Tíminn - 26.10.1975, Blaðsíða 15

Tíminn - 26.10.1975, Blaðsíða 15
Sunnudagur 26. október 1975. Þau komust undan: Gunther Neukirchner og dóttirin Birgit (lengst til vinstri). Sorgleg endalok: H e 1 g a N e u - kirchner var skotin niöur, fá- um skrefum frá þyrlunni. Teddy haföi heyrt skot i fyrsta skiptið, en þá voru þaö bara skellir í sætisól- unum. loftinu, að enginn timi er til aö hugsa um annað. Um það bil tveimur kilómetr- um handan við landamærin birt- ist Moldárvatnið fyrir neðan okk- ur. Ég lækkaði mig svo mikið að þyrlan var ekki nema svo sem einn metra yfir vatnsborðinu. Við vildum með þvi forðast það að sæist til okkar. Það sem svo gerðist, skipti eng- um togum. Ég lenti þyrlunni á staðnum, sem áður hafði verið ákveðinn, Teddy stökk vinstra megin út, hjálpaði flóttafólkinu, sem stóð þarna tilbúið, inn, og stökk svo sjálfur á eftir og lokaði hurðinni. Svona var þetta einfalt. Ég leit aftur á klukkuna, þetta hafði tekið nákvæmlega tiu sekúndur. Við flugum i lágflugi til baka yfir vatnið, og hækkuðum okkur svo og flugum inn i Austurriki, og siðan inn i Þýzka lýðveldið. Bak við mig heyrði ég háværar raddir flóttamannanna, sem þökkuðu Teddy i sifellu. Að lokum, þegar við höfðum lent i Miinchen, fór ég með Teddy inn i veitingastaðinn á flugvellin- um. Þar sat Putti og beið. Þegar hún sá okkur sagði hún og virtist alveg róleg: „Jæja, þit eruð komnir.” En ég tók að sjálfsögðu eftir þvi, að öskubakkinn fyrir framan hana var fleytifullur. Ég sá endalok mín, en fannst það samt hlægilegt. Hverjirflóttamennirnir voru og hvaö um þá varð, vissi ég aldrei. Ég hef hins vegar heyrt, að einkaritariumbjóðanda mins hafi verið i hópnum. Hún vann til árs- ins 1973 á skrifstofu i Austur- Berlin. Þá þurfti vinnuveitandi hennar að flýja skyndilega til Vestur- landa. Oryggislögregla Austur- Þýzkalands hafði komizt að þvi, að hann hafði með leynd lagt á ráðin og komið i kring flótta fjölda manns. Tveimur dögum seinna flugum við Teddy aftur til Moldárvatns- ins. Allt var nákvæmlega eins og á föstudeginum áður, og eins og það hafði verið i allra fyrsta skiptið, en það var þangað fyrir einu ári. Málafærslumaðurinn, sem var litið málgefinn, hafði aftur afhent mér 10.000 mörk. Hann hafði valið flóttamennina og hringt i mig. Og við Putti höfðum aftur átt sára en stutta kveðjustund. Ég flaug aftur i eins metra hæð yfir vatninu, þegar Teddy leit skelfdur á mig. Fólkið, sem við áttum að flytja til Vesturlanda, var ekki á hinum fyrirfram ákveðna stað! Ég flaug smábeygju. Þá sáum við flóttafólkið. Það húkti i hné- háu grasinu nokkur hundruð metra i burtu. Ég sá strax að þarna var ekki nógu slétt, til að ég gæti lent. Ég gat valið um að hætta við verkið, eða taka áhættuna við að biða nokkrar endalausar sekúndur i viðbót fyrir innan járntjaldið. Núna eftir að þetta mistókst sver ég sjálfum mér: Ég mun að vfsu i framtíðinni ná í fólk úr austrinu, ef ég verð beðinn um það, en ég kem ekki nálægt því, ef allt er ekki eins og skipulagt var fyrirfram. Þennan sunnudag tók ég áhætt- una. Ég flaug til fólksins og Teddy gaf þeim merki meðan við sveimuðum rétt yfir höfðum þeirra, og þau áttu eftir merki hans að hlaupa á annan stað, þar sem við mundum lenda rétt strax. Sá staður var i um það bil tvö hundruð metra fjarlægð. Landið hallaði um það bil 30 gráður. Ég gat þvi aðeins tyllt öðrum kjálkanum niður, hinn var á lofti. Teddy stökk út til að hjálpa flótta- mönnunum. Ég horfði á hvernig fjórmenningarnir hlupu til okkar i gegnum hnéhátt grasið. Ég hélt á myndavél i' annari hendi, sem mér virðist i dag kærulaust, til þess að mynda svæðið. Flugkortiö útataö i blóöi, meö leiöinni til sjúkrahússins. Barry og Putti. Hann hélt ekki út á sjúkrahúsinu og strauk með aöstoö kærustunnar. Fyrstur kom ungur piltur aö þyrlunni og á hæla honum eldri maöur. Báðir stukku inn um vinstri dyrnar og hnipruðu sig saman aftur i. 14ára stúlka kom næst. í nokk- urra skrefa fjarlægð féll hún allt i einu og úr sári á vinstra læri hennar rann blóð. — Ég hafði ekki heyrt skotin fyrir hávaðanum i mótornum. Siðan gerðist allt i einu. Teddy stökk til stúlkunnar og dró hana i átt að þyrlunni. A sama augnabliki fann ég til sársauka I vinstri handlegg og siðunni. Við hlið mér sá ég litið gat á glugganum. Ég man ennþá nákvæmlega hvað ég hugsaði: Svona getur endirinn þá orðið: Hlægilega litið gat á rúðunni og ekki einu sinni svo mjög mikill sársauki. Ég leit niður og sá, að kúlan hafði farið i gegnum vinstri oln- bogann og strokizt siðan við rif- beinin. Ég öskraði á Teddy, þó að ég vissi að hann heyrði ekki Teddy og siðasti flóttamaður- inn voru enn fyrir utan, i um það bil tuttugu skrefa fjarlægð. Ég öskraði: „Teddy, Teddy!” Ég mátti ekki vera einni sekúndu lengur á jörðinni. Það var eina leiðin til að sleppa, að fara strax á loft. En ég vissi auðvitað, að Teddy gat ekki heyrt hróp min i vélar- hávaðanum. Hann hljóp til flótta- konunnar, sem hljóp upp á lif og dauða. Allt i einu féll hún, skot hafði hitt hana. Ég átti engra kosta völ, en fór af stað. Teddy og konuna, hún heitir Helga Naukirchner, varð ég að skilja eftir. Hvað þau henti á næstu sekúndum, veit ég ekki, ég veit bara, að ég hef ekki verið eins örvæntingarfullur i mörg ár, eins og á þessum augnablikum. Það skipti mig þvi ekki svo miklu, er ég tók eftir þvi' rétt eftir Stórskotahriö og niðurskotnar flugvélar hræöa ævintýramanninn ekki, siöan hann flaug sem orustuflugmaöur á þessari vél i Vietnam. Hann undrast enn, aö hann slapp svona vel. að ég fór af stað, að vélin var far- in að tapa orku, svo að um mun- aði. Seinna kom i ljós að þessir góðu herrar með markrifflana höfðu hæft túrbinuna i þrýstiloftshreyfli þyrlunnar og heppni má teljast, að hægt var að fljúga þyrlunni, eins og hún var mikið skemmd. Ég hafði i huga að lenda á þyrluvelli sjúkrahússins i Burg- hausen. En vegna þess að landa- kortið var allt orðið útatað i blóði, gat ég ei fundið þetta þorpskrili. Þá sá ég allt i einu Chiemvatnið fyrir neðan mig. Ég vissi alveg að þar i nágrenninu var bærinn Traunstein. Þar er sjúkrahús,' sem lika hefur þyrluvöll. Ég hafði oft lent þar, meðan ég flaug i sjúkraflutningum. Sjúkraliðarnir, sem hlupu út að vélinni þennan sunnudag, voru ekki lítið hissa: „Hvert þó I heit- asta... Barry, hvað ert þú að gera hér. Það blæðir úr þér!” Eg gaf ekki langa skýringu, heldur hljóp i næsta sima og hringdi i flugvallarveitingastað- inn i Múnchen, þar sem Putti beið. Ég sagði: „Heyrðu, ég verð seinn fyrir. Ég varð fyrir óhappi. Ég er I sjúkrahúsinu i Traun- stein.” Til frekari meðhöndlunar var farið með mig á herbergi 505. Ég hafði gott af þvi að hvilast, en sjúkrahússrúm er eitt og rúmið mittheima er annað. Þess vegna skuluð þið ekki vera hissa á þvi, þótt ég hafi stolizt burtu eins og þjófur á nóttu úr þessu notalega sjúkrahúsi. Mér kann að skjátl- ast, en ég held að Putti, sem hjálpaði mér til þess að strjúka, hafi haft enn meiri hita en ég við það tækifæri. Frásögn min hljómar ef til vill æsandi fyrir venjulegan borgara. En þið megið trúa þvi, að ég þekki lika hversdagsleikann. Ekkert hefur komib mér meira i uppnám, en þessi hversdagsleiki. Ég bein- linis þoldi hann ekki. Hugsið ykkur, að vinna i einum af skrifstofuturnum i New York. Þú byrjar á minútunni niu og hættir á minútunni fimm. Það þýðir: daglega sama þófið, sama skrifborðið, á hverjum degi sömu andlitin i kringum þig og þú verð- ur að hlusta daglega á sömu áhyggjur samverkamanna þinna og hlæja að sömu börndurunum. Ég fékk nóg af þessu einn dag- inn. Það var daginn, sem ég ákvað aö verða það, sem kallað er ævin- týramaður. En hvernig verður maður það. Það er ekki ráðlegt að fara á næstu ráöningastofu og spyrja i deild A — D: „Hafið þér nokkra vinnu fyrir ævintýramenn?”

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.