Tíminn - 06.11.1975, Síða 1
PRIMUS
HREYFILHITARAR
í VÖRUBÍLA OG VINNUVÉLAR
HF HÖRÐDR GUNNARSSON
SKÚLATÚNI 6 -SÍMI (91)19460
STÓRFELLDIR MJÓLKUR-
FLUTNINGAR FRÁ NORÐUR
LANDI TIL REYKJAVÍKUR
MÓ-Reykjavik. Innvegin mjólk i
umdæmi Mjólkursamsölunnar i
Reykjavik er nú 13% minni en á
sama tima og i fyrra. Af þvi leið-
ir, að næstu daga verður að hefja
llutninga á mjólk i stórum stil frá
Sjóðshalli á
Fdskrúðsfirði:
3*8 millj.
vantaði í
kassann á
símstöðinni
— stöðvar-
stjóranum
vikið úr starfi
MM-Reykjavik — Við óvænta
endurskoðun sem gerð var hjá
Pósti og sima á Fáskrúðsfirði
kom i ljós sjóðshalli, sem nam um
það bil 3,8 milljónum króna. Póst
og simamálastjórnin greip þegar
i taumana og hefur stöðvarstjór-
inn verið látinn hætta störfum.
Hann bauðst til að greiða upp-
hæðina og á aðeins eftir ógreiddar
1,5 millj. króna. Átti að ljúka
greiðslu þess fjár i þessari viku.
Rikisendurskoðun hefur verið
gert málið kunnugt.
Varðandi sjóðþurrð á Hvols-
velli og Reyðarfirði sagði póst- og
simamálastjóri, er blaðamaður
Timans náði tali af honum i gær-
kvöldi, að beðið væri eftir út-
skriftum sýslumanna.
Norðurlandi til Reykjavikur. Allt
útlit er fyrir að þeim flutningum
verði að halda áfram i allan vet-
ur, og þvi betra að ófærð og aðrir
samgönguerfiðleikar harnli ekki.
I gær var heildarmagn mjólk-
ur, sem barst Mjólkursamsölunni
110 þúsund litrar. Dagleg neyzla á
nýmjölk er 100 þúsund litrar á
svæðinu, og 5 þúsund litrar fara i
undanrennu. Er þvi ljóst að næstu
daga verður að flytja mjólk frá
Blönduósi og öðrum stöðum
norðanlands, til að ekki verði
mjólkurskortur i Reykjavik.
Undanfarna vetur hefur ekki
þurft að ílytja mjólk til Reykja-
víkur, en fyrir nokkrum árum var
mjólk flutt um tima um miðjan
veturinn. Oft hefur þurft að flytja
rjóma.
Astæðan fyrir þessu slæma
ástandi nú mun aðallega vera sú,
að hey eru mjög léleg, og eru
dæmi þess að allt að 5 kg af töðu
þurfi i fóðureininguna. Af meðal-
töðu þarf hins vegar 1,9 kg i fe.
Kostnaður við þessa mjólkur-
flutninga verður mikill.
Bændur greiða nú 10 aura af
hverju kg innveginnar mjólkur i
flutningssjóð, en hætt er við, að ef
stórfelldir flutningar þurfi að eiga
sér stað, dugi sá sjóður skammt.
í þessu sambandi er rétt að
vekja athygli á þvi, að vegurinn
yfir Holtavörðuheiði hefur oft
orðið ófær á vetrum. Sömu sögu
er einnig að segja af ýmsum öðr-
um vegum norðanlands. Ætti það
þvi að vera hagur allra lands-
manna, að verulegt átak verði
gert til að tryggja samgöngukerf-
ið, svo með öryggi sé hægt að
tryggja öllum landsmönnum lifs-
nauðsynjar sinar dag hvern. Með
öðrum orðum: Góðar vetrarsam-
göngur eru ekki siður hagur þétt-
býlisbúanna við Faxaflóa, en
fólksins út i dreifbýlinu.
Forsætisráðherra:
Ríkisstjórnin mun
reyna að tryggja
rekstur frystihús-
anna til áramóta
BH-Reykjavik. — i gærmorgun
gengu lulltrúar hraðfrystihúsa-
eigenda, viðskiptabanka þeirra
og Seðlabanka islands á fund for-
sætisráðherra, Geirs Hallgrims-
souar, lil þess að ræða hugsan-
lega lausn vandamála hraðfrysti-
húsanna. Eins og kunnugt er af
fréttuin Timans Itafa nokkur
hraðfrystihús á Suðurnesjum nú
þegar stöðvað rekstur sinn, en
önnur halda áfrarn rekstri við
liina alvarlegustu erfiðleika hvað
rekstrarfé varðar.
Niðurstöður viðræðna þessara
aðila við forsætisráðherra urðu
þær, að forsætisráðherra hét þvi,
að reynt yrði að sjá til þess, að
rekstur hraðfrystihúsanna til
áramóta yrði tryggður.
Greiðum nær 6 milljörðum
meira fyrir sama magn af
olíuvörum nú en 1973
AÞ—Reykjavik. — Islendingar
hafa orðið að greiða nær 6
milljörðum króna meira fyrir
oliuvörur á árinu 1975 en fyrir
sama magn fyrir tveimur árum,
þ.e. 1973. Kom þetta fram i ræðu
Tómasar Árnasonar aiþm. i
umræðum á Alþingi i gær.
Sagðist Tómas hafa látið
reikna út, hve mikið íslendingar
hefðu greitt fyrir oliuvörur —
flugvélabensin er þó undanskil-
ið — á árinu 1973 og samsvar-
andi magn oliuvara á þessu ári.
Arið 1973 greiddu íslendingar 19
millj. 201 þús. dollara fyrir þetta
magn, en i ár nemur upphæðin
53 milljónum 499 þús. og 800
dollurum. M.ö.o. hafa
Islendingar orðið að greiða tæp-
um 6 milljörðum króna meira
fyrir samsvarandi magn, eða 5
milljarði 690 þúsund.
Þessar upplýsingar þing-
mannsins komu fram i umræð-
um um - Framkvæmdastofnun
rikisins. Sagði Tómas Arnason,
að svo virtist, sem menn litu
framhjá ýmsum veigamiklum
þáttum, er rætt væri um
verðbólguna. Hinar gifurlegu
oliuverðshækkanir hefðu bæði
átt beinan og óbeinan þátt i
verðbólgunni, sem hér hefur
geisað. Minnti hann á, að vegna
verðhækkana á oliu hefði verið
ráðizt fyrr i orkuframkvæmdir
hér, bæði hitaveituframkvæmd-
ir og vatnsaflsvirkjanir, en ella.
Þá gerði þingmaðurinn að
umræðuefni afleiðingar Vest-
mannaeyjagossins og kjara-
samninganna i ársbyrjun 1974,
sem átt hefði sinn þátt i verð-
bólgunni.
Hins vegar kom það fram á
fundinum, að hugsanlegt væri, að
i einstöku tilfelli kunni ástandið
að vera svo siæmt, að ekki yrði
unnt að hjálpa viðkomandi frysti-
húsum i gang að nýju.
Héldu boð
fyrir 100
manns, en
drógu kaup af
konunum
------> o
Styrktarsjóður
vangefinna
missir tekjur
sínar á
miðju næsta
ari
©
Dinamo Kiev -
Akranes 2:0
-----► o
Atvinnulíf á Eyrar-
bakka í molum
MÓ-Reykjavik. — Það má segja
að atvinnulifið á Eyrarbakka sé i
rúst, þar til bætt verður úr skipa-
skaða þorpsins i öveðrinu á
dögunum. Nú er þar aðeins einn
sjófær bátur, og hefur hann engan
veginn undan að afla frystihúsinu
nægjanlegs hráefnis. Einnig
verður að leggja allt kapp á að
koma saltfiskverkunarhúsinu i
lag, en einn veggur þess brotnað;
og hraðar hendur verður að hafa
við að endurbæta sjóvarnar-
garðana, sem eru stórskemmdir.
Viðlagatryggingu tslands ber
skylda til að bæta tjón á bruna-
tryggðum fasteignum og lausafé,
en engum aðila ber skylda til að
bæta tjónið á sjóvarnargörðun-
um. Hins vegar er ljóst að þar
verða stjórnvöld að hlaupa undir
bagga og bæta það sem hægt er,
en viðgerð á sjóvarnargörðunun
mun nema tugum milljóna króna.
A kvöldflóðinu I gærkvöldi tókst
að ná Sólborgu á flot.
Þetta er það helzta, sem Þór
Hagalin, sveitarstjóri á Eyrar-
bakka sagði okkur i gærkvöld, en
þá hafði hann ásamt öðrum verið
önnum kafinn að kanna ástandið
eftir óveðrið.
Byggja 800 íbúðir í Nígeríu í vor
_________—► o
Friðrik Óiafsson er kominn i ham á svæðis-
mótinu i skák, sem vonandi endist honum til að
komast áfram á millisvæðamót t tólftu umferð
svæðismótsins að Hótel Esju tefldu saman þeir
fjórir, sem möguleika eiga á að komast áfram.
Ribli og Parma sömdu jafntefli eftir
aðgerðarlitla 15 leiki en Friðrik barðist hart við
Liberzon, afþakkaði jafntefli og stendur uppi
með vinningslega biðskák. Myndin sýnir þá
Friðrik og Liberzon að tafli og að venju segir
Bragi Kristjánsson frá svæðismótinu á bls. 5.
Timamynd: Róbert.