Tíminn - 16.11.1975, Blaðsíða 14

Tíminn - 16.11.1975, Blaðsíða 14
14 TÍMINN Sunnudagur 16. nóvember 1975. Reykjavik 14. nóv. 1975. RÍKISSPÍTALARNIR lausar stöður KLEPPSSPÍTALINN: FóSTRA óskast sem forstöðukona á dagheimili fyrir börn starfsfólks spitalans, nú þegar eða eftir sam- ; komulagi. FóSTRUR óskast einnig á sama dagheimili til almennra starfa. Nánari upplýsingar veitir forstöðukona spitalans. STARFSSTÚLKA óskast á dag- heimili spitalans. Upplýsingar veit- ir forstöðukonan, simi 38160. LANDSPÍTALINN: AÐSTOÐARLÆKNIR óskast á öldrunarlækningadeild spitalans frá 1. janúar nk. Nánari upplýsingar veitir yfirlæknir deildarinnar. Umsóknir er greini aldur, námsferil og fyrri störf ber að senda skrifstofu rikisspitalanna fyrir 15. desember nk. FÉLAGSRÁÐGJAFI óskast á öldrunarlækningadeild spitalans helzt frá 1. janúar nk. Nánari upplýsingar veitir yfirlæknir deildarinnar. Umsóknir ber að senda skrifstofu rikisspitalanna fyrir 1. jan. nk. HJÚKRUNARDEILDARSTJÓRI óskast á öldrunarlækningadeild nú þegar, einnig HJÚKRUNARFRÆÐ- INGAR OG SJÚKRALIÐAR. Upplýsingar veitir forstöðukonan, simi, 24160. HJÚKRUNARDEILARSTJÓRI óskast á Barnaspitala Hringsins nú þegar eða eftir samkomulagi. Upplýsingar veitir forstöðukonan, simi 24160. BLÓÐBANKINN: AÐSTOÐARLÆKNIR óskast frá 1. janúar nk. Umsóknir er greini aldur, námsferil og fyrri störf ber að senda skrifstofu rikisspitalanna fyrir 15. desember nk. Nánari upplýsingar veitir yfirlæknir Blóð- bankans. MEINATÆKNIR óskast helzt frá 1. desember nk. Upplýsingar veitir yfirlæknir. Reykjavik 14/11 1975. SKRIFSTOFA R í KISSPÍTALANN A EIRÍKSGÖTU 5,SÍM111765 Tímlnner penlngar Auglýsitf i Ttmanum Páll Dagbjartsson sktílastjóri setur sktílann. Til vinstri féiagar úr kirkjukór Viöimýrarsóknar. Ljósm. St. Pétersen. Varmahlíðar- skóli vígður Gó-Sauöárkróki. Fyrir skömmu fór fram vigsluathöfn, og jafn- framt skólasetning í hinum nýja grunnskóla I Varmahliö. Að skólastofnuninni standa 10 hreppar i Skagafjarðarsýslu. Mikill mannfjöldi viðsvegar aö úr héraöinu sótti skólann heim viö þetta hátiöatækifæri, til aö fagna þessu langþreyða takmarkiaö sjá skóla og menntasetur risið af grunni og taka til starfa i Varma- hliö. Páll Dagbjartsson skólastjóri setti samkomuna, bauð alla viöstadda velkomna og stjórnaöi siöan. En samkoman hófst meö helgistund, sr. Gunnar Gislason, Glaumbæ prédikaði. Kirkjukdr Viöimýrarsóknar, undir stjórn Björns Ólafssonar Krithóli, annaöist söng. Þá talaöi Halldór Benediktsson formaður byggingarnefndarskólans, rakti i stórum dráttum sögu skóla- byggingarinnar, og minnti á hvaö baráttan hefði oft verið erfiö og aödragandinn að þvi oröinn lang- ur, aö slikt menntasetur, sem þessi nýi skóli - risi hér i Varma- hliö. En kveikjuna að skólastofn- un i Varmahlið taldi Halldór að mætti rekja allt til ársins 1936, er nokkrir áhugamenn i héraði stofnuðu félagsskap — Varma- hliöarfélagiö — i þeim tilgangi að beita sér fyrir stofnun héraðs- skóla I Varmahlið. Aðal hvata- maöur og fyrsti formaöur þess félagsskapar var Arni Hafstaö, bóndi I Vlk. Nú, þegar þessar ára- tuga vonir væru orönar að veru- leika, væri þessi dagur sann- kallaður — sigurdagur. Margir fleiri ræöumenn komu fram: Sigurpáll Arnason, formaður skólanefndar, Gisli Magnússon, Helga Kristjánsdóttir, Jóhann Salberg Guðmundsson og Jóhann L. Jóhannesson, svo og alþingis- mennimir Ragnar Arnalds, Páll Pétursson og Pálmi Jónsson. Ekki er allt skólahúsnæöiö fullbúið til starfsrækslu enn sem komið er, heldur hluti þess, sem nefnt er A hús, 1436 ferm. og kjallari B húss, 205 ferm. I A húsinu, sem tekið var I notkun, er heimavist, mötuneyti, samkomu- salur og 2 einstaklingsibúöir kennara. Alls er skólabyggingin 2654 ferm. Byggingameistari var Guðmundur Márusson og yfir- smiður Eggert Ólafsson, múrarameistari Haraldur Hróbja rtsson. Pipulagnir annaöist Sigurður Ármannsson Akureyri. Málningu hússins hafa unnið Haukur Stefánsson og Jónas Þór. Raflagnir annaðist Rafall S.V.F. Guðmundur Mar- teinsson. Arkitektar voru Hrafnkell Thorlacius og Njörður Geirdal. Byrjað var á skólanum sumarið 1973, og framkvæmda- stjóri við bygginguna frá byrjun hefur verið Pétur Pétursson. Að jafnaði hafa starfað 25 manns við byggingarframkvæmdirnar, og hefur hópurinn starfrækt mötu- neyti, sem Sigriður Márusdöttir hefur veitt forstöðu. Skólastjórinn, Páll Dagbjarts- son flutti nú skólasetningarræðu og setti skólann. 140 nemendur verða I skólanum i vetur i 7 bekkjardeildum, þar af 17 i landsprófsdeild. í heimavistinni verða 56 nemendur. Or næstu hreppum er nemendum ekiö i skólann. Við skólann starfa 6 fastir kennarar, auk skólastjóra, og 4 stundakennarar. Matráös- kona er Herfriður Valdemars- dóttir frá Brekku. Eins og fyrr segir er það A hús skólans, sem tekið er i notkun núna en B hús þar sem kennslu- stofurnar verða ekki tilbúnar fyrr en seinna i vetur og aö ári. Þvi taldi skólastjóri, að nokkur þrengsli yrðu við kennsluna fyrst um sinn. Kennt verður i sam- komusalnum og honum skipt i tvær stofur og i kjallara B húss. En kennsla i barnaskólanum fer fram i félagsheimilinu Miðgarði, þar sem skólinn hefur verið til húsa undanfarna vetur. Að athöfninni i skólahúsinu lokinni var öllum boðið til kaffi- drykkju i félagsheimilinu, þar sem karlakórinn Heimir söng við stjórn Árna Ingimundarsonar.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.