Tíminn - 21.10.1975, Blaðsíða 16
16
TÍMINN
Þriðjudagur 21. október 1975
Cruyff
til
Cosmos?
HOLLENDINGURINN fljúgandi, I
Johan Cruyff, sem leikur með I
spánska liðinu Barcelona, hefur I
fengið freistandi tilboð frá
bandariska liðinu Cosmos I New _
York. Forráðamenn Cosmos-liðs- I
ins, hafa mikinn áhuga á, að I
Cruyff komi til New York, þegar I
samningur hans við Barcelona ■
rennur út i júni 1976. Cruyff, sem
hefur mikinn áhuga á að gerast
leikmaður á ítaliu eða Frakk-
landi, er nú að kanna tilboðið frá
Cosinos.
ÍR-VÉLIN FÓR í GANG
— þegar „Trukkurinn" fór út af með 5 villur
íR-vélin, undir stjórn
Kristins Jörundssonar, fór
heldur betur í gang, þegar
KR-^trukkurinn" Curtiss
Carter fékk aö hvíla sig —
með 5 villur. Staðan var þá
57:52 fyrir KR-liðið — en
það var sannarlega vatn á
myllu IR-vélarinnar, þeg-
ar „trukkurinn" yfirgaf
vöilinn. Kristinn Jörunds-
son (sem skoraði 28 stig í
leiknum) og félagar hans
tóku þá leikinn í sínar
hendur og unnu góðan sig-
ur 87:81.
Kolbeinn Pálsson, sem hefur
átt við meiðsl að striða, lék aftur
með KR-liðinu — og setti að sjálf-
sögðu skemmtilegan svip á það.
Þessi lágvaxni og skemmtilegi
körfuknattleiksmaður skoraði 30
stig i leiknum, á sama tima og
„trukkurinn” skoraði aðeins 19
stig.
Það stefnir að úrslitaleik milli
IR-inga og Armenninga i Reykja-
vikurmótinu. Armenningar, með
Bandarikjamanninn Jimmy Rog-
ers i fararbroddi, sýndu stórleik
gegn Valsmönnum, sem þeir tóku
i kennslustund. Armenningar
skoruðu 117 stig i leiknum, en
Valsmenn aðeins 68 — mikill
I
KRISTINN JÖRUNDSSON.... átti
mjög góðan leik gegn KR-liðinu —
skoraði 28 stig.
munur það. Rogers sýndi allar
sinar beztu hliðar, bæði i vörn og
sókn — hann skoraði 29 stig. Jón
Sigurðsson var einnig i ham,
skoraði 29 stig, og unglingurinn
stórefnilegi Gunnsteinn Ingi-
marsson, lét ekki sitt eftir liggja
— hann skoraði 31 stig. Það er
greinilegt, að það verður erfitt að
hamra gegn Ármanns-liðinu i
vetur.
Nýliðar Fram voru einnig i
sviðsljósinu um helgina — þeir
veittu stúdentum harða keppni i
æsispennandi leik sem lauk með
sigri IS-liðsins, 57:54.
STÓRSIGUR UNGVERJA
UNGVERJINN Nyilasi var held-
ur betur á skotskónum, þegar
Ungverjar unnu stórsigur (8:1) I
leik gegn Luxemborgarmönnum i
Evrópukeppni landsliða. Nyilasi
skoraði 5 mörk f leiknum, sem fór
fram i Szombathely I Ungverja-
landi. Þrátt fyrir þennan störsig-
ur blanda Ungverjar sér ekki i
baráttuna á toppnum i 2. riðli
keppninnar.
Staðan er nú þannig i riðlinum:
Wales...........5 4 0 1 13:4 8
Austurriki......5 3 1111:6 7
Ungverjaland... .6 3 12 15:8 7
Luxemborg......6006 7:28 0
Wales dugar jafntefli gegn
Austurrikismönnum, þegar þeir
mætast i Wrexham i Wales i sið-
asta leik riðilsins.
ENSKA KNATTSPYRNAN
Stórglæsilegt
mark Pearson's
— þegar AAanchester United skauzt upp á toppinn
með góðum sigri (3:1) yfir Arsenal
STUART PEARSON,
nýliðinn i enska landsliðs-
hópnum, skoraði stórglæsi-
legt mark, þegar
Manchester United vann
góðan sigur (3:1) yfir Ar-
senal á Old Trafford.
Þulur B.B.C. útvarps-
stöðvarinnar átti ekki orð
til að lýsa hrifningu sinni á
markinu, sem Pearson
skoraði eftir sendingu frá
Jimmy Nicholl — Pearson
tók knöttinn niður með
brjóstinu og skaut
viðstöðulaustu skoti, sem
þandi út metmöskva Ar-
senal-marksins — algjör-
1. DEILD i
Birmingham — Leeds ...2:2
Burnley — Q.P.R ..1:0
Coventry — Liverpool ..0:0
Derby —Wolves ..3:2
Everton — Aston Villa ..2:1
Ipswich — Leicester ..1:1
Man.Utd. — Arsenal ..3:1
Middlesb. — WestHam .... ..3:0
Newcastle — Norwich ..5:2
Sheff. Utd. — Stoke . .0:2
Tottenham—Man.City ... ..2:2
2. DEILD
Bolton — Notts C..........2:1
BristolR. — Sunderland....1:0
Charlton — Oldham ........3:1
Chelsea—Blackpool.........2:0
Luton — Fulham ...........1:0
Nott.For. — Southampton ....3:1.
