Tíminn - 04.11.1975, Side 14
14
TÍMINN
Þriðjudagur 4. nóvember 1975
LÖGREGL UHA TARINN
57 Ed McBaÍn Þýðandi Haraldur Blöndal
^ J
— Var hann rúman hálftíma að skoða bíl varaborgar-
stjórans?
— Ekki mínútu skemur.
Meyer stundi þunglega. — Þá verðum við að tala við
hann sjálfan, sagði hann við Kling. Svo sneri hann sér að
Coyle. — Hvað heitir eftirlitsmaðurinn, herra Coyle...
— Hver?
— Eftirlitsmaðurinn. Sá sem kom frá bifreiðaeftirlit-
inu.
— Eg veit það ekki.
— Sagði hann ekki til nafns, spurði Kling.
— Hann sýndi mér skilríki sin og sagðist vera kominn
til að yf irfara bílana. Þaðer alltog sumt.
— Hvernig skilríki?
— Prentuð skilriki. Þú kannast við þau.
— Hvað er langt síðan hingað hef ur komið maður f rá
bifreiðaeftirIitinu til að yfirfara bílana hér, herra
Coyle? Kling þorði tæpast að sleppa spurningunni.
— Þetta var í fyrsta og einaskiptið, svaraði Coyle.
— Hafa þeir aldrei sent hingað eftirlitsmann fyrr?
— Aldrei.
— Hvernig leit þessi maður út, herra Coyle, spurði
Meyer þreytulega.
— Þetta var hávaxinn náungi, Ijóshærður og með
heyrnartæki í öðru eyra, svaraði Coyle.
xxx
Fats Donner var sögusmetta í húð og hár. Auk þess féll
honum best við heitt loftslag þrátt fyrir að hörund hans
væri eins hvitt og á óspjallaðri mey. Satt að segja var
hann svo ámátlega fölur á allan sinn mikilfenglega
skrokk, að Willis grunaði hann oft um að vera eiturlyfa-
neytanda. Þó stóð honum raunar á sama um það. Hvern
einasta sunnudag gat sæmilega árvökull lögreglumaður
haft hendur í hári um sjötíu og fimm eiturlyfjaneyt-
enda. Um níutíu og níu prósent þeirra voru nær undan-
tekningarlaust með einhver eiturlyf í fórum sínum. En
það var ekki eins auðvelt að f inna menn sem komu upp
um áætlanir og svikabrask félaga sinna — sögusmettur.
Þegar hægt var að f inna Fats Donner var hann sú besta
sögusmetta sem fundin varð. Gallin var bara sá að
erfitt var að henda reiður á Donner. Þegar vetur var
harðastur mátti telja einna líklegast að f inna hann í Las
Vegas eða á Miami. Þar lá hann í forsælunni þar sem
hvergi skein sólargeisli á rjómahvítan skrokk hans.
Hann titraði af velsæld og svitinn streymdi af honum í
stríðum straumum. Willis var því undrandi að hitta hann
í borginni í kaldasta marsmánuði sem menn mundu til.
Það kom honum hins vegar ekki á óvart, að Donner var í
kapphituðu herbergi. Þrír rafmagnsofnar glóðu þar
fyrir utan sjóðheita herbergisofnana. Það var tæpast að
Willis gæti andað. Mitt í þessari hitasvækju sat Donner,
ikláeddur þykkum vetrarfrakka og þykkum hönzkum í
þykkbólstruðum hægindastól. Hann var í tvennum ullar-
sokkum og hvíldi fæturnar ofan á öðrum rafmagnsofn-
inum. í herberginu var einnig ung stúlka. Líklegast var
hún rúmlega fimmtán ára gömul og var í örsmáum
bíkinísólfötum. Hún kippti sér ekkert upp við það er
ókunnur maður kom inn í herbergið. Hún leit tæpast á
Willis er hann gekk inn. Donner og Willis töluðust við rétt
við gluggann, en stúlkan fór að taka til í herberginu og
leit tæpast í átt til þeirra.
— Hver er stúlkan, spurði Willis.
— Dóttir mín, svaraði Donner og glotti.
Donner var ekki geðugur maður, en hann var úrvals
sögusmetta. Lögreglumenn velja sér oft einkennilega
f élaga í baráttu sinni gegn glæpum. Willis þóttist viss um
að stúlkan væri götudrós á vegum Donners. Virðuleg
sögusmetta þarf oft aukaskilding. Er þá nokkuð betra en
að taka að sér unga stúlku frá Ohio og kenna henni öll
brögðstarfsins? Svo er næsti leikur að senda hana á göt-
una og þar kynntist hún lífsins unaðssemdum. Willis
kærði sig kollóttan um hvort Donner væri lyfjaþræll,
hann nennti ekki heldur að ákæra stúlkuna fyrir vændi.
