Tíminn - 04.11.1975, Side 20
(
Þriðjudagur 4. nóvember 1975
SÍMI 12234
tíERRA
GARDURINN
AlD ALSTRfETI 9
SIS-FOMJll
SUNDAHÖFN
fyrirgóðan maÉ
^ KJÖTIDNAÐARSTÖÐ SAMBANDSINS
SCHLESINGER OG
COLBY REKNIR?
allar líkur taldar á því
Reuter/Washington. Tilkynnt var
i gær, að Ford Bandarikjaforseti
ætlaði sér að halda blaðamanna-
fund klukkan 3 I nótt, þar sem
gert var ráð fyrir, að hann myndi
staðfesta þá ákvörðun sina, að
William Colby, yfirmaður CIA,
leyniþjónustunnar, og Schlesing-
er varnarmálaráðherra yrðu
látnir vikja ár embættum sfnum.
Þá var og gert ráð fyrir þvi, að
Kissinger utanrikisráðherra yrði
látinn vikja sem yfirmaður
öryggisráðs rikisins.
Að undanförnu hafa harðvitug-
ar deilur geisað milli Schlesing-
ers og Kissingers um stefnu-
mörkun i utanrikismálum, og svo
eraðsjá,sem Kissinger hafi farið
með sigur af hólmi i þeirri bar-
áttu. Það er ekki talið skerða völd
hans að neinu marki, þótt hann
hafi látið af starfi sem yfirmaður
öryggisráðsins.
Taliö er, að Brent Scowcroft ,
hershöfðingi, taki við semyfirmað
ur öryggisráðsins, en Scowcroft
er kunnur fyrir fylgisemi við
Gangan til Sahara:
Spánverjar hóta að
beita vopnavaldi!
— stöðugar samningaviðræður
deiluaðila
Rcuter/Madrid. Juan
Carlos, sem nú gegnir emb-
ætti þjóðarleiðtoga Spánar,
hélt i fyrradag til spænsku
Sahara til fundar við yfir-
menn herafla Spánverja i
nýlendunni. Að heimsókn
Carlosar til Sahara lokinni,
lýsti sendinefnd Spánar hjá
Sameinuðu þjóðunum þvi yf-
ir, að spænska stjórnin hygð-
ist beita vopnavaldi, ef þörf
krefði til þess að hindra
fyrirhugaða göngu 350 þús-
und Marokkomanna inn i
eyðimörkina.
Talið er að óánægja sé inn
an spænska hersins yfir þvi,
að spænska stjórnin skuli
ekki hafa tekið nægilega
eindregna afstöðu i máli
þessu.
Forsætisráðherra
Marokko, Ahmed Osman,
flaug til Madrid i gær til
fundar við Juan Carlos.
Talsmaður sendiráðs
Marokkó i Madrid sagði i
gær, að forsætisráðherrann
hefði fariö til Madrid sem
sérlegur sendimaður Hass-
ans konungs til þess að fá
fram hjá spnskum yfirvöld-
um, hver væri endanleg af-
staða spænsku stjórnarinnar
til deilunnar um yfirráðin yf-
ir Sahara.
Álitið var i siðustu viku, að
spænska stjórnin hefði látið
undan kröfum Marokko og
Mauritaniu, en þessi riki
gera bæði kröfu um yfirráð
yfir Sahara. En greinilegt er,
að spænska stjórnin hefur
skipt um skoðun eftir að
Mohamed Benahmde
Abdelgahni, innanrikisráð-
herra Alsir, kom til Madrid,
til fundar við spænslc yfir-
völd.
Menntamálaráðherra
Marokkó mun nú kominn til
Alsir með skilaboð til
Boumedienne, Alsirforseta,
frá Hassan konungi. Engin
tilkynning var gefin út um
það i Madrid i gær, hvernig
miðaði viöræðum Osmans og
Carlosar.
Sjálfboðaliðarnir 350 þús-
und munu nú reiðubúnir að
hefja gönguna og biða þeir
við landamærin eftir skipun
frá Hassan konungi.
Herinn tekur völdin í
Bangladesh. Ahmed gegnir
þó enn forsetaembættinu
Reuter/N tb/Nýju-Dehli.
Herinn I Bangladesh hefur
tekiö við æðstu stjórn I
landinu, án þess, að til
bldðugra átaka hafi komið,
að þvl er haft er eftir
diplomatiskum heimildum I
Nýju Dehli I gærkvöldi.
Sendiráðssta rfsmennirnir,
sem fyrir fréttum þessum
eru bornir, segjast hafa þær
frá erlendum sendiráðum,
og ræðismannsskrifstofum I
Dacca, höfuðborg Bangla-
desh. Segir í fréttum þess-
um, aö Musjtak Ahmed, for-
seti, gegni þvi starfi áfram,
þrátt fyrir það, að herinn sé
nú allsráðandi i landinu.
Helzta breytingin á stjórn
landsins felst i þvl,að hinir
ungu sem áttu mestan þátt i
þvi að koma Mujibur
Rahman, frá völdum 15.
ágúst i sumar, hafa verið
geröir áhrifalausir.
1 átökum þeim, er urðu 15.
ágúst, var Mujibur Rahman
fursti og forseti Bangladesh,
tekinn af lifi, en Kondakar
Musjatka Ahmed, þáverandi
viðskiptaráðherra, gerður að
forseta.
Herforingjarnir 7, sem
stóðufyrir valdaskiptunum I
ágúst sl. hafa verið hand-
teknir. Einnig hefur Ziau
Rahman, sem útnefndur var
sem æðsti yfirmaður herafla
Bangladesh i ágúst, verið
handtekinn.
Vopnaður hervörður var
um forsetahöllina og fleiri
mikilvægar byggingar i
miðborg Dacca i gær.