Orient —Carlisle..........1:0
Oxford — Blackburn.........0:0
Portsmouth — Hull.........1:1
W.B.A. — Plymouth.........1:0
York — Bristol C..........1:4
JIMMY GREENHOFF... skoraði
bæði mörk Stoke. Hann hefur
skorað 101 deildarmark.
lega óverjandi skot fyrir
Jimmy Rimmer, mark-
vörð Arsenal og fyrrum
markvörð United-liðsins.
Manchester United-liðið, sem
hefur nú tekið forystuna i
baráttunni um Englands-
meistaratitilinn, sýndi stórgóðan
leik — Leikmennirnir skoruðu
þrjú góð mörk, sem Jimmy
Rimmer réði ekki við. Það var
unglingurinn Stephen Coppell,
sem var hetja United-liðsins.
Hann kom ,,Rauðu djöflunum” á
strikið, þegar hann skoraði glæsi-
legt mark með skalla. En leik-
menn Arsenal, sem sýndu góðan
leik, voru fljótir að jafna. —
Eddie Kelly, fyrirliði Lundúna-
liðsins, svaraði eftir aðeins þrjár
min., þegar hann skoraði gott
mark með þrumufleyg af 3 m
færi. Spennan var mikil fyrir hina
53 þús. áhorfendur, sem lögðu leið
sina á Old Trafford — enda var
leikurinn mjög fjörugur og vel
leikinn af báðum liðum.
STUART PEARSON sveik ekki
hina fjölmörgu áhorfendur, og
hann skoraði stórglæsilegt mark
— eins og fyrr segir — og kom
United-liðinu yfir 2:1. Siðan
innsiglaði Coppell sigur (3:1)
Manchester United, sem hefur
tekið forystuna. — Hin toppliðin
West Ham og Queens Park
Rangers töpuðu sinum leikjum.
FRANK CASPER var hetja
Burnley á Turf Morr, þar sem
hann enn á ný sýndi eftirminni-
legan leik. Casper, sem lék sinn
fyrsta leik i 19 mánuði — hann
hefur gengið undir þrjá uppskurði
vegna meiðsla i hné — skoraði
sigurmark (1:0) Burnley gegn
„spútnikliðinu” Queens Park
Rangers, þegar aðeins voru þrjár
minútur til leiksloka. Hann sendi
knöttinn þá i mark Lundúna-
liðsins, beint úr aukaspyrnu —
Þar með varð 100. deildarmark
hans staðreynd. Casper hefur
skorað 74 deildarmörk fyrir
Burnley, en áður hafði hann
skorað 26 mörk fyrir Rotherham.
JIMMY GREENHOFF, fyrir-
liði Stoke, skoraði einnig sitt 100.
deildarmark á laugardaginn,
þegar hann kom Stoke á strikið
(1:0) gegn Sheffield United á
Bramall Lane. Greenhoff bætti
siðan öðru marki við og innsiglaði
góðan sigur (2:0)
Stoke.Greenhoff hefur skorað 19
deildarmörk fyrir Leeds, 14 fyrir
Birmingham og 68 fyrir Stoke.
Þess má geta, að nýr fram-
kvæmdastjóri — Jimmy Sirrel
—stjórnaði Sheffield-liðinu á
laugardaginn. Sirrel var áður
STUART PEARSON... sést hér fagna marki. Hann skoraði stórglæsl-
legt mark á laugardaginn gegn Arsenal.
framkvæmdastjóri Notts
County.
GRAHAM SOUNESS, Dave
Armstrong og Alan Foggon léku
aðalhlutverkið hjá Middles-
brough, þegar „Boro” yfirspilaði
Lundúnaliðið West Ham á Ayre-
some Park — þeir skoruðu mörk
Middlesborough-liðsins sem
hefur ekki fengið á sig mark á
heimavelli i deildinni. Marvin
Oayátti góðan Ieik i marki West
Ham en réði ekki við mörkin — og
þetta varð þar með fyrsta tap
Lundúnaliðsins á útivelli i
keppnistimabilinu.
GERRY JONES skoraði bæði
mörk Everton gegn Aston Villa —
fyrst með þrumuskoti, en siðan úr
vitaspyrnu. Unglingurinn Bob
Lee skoraði fyrir Leicester á
Portman Road, en Trevor
Whymark tókst að jafna (1:1)
fyrir Ipswich. Malcolm
MacDonald — „Super Mac”
skoraði 2 mörk fyrir Newcastle
gegn Norwich á St. James Park.
Félagihans Alan Gowlingskoraði
einnig tvö mörk — Þeir hafa nú
skorað sin hvor 10 mörkin á
keppnistimabilinu. Markakóng-
urinn Ted MacDougall skoraði
eitt mark i leiknum — sitt 16.
mark á keppnistimabilinu — en
það dugði ekki gegn Newcastle,
sem vann stórsigur (5:2)
ALLAN CLARKE átti snlldar-
leik, þegar Leeds náði að vinna
upp tveggja marka (2:0) forystu
Birmingham á St. Andrews.