Tíminn - 22.10.1975, Blaðsíða 16

Tíminn - 22.10.1975, Blaðsíða 16
16 TÍMINN Mittvikudagur 22. október lUmsjón: Sigmundur ó. Steinarsson= — segir ísiendingurinn Halldór Eggertsson, sem er formaður knattspyrnufélagsins Fram í Los Angeles „Bandaríkin verða orðin stórveldi í knattspyrnu innan 10 dra" — Ég er ekki i nokkrum vafa um að Bandaríkin verða orðin stórveldi í knattspyrnu innan 10 ára. Knattspyrnan þar er á hraðri uppleið og áhuginn fyrir henni er orðinn gífurlega mikill, sagði íslendingurinn Halldór Eggertsson, sem er formaður eins stærsta knattspyrnu- félags Los Angel-borgar — Fram, þegar blaða- maður Tímans ræddi við hann um knattspyrnuna i Bandarikjunum. Undanfarin ár hafa Banda* rikjamenn verið að byggja upp knattspyrnuna hjá sér — og unnið að þvi af kappi og áhuga að innleiða hana i Bandarikin. Mikið var rætt og skrifað um knattspyrnuna i Bandarikjunum fyrir nokkr- um árum. Þá streymdu knatt- spyrnumenn frá Evrópulönd- unum til Bandarikjanna, sem varð á skömmum tima gósen- land knattspyrnumanna — enda vörðu Bandarikjamenn miklu fé til að fá góða knatt- spyrnumenn til að koma þang- aö og leika með bandariskum knattspyrnuliðum. Til að byrja með virtist þetta ætla að gefa góða raun, enda var knattspyrnan i Bandarikjun- um þá mikið auglýst — og fólk kom á völlinn til að forvitnast um hvað væri að gerast. En fljótlega kom það fram, að Bandarikjamenn höfðu ekki mikinn áhuga á knattspyrnu. — Hverja telur þú ástæðuna fyrir þvi, að knattspyrnan átti erfitt uppdráttar á þessum tima, Halldór? — Ástæðan fyrir þvi var sú, að Bandarikjamenn byrjuðu á þvi, að byggja knattspyrnuna upp á rangan hátt. Þeir byrj- uðu á toppinum — ætluðu sér að kaupa inn leikmenn frá öðrum löndum, og láta þá leika fyrir eldri kynslóðina. Þeirgleymdu algjörlega yngri kynslóðinni, og þvi fór sem fór. — Nú hafa Bandarikjamenn lagt mikið kapp á, að kynna knattspyrnu fyrir ungum pilt- um, og leggja mikið kapp á að ala upp leikmenn. Árangurinn lætur ekki á sér standa, eins og sést bezt á þvi, að fyrir 7 ár- um voru aðeins 6 félög i Los Angeles, en nú eru þau orðin 180 — og þar að auki eru i borginni 5-600 unglingalið. — Er áhuginn inikiil hjá ungu piltunum? — Já, hann er geysilega mikill, og einnig hjá foreldr- um drengjanna, sem koma til HALLPÓR VIGFOSSON.... tslendingurinn, sem stjórnar einu bezta knattspyrnuliði Los Angeies-borgar. (Tlmamynd G.E.) að hvetja þá i keppni. Ahuginn er nú orðinn mjög mikill á knattspyrnu, og ég efast ekki um, að knattspyrna verður orð in einvinsælasta iþróttagrein- in innan 10 ára. Unglingar æfa miklu frekar knattspyrnu, heldur en bandarisku knatt- spyrnuna — „Rugby”. Bæði er ódýrara fyrir unglinga að stunda knattspyrnu, og þar að auki er ekki eins mikil slysa- hætt I henni og „Rugby”. — Hefur knattspyrnu- sniliingurinn Pele frá Brasilfu haft góð áhrif á knattspyrnuna i Bandarikjunum? — Já, það hefur hann svo sannarlega gert. Áhuginn hef- ur aukizt og nú eru þetta 25-30 þús. áhorfendur á kappleikj- um stóru félaganna. Pele og félagar hans i Cosmos komu til Los Angeles fyrir stuttu. — Þá léku þeir fyrir fullum velli af áhorfendum. — En Halldór, hvað viltu segja okkur um félagið þitt — Fram- — Fram var stofnað 1961 