Tíminn - 26.10.1975, Qupperneq 16
16
TÍMINN
Sunnudagur 26. október 1975.
Hjónin Guðrún Arnadóttir og
Alfreft Kuftni uiidsson á heimili
sinu. Myndirnar á veggjun-
um eru allar eftir Kjarval. Þær
heita talift frá vinstri:
FELUMYND, RADIO
REYK.JAVÍK, SÓLBAÐ, og
lengst til hægri er hin fræga
mynd UPPRISAN OG LÍFIÐ.
Dæmigert ,,kjar*
valskt" heimTtT
JG-Reykjavik. — Meðal vina
Jóhannesar Kjarvals var
Alfreð Guðmundsson, for-
stöðumaður Kjarvalsstaða.
Alfreð kynntist Kjarval fyrir
um það bil 40 árum „niðri i
Austurstræti”, og myndaðist
þar vinátta, sem aldrei þvarr.
Var Kjarval heimilisvinur hjá
þeim hjónum Alfreð Guðmunds-
syni og Guðrúnu Arnadóttur.
Alfreð vann við að koma upp
nokkrum sýningum lista-
mannsins eða aðstoðaði hann við
það. Hann byrjaði snemma að
kaupa myndir Kjarvals og
annarra þekktra listamanna.
Heimili þeirra hjóna verður að
teljast dæmigert fyrir „kjar-
völsk” heimili, sem mörg hver
minna listasöfn.
ÞRIR HAUSAR, oliumálverk eftir Kjarval .
SVEFNBEKKJA
HöfOatúnl 2 - S(ml 15581
Reykjavík
ATHUGIÐ! Nýir eigendur. — ódýrlr svefnbekkir, einbreiöir og tví-
breiðir, stækkanlegir. Svefnstólarog svefnsófasett væntanlegt. Falleg
ákiæfti nýkomin.
Gjörið svo vel að líta við eða hringja. Sendum gegn póstkröfu um land
allt. Opið til kl. 22 þriðjudaga og föstudaga og til kl. 1 laugardaga. —
Athugið, nýir eigendur.
Alfreft i borftstoí'unni.
Þar getur aft lita cftir-
greindar Kjarvalsmyndir,
talift frá vinstri:
BLÓM LANDSLAG,
GALGAKLETTURog
SÉÐ YFIR FLJÖTSDAL.
AUGLÝSIÐ
í TÍMANUM
— HALOGEN
aðalljós
samfellur
þokulj ós
Ármúla 7 - Sími 8-44-50
H/F
Ný dönsk
frímerkjablokk
Þá er ákveðið að gefa út aðra
frimerkjablokk i Danmörku og
er tilefnið ennþá frimerkjasýn-
ingin „HAFNIA-76”. Eins og
fyrri blokkin er þessi með yfir-
verði, sem gengur til að bera
kostnaö af sýningarhaldinu.
Blokkin kemur út þann 20.
nóvember og eru verðgildi fri-
merkjanna i henni, 50 aurar, 70
aurar, 90 aurar og 1,30 kr. Þá
eru eftir kr. 1,60 sem ganga til
frimerk jasýningarinnar, en
blokkin verður seld á 5,00 kr.
eins og sú fyrri.
Segja má, að 3menn hafi fyrst
og fremst unnið að gerð blokk-
arinnar, en það eru teiknarinn,
Holger Philipsen, grafarinn
Czeslaw Slania og forstjóri fri-
merkjaprentsmiðju dönsku
póststjórnarinnar, Ricaedo
Sundgaard.
Uppbygging
Þessi minningablokk er byggð
upp á þann hátt að sýnd eru
merki þau, sem notuð voru á
skildingatimabilinu i Dan-
mörku. Er það rökrétt framhald
af fyrri blokinni, sem sýndi
myndir af tillögum, sem aldrei
voru gefnar út. Nú eru myndir
af fjórum frimerkjagerðum
skildingati'mans. Fyrsta merk-
inu 4 R.B.S. brúnt, öðru merk-
inu, sem er af allt annarri gerð,
2 R.B.S. Eitt merki er tekið úr
hinni svonefndu „VSbentype”
frá 1864 cg eitt af tvilitagerðinni
frá 1870. Af öllum þessum
merkjum hafa verið valin þekkt
afbrigði til að sýna á örkinni. Þá
er ennfremur grunnprentun á
örkinni, eins og þeirri fyrstu, en
fyrstu skildingamerkin höfðu
einmitt sérkennilega grunn-
prentun. Við það er notuð ný að-
ferð, sem Richardo Sundgaard
hefir þróað með aðstoð Bonde &
Co, prentsmiðjunnar i Kirke,
sem nefnist: stálstunga i djúp-
prentun. Prentunaraðferð þessi
er allt of flókin til að fara að lýsa
henni hér, enda notuð nú i fyrsta
skipti við frimerkjaprentun.
Afbrigðin.
A 4 R.B.S., merkinu er sýnt
afbrigðið, sem oft er nefnt
„Pemberton”s tviprent. Þetta
afbrigði finnst á merki nr. 19 i
örkinni af útgáfunni frá 1. april
1851.
2 R.B.S. hafa svo afbrigðið
oddhvasst fótstrik, sem er iupp-
runalegu prentuninni i merki
nr. 56 i plötu nr. 2 i prentuninni
frá 1. mai 1851. Þá má einnig sjá
vinstra megin i merkinu hak að
ofanverðu dropa að neðan.
í 2 skildingurlum af „váben-
type” er skemmdi ramminn i
ovalnum i merki nr. 71 i örkinni
i prentun IV-VII.
Þá er tvilita útgáfan með
öfugum ramma, en það fyrir-
bæri þekkjum við einnig úr is-
lenzku auramerkjaútgáfunni.
Frimerkjafræðingar þeir,
sem hafa aðstoðað við gerð
þessara merkja, eru m.a. Stig
Andersen, Jörgen Gotfredsen og
Ehlern Jessen.
Þess þarf vart að geta, að
litur merkjanna er eins nærri
raunveruleikanum og hægt
er,nema vitanlega pappirinn.
Áletrun arkarinnar myndar svo
ramma utanum merkin. Þá má
og geta þess, að öll eru merkin
með verðgildum til raunhæfrar
notkunar. 50aurar prent innan-
lands. 70 aurar kort innanlands.
90aurar bréf innanlands og 1,30
bréf til útlanda.
Aritun pantana er til: Postens
Filateli, Rádhuspladsen 59, DK-
1550 Köbenhavn V, en auðveld-
ast er að láta þann frimerkja-
kaupmanna, sem þið skiptið við
panta þær.
Þessmá geta að fyrri blokk er
gersamlega uppseld.
Danmörk, frimerkjabiokk 2.