Tíminn - 21.10.1975, Blaðsíða 13

Tíminn - 21.10.1975, Blaðsíða 13
Þriftjudagur 21. október 1975 TÍMINN 13 Tillögur norskra sérfræðinga um snjóflóðavarnir í Neskaupstað væntanlegar á næstunni ila, ásamt greinargerð, i febrúar- mánuði, og fleiri gögn varðandi snjóflóðin lágu fyrir siðar. Af hálfu Almannavarna rikisins var leitað eftir þvi at fá hingað svissneskan sérfræðing til að leggja á ráðin um fyrirkomulag snjóflóöavarna hérlendis, og kom á þeirra vegum forstöðumaður Snjóflóöa- og skriðurannsókna- stofnunar svissneska rikisins I Davos, prófessor de Qervain, til Islands i lok april. Dvaldist hann hér á landi 110 daga og heimsótti utan Reykjavikur þrjá staði: Neskaupstað, Seyðisfjörð og Siglufjörö. Hefur hann samið skýrslu um athuganir sinar og gefiö ábendingar til stjórnvalda um æskilegar snjóflóðavarnir, svo og nokkur atriði varöandi þá staði sem hann heimsótti. Er þess að vænta, að á næstunni verði tek- ið á þessum málum á landsmæli- kvarða þar eð fjölmörg byggðar- lög eiga hér mikið I húfi. Það er hins vegar eðlilegt, að bæjaryfirvöld i Neskaupstaö hafi nokkra forustu um stefumörkun ogeigifrumkvæði að könnun þess- ara mála að þvi er varðar byggðarlagið með hliðsjón af náttúruhamförunum i fyrra. Eitt undirstöðuatriði i mati á snjó- flóðahættu eru veðurathuganir, sem i undirbúningi var raunar aö hrinda af stað I Neskaupstað fyrir snjóflóðahrinuna. 1 samvinnu við Veðurstofu Islands var komið upp veðurathugunarstöð i kaup- staðnum I sumar, og hófust mælingar I ágúst og reglubundn- ar veðurathuganir þrisvar á sólarhring frá 1. sept. að telja. Annast þær Gunnar Ólafsson, fyrrverandi skólastjóri. Snjóflóðanefndin, sem nýlega hefur verið kvödd til starfa, mun leitast við að móta tillögur I áföngum með hliðsjon af áliti sér- fræðinga og fenginni reynslu. Enginn mun búast við þvi, að skjotareða öruggar varnir finnist við þeirri vá, sem af snjóflóðum stafar, en miklu varðar að lærist að taka tillit til þeirra og varast þau eins og aðrar hættur I um- hverfi okkar. Nefndin væntir sem beztrar samvinnu við alla þá aöila, sem hún þarf að leita til, stjórnar al- mannavarna jafnt sem bæjarbúa i Neskaupstað og Ibúa nágranna- byggða. A þessu stigi væri nefnd- inni kærkomið að fá frekari upplýsingar um þau snjóflóö, sem menn minnast aö fallið hafi nærri núverandi byggð I kaupstanum og innan hans, eða vita sagnir um þar eö upplýsingar þar að lútandi skipta miklu fyrir framtiðar- skipulag byggöarinnar. Geta menn snúið sór til einhvers nefndarmanna meö slíkt efni. Að öðru leyti mun nefndin skýra frá tillögum sinum til umbjóöanda og almennings eftir ástæðum, er þær hafa veriö mótaðar i samvinnu við al- mannavarnir. Nýr áfangi á Kanarí blómaeyjan TenerHe Reynsla okkar af óskum islendinga undanfarin 5 ár og sá frábæri árangur sem náöst hefur í Kanarí- eyjaferöum okkar, er þaö sem nú hvetur okkur til aö færa enn út kvíarnar. Viö höfum nú skipulagt feröir til blómaeyjunnar Tenerife, sem af mörgum er talin fegurst Kanarí- eyja, en hún er granneyja Gran Canaría, þar sem þúsundir íslendinga hafa notið hvíldar og hressing- ar á undanförnum árum. í vetur veröa farnar 7 ferðir til Tenerife. Hin fyrsta 14. desember en hin síðasta 4. apríl og er hún jafnframt páskaferð. Dvalið veróur í íbúðum og á þriggja og fjögurra