af Islendingum og Norðmönnum, og var aðstaða félagsins i norsku sjómannakirkjunni i Los Angeles. Upphaflega var safnað saman liði til að leika gegn áhöfnum á erlendum skipum, sem komu til borgar- innar. En fljótlega færði félag- ið út kviarnar, — og nú leikur félagið um 100 leiki á ári. — Félagið hefur þrjú unglingalið innan sinna vébanda og tvö karlalið. Félagið varð Los Angeles-meistari 1967 og siðan hefur það verið i fremstu röð. Við höfum verið að ala. upp unga leikmenn sl. 6 ár, sem eru nú orðnir mjög góðir. — Það eru piltar á aldrinum 17- 18 ára, og er þvi ekki langt að biða, að þeir geti farið að leika með aðalliði félagsins, sagði Halldór. Þess má að lokum geta, að Halldór Eggertsson, sem er flugvirki að mennt, hefur ver- ið búsettur I Los Angeles um tiu ára skeið — hann starfaði áður hjá Flugfélagi Islands. JÓN HÉÐINSSON.... stýrimattur, sést hér mett bikarana, sem áhöfnin á Grundarfossi vann til eignar I Rotterdam og Antwerpen. (Timamynd Róbert) Islenzkir sjómenn sigursælir ó alþjóðlegum íþróttamófum: Notuðu matartímann til að kep| 30 í boðhlauc H Sjómennirnir okkar hafa veritt sigursælir I alþjóttlegum iþróttamótum, sem þeir hafa tekitt þátt i I erlendum hafnarborgum. Eins og vitt höf- um sagt frá, þá vann áhöfnin á Goöafossi frækilegan sigur i Norfoik i Bandarikjunum í sumar. Áhöfnin á Grundarfossi var einnig I sviös- ljósinu i sumar — tryggöi sér tvo verölaunabikara I hafnarborgunum frægu, Rotterdam I Holiandi og Antverpen I Belgíu. — Ahuginn var mikill um borð. Það mikill, að strákarnir brugðu sér í land i matartimanum, til að keppa I boðhlaupi, sagði Jón Vigfússon, stýrimaður, þegar við brugðum okkur um borð I Grundarfoss. — Allir I áhöfninni tóku þátt i keppnunum i Rotterdam og Antwerpen, en við vorum I þriðja sæti af áhöfnum af 45skipum, Ibæðiskiptin. Willy Petersen náði beztum árangri af áhöfn Grundarfoss — hann varð annar i hástökki i Rotterdam, stökk 1.47 m, sem er ágætur árangur.Þá var hann þriðji I kúluvarpi (10.18 m) og langstökki (4.87 m) Willy varð einnig þriðji, þegar samanlagður árangur var reiknaðurút — hlautsamtals 1450 stig. Hann komst þvi fjórum sinnum á verðlaunapallinn. í keppninni I Rotterdam, þar sem keppt var i aldursflokkum, varð Willy þriðji i kúluvarpi i slnum flokk og Jón Héðinsson nældi sér I silfurverðlaun i sinum flokk. HVAÐ GERA HAUKAR GEGN í íþróttahúsinu í Hafnarfjarðarliðin Haukar og FH leiða saman hesta sina i iþróttahúsinu i Hafnar- firði i kvöid, i 1. deildar- keppninni i handknatt- leik. Það má búast við geysilega hörðum og fjörugum leik, eins og alltaf þegar að þessir erkifjendur mætast. Haukar sýndu mjög góðan leik gegn Viking- um á sunnudaginn, þeg- FH? Hafnarfirði í kvöld ar þeir sigruðu íslands- meistarana með 8 marka mun — 22:14. Nú er spurningin, hvað era þeir við bikarmeistara FH? Guðmundur Sveinsson, fyrrum leikmaður Fram, leikur með FH-liðinu i kvöld, og er ekki að efa að hann lifgar upp á sóknar- leik FH-liðsins, sem átti heldur lélegari leik gegn Gróttu á laugar- daginn. Tveir leikir verða leiknir i Hafnarfirði i kvöld — Fram mætir Gróttu kl. 20.15 og strax á eftir þeim leik keppa Haukar og FH-ingar.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.