Tíminn - 21.10.1975, Side 6

Tíminn - 21.10.1975, Side 6
6 TÍMINN Þriðjudagur 21. október 1975 • • SAMTOK OKKAR ERU ENN VEIK — en við viljum taka landbúnaðarmálin í okkar hendur hið fyrsta — AÐALAHUGAMAL okkar er að taka landbúnaöarmálin öll i okkar hendur, sagöi Kaj Egede i viötali við Timann, en hann haföi orö fyrir hópi þriggja Grænlendinga, scnt hér hafa dvalizt i viku og kynnt sér sauö- fjárrækt, félagsmál bænda og fleira. Kaj Egede er landbún- aöarráöunautur, en með honum i för voru Jens Simonsen bóndi, varaformaður Fjárræktarfé- lagsins, sem eru einu samtök bænda i Grænlandi, og Poul Frederiksen bóndi, féhiröir sama félags. Konunglega Græn- landsverzlunin ræöur fóöur- innflutningi til Grænlands og á eina sláturhúsiö á Grænlandi, sem er I Narssaq um 40 km frá Nassarsuaq. Þetta vilja bændur taka i sinar hendur. Einnig ér áhugi á aö efla framleiöslu úi^ landbúnaðarafurðum, en hún er nánast engin eins og er. — Að þessu ætlum viö að gera gangskör nú strax i vetur og á næsta ári og vinna aö eflingu samtaka okkar. Héðan fóru Grænlendingarnir þrir til Danmerkur til viðræöu og ráðgjafar i Grænlandsráöu- neytinu um landbúnað Græn- lendinga, þróun hans og fram- tið. — Grænlenzkur landbúnaður er eingöngu sauðfjárrækt, sagði Kaj Egede, þegar við spurðum hann um búskap i heimalandi hans. Við höfum engar kýr og ekki heldur svin. Siðustu kúnni var slátrað 1974. En fyrir þann tima var töluvert um kýr bæði i Görðum og Bröttuhlið. En þær þykja dýrar i fóðri, og það er hægt að fóðra margar kindur fyrir það sama og eina kú. Sauðfjárstofninn er um 20.000 ær, i sumar var sauðféð um 40.000 samtals en nú er slátrun lokið, svo að talan er um 20.000 hún er einkafyrirtæki dansks manns. — Við komum hingað til að reyna að læra að skipuleggja mál okkar betur, sagði Kaj Egede. — Við höfum lært margt i ferðinni. Samtök islenzkra bænda eru sterk, en okkar sam- tök eru enn mjög veik. Við höfum kynnt okkur hér fóðrun og meðferð sauðfjár, ræktun og framleiðslu fóðurs, meðferð, vinnslu sauðfjáraf- urða og verzlun með þær, svo og verðlagsmál búvöru, lánamál og fjárfestingarmál landbúnað- arins, svo að nokkuð sé nefnt. Það hefur verið mjög gagnlegt. — Tekst ykkur að ná fram þeim breytingum, sem þið viljið á skömmum tima? — Nei, ég hef ekki trú á að það náist á einu ári. Við þurfum að ná betri tengslum við stjórn- málamennina. Fyrst og fremst okkar eigin i Grænlandsráðinu, sem er raunar aðeins ráðgef- andi aðili gagnvart danska þinginu, og einnig stjórnmála- menn i Danmörku. Einn áfangi hefur þegar náðst: landbúnaðarstöðin i Upernaviarssuk, skammt frá Julianehaab, þar sem Kaj Egede starfar, verður sjálfs- eignarstofnun frá næstu ára- mótum, rekin af Grænlandsráð- inu fjórum sveifarfélögum og Fjárræktarfélaginu. Ráðgjafar- starfsemin eins og hún er nú er ný af nálinni eða frá 1972. Tveir ráðunautar starfa i Uper- naviarssuk, sem hefur verið eign KGH til þessa. Aður störf- uðu ráðunautar á vegum Kon- unglegu Grænlandsverzunar- innar. Við kveðjum grænlenzku bændurna tvo og ráðunaut þeirra og óskum þeim góðs gengis iKaupmannahafnarferð. SJ 10.000 fjár var slátrað i slátur- húsinu og um 10.000 heima á bæjum, að þessu sinni. Arið 1966 var f járstofninn tvö- falt meiri en nú, en bændur urðu fyrir miklum áföllum, Veturinn 1966—’67 var mjög harður og meira en helmingur fjárins dó. Það var snjóþungt og svell undir, veturinn stóð fram i júni og féð féll úr hungri. Veturinn 1971—''72 var ef til vill harðari en þetta harðæri, en þá voru bændur betur undirbún- ir og áttu meira fóður, svo af- leiðingarnar urðu ekki nándar nærri eins alvarlegar. Um hundrað fjölskyldur á Suður-Grænlandi stunda landbúnað. Bændum fækkaði 1967 eftir harðindin, en