Tíminn - 11.11.1975, Blaðsíða 1
Landvélarhf
ÓLAFUR JÓHANNESSON, VIÐSKIPTARÁÐHERRA:
Vona að mestu efnahaas
erfiðleikarnir séu að baki
OÓ-Reykjavík— Við viljum vona,
að mestu erfiðieikar okkar i efna-
hagsmálunum séu að baki. Það
eru viss teikn á iofti um að dýrtíö-
araldan í heiminum sé aðeins að
réna og við njótum góðs af. Þetta
sagði ólafur Jóhannesson við-
skiptaráðherra f gær, i framhaldi
af upplýsingum, sem hann gaf af
ráðherrafundi EFTA. t ræðu
þeirri, sem Þórhallur Ásgeirsson
ráðuneytisstjóri flutti i nafni
Ólafs á fundinum, sagði að i
Bandarikjunum mætti greina
ýmis batamerki i efnahagsmál-
um, sem enn hefðu ekki náð til
Evrópu, en vonir stæðu til að á-
hrifin myndu brátt ná til alls
heimsins. Þar sem fjórðungur
alls útflutnings tslendinga er
seldur til Bandaríkjanna, sést
vonarglæta i hinu dimma tima-
bili, sem við höfum gengið gegn-
um.
Ólafur sagði, að verð á einstaka
afurðum okkar hefði farið aðeins
hækkandi, en aldrei væri að vita,
hvort slikt væri varanlegt. — Enn
er kreppuástand i flestum
Evrópulöndum, sagði Ólafur, en
batinn i Bandarikjunum hlýtur að
hafa verulega þýðingu fyrir okk-
ur vegna hins mikla útflutnings
þangað, og maður verður að vona
að þetta verði meira en stundar-
fyrirbæri. Ráðherrann lagði á-
herzlu á að það tæki okkur áreið-
anlega talsverðan tima að kom-
ast út úr þeim erfiðleikum, sem
hrjá okkur. Til að mynda er við-
skiptahallinn alltof mikill til að
hann verði réttur af. á stuttum
tima. Getur þvi engin snogg
breyting orðið á. — Það mætti
kannski framkalla hana, sagði
ráöherrann, en vildi ekki segja
nánar hvað þar kæmi helzt til
greina, en slikt hefði ýmsar af-
leiðingar, sem flestir teldu mjög
ósækilegar.
Hraðskókmót
að loknu
svæðismóti
1 gærkvöldi var háð hraðskákmót
og voru keppendur 100. Teflt var
eftir Monradkerfi. Hver
þátttakandi tefldi 16 skákir i 8
umf.
Efstir voru:
Poutianen með 14 1/2
Zwaig með 13
Jónas P. Erlings. 12
Jansa 12
Jón Þorsteinsson 11 1/2
Friörik ólafsson og Jansa
fara yfir skák sina, eftir að
henni hafði lokið með jafn-
tefli igær. Lengst til hægri er
Liberzon, baki við ljós-
myndaranum snýr van den
Broeck, og til vinstri er Ingi
R. Jóhannsson. Úrslit svæð-
ismótsins eru á bls. 7.
Timamynd: Róbert.
4 meðvitundar-
lausir eftir
umferðarslys
Gsal-Reykjavik — Um fátt er
nú meira rætt manna á með-
al en hin mörgu og ógnvekj-
andi umferðarslys, sem orð-
ið hafa á siðustu vikum.
Samkvæmt upplýsingum,
sem Timinn fékk hjá deild-
arlækni á gjörgæzludeild
Borgarspitalans i gærkvöldi,
liggja nú fjórir meðvitundar-
lausir á deildinni eftir um-
ferðarslys: pilturinn, sem
slasaðist i umferðarslysi á
mótum Laufásvegar og
Njarðargötu aðfaranótt 25.
fyrra mánaðar, stúlkan, sem
varð fyrir bil á Húsavik 3.
nóvember, pilturinn, sem
slasaðist á Djúpavogi i um-
ferðarslysi laugardaginn 8.
nóvember, og konan, sem
varð fyrir bil i Keflavik á
sunnudagskvöld.
Að sögn deildarlæknisins
er aðeins i einu tilvikinu
hægt að rncrkja betri liðan,
en það er hjá gömlu konunni,
sem varð fyrir bil i Keflavik.
Síldveiðin:
Ekki fleiri
bótar
kærðir
gébé— 1 gær rann út frestur fyrir
þá sjö báta, sem hafa sildveiði-
leyfi hér við land, en höfðu ekki
hafið veiðar fyrir helgina. Alls
fengu 43 bátar sildveiðileyfi.
Þórður Eyþórsson hjá sjávarút-
vegsráðuneytinu sagði frétta-
manni Timans i gær, að þeir væru
velflestir farnir til veiða. Ekki
væri þó vitað með vissu um 2—3
báta, þeirhefðu ekki fengið neinn
sildarafla, þegar siðast fréttist.