Ekki hafði hann heldur hug á að kæra Donner fyrir að
hafa tekjur sínar af vændiskonum. Grein 1148 í hegn-
ingarlögunum. Áhugi Willis beindist einkum að því að
taka af sér hattinn og fara úr frakkanum, en ekki hvað
sist að því að komast að raun um hvort Donner gæti veitt
honum einhverjar upplýsingar um mann að nafni Dom.
— Hvaða Dom, spurði Donner.
— Við vitum aðeins að hann heitir Dom.
Donner sneri sér að stúlkunni, sem var> að sýsla með
mat í ísskápnum: — Mercy, hversu margir menn heldur
þú að séu í borginni sem heita Dom?
— Ég veit þaðekki, svaraði hún án þess að líta upp.
— Hvað þekkir þú marga menn með þessu nafni,
spurði hann.
— Ég þekki engan Dom, svaraði stúlkan. Hún var
mjóróma og framburðurinn greinilega úr suðurríkjun-
um, ekki frá Ohio, heldur öllu fremur Arkansas eða
Tennessee.
Þriðjudagur
4. nóvember
7.00 Morgunútvarp. Veður-
. fregnir kl. 7.00, 8.15 og 10.10.
Morgunleikfimi kl. 7.15 og
9.05. Fréttir kl. 7.30 og 8.15
(og forustugreinar dagblað-
anna), 9.00 og 10.00. Morg-
unbæn kl. 7.55. Morgun-
stund barnanna kl. 8.45:
Þingfréttirkl. 9.45. Létt lög
milli atriða. Fiskispjall kl.
10.05: Ásgeir Jakobsson
flytur. Hin gömlu kynnikl.
10.25: Valborg Bentsdóttir
sér um þáttinn. Hljómplötu-
safnið kl. 11.00:
12.00 Dagskráin. Tónleikar.
Tilkynningar.
12.25 Fréttir og veðurfregnir.
Tilkynningar.
13.00 Við vinnuna: Tónleikar.
14.30 Vettvangur. Umsjón:
Sigmar B. Hauksson. 1 þætt-
inum er fjallað um arkitekt-
úr og sérþarfir.
15.00 Miðdegistónleikar: ts-
lensk tóniist. a.
16.00 Fréttir. Tilkynningar.
(16.15 Veðurfregnir). Tón-
leikar.
16.40 Litii barnatiminn.
Sigrún Björnsdóttir sér um
timann.
17.00 Lagið mitt. Anne Marie
Markan sér um óskalaga-
þátt fyrir börn yngri en tólf
ára.
17.50 Tónleikar. Tilkynning-
ar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
19.00 Fréttir. Fréttaauki. Til-
kynningar.
19.35 Kenning Tylers um
námsskrárgerð. Guðný
Helgadóttir flytur erindi.
20.00 Lög unga fólksins.
Sverrir Sverrisson kynnir.
20.50 Að skoða og skilgreina.
Kristján Guðmundsson sér
um þátt fyrir unglinga.
21.30 Tónlist eftir Robert
Scliuinann. Wilhelm
Kempff leikur á pianó..
21.50 Kristfræði Nýja testa-
mentisins. Dr. Jakob Jóns-
son flytur fyrsta þátt.
22.00 Fréttir.
22.15 Veðurfregnir. Kvöldsag-
an: „Kjarval” eftir Thor
Vilhjálmsson. Höfundur les
(9).
22.40 Skákfréttir.
22.45 Harmonikulög Laiho-
bræður leika
23.00 A hljóöbergi. Sagan af
Plútó og Próserpinu i
endursögn Nathaniel Haw-
thorne. Anthony Quayle les.
23.55 Fréttir I stuttu máli.
Dagskrárlok.
Þriðjudagur
4. nóvember 1975.
20.00 Fréttir og veður.
20.30 Dagskrá og auglýsing-
ar.
20.35 Þjóöarskútan. Þáttur
um störf Alþingis. M.a.
verður viðtal við Jón Arna-
son formann fjárveitinga-
nefndar og litið inn á fund
hjá fjárveitinganefnd.
Einnig verður fjallað um
vandamál frystihúsanna.
Umsjónarmenn: Björn
Teitsson og Björn Þor-
steinsson.
21.15 Svona er ástin. Banda-
risk gamanmyndasyrpa.
Þýðandi Jón O. Edwald.
22.05 Utan úr heimi. Umræður
um Shakarof málið. Þátt-
takendur: Gunnar
Gunnarsson, Halidór Lax-
nes og Matthias Johannes-
sen. Stjórnandi Gunnar G.
Schram.
22.50 Skólamál. Hlítarnám. I
þættinum er fjailað um
hlitarnám — megininntak
kenningarinnar kynnt og
sýnd dæmi. Þátturinn er
gerður i samvinnu við
Kennaraháskóla tsiands og
sendur út i tengslum við tvö
útvarpserindi, sem flutt
voru 2. og 4. nóvember.
Umsjónarmaður Helgi
Jónasson fræðslustjóri.
23.05 Dagskrárlok.