttum sama dag var
svo frá þvi sagt, að málið væri
leyst — Asbjörn ólafsson heild-
sali,hafði þá um daginn haft sam-
band við öryrkjabandalagið og
boðizt til þess að greiða toll af bif-
reiðinni.
Húsavíkurdeild Rauða krossins
eignast snjóbil
Þ.J.-Húsavik Miðvikudaginn 8.
þ.m. afhentu formenn nokkurra
félagasamtaka á Húsavik Húsa
vikurdeild Rauðakross íslands
snjóbil til eignar og starfrækslu.
Rauðakrossdeildin hyggst útbúa
snjóbilinn til sjúkraflutninga, og
verður gripið til hans, þegar
venjulegum sjúkrabilum verður
ekki við komið vegna snjóa.
Kaupverð snjóbilsins er um -2.5
millj. króna. Félögin, sem að
kaupunum stóðu, voru: Kiwanis-
klúbbur Húsavikur, Rotaryklúbb-
ur Húsavikur, Lionsklúbbur
Húsavikur og Slysavarnadeild
kvenna á Húsavik. Félög þessi
stóðu fyrir almennri fjársöfnun
til kaupa á snjóbilnum 9. febrúar
s.l., og var gjafafé safnað meðal
einstaklinga, félaga og fyrir-
tækja. Enn fremur rennur til
kaupanna eigið framlag félags-
manna. Formaður söfnunar-
nefndar var Jónas Egilsson, for-
stöðumaður Oliu- og vélasölu Kf .
Þingeyinga á Húsavik.
Rauðakrossdeildin á Húsavik
átti fyrir tvo sjúkrabila, og hefur
hún annazt sjúkraflutninga á
Húsavik og i Þingeyjarsýslum sl.
áratug. Björgunarsveit Húsa-
vikurdeildar Slysavarnafélags
íslands hefur haft afnot af öðrum
sjúkrabilnum og notað hann, þeg-
ar hún hefur þurft á þvi að halda
við björgunarstörf. Rauðakross-
deildin og slysavarnadeildin hafa
i samvinnu byggt björgunarstöð á
Húsavik, og var stöðin tekin i
notkun á þessu ári.
Næsta Norðurlandamót
Skál-klúbbanna haldið
í Reykjavík
A siðasta Norðurlandamóti
Skál-klúbba, sem nýlega var
haldið i Malmö i Sviþjóð, var
Markús örn Antonsson, formaður
Ferðamálaráðs Reykjavikur-
borgar, kjörinn forseti klúbbanna
fyrir næstu tvö ár. — Þá var
ákveðið, að næsta Norðurlanda-
mót yrði haldið i' Reykjavik 7. til
9. október 1977.
Hátt á þriðja hundrað norrænna
Skál-félaga sóttumótið i Malmö,
sem fór mjög vel fram. — Félag-
ar Skál-klúbba eru forystumenn á
ýmsum sviðum ferðamála. Fyrsti
klúbburinn var stofnaður i Paris
árið 1932 að lokinni heimsókn
franskra forystumanna ferða-
mála til Norðurlanda. Nú starfa
liðlega 400 klúbbar viðs vegar um
heim, og eru félagsmenn rúmlega
24 þúsund.
Fulltrúar íslands á Norður-
landamótinu i Malmö voru
Haraldur Jóhannsson, formaður
Skál-klúbbs Reykjavikur, og
Markús örn Antonsson.
Bj
Electrolux
CF 640
eldavél
4 hellur
hœð 85 cm.
br. 59,5 cm.
dýpt 60 cm.
Litir:
COPPER
POPPY
GOLD
HVÍTT
Ofninn er 60 Itr. I hann mó kaupa
sérstaklega grillélement og grill-
tein. Einnig fœst klukkuborð f
sama lit og vélin og virkor klukk-
an þó ó ofninn og eina hellu.
Að neðan er hitageymsla.
CF 646
eldavél
4 hellur
hœS 90 cm.
br. 60 cm.
dýpt 60 cm.
Lítir;
COPPER
POPPY
GOLD
HVITT
Ofninn er sjálfhreinsandi, 60 Itr.
Vélin er með innbyggðu grilli
(element og teinn) og steikarmœli,
áfast er klukkuborð m/rafm.klukku
sem virkar á ofninn og eina helluna.
Að neðan er hitageymsla.
©
Vörumarkaðurinn hf.
ÁRMULfl 1A, SÍMI 86112, REVKJAVÍK,