Tíminn - 04.11.1975, Síða 2
2
TÍMINN
Þriöjudagur 4. nóvember 1975
Stórtjón ó Eyrarbakka:
ALLIR BÁTAR í EYRAR-
BAKKAHÖFN EYÐILÖGÐUST
— gífurlegar skemmdir ó öðrum mannvirkjum
SJ-Reykjavik. í óveðiri
og stórbrimi, sem varð
á Eyrarbakka i fyrri-
nótt, eyðilögðust þrir af
sjö bátum þorpsbúa
eða allir bátar sem i
höfninni voru. Sólborg
84 tn stálbátur, sem lá
yzt við bryggjuna slitn-
aði upp og fór upp á
hafnargarðinn, en
MÓ—Reykjavík. Markús Ein-
arsson veöurfræöingur sagði i
gær, að lægöarmiðjan, sem var
skammt suðvestan við landið,
hefði þokazt norðaustur yfir
Faxaflóa, norður yfir Húnaflóa
og norður fyrir land. Af hennar
völdum heföi suðvestan hvass-
viöri og stormur gengið yfir,
einkum suðvestanlands.
Markús sagöi, að ástæðan
fyrir þvi, hve mikið tjón varð
sums staðar, væri vegna
þriggja samverkandi þátta. 1
fyrsta lagi hefði suðvestanáttin
færðist siðan niður aft-
ur og liggur nú utan. i
honum. Báðar siður
skipsins eru brotnar og
sjór i vélarrúmi, lest-
um og vistarverum.
Tveir bátar voru innar
i höfninni, Skúli fógeti
27 tn og Sleipnir 11 tn.
Sukku þeir i veðrinu og
sást hvorki tangur af
átt upptök sin alllangt suðvestur
i hafi, og úthafsaldan þvi brotn-
að af miklum þunga á landinu. I
öðru lagi hefði lægðarmiðjan
gengið mjög nærri og þess
vegna hefði sjávarborðið lyfzt
um allt aö hálfan metra. Loft-
þrýstingurinn i lægðarmiðjunni
var aðeins um 950 mb., sem er
50 til 60 mb.lægra en að meðal-
tali. í þriðja lagi var svo siðla
nætur stórstreymt, og hafði það
aö sjálfsögðu mikil áhrif. En nú
sagði hann að veðrið væri að
ganga niður, og ætti þvi ekki að
vera mikil hætta úr þessu.
þeim né tetur siðdegis i
gær, en þeir eru undir
Sólborgu. Talið er að
Sólborgin hafi borizt
ineð veðrinu á og yfir
minni skipin. Brjót
garðar kringum
hafnarkvina hafa riðl-
azt og minni skipin og
brú, sem var á milli
þeirra á einum stað er
alveg horfin.
Þá brotnaði veggur
og gólf i saltfisk-
geymslu frystihússins
sjávarmegin, og voru
þar tvennar dyr opnar
inn i frystihúsið og
þorpið siðdegis i gær.
Unnið var að þvi að
birgja dyrnar svo sjór
gengi ekki þar einn
óhindrað ef óveður
skylli á aftur. Sömu-
leiöis var innkeyrsla i
frystihúsið ónýt.
Auk þessa liafa
varnargarðar við
Eyrarbakka rofnað á
mörgum stöðum, vegir
eru stórskemmdir, svo
og rafmagnslinur og
vatnsleiðslur. Holræsa-
kerfið er i ólestri og
stóðu gosbrunnar upp
úr þvi á inörgum stöð-
um þegar þorpsbúar
komu á fætur i gær-
morgun.
Sjór flæddi inn i tugi
kjallara og skemmdust
heimilistæki viða og
oiiukyndingartæki og
voru mörg hús óupphit-
uð i gær af þeim sök-
um.
Landbrot hefur orðið
á einum stað 10-15
inetra inn frá fjörunni.
— Ég kalla það vel sloppið ef
tjónið, sem varð hér i óveðrinu i
nótt nemur ekki meira en 100
milljónum króna, sagði Þór
Hagalin sveitarstjóri Eyrar-
bakkahrepps siðdegis i gær. —
Við höfum einbeitt okkur að þvi
að loka sjóinn úti, endurbæta
varnargarða og fylla i sjávar-
bakka sem sópazt hafa burt.
Ekkert ráðrúm hefur gefizt enn
til að kanna hve mikið tjón hefur
orðið i allt, en bátarnir þrir, sem
eyðilögöust eru 70milljón króna
virði.
