Tíminn - 04.11.1975, Blaðsíða 15

Tíminn - 04.11.1975, Blaðsíða 15
Þriðjudagur 4. nóvember 1975 TÍMINN 15 STAÐAN 1. DEILD Haukar 4 3 1 0 73-61 7 Vikingur 4 3 0 1 87-75 6 Valur 4 2 1 1 73-60 5 FH 4 2 0 2 81-76 4 Fram 4 1 2 2 58-56 4 Armann 4 1 1 2 56-76 3 Grótta 4 1 0 3 71-78 2 Þróttur 4 0 1 3 56-73 1 Markhæstu leikmenn mótsins: Hörður Sigmarsson, Haukum 30/10 Páll Björgvinsson, Vikingi 27/9 Björn Pétursson, Gróttu 19/9 Friðrik F’riðriksson, Þrótti 19/3 Stefán Ilalldórsson, Vlk..19/3 Geir Hallsteinsson, FH 17/3 Viðar Slmonarson, FH.......17/6 ÞRJÚ LIÐ EFST OG JOFN — í meistaraflokki kvenna í handknattleik FRAMSTÚLKURNAR komu I veg fyrir að Valsstúlkunum tæk- ist að næla sér i Reykjavíkur- meistaratitilinn I handknattleik kvenna á sunnudagskvöld. Fram- stúlkurnar sigruðu I leiknum með eins marks mun, 10:9. Nú er kom- in upp sú staöa i Reykjavlkur- mótinu, að þrjú lið eru efst og jöfn að stigum, Valur, Armann og Fram ogeiga öll þessi þrjú lið eft- ir að leika einn leik I mótinu. Valsstúlkurnar eiga eftir að leika við Viking og ætti það að vera auðveldur leikur við Val, þvi Vikingur hefur til þess ekki hlotið stig i mótinu. Fram og Armann eiga hins vegar eftir að keppa innbyrðis og þar má búast við hörkuskemmtilegum leik. Þessir leikir verða leiknir 12. nóv. n.k. 1 fyrrakvöld sigruðu KR-stúlkurnar Vlking með 10:6. Guðmundur Pálsson, lyrirliði islen/.ka landsliðsins i blaki, sést liér „smassa" á móti Knglendingunum, sem voru miklu bctri en islen/ka liðið, og unnu allar hrinurnar i báð- um landsleikjunum. Olcg Blokbin, sem hér sézt á myndinni er einn snjaiiasti knatt- spyrnumaður heimsins i dag. Þessi frábæri leikmaður leikur I Dina- ino Kicv, sem mætir Akurnesingum annaðkvöld á Meiavelii. ísland sigraði 5—0 — í badmintonlandskeppni við Færeyjar A föstudagskvöld háðu ts- lendingar og Færeyingar með sér landskeppni I badminton. Leiknir voru þrir leikir i einliðaleik og tveir I tvlliðaleik. Það er skemmst frá að segja að ís- lendingar unnu alla leikina, ósk- ar Guðmundsson sigraði Petur Hansen 15:11 og 15:6, Friðleifur Stefánsson sigraði Hans Steen- berg 15:5 og 15:4 og Haraldur Kornellusson sigraði Poul Michelsen 15:6 og 15:9. t tviliða- KA ÁTTI í ERFIÐLEIKUAA Akureyska liðið, KA, fór norður með 4 stig eftir tvo leiki hér syðra um helgina, — og mega þeir vel við una, þvi að þeir lentu i' miklum erfiðleikum, sér- staklega í leiknum á móti Leikni. t þeim leik tryggðu þeir sér sigur að venjulegum leik- tlma loknum — úr vitakasti. A sunnudaginn lék KA liðið við tBK og sigraði með 17-15. Bætti íslands- metið IIÖGNI ÓSKARSSON bætti ts- landsinet sitt i maraþonhlaupi, cr hann liljóp vegalengdina á 3 klst. 5 mln. og 38 sek., i mjög fjölmennu maraþonhlaupi I New York riki fyrir nokkru. Högni bætti islandsmetið um tæpar 10 min! Keppendur i þessu maraþon- hlaupi voru alls um 900 talsins og varð Ilögni nr. 179. leiknum sigruðu þeir Sigfús Æ. Arnason og Otto Guðjónsson þá Eigil Lyngsöe og Svend Stensborg 15:8og 15:11 og i siðasta leiknum i keppninni unnu Haraldur og Steinar Petersen þá Poul Michel- sen og Petur Hansen 15:12 og 15:5. Að loknu mótinu afhenti for- maður