Tíminn - 20.11.1975, Side 1

Tíminn - 20.11.1975, Side 1
PRIMUS HREYFíLHITARAR í VÖRUBÍLA OG VINNUVÉLAR HF HÖRÐUR 6UNHABSS0N SKÚLATÚNI 6 - SÍMI (91)19460 FJ-Reykjavík. — Það er meining- in með þessu að nú verði að segja stopp, sagði Ólafur Jóhannesson, viðskiptaráðherra, i viðtali við Timann í gær, en rikisstjórnin hefur ákveðið að herða fram- kvæmd laga um verðstöðvun. Tilgangurinn er að hægja á verðbólgunni, og draga sem mest úr verðhækkunum næstu fjóra mánuðina, sagði viðskiptaráð- herra. Það hafa verið til þessa ýmsir hækkaðir kostnaðarliðir teknir inn i verðlagið, en nú er ætlunin að hætta þvi með þeim undantekningum, sem skýrt er frá i bréfi viðskiptaráðuneytisins (sjá frétt á bls. 3). Verði um aðrar hækkanir að ræða, verða fyrir- tækin að taka þær á sig þetta timabil. Þessar aðgerðir snúa ekki hvað sizt að hinu opinbera, sagði viðskiptaráðherra. Það hafa verið hækkanir á ýmissi opinberri þjónustu, sem eru meiri en hið almenna verðlag hefur hækkað. Ég nefni hér til gjöld pósts og sima, hitaveitu og raf- magnsveitu. — Það er m'einingin með þessu, að nú verði að segja stopp, sagði vipskiptaráðherra að lokum. VIÐ TOKUM LAN ÚROLÍUAUÐNUM i gær undirritaöi fjármála- ráðherra, Matthias A. Mathies- sen, lánssamning f.h. rikissjóðs uin lántöku á fjörum milljónum Kuwait dinörum, en andvirði tánsins samsvarar 2.270 milljónum islen/.kra króna á núgildandi gengi. Lán þetta er tekið af rikis- sjóði skv. lögum nr. 11/1975 til endurláns innanlands vegna Framkvæmdaáætlunar 1975, m.a til Framkvæmdasjóðs. Ber lánið8 3/4% vextiog er til 7 ára. Seðlabanki Islands annaðist undirbúning lántökunnar fyrii hönd rikissjóðs. Milligöngu um lántöku þessa höfðu Arab Financial Consultants Company S.A.K. i Kuwait og First Boston A.G. Aþenu, sem er úbibú the First Boston Corporation i New York. Lánveitendur eru nokkrir fjár- festingarbankar i Kuwait og nokkrum öðrum Miðausturlönd- um. Brezku skipstjór- arnir náðu ekki sam- stöðu um að krefjast herskipa- verndar ------► O „Komum heim með drög að samkomulagi — sagði Einar Ágústsson, utanríkisráðherra um viðræðurnar í Bonn ins kæmu til framkvæmda gagn- vart Islendingum. — Ég býst við að islenzka við- ræðunefndin komi heim á föstu- dag með drög að samkomulagi, sem verða tekin til athugunar i rikisstjórninni, sagði Éinar Ágústsson utanrikisráðherra i gærkvöldi. Fundi viðræðunefnda Is- lendinga og Vcstur-Þjóðverja um landhelgismálið erhaldið áfram i Bonn i dag. Upphaflega var ætlunin að viðræðunum lyki i gær, en i gærkvöldi var ákveðið að halda þeim áfram i dag. Þrátt fyrir að ekki hafi náðst endanlegt samkomulag i gær er- um við mjög bjartsýnir á að samningar takist á næstunni, sagði Bernhard Zepter fulltrúi v-þýzka utanrikisráðuneytisins, er Timinn náði tali af honum i gærkvöldi. Annar fundur verður haldinn fyrir hádegi i dag og i gærkvöldi var snæddur sameigin- legur kvöldverður. Samkomulag hefur náðst i flestum atriðum eða 9 af 12,sem áður hafði ekki tekizt að semja um. Enn ætti eftir að ákveða veiðisvæði, en nú þegar bryddar á miðlun i þvi máli, sagði fulltrúinn. Bæði þýzka og islenzka sendi- nefndin álitu nauðsynlegt að gera rikisstjórnum sinum grein fyrir stöðu samningagerða, og væri þvi ekki hægt að gefa neinar endan- legar niðurstöður til kynna. Sam- fara töluverðri málefnalegri hörku rikti mjög vinsamlegt and- rúmsloft i umræðunum. Aðspurður hvort rof samninga- umleitana Breta hefðu áhrif á samningaviðræður Þjóðverja og Islendinga, sagði Zepter að svo væri ekki, þar sem Bretar sækt- ust eftir veiðum á öðrum fisk- tegundum, þ.e. þorski og vildu fá veiðisvæði, sem lægju nær ströndinni. Að sjálfsögðu hindruðu þó rof samningagerða við Breta framgang á þvi, að tollaivilnanir efnahagsbandalags- HALLDOR E. SIGURÐSSON A FUNDI FAO: Útfærsla landhelginnar skerfur íslands til að stuðla að aukinni mat- vælaframleiðslu í heiminum AÞ-Reykjavik.— Halldór E. Sigurðsson landbúnaðarráð- herra tók þátt i aðalráðstefnu FAO — Matvæla- og land- búnaðarstofnunar Sanieinuðu þjóðanna — sem haldin var i Itóm fyrr i þessum mánuði. Er það i fyrsta skipti, sem islenzk- ur landbúnaðarráðherra situr ráðstefnuna. t ræðu þeirri, sem Halldór E. Sigurðsson flutti á ráðstefnunni lagði hann megináherzlu á að kynna ástæðurnar fyrir útfærslu “islenzku landhelginnar. Sagði ráðherrann m.a., að útfærsla is- lenzku fiskveiðilögsögunnar i 200 milur væri skerfur tslands til að stuðla að aukinni fram- leiðslu matvæla i heiminum, og til að vernda fiskistofna, og þar með að auka fiskistofna siðar. Varðandi samninga við aðrar þjóðir vegna útfærslu landhelg- innar. sagði islenzki ráðherr- ann. að samkomulagsleiðin væri æskileg, en til litiis gagns væri að vernda fiskinn eftir að hann væri horfinn úr sjónum. ,,Að okkar dómi mátti ekki draga að stiga þetta skref", sagði hann. Itæða Halldórs E. Sigurðsson ar birtist á þls. 6 i blaðinu i dag. FRAAAKVÆMD VERÐSTÖÐVUNARLAGA HERT: NÚ VERÐUR AÐ SEGJA STOPP — segir viðskiptaráðherra

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.