Tíminn - 20.11.1975, Blaðsíða 2

Tíminn - 20.11.1975, Blaðsíða 2
2 TÍMINN Fimmtudagur 20. nóvember 1975. Landsbókasafneignast handrit Guttorms J. Guttormssonar skálds Upphaf kvæöis Guttorms J. Guttormssonar fyrir minni Nýja ts- lands. Frá sýningunni um bókmennta- iðju islcndinga i Vesturheimi i anddyri Safnahússins. Tíma- mynd: Gunnar. Börn Guttorms J. Guttorms- sonar skálds og Jensinu konu hans, dæturnar Pálína, Bergljót og Hulda og sonurinn Gilbert Konráð, hafa fyrir nokkru sent Landsbókasafni fslands að gjöf mikið og merkilegt safn hand- rita föður sins, en fjölskyldan hafði áður að honum látnum gefið Manitobaháskóla i Winni- peg bókasafn hans, mörg hundruð binda. I gjöfinni til Landsbókasafns eru saman komin margvisleg handrit skáldsins, kvæði, sögur, leikrit, endurminningar auk mikils safns bréfa, er honum bárust á langri ævi. Nokkur handrit Guttorms skálds liggja nú frammi á sýniigu nokkurra sýnishorna bókmenntaiðju Islendinga i Yesturheimi i anddvri Safnahússins kl. 9 til 19. Hætti í Verðlagsnefnd vegna ágreinings við umbjóðendur sína Sveinn Snorrason hrl. hefur sagt sig úr Verðlagsnefnd, og er ástæðan ágreiningur milli Sveins og verzlunarsamtakanna, en hann hefur setiö i nefndinni af hálfu þeirra. A fundi verðlags- nefndar i gær mætti varamaður Sveins, Þorvarður Eliasson, framkvæmdastjóri Verzlunar- ráðs fