Tíminn - 09.11.1975, Page 35

Tíminn - 09.11.1975, Page 35
Sunnudagur 9. nóvember 1975. TÍMINN 35 AAánudagsmyndin í Háskólabíói Konur kúga karl- kynið Það er kunnara en svo að frá þurfi að segja, að kvikmynda- iðnaður Vestur-Þýzkalands hef- ur átt erfitt uppdráttar og ekki náð eins miklum vinsældum er- lendis og hann átti að fagna um 1930. Hér skal ekki reynt að skýra ástæðurnar fyrir þessu, en hitt er staðreynd, að Þjóðverjar eiga marga góða kvikmynda- stjóra, þótt iðnaðurinn eigi við margvisa erfiðleika að striða. Einn hinn þekktasti, ef ekki sá fremsti, er Rainer Werner Fassbinder.ungur maður, ekki fullra 30 ára enn. Hann fæddist i Miinchen árið 1946 og lagði stund á leiklistarnám, en gerð- ist svo kvikmyndastjóri aðeins 21 árs, og hefur siðan gert að jafnaði tvær myndir á ári, auk þess sem hann hefur gert þætti fyrir sjónvarp og leikstýrt sjón- varpsmyndum, svo sem „Heddu Gabler” og „Briiðu- heimili” eftir Ibsen fyrir þýzkar sjónvarpsstöðvar. Flestar myndir Fassbinders fjalla um daglegt lif — leiðindi og tómleika daglegs lifs, sem fær loks Utrás með ofsalegum hætti. Og sú mynd, sem Háskólabió hefur nú fengið og verður sýnd næstu mánudaga, Avaxtasalinn, sameinar þessi atriði og hugleiðingar Fassbind- ers um frelsi og kúgun — sem eru einkar fróðlegar á svo- nefndu „kvennaári” og svo skömmu eftir kvennadaginn fræga. Fassbinder hefur raunar sagt: „Þessi eilifi þvættingur um frelsun kvenna vekur gremju mina, þvi að lifsbarátt- an er ekki háð af körlum gegn konum, heldur snauðum gegn rikum, kúguðum gegn kúgur- um. Og i heiminum eru ná- kvæmlega eins margir kúgaðir karlmenn og konur.” Þessi mynd Fassbinders fjall- ar i' stuttu máli um gæflyndan mann, sem er kúgaður miskunnarlaust af hverri konu, sem hann kemst i einhver kynni við, móður sinni, sem sendir hann i menntaskóla, þegar hann vill verða iðnaðarmaður, vændiskonu, sem verður til þess, að hann er rekinn úr lög- reglunni, ástinni sinni miklu, sem vill ekki giftast honum, af þvi að hann hefur neyðzt til að verða ávaxtasali og slikan mann er ekki hægt að kynna fyrir foreldrum sinum, konu sinni sem elskar hann ekki og dregur ekki dul á, hversu leiðin- legur hann er, og loks systur sinni.sem tekur lengstum mál- stað hans, en bregzt honum þó, þegar honum liggur mest á. Hér er á ferðinni óvenjuleg mynd, sem kvikmyndahúsgest- ir munu ekki gleyma — bæði vegna boðskapar og leiks. í aðalhlutverkunum eru þekktir þýzkir leikarar, svo sem Hanna Schygulla, Margrethe von Trotta, Ingrid Caven. Katrin Schaake, Karl Scheydt, Harry Bar, Kurt Raab og fleiri. AUGLYSIÐ í TÍMANUM Hljómleikar Kammersveitar Reykjavíkur 2. nóvember Þessir tónleikar tókust afar vel. Kammersveit Reykjavikur hefur sýnilega tekizt á stuttum ferli að hasla sér völl sólarmeg- in i hinni reykvisku tilveru, þvi hinn stóri salur Menntaskólans við Hamrahlið var þvi sem næst fullsetinn. Er það til marks um. vaxandi tónmennt íslendinga, sem er allt i senn afleiðing batn- andi menningar almennt, bættr- Íar tónlistarkennslu og vaxandi velmegunar. Auk Kammersveitar Reykja- vikur, sem er samtök hljóð- færaleikara, starfa ýmis fél- ög tónlistarunnenda með miklum blóma: Kammer- músikklúbburinn heldur fyrstu tónleika vetrarins 16. nóvem- ber, Tónlistarfélagið stóð ný- lega fyrir frægum konsert Arna Kristjánssonar og Erlings Blön- dals Bengtsonar, og Tónleika- nefnd Háskólans hefur hálfs- mánaðarlegar hljómlistarsam- komur i Félagsstofnun stú- denta. Kammertónlist og hljóm- sveitarverk eru eins og ljóð og episk skáldsaga. I kammertón- listinni birtist kjarninn kristallstær, án vifilengja, útúr- dúra og umbúða. Hún er æðsta form