Tíminn - 21.10.1975, Page 7
ÞriOjudagur 21. október 1975
TÍMINN
7
Frá 22. þingi Alþýðusambands Vestfjarða.
Knupid stmK-oa
M JllHlil
BAGGAKASTARI
Samþykktir Alþýðusam-
bands Vestfjarða
22. þing Alþýðusambands Vest-
fjarða var haldið i Alþýðuhúsinu
á ísafirði dagana 10. og 11. okt. sl.
Gestur þingsins var Þórir Dani-
elsson, framkvæmdastjóri
Verkamannasambands Islands.
Forsetar þingsins voru Björgvin
Sighvatsson og Karvel Pálmason.
Þingritarar voru Guðmundur
Friögeir Magnússon og Halldór
Jónsson.
Þing sambandsins er haldið
annaö hvert ár. 1 skýrslu forseta
sambandsins, Péturs Sigurðs-
sonar, kom framað frá siðasta
þingi hefði aðalverkefni sam-
bandsins veriö varðandi kaup-
gjalds- og kjaramál. A félags-
svæði sambandsins hafa gilt
heildarsamningar, sem taka til
allra Vestfjarða varðandi kaup og
kjör landverkafólks og sjómanna
og hefur svo verið i 25 ár.
A þinginu voru gerðar ýtarleg-
ar samþykktir um ýmsa þætti
þjóðfélagsmála. Þar segir m.a.,
að allur sá árangur, sem náðist i
siöustu kjarasamningum, sé nú
brunninn i verðbólgubáli og
meðalrýrnun kauptaxta verka-
fólks sé 11—12% frá árinu 1974, ef
miðað sé við visitölu vöru og
þjónustu tvo fyrstu ársfjórðuna
1975.
Þá er i samþykktunum bent á
þá óheillaþróun, sem á sér stað i
sambandi við hlutask.pti sjó-
manna, þar sem nær helmingur
raunverulegs fiskverðs rennur
beint til útgeröarinnar og sjóða
hennar og kemur ekki til skipta.
Þingið skoraði einnig á fulltrúa
sjómanna i Verðlagsráði sjávar-
útvegsins að hvetja frekar en nú
er til öflunar gæðafisks, með þvi
aö beita sér fyrir sérstakri hækk-
un á linu- og handfærafiski.
Bent var á þá staöreynd, að á
siöast liðnu ári voru Vestfirðir
eini landshlutinn sem fólksfækk-
un varð i, og ef héldi fram sem
horfði væri fyrirsjáanlegur fólks-
flótti i enn rikari mæli.
Að lokum benti þingið á hve
fiskveiðar eiga mikinn þátt i
efnahagslegu sjálfstæði okkar, og
mælti þvi eindregið gegn þvi að
samningar verði gerðir við aðrar
þjóðir um veiöiheimildir innan 50
sjómilna fiskveiöilögsögunnar i
skiptum fyrir tollfriðindi, sem
væru skammvinn bót i efnahags-
erfiðleikum okkar. Þingið taldi
brýnt að við gætum sem fyrst nýtt
þennan hluta lands okkar til
skynsamlegra veiöa og friðunar
fiskistofna, sem einn aðalþáttinn i
lausn efnahagsvandans til fram-
búðar og benti sérstaklega á að
brýn nauðsyn væri að nýta fiski-
miöin skynsamlega og vernda
fiskstofnana, þvi að fiskimiðin
séu sú auðlegð, sem sjálfstæði Is-
lands grundvallist fyrst og fremst
á.
Að lokum má geta þess, að
þingið lýsti fullum stuöningi sin-
um við kvenfrelsisbaráttuna og
hvatti vestfirzkar konur til að
taka þátt i kvennaverkfallinu 24.
okt.
1 stjórn Alþýðusambands Vest-
fjarða eru:
Forseti: Pétur Sigurðsson, Isa-
firði.
Varaforseti: Karvel Pálmason
Bolungarvik.
Ritari: Guðm. Friðgeir Magnús-
son, Þingeyri.
Gjaldkeri: Bjarni L. Gestsson,
Isafiröi.
Meðstjórnandi: Hörður Snorra-
son Bolungarvik.
Átakalaus baggahiröing GERÐ BK
/------------------------------------
baggakastarinn sparar bæði tima og
erfiði.
Einn maður sér um hleðslu bagganna á
fljótan og auðveldan hátt
Kast-stefna bágganna er stillanleg úr sæti
ökumanns, sem er kostur á hallandi landi.
Örfóir eftir óseldir — Greiðsluskilmólar
Hagkvæmt haust-verð
kr. 1 16 þúsund með söluskatti
Verðtilboð þetta stendur til 5. nóvember -
eða meðan birgðir endast
Globusp
LÁGMÚLI 5. SIMI 81555
Olíubrennari
til sölu: Ketill, brennari, reykrofi, spiral-
dunkur og fleira, kr. 10.000. Simi 4-16-09.
Framkvæmdir við
Færeyska sjómanna-
heimilið að hefjast
A laugardaginn var tekin fyrsta
skóflustunga að nýju færeysku
sjómannaheimili I Reykjavik.
Gerði það frú Maria Jakobsdóttir
en hún er af færeyskum ættum.
Lóö hússins er að Brautarholti
29, milli Skipholts og Laugavegar
en þaðan er hið bezta útsýni og
staðurinn hinn ákjósanlegasti i
hvivetna.
Færeyska sjómannatrúboðið,
færeyski sjómannakvennahring-
urinn og áhugamenn bæði i Fær-
eyjum og á Islandi standa fyrir
byggingarframkvæmdunum.
Byggingin er kostuð af frjálsum
framlögum og hefir verið efnt til
happdrættis i fjáröflunarskyni
bæði hér og i Færeyjum, og það
hlotið góðar viðtökur hjá almenn-
ingi. Einnig veitir færeyska
landsstjórnin fjárhagslegan
stuðning.
Hliðstæð heimili eru starfandi i
Færeyjum og eitt á Grænlandi og
annað f Skotlandi. Heimilið mun
starfa á kristilegum grundvelli
fyrir sjómenn hverrar þjóðar,
sem þeir eru, en einnig verða til
afnota fyrir almenning.
í húsinu verða 10 tveggja
manna herbergi og 10 fjögurra
manna herbergi. öllum herbergj-
um fylgja snyrtiherbergi með
sturtubaði. Þá verður i húsinu
samkomusalur, matstofa, funda-
herbergi, setustofur og gufubað.
Enn fremur ibúð fyrir forstjóra
heimilisins. Heildar flatarmál
hússins er 1263 fermetrar en rúm-
mál 4261 rúmmetrar.
Aætlaður heijdarbyggingar-
kostnaöur er um 95 milljónir
króna. Tilboð i fyrsta áfanga
verksins, gerð grunns og botn
plötu, voru nýlega opnuð og hefir
nú verið samiö um framkvæmdir
við lægstbjóðanda.
A næsta ári er fyrirhugað að
gera fokhelt.
1 byggingarnefnd eru: Jakob
Mortensen, formaöur, Scluman
Didriksen, Jens Pétursson, Leifur
Gregersen, Maria Jakobsdóttir,
Maria Paulsen og Jóhann Olsen,
fulltrúi færeyska sjómannatrú-
boösins.
iAM BAIMD
ÍSLANDS
VERÐ MIÐA KR. 250
50ARA
afmælishappdrætt?
DREGIÐ VERÐUR 23. DES. 1975 — UPPLÝSINGASlMI 81690
VINNINGS SÉ VITJAÐ INNAN ARS
VINNINGAR:
EinvIgisskákborÖ frá heimsmeistaraeinvlginu 1972,
ásamt hliöarborðum og taflmönnum og áritaðri
plötu af þeim Fischer og Spasský.................Kr. 2.500.000
Málverk eftir Veturliða Gunnarsson.............— 140.000
Kanaríeyjaferð fyrir tvo með ferðaskrifstofunni
Sunnu..........................................— 125.000
Staunton-skáksett, handsmíðað..................— 120.000
Málverk eftir Benedikt Gunnarsson.................- 100.000
Málverk cftir Steinjjór Gunnarsson................— 65.000
Málverk eftir Ell Gunnarsson......................- 65.000
Einvigisútgáfa limaritsins Skákar, handbundin i
kiðlingaskinn, árituð og tölusett.................— 50.000
Gullpeningur frá heimsmeistaraeinv. í skák 1972 .. - 20.000
Jerger-skákklukka............................. - 10.000
Heildarverðnueti vinninga kr. 3.200.000
Teflið til
vinnings
Vinningsleiðin er að
kaupa happdrættismiða
Skáksambands íslands
Fást á svæðamótinu að Hótel Esju, verzluninni Klausturhólum,
Lækjargötu 2 og hjá taflfélögum víðsvegar um land