iþróttafélags Færeyja Óskari Guðmundssyni fyrirliða islenzka landsliðsins bikar sem Færeyingar gáfu til þessarar keppni, c á að keppa um hann næstu fimm ár, þannig að lands- keppni milli þessara þjóða verður árlegur viðburður næstu árin. Opið badmintonmót var háð i fþróttahúsinu i Garðahreppi á laugardaginn og voru allir Fær- eyin^arnir meðal keppenda. f einliðaleik vann Haraldur Korneliusson, i öðru sæti var Friðleifur Stefánsson, en keppni þeirra I úrslitum var geysispenn- andi. Færeyingarnir voru allir slegnir út i 1. umferð. í tvlliöakeppninni voru Harald- ur og Steinar öruggir sigurvegar- ar. — MV—Gsal — Kiev, hefur verið likt við tauga- óstyrkan skólastrák, sem er að ganga undir próf, þegar hann horfir á strákana slna leika. Sovézka liðið, Dinamo Kiev, sem er jafnframt annað landslið Sovétrikjanna, hefur á að skipa mörgum snjöllum leikmönnum og ber þar hæst, snillingurinn Oleg Blokhin sem er talinn einn af beztu knattspy rnumönnum heimsins i dag. Þennan frábæra leikmann fá íslendingar að sjá á Melavellinum á morgun. f marki sovézka liðsins verða annað hvort Jévgení Rúdakof eða Valerf Samokhin. Sá fyrrnefndi er 33 ára ,og varm.a. kosinn bezti knattspyrnumaður Sovétrikjanna árið 1972. Samokin er 27 ára,hefur tekið stöðu Rúdakof alloft að undanförnu. Aðrir leikmenn eru: Vladimir Trosjkin, varnarmað- ur, 28 ára og mjög sókndjarfur varnarmaður. Hann var áður miðvallarleikmaður og hefur mikil áhrif á leikstil Dinamo Kiev. Stefan Resjko, varnarmaður, 28 ára. Mikhail Fomenko, varnar- maður, 27 ára. Viktor Mativienko, varnar- maður, 27 ára. Anatoli Konkof, varnar- eða miðvallarleikmaður, 26 ára og mjög traustur leikmaður, sem hefur fullkomið vald á knettinum og er óþreytandi jafnt i vörn sem sókn. Vladimir Vereméef, miðvallar- leikmaður, 27 ára. Vladimir Múntjan, miðvallar- leikmaður, 29 ára. Viktor Kolotof, miðvallarleik- maður, 26 ára og fyrirliði liðsins. Mjög snjall leikmaður eins og aðrir miðvallarleikmenn liðsins, en þessir leikmenn mynda sterk- asta kjarna þess. Oleg Blokhin, framherji, 23 ára og einhver besti knattspyrnu- maður i heiminum i dag. Hann skoraði öll mörkin þrjú gegn Bay- ern Múnchen ikeppninni um titil- inn meistarar meistaranna ný- lega. Vladimir Onisjenko, framherji, 26 ára. Mjög áræðinn og duglegur leikmaður, sem leggur mjög hart að sér i leik. Hann hefur mjög næma tilfinningu fyrir réttum staðsetningum og er einkar lag- inn við að „pota” boltanum i net- ið. Valeri Lobanovski, þjálfari Dinamo Kiev er 40 ára. Hann var lengi vinstri útherji hjá Dinamo Kiev og landsliðinu, en þjálfar nú bæði þessi lið. Hann þótti mjög sérstæður leikmaður. Lobanovski hefur verið likt við taugaóstyrkan skólastrák, sem er að ganga und- ir próf, þegar hann horfir á strák- ana sina leika. Island auðveld bráð Englendingar sterkari en búist var við Ekki tókst íslendingum aö ógna Englendingum i blaki nú um helgina, en þjóðirnar háðu með sér tvo landsleiki, cn þetta voru fyrstu blakleikirnir milli þessara þjóða. Fyrir leikina var lítiö vitað um getu Englendinganna i blaki, og gerðu sumir þvi skóna að islcndingar ættu að vinna þessa leiki. Þessar