Ekki hafa verið kærðir fleiri
bátar fyrir að veiða meira en
kvóti þeirra sagði til um. eða 215
tonn. Það er aðeins Hrafn GK
sem kærður hefur verið, enda
framið einna gróflegasta brotið.
fór 155 tonn fram yfir leyfilegt
kvótamagn.
AAig langar að taka alveg
af skarið á næsta ári
97 MILLJÓNIR í
INNISTÆÐULAUS-
— SEGIR FRIÐRIK ÓLAFSSON STÓRMEISTARI
FJ—Reykjavik — Það má eigin-
lega segja að ég sé ekki alveg
kominn í takt við sjálfan mig
ennþá, sagði Friðrik ólafsson í
viðtali við Timann i gær, eftir að
hann hafði misst af möguleikan-
um til þátttöku i millisvæöamót-
inu meö jafnteflinu við Jansa.
Þetta jafntefli sagði Friðrik að
hefði verið „fingurfeill” hjá sér,
þvi að áður en skákin fór i bið,
hefði hann átt um flciri en eina
vinningsleið að velja, en ein-
hvern veginn hefði hann misst
möguleikana niöur og skákina i
jafntefli.
Friðrik kvaðst hafa mikinn
áhuga á þvi að geta helgað sig
skákinni einvörðungu áfram. —
Ég er búinn að vera i þessu á
annað ár núna, en það tekur
lengri tima en það að temja sér
rétt vinnubrögö og koma tafl-
mennskunni á fullnægjandi
grundvöll, setja hvern hlut á
sinn bás, ef svo má segja. Mig
langar til að taka alveg af
skarið á næsta ári.
Friðrik sagði, að útaf fyrir sig
væri árangur hans ekkert til að
skammast si'n fyrir, og þessi
árangur væri heldur stigandi
hjá sér miðað við siðustu mót á
undan. — En ég byrjaði illa á
þessu móti, og á timabili virtust
engir möguleikar á þvi að ég
kæmist i snertingu við efstu sæt-
in. Svo tókst mér að vinna
nokkrar skákir á kröftunum, en
þvi miður dugðu þeir ekki i sið-
ustu skákinni, þar sem segja má
að allt hafi gengið á móti mér
tindir lokin.
Friðrik sagði, að mót þetta
hefði verið skemmtilegt að
mörgu leyti, og áreiðanlega
skemmtilegt fyrir áhorfendur,
þar sem hart var barizt og litið
um aðgerðalaus jafntefli, eins
og þau sem oft verða á miklum
stórmeistaramótum. Af skák-
um sinum kvaðst Friðrik telja
skákirnar við Poutiainen og
Hartston einna beztar frá sinni
hendi.
— Ég setti nú miðið svolltið á
þetta mót, sagði Friðrik. Svo
það hefur eitthvað að segja, að
ég skuli hafa misst af strætis-
vagninum að heimsmeistara-
titilinum næstu þrjú árin. En ég
hef fullan hug á að halda skák-
inni áfram og gera hana alveg
upp við mig ávmæsta ári.
Strax eftir áramótin tekur
Friðrik þátt i skákmóti i Hol-
landi.
UAA ÁVÍSUNUAA
— Bankarnir standa ekki við eigin reglur
MÓ-Reykjavik. Bankarnir standa ekki við þær regiur, sem þeir hafa
sjálfir sett sér og sainþykkt að standa viö, sagöi Björn Tryggvason aö-
stoðarbankastjóri Seölabankans I viötali viö Timann i gærkvöldi. A
föstudaginn var gerð skyndikönnun á innstæðulausum ávlsunum og
kom þá i Ijós að þá voru 1199 ávisanir innstæðulausar að upphæð 97
milljónir króna.
Það hefur veriö reynt að sporna við innstæðulausum ávisunum um
fjölda ára, en samt sem áður fjölgar þeim stööugt. Björn taldi, að á-
stæðurnar væru margar þótt stærst væri sú, að bankarnir stæðu ekki
við sinar samþykktir. Þannig ætti t.d. fjöldi þeirra manna, sem nú
verður að kæra fyrir misnotkun ávisana, alls ekki að hafa leyfi til aö
hafa ávisanaviðskipti vegna fyrra misferlis.
Einnig kæmi þarna til lélegur viðskiptamáti fólks ásamt kæruleysi
við að aðgæta hversu háar fjárhæöir viðkomandi ætti inni til að ávisa á.
Það þarf ekki að eyöa orðum að þvi hve alvarlegt ástand það er þegar
jafn mikið af innstæöulausum ávisunum er i umferö, en ástandið ætti
nú að fara að batna með tilkomu reiknistofu bankanna. Þá verður
a.m.k. framkvæmd könnun á hvort út hafa verið gefnar innstæöulausar
ávisanir á hverju kvöldi. Reiknistofan er nú þegar að hluta tekin til
starfa, en um áramót verða allir bankarnir farnir að skipta við hana.