Tíminn - 16.11.1975, Blaðsíða 5
Sunnudagur 16. nóvember 1975.
TtMINN
5
LUDWIGSHAFENSJÚKRA-
HÚSID Á ÞYRLU
Christopher 5 hefur nú fariö
hvorki meira né minna en eitt
þúsund feröir til bjargar sjúk-
um og slösuöum. Christopher
þessi er þyrla, sem er i eigu
sjúkrahússins i Ludwigshafen i
Þýzkalandi, en þyrla þessi er
sérstaklega send út, ef aöstoöa
þarf fólk, sem lent hefur i
bruna, eöa oröiö fyrir miklum
skaöa af völdum bruna. Þyrlan
er alltaf til staöar, og tilbúin til
flugs, og sömuleiðis er áhöfnin
ætlö reiöubúin til þess að fara
hvert sem þörf krefur. 1 áhöfn
þyrlunnar eru flugmaöur, lækn-
ir, sem er sérfræðingur i
skyndihjálp, og auk þess er i
vélinni aðstoðarmaður læknis-
ins, sem einnig er sérþjálfaður i
að veita aöstoð á slysstaö. Þyrl-
an er búin öllum nauðsynleg-
ustu tækjum, sem þörf kann að
vera á, ef slys ber aö höndum.
Tækjunum er öllum sérlega
haganlega fyrir komiö, og þau
rúmast mjög vel i vélinni.
DANSKA FATAFELLAN
Þessa glæsilegu mynd tók ljós-
myndari Timans, Róbert, af
dönsku fatafellunni Evu Nielsen
ööru nafni Mariu Teresu, sem
dvelst hér á landi um þessar
mundir og fellir af sér föt fyrir
þá, sem sjá vilja og sækja þá
skemmtistaði, sem hún kemur
fram á, en þeir munu vera nokkr
ir hér f Reykjavik og nágrenni,
aö minnsta kosti. Eva mun
dveljast hér á landi i nokkrar
vikur, en svo heldur hún aftur
heim á leið til Danaveldis.
SAGAN AF MICHAEL ROCKEFELLER
Ted Neeley, sem lék Jésúm i
kvikmyndinni „Jesus Christ
Superstar”, hefur tekið að sér
að leika i kvikmynd um Michael
Rockefeller, sem við sjáum hér
mynd af. Þessi mynd var tekin
árið 1961, stuttu áður en hann
lagði i sina siðustu för. Margir
muna eftir þvi, aö Michael
Rockefeller, yngsti sonur Nel-
sons Rockefellers varaforseta
Bandarikjanna, týndist árið
1961 i mannfræöileiðangri í
frumskógum Nýju Gineu. Það
var mikil leit gerð að honum, en
ekkert fannst, sem benti til
þess, hver örlög þessa efnilega
unga manns hefðu orðið. Lik
hans fannst aldrei, og þvi voru
getgátur uppi um það, að mann-
ætur, sem enn fyrirfinnast á
þessum slóðum, hefði orðið
honum að bana. Til stóð að taka
kvikmyndarinnar, sem
reyndar heitir „Maður étur
mann”, færi fram á svipuðum
slóðum og atburðurinn gerðist,
en hætt var við það vegna þess,
hve hættulegt er talið að fara
um þessi svæði, sem eru byggð
mjög frumstæðum þjóðflokki.
Myndin var gerð i frumskógum
Venezuela, —• i 12.500 milna
öruggri fjarlægð frá þessum
hættulega stað.
TÖFRAR MENN TIL FRANKFURT |
Þessi töfrandi sextándu aldar
mær, sem ef til vill er Lucretia
Borgia, og hefur verið gerð
ódauðleg i oliulitum af lista-
manninum Bartolomeo da
Venezia, hefur verið notuð til
þess að reyna að draga menn til
Frankfurt am Main i Þýzka-
landi. Myndin, sem fannst i
listasafni I borginni, er nú á
auglýsingaspjöldum, sem sýnd
voru á alþjóðlegri sýningu, sem
haldin var og var ætlað að sýna
sitt af hverju, sem vekja átti at-
hygli ferðamanna á hinum
margvislegustu stöðum viðs
vegar um heiminn. Auglýsinga-
spjöld þessi hlutu silfurverðlaun
á sýningunni. Fyrirtæki og sölu-
menn, sem hafa það að aðal-
starfi að selja ferðamönnum
farmiða og fyrirgreiðslu, hafa
sýírt myndinni af Lucretin
Borgia mikinn áhuga, þar .sem
þeir telja, aö auglýsingasp jaldið
muni verða til þess að vekja enn
meiri athygli á Frankfurt en
verið hefur fyrir hendi til þessa,
þrátt fyrir það að borgin hafi
verið mjög vinsæl sem ferða-
mannaborg og ráðstefnustaður.
Á siðasta ári voru til dæmis
haldnar yfir 5000 ráðstefnur i
Frankfurt.