bjartsýnis- vonir urðu að engu, þvi að Eng- lendingarnir sýndu okkur fram á það, að við eigum mikið eftir ólært i samhandi við blak. Eng- lendingar unnu báða leikina meö 3:0. I fyrri leiknum byrjuðu Is- lendingarnir nokkuð vel, komust i 9:10 i fyrstu hrinunni. Þá tóku Englendingar af skarið og sigruðu 15:9. í annarri hrinu var um algjöra einstefnu að ræða og Englendingar unnu 15:2. í þriðju hrinu var næstum sama sagan endurtekin og nú unnu Eng- lendingar 15:5. Mistök einkenndu leik Islenzka liösins og virtist það stafa mikið til af þvi, að leikmenn tala alls ekki nógu mikið saman sin á milli. Leikmenn islenzka liðsins voru að vonum óhressir með þessi úrslit, en ætluðu að reyna að bæta þetta upp i seinni leiknum. En i seinni leiknum á sunnudag endurtók sig sama sagan. Ein- stefna hjá Englendingum. Unnu 1. hrinu 15:4, 2. hrinu 15:10 og 3 . hrinu 15:1. Tvær aukahrinur voru siöan leiknar og unnu Eng- lendingar þærbáðar, 15:3 og 15:6. Þessir leikir voru þvi fremur daufir á að horfa, yfirburðir Eng- lendinga voru of miklir. Þeir hafa á að skipa hávaxnari og leikreyndari mönnum en við. En viö verðum að læra af reynslunni og hver veit nema að Island standi framarlega i blaki innan fárra ára. Dómarar voru þeir Perry Joseph frá Englandi og Guömundur Arnaldsson. -MV. ÞAÐ ER VIST engum vafa undir- orpið að Dinamo Kiev, sovézka liðið, sem leikur siðari leik sinn við Akurnesinga i 2. umferð Evrópukeppni meistaraliða á Melavellinum á morgun, — er sterkasta félagslið i Evrópu um þessar mundir. Liðið sýndi það svo um munaði fyrir skemmstu, þegar það vann Bayern Munchen i „Super-cup” 2:0 er leikið var i Kiev, en þýzka liðið vann sem kunnugt er Evrópubikar- meistaratitilinn i fyrra. Það var samdóma álit manna, að sovézka liðið hefði i þeim leik sýnt nokkra yfirburði, og að markatalan gæfi ekki alveg rétta mynd af leiknum. Sovézka liðið kom til tslands i gær, og i dag munu þeir heim- sækja Akranes, en leikmennirnir höfðu eindregið óskað eftir þvi að fá að sjá heimabæ ÍA-liðsins, voru þeir vist vantrúaðir á, að ÍA-liðið væri frá jafn fámennum kaupstað og leikmenn þess sögð- ust vera. Annað kvöld rennur upp sú stóra stund, að IA og Dinamo Kiev mætast á Melavellinum, og hefst leikurinn kl. 20. Það verður nú að segjast eins og það er, að sigurmöguleikar ÍA-liðsins eru ekki miklir, en þó má búast við að leikmenn liðsins, — sem æft hafa velá malarvellinum uppi á Skaga að undanförnu — muni berjast eins og ljón við sovézka björninn og gefa hvergi eftir. Taka verður það með i dæmið, að sovézka liðið er alls óvant þvi, að leika á malarvelli, og á velli sem rúmar jafn fáa áhorfendur og Mela- völlurinn gerir. Lobanovski, þjálfari Dinamo Óskar Guðmundsson, fyrirliði islenzka landsliösins i bad- ininton sigraði Pétur llanson i cinliðaleik i Landkeppninni við Færeyjar nú um hclgina, en islendingarnir unnu alla leikina i þessari fyrstu lands- keppni. Dinamo Kiev mætir Akurnesinqum á Melavelli annað kvöld kl. 20 Þjdlfaranum er líkt við taugaóstyrkan skólastrdk — sem er að ganga undir próf, þegar hann horfir ó strókana sína leika

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.