Kissinger. Það hefur lengi legið i
loftinu, að Colby yrði látinn vikja
sem yfirmaður leyniþjónustunn-
ar, þar sem ýmislegt miður fag-
urt þykir hafa komið fram við
rannsókn þá á starfsemi CIA,
sem framkvæmd hefur verið af
þingnefnd að undaförnu. Óstað-
festar fregnir herma, að George
Bush taki við að Colby.
Schiesingar átti langar viðræð-
ur við Ford sl. sunnudag, en ekki
er ljóst hvort forsetinn tók þessa
ákvörðun þá eða ekki. Hvlta húsið
hefur ekkert viljað tjá sig um
málið, en fréttirnar munu komn-
ar frá Henry Jackson, öldunga-
deildarþingmanni.
Beirut:
Frestur til
rs
Reuter/Ntb/Beirut. Rashid
Karami, forsætisráöherra
Libanons gaf i gær hinum strið-
andi aðilum i höfðuborg landsins,
vinstri-sinnuðum múhameðs-
trúarmönnum og hægrisinnuðum
kristnum mönnum, frest til sól-
seturs til þess að leggja niður
vopn og hætta átökum i höfuð-
staönum.
Forsætisráðherrann flutti ræðu
i útvarpið i Beirut eftir að hafa
þingaö meö fulltrúum beggja
deiluaðila.
Rockefeller ætlar
ekki frammeð Ford
— gegnir varaforsetaembætti,
þar til kosningar hafa farið fram
Reuter/Washington. Nelson
Rockefeller, varaforseti
Bandarikjanna, tilkynnti
Ford forseta I gær, að hann
hyggðist ekki gefa kost á sér
til embættis varaforseta
fyrir Republicanaflokkinn I
forsetakosningunum, sem
fram eiga að fara I Banda-
rikjunum á næsta ári.
Aður hafði Rockefeller lýst
bvi yfir, að hann yrði i fram-
boði með Ford í forseta-
kosningunum á næsta ári.
Talið er, að mestu ráði hér
um, ágreiningur milli Fords
og Rockefellers vegna
neitunar Fords um að al-
rlkisstjórnin i Washington
komi New York borg til
hjálpar i þeim fjárhags
vandræðum, er borgin
hefur átt við að striða að
undanförnu.
í bréfi því, er Rockefeller
sendir Ford, þar sem hann
tilkynnir honum framan-
greinda ákvörðun sfna,
minnist Rockefeller ekki á
neitt ósamkomulag við Ford
forseta. Segist Rockefeller
bera mikla virðingu fyrir
embættisstörfum Fords,
hugrekki hans, einbeittni og
hreinskílni.
Þá segir Rockefeller:
„Akvörðun min um að taka
við varaforsetaembættinu,
var.eins og yðurerkunnugt,
byggð á þeirri sannfæringu
minni og von, að auka
mætti einingu meðal banda-
risku þjóðarinnar og trú
hennar á æðstu mönnum
þjóðarinnar, vegna þeirra
reynslu, er þjóðin varð fyrir
vegna Watergate málsins.”
Sagði Rockefeller loks, að
hann myndi gegna embætti
varaforseta, þar til þjó'ðin
hefði að nýju valið i kosning-
um menn til að gegna
embættum forseta og vara-
forsta.
Argentina:
AAARIA ESTELLA PERON
Á SJÚKRAHÚSI
Iteuter/Bucnos Aires. Maria
Estella Peron, forseti Argentinu,
var I gær lögð inn á sjúkrahús
vegna verkja I gallblöðru, að þvi
er segir I fréttum frá Argentinu i
gær.
Peron, sem núer 44ára gömul,
var flutt i skyndi til einka-
sjúkrahúss I Buenos Aires I gær,
er hún sneri heim til skyldustarfa
eftir að hafa hvilzt yfir helgina i
Mad del Plata. Sagði i tilkynningu
lækna, kl. 11.15 i gær, að veikindi
forsetans væru ekki alvarleg og
búizt var við þvi, að nokkur bati
kæmi i ljós, er liði á daginn.
öflugur lögregluvörður er við
sjúkrahúsið, þar sem Peron
dvelst, og var fréttamönnum
ekki leyft að koma nær húsinu en
100 m. Þeir einu, sem fengu að
heimsækja forsetann, voru
ráðherrar úr rikisstjórn hennar
og háttsettir embættismenn.
Estella Peron stendur nú
frammi fyrir alvarlegum vanda-
málum I stjórnmálum landsins,
einkanlega vegna ásakana, sem
nýlega hafa komið fram um að
misferli hjá opinberum starfs-
mönnum hafi átt sér stað með
fjármuni rikisins.
Stuðningsmenn forsetans
reyndu i siðustu viku að koma i
veg fyrir aðályktun neðri deildar
þings Argentinu um opinbera
rannsókn á fjárreiðum velferðar-
ráöuneytisins, verði hrundið i
framkvæmd. Þá hafa stjórnar-
andstæðingar i Argentinu einnig
farið fram á, að ýmis atriði
varðandi fjárreiður forsetans
verði rannsökuð.
Model: Aida 460
IGNIS Stórglæsileg og vönduð uppþvottavél
IGNIS
• Ur ryðfríu stáli að innan
• Hljóðlát og auðveld í notkun
• Háþrýstiþvottur fyrir potta
• Sérstakur glansþvottur fyrir glös
• Skolar og heldur leirtauinu roku
• Þvær upp 1 2— 1 4 manna borðbúnað-.
• Tryggið yður þjónustu fagmanna
• Vonduð en samt ódýr.
Muniö IGNIS verö.
RAFIÐJAN
RAFTORG