tónlistar, og jafnframt hið skemmtilegasta, a.m.k. fyrir þátttakendur. Hitt er annað, að aðalform kammertónlistar, strengjakvartettar, heyrast hér alltof sjaldan. Virðist svo sem blásarar og slagverkamenn séu mun áhugasamari en streng- leikararnir, en vonandi rætist úr þessu þegar fjölgar i strengja- liðinu. Á efnisskrá Kammersveitar- innar voru fjögur verk, tvö fyrir blásara, og tvö fyrir pianó og hljómsveit. Blásaraverkin, Serenada eftir Mozart og Oktett eftir Stravinsky, voru sérlega kærkomin, þvi slik músik (önn- ur en lúðrasveitatónlist) mætti heyrast hér oftar. Vladimir Ashkenazy stjórnaði tónleikun- um og lék auk þess einleik i pianóverkunum, sem voru Rondó i B-dúr eftir Beethoven og Pianókonsert i C-dúr eftir Mózart. Slagverkskúnst Ashkenazys er hafin yfir alla gagnrýni. Mér er sagt að tækni- vandræði séu honum ókunn þrátt fyrir smávaxnar hendur, og tónminni hans er sýnilega frábært, enda lék hann bæði og stjórnaði blaðlaust. Það mun hafa verið Jósef Haydn sem tók upp á þvi að leika einleik og stjórna i senn úr sæti sinu. Siðan hafa margir tekið þetta upp, a.m.k. vestan hafs, einkum pianistar sem þykir tjáningar- mætti sinum skorinn þröngur stakkur við nótnaborðið. Ashkenazy tókst þetta ágætavel sem vænta mátti og hélt fullri virðingu i þessu annars háska- lega hlutverki. Annarra hljóð- færaleikara skal ekki getið hér sérstaklega, þótt freistandi væri, enda byggist kammer- músik ekki á einkaframtaki snillinga heldur á öguðu sam- spili. Góður strokkvartett, sem að auki er undirstaða kvintetta, trióa o.s.frv., verður t.d. aðeins til þannig að sömu menn spili saman að staðaldri i langan tima og „læri hver á annan”. Einhver hefur sagt að áhuga- menn spili fyrir listina en at- vinnumenn fyrir peninga. Kammersveit Reykjavikur mun vera rekin með áhugastarfi hljóðfæraleikara úr Sinfóniu- hljómsveit íslands, og kannski er þar að finna lykil að ágæti þessara hljómleika. Formaður Kammersveitarinnar og kon- sertmeistari er Rut Ingólfsdótt- ir fiðluleikari, Páll P. Pálsson er aðalhljómsveitarstjóri, en impresarió Þorkell Helgason. Sigurður Steinþórsson Jörðin Ásbúðir i Skagahreppi i A-Hún.er til sölu. Hlunn- indi: æðarvarp og reki. Upplýsingar i sima 41942 i Kópavogi og hjá Rögnvaldi Steinssyni á Hrauni simi um Skefilsstaði. BRÚÐUVAGNAR Búðarverð kr. 7.950 - Heildsölu- birgðir: INGVAR HELGASON Vonarlandi v/Sogaveg, símar 84510 og 84510 Frímerkjasafnarar Skákáhugamenn TafHólag Reykjavíkur Skéksamband íslands SVA.OAMÓT I SK.ÁK * $f«l K> 0>.rCM.« ■ 11 MOV. >«T!> IgtSUianl mm VlNNINöURi t*£C.C> U.NÖVtM8£lt Vtxo K*. VXK Umlcrð 15 ■ GILDIH SEM MAPI’ORA.TTISMIDI Frimerkjaumslög með teikningum eftir Halldór Pétursson og stimpli Svæðamótsins. Veggplattar með mynd af Friðrik Ólafssyni. Sendum i póstkröfu. Svæðamótið í skák SÖLUDEILD — HÓTEL ESJU Menntamálaráöuneytið 5. nóvember 1975 Laus staða l.cklorsstáöa i enskum bókmenntum við heimspeki- deild tláskóla tslands.er laus til umsóknar. Laun samkvæmt iaunakerfi starfsmanna rikisins. Umsóknir með itarlegum upplýsingum um ritsmiðar og rannsóknir svo og um námsferil og störf, sendist menntamálaráðuneytinu, Hverfisgötu 6, Reykjavik, fyrir 10. desember n.k. Lögmannafélag íslands heldur almennan félagsfund i Þingholti föstudaginn 21. nóvember nk. kl. 17.15. Félagsstjórnin. Barnavinafélagið Sumargjöf ^fj.) Fornhaga S. — Simi 27277 \ VhTvV 'A"' / 1 Starf forstöðukonu við dagheimilið Ffrihliö er laust til um- sóknar. Fóstrumenntun áskilin. Laun skv. kjara- samningi borgarstarfsmanna. Umsókn sendist skrifstofu Sumargjafar fyrir 25. nóvember. Stjórnin.

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.