stjörnu hótelum og verðið í tvær vikur er frá 47.900 krónum, sem er það hagstæðasta sem býðst. Sért þú aö hugsa um sólarferð í skammdeginu, þá snúðu þér til okkar. FLUGFÉLAC LOFTLEIDIR LSLANDS Fyrstir með skipulagðar sólarferðir i skammdeginu SJ—Reykjavik. Um mánaðamót- in komu tveir norskir sérfræðing- ar i snjóflóðavörnum til Neskaup- staðar og dvöldust þar i nokkra daga, könnuðu aðstæður og sátu fund með bæjarstjórninni, al- mannavarnanefnd og snjóflóða- nefnd. Þar greindu þeir frá reynslu og aðgerðum Norðmanna I snjóflóðavörnum og rannsókn- um og mati á snjóflóðahættu. Að sögn Loga Kristjánssonar, bæjar- stjóra 1 Neskaupstað er væntan- leg frá sérfræðingunum um mánaöamótin álitsgerðum æski- legar snjóflóðavarnir I kaup- staðnum byggð á könnun þeirra sjálfra og þeim gögnum, sem þegar voru fyrir hendi. Sérfræðingar þessir eru Karstein Lied og Steinar Bekkehöj frá Norges geoteknisk institutt (Jarðtæknistofnun Noregs), en þar var komiö á fót deild til aö vinna að snjóflóöa- vörnum árið 1971, og starfa þeir við hana. Óformlegt samband var haft við stofnunina þegar á sið- asta vetri vegna snjóflóöanna I Neskaupstaö i desember s.l. Sérfræðingarnir komu hingað á vegum snjóflóðanefndarinnar I Neskaupstað, sem skipuð var nýlega, en I henni eru: Haukur Ólafsson, Hjörleifur Guttormsson, Ólafur Gunnars- son, Stefán Þorleifsson og Stefán Pálmason. Sem starfsmaður nefndarinnar var tilnefndur Þór- arinn Magnússon bæjarverkfræð- ingur. Hjörleifur hefur verið kjör- inn formaður nefndarinnar. Strax eftir snjóflóðin miklu I desember I fyrravetur hlutaðist almannavarnanefnd Neskaup- staöar til um aö fram færi athug- un á útbreiðslu flóöanna og fékk Hjörleif Guttormsson til að vinna að þvi verki. Kortlagði hann snjóflóðin og mældi eftir föngum dýpt þeirra stærstu, þannig að unnt væri að gera sér grein fyrir efnismagni þeirra. Jafnframt hélt hann uppi spurnum um meiriháttar snjóflóð, sem fallið heföu I grennd við kaupstaðinn I manna minnum, og dró þannig saman nokkrar heimildir, sem þó eru auðvitáð gloppóttar, og ná skammt, eða um 90 ár aftur i timann. Arkitektastofan sf. sá um teikningu uppdrátta eftir framkomnum upplýsingum, og var þeim skilaö til almanna- varna, bæjarstjórnar og fleiri að- Styðja útfærsluna í 200 mílur Bæjarstjórn Isafjarðar gerði svofellda samþykkt á fundi fyrir helgina: Bæjarstjórn Isafjarðar fagnar útfærslu islenzkrar fiskveiðilög- sögui 200mHur. Jafnframt vekur hún athygli á, að framvegis veröa Islendingar einir dregnir til ábyrgðar á friðun uppeldisstöðva og nýtingu fiskistofna á miðunum umhverfis landið. Þess vegna skorar bæjarstjórn Isafjarðar á stjórnvöld aö setja hið fyrsta lög- gjöf um visindalega verndun fiskistofna og nýtingu þeirra, þannig að bráðum háska af of- veiði og rányrkju verði bægt frá dyrum þjóðarinnar i framtiðinni. Bæjarstjórn telur, að visa beri á bug öllum kröfum erlendra þjóða um undanþágur innan islenzkrar fiskveiðilögsögu, er brjóta i bága við þau fiskverndarsjónarmið, er réttlæta útfærsluna og framtið is- lenzku þjóðarinnar byggist á að verði i heiðri höfð. Kaupið bílmerki Landverndar VerjumH gggróóurl verndum' JandÖ^I Til sölu hjá ESSO og SHELL bensínafgreiðslum og skrifstotu Landverndar Skólavöröustig 25

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.