Það er ekkert smávegis tjón,
sem orðið hefur á Eyrarbakka,
þar sem nú búa um 570 manns.
Þegar Timamenn fóru þar um
siðdegis i gær gat enn að lita
þang og spýtnabrak á götum
þorpsins, en búið var að ryðja
burt stórgrýti, sem barst á land
i sjóganginum. Brimið hamað-
ist úti fyrir, en þó hafði mikið
lægt frá þvi i fyrrinótt og gær-
morgun.
Viða voru sjóvarnargarðar
rofnir og verið var að aka þang-
að grjóti, sem sækja þurfti alla
leið i Ingólfsfjall, og eins brugðu
forráðamenn Istaks h.f., sem er
aðili að hafnargerð i Þorláks-
höfn við, og sendu marga bil-
farma af grjóti þaðan. í miðju
þorpinu hefur orðið mikið land-
brot við sjóinn og ef það kemst
nokkrum metrum lengra flæðir
sjórinn hömlulaust inn i þorpið á
flóði. Þarna var sem óðast verið
að aka i grjóti og sandi.
Vegirnir vestast i þorpinu við
höfnina eru nánast horfnir. Þar
sem áður voru upphlaðnir vegir
eru nú niðurgrafnar slóðir i
bakkana við ströndina. Vatns-
leiðslur, sem voru á hálfsannars
til tveggja metra dýpi i jörðu,
fundust marga metra frá upp-
haflegpm stað sinum og ofan á
jarðveginum. Var þetta á tvö-
hundruð'metra kafla.
— Menn voru niðri á bryggju
að reyna Sð binda bátana niður
fram undir það að þeir slitnuðu
upp, sagði Þór Hagalin sveitar-
stjóri. En siðar varð ekki nokkr-
um manni fært þarna fram,
bryggjan var eins og eyja um-
flotin sjó og mannhæðarháar
öldur gengu þar yfir allt. Það
var mesta guðsmildi að enginn
var þar þegar veðrið var verst.
Það veit enginn hvernig þetta
hefur i raun og veru gerzt, en
ummerkin sýna glögglega að
mikið'hefur gengið á.
— Það einkennilega var að
flestir þorpsbúar höfðu ekki
hugmynd um hvað átti sér stað
hér þá þrjá, fjóra tima sem
veðrið var verst. Þegar skip-
stjórarnirá bátunum sögðu mér
hvert stefndi um þrjúleytið töld-
um við ráðlegast að kalla ekki
út fjölda manns i næturmyrkri
og óveðri, enda hefði það verið
að bjóða aukinni hættu heim.
Varzla var höfð á þorpinu það
Stórstreymi, lógur loft-
þrýstingur og suðvestan
ofsaveður lögðust á eitt
OHAPP VIÐ
KRÖFLUVIRKJUN
Þungur steinbiti brotnaði
MÓ-Reykjavik. Það óhapp varð
við Kröfluvirkjun i gær, þegar
verið var að hifa upp þungan
strengjasteypubita i þak
stöövarhúss, að bitinn brotnaði
og féll niður. Engan mann
sakaði, en skemmdir urðu á
bómustykki kranans, sem
notaöur var við hif inguna og gat
kom á gólf hússins.
Að sögn Sverris Þórólfssonar
er ekkert vitað hvað óhappinu
olli, en þetta var fyrsti bitinn,
sem hifður var i þakið. Verið er
að kanna hver ástæðan kunni að
vera, og verða niðurstöður
þeirrar rannsóknar væntanlega
kunnar siðar i dag.
Bitarnir eru framleiddir á
Akureyri og bjóst Sverrir við að
breyta þyrfti hifingarfestingum
til að hægt væri að hifa bitana
upp. Hætt er við að óhapp þetta
valdi einhverjum töfum, en ekki
var i dag vitað hvort þær yrðu
mjög miklar.
ÞESSI
EINA
TEGUND
HENTAR
í ALLT
| Tvöföld ending
Fæst í flestum
kaupfélögum
(ÆTTI AÐ
FÁST í
ÖLLUM)
Ljóðasaf n Magnúsar Ás-
geirssonar í 2 bindum
HELGAFELL hefur gefið út
ljóðasafn Magnúsar Asgeirsson-
ar, frumort ljóð og þýöingar, i
tveimur bindum. Er þar komiö á
einn stað allt það, sem Magnús
afrekaði á þessu sviði, og er það
eins og sjá má ærið að vöxtum.