það voru einkum danskir og færeyskir bændur, sem hættu búskap, en fáir Grænlendingar. Við spyrjum þá félaga hvort landbúnaðarmálin séu ekki i góðu lagi nú, að svo miklu leyti sem þau snúa að Konunglegu Grænlandsverzluninni. — Konunglega Grænlands- verzlunin, eða KGH eins og hún erkölluð, er stórt fyrirtæki, sem rekur allar siglingar til Græn- lands og margtfleira. Hún hefur margar skrifstofur i Kaup- mannahöfnog á Grænlandi. Við teljum að það verði hagkvæm- ara að bændurnir taki sin mál i eigin hendur sagöi Kaj Egede. Fjárræktarfélagið á Græn- landi var stofnað 1925, en það er landssamband undirfélaga i héruðunum. Sláturhúsið i Narsaq var tilbúið 1952, en hefur verið endurnýjað nokkrum sinnum siðan. Grænlendingarn- ir heimsóttu sláturhús hér og þótti gagnlegt. Töldu þeir slát- urhús Kaupfélagsins á Höfn henta sér hvað stærð snertir og þvi gott til viðmiðunar. Framleiðsla úr sauðfjáraf- urðum er nánast engin á Græn- landi, nema litilsháttar heimilisiðnaður til eigin nota. Fyrir tveim árum var þó stofn- uð saumastofa, þar sem fram- leiddar eru loðkápur og jakkar úr gærum og selskinnum. Þar starfa 30 manns. Þá er sútun einnig nýbyrjuð á Grænlandi, en Poul Frederiksen bóndi I Umanartivaraq, Kaj Egede ráöunautur og Jens Simonsen bóndi I Tasins- saq. TímamyndGE FRAMSÓKNARVIST OG DANS Saltsíldarverðið ákveðið YFIRNEFND Verðlagsráðs sjávarútvegsins hefur ákveðið eftirfarandi lágmarksverð á sild til söltunar frá 16. október til 31. desember 1975: A. Stór sild (32 sm og stærri), hvert kg. kr. 40.00. B. Smærri sild (undir 32 sm), hvert kg. kr. 26.00. Stæröarflokkun framkvæmist af Framleiðslueftirliti sjávaraf- urða. Verðið er miðað við sildina komna á flutningstæki við hlið veiðiskips. Sfld, sem veidd er I herpinót og landað er til söltunar i landi, skal vera isuð I kassa, sbr. skilyrði sjávarútvegsráöuneytisins fyrir þessum veiðum. Framleiðslueftirlit sjávaraf- urða skal annast sýnitöku á þess- ari sild, er verði hagað þannig, að 1 kassi af hverjum 20-30 verði teknir sem sýnishorn og inni- haldið vegið fslaust. Niðurstaöa þessi gildi fyrir allan farminn. Við afhendingu á sild, sem sölt- uð er um borð i veiðiskipi, gilda eftirfarandi reglur: Hver tunna, sem inniheldur 95 kg af hausskor- inni og slógdreginni sild, reiknast 136 kg af heilli sild. Afhending miðast við þunga i tunnu þann dag, sem sildin er lögð á land. Sfld, sem er 300-500 stk. i tunnu miðað við hver 100 kg, mest 6 stk. i kilói, telst stór sild, og sild, sem er 500-700 stk. i tunnu miöað við hver 100 kg, mest 8 stk. i kilói, telst smærri sild. Hver tunna, sem inniheldur 95 kg af heiisalt- arði sfld, reiknast 104 kg af ferskri sild. Lágmarksverð á sild til heilsöltunar skal vera það sama og að framan greinir um smærri sild en 32 sm, þ.e. hvert kg krónur 26.00. Framleiðslueft- irlit sjávarafurða skal taka sýnishorn af sildinni (1 tunnu af hverjum 20), vega innihaldiö og ákveða stykkjafjölda. Verðið var ákveðið af odda- manni og fulltrúum seljenda I nefndinni gegn atkvæðum full- trúa kaupenda. 1 yfirnefndinni áttu sæti: Ólafur Daviðsson, sem var oddamaður nefndarinnar, Kristján Ragnarsson og Tryggvi Helgason af hálfu seljenda, og Jón Þ. Árnason og Margeir Jóns- son af hálfu kaupenda. Fyrsta framsóknarvist vetrarins verður að Hótel Sögu, i Súlnasalnum, miðvikudaginn 22. október kl. 20:30. Húsið opnað kl 20:00 Framsóknarfélag Ileykjavikur Baldur Hólmgeirsson stjórnar Ánægjuleg kvöldskemmtun fyrir alla fjölskylduna Sverrir Bergmann, læknir flytur óvarp Innheimtumaður óskast Sala Varnarliðseigna AAiðstöðvar- ketill 4,5 rúmm, mjög góður, með öllu tilheyrandi er til sölu. Upplýsingar i sima 5-23-73.

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.