Hitt skiptir þó meginmáli, að þýð-
ingar Magnúsar eru meðal þess,
sem hæst ber i bókmenntum okk-
ar á þessari öld.
Um útgáfuna sáu þau Anna
Guðmundsdóttir, ekkja Magnús-
ar, og Kristján Karlsson bók-
menntafræðingur. Er útgáfunni
fylgt úr hlaði með nokkrum
formálsorðum önnu og ritgerö
útgefandans, Ragnars Jónssonar,
er upphaflega birtist sem eftir-
mælagrein við andlát Magnúsar.
Bækur Magnúsar bæði æskuljóö
hans frumsamin, Siðkveld, og
þýðingar, hafa lengi verið ófáan-
legar langflestar, nema örsjald:
ar, að þeim bregður fyrir i
fornbókaverzlunum, og þá á þvi
afarverði, sem gamlar og eftir-
sóttar bækur hafa komizt i á sið-
ari árum. Verk hans hafa þess
vegna fáum verið tiltæk á seinni
árum, nema i bókasöfnum og á
heimilum bókamanna.
Það er þess vegna hið mesta
þarfaverk að gefa þau út i heild,
svo að almenningur geti á ný átt
kost á þvi að eignast ljóðaþýðing-
ar hans og ljóð i heild, svo að verk
hans megi halda áfram að vera
gleðigjafi nýrri kynslóð, glæða
fegurðarskyn hennar og mál-
smekk og vera henni brunnur
hugmynda.
Magnús Asgeirsson
Vatnslaust
í Eyjum!
Mó.-Reykjavik.Vatnslaust varð i
Vestmannaeyjum i gær. Leiðsla
fór sundur fyrir neðan bæinn
Bakka á Landeyjum, en búizt var
við að viðgerð yrði lokið siðdegis i
gær og eðlilegt vatnsrennsli kom-
ið á i dag.
Venjulega eru til i Eyjum vatns
birgðir, sem endast i hálfan ann-
an sólarhring þó að bili vatns-
leiðsla, en nú voru litlar birgðir
til, og lágu til þess margar sam-
verkandi ástæður, að sögn Páls
Zophoniassonar bæjarverkfræð-
ings i Vestmannaeyjum. Ekki
mun vatnsleysið hafa haft neinar
alvarlegar afleiðingar, t.d. gátu
frystihúsin notað sjó á vélarnar.
Ármannstellsmálið
aftur til saksóknara
BH—Reykjavík. — Armannsfells-
málið er komið aftur frá saka-
dómaraembættinu til rikissak-
sóknara, eftir að fram hafði fariö
itarlegri könnun á tilteknum at-
riðum þess. Þórður Björnsson,
rikissaksóknari tjáöi Timanum i
gær, að málið væri nú i athugun
hjá embættinu.
MIKIÐ BYGGT I VOGUM
EN MINNKANDI SJÓSÓKN
Mó—Reykjavik. Það er mikið
byggt i Vogum á Vatnsleysu-
strönd, og munu nú vera 15 til 20
Ibúðarhús þar i byggingu, að sögn
Guðlaugs Aöalsteinssonar. Hins
vegar er mjög dökkt útlit með
vinnu i frystihúsunum.
Frystihúsið Vogur hf. hefur lokað
og sagt öllu starfsfólki upp, og
Guðlaugur Aðalsteinsson hefur
leigt hraðfrystihús sitt hluta-
félaginu Léttmink. Er það nú
notað sem minkafóðurstöð, og
fiskúrgangur og annað minnka-
fóöur malað þar og blandað bæti-
efnum. Siðan er það flutt tilbúið i
minkabúin.
Tveir bátar gera nú út með
ýsunet, en afla ekki nema rétt i
soðið. Er það mikill munur, eða á
sama tima og I fyrra, þegar bát-
arnir komu iðulega með 11 tonn
úr róðri.
Þrátt fyrir þetta eru engir
menn á atvinnuleysisskrá, enda
vinna menn úr Vogum á Kefla-
vikurvelli, i Straumsvik eða jafn-
vel uppi i Sigöldu. En það er al-
varlegt mál, sagði Guðlaugur
þegar fullfrískir sjómenn og af-
burða skipstjórar hætta að sækja
sjóinn og fara að vinna I landi.
Það er þó ekkert undarlegt við
það, þegar þeir geta haft betra
kaup i landi fyrir styttri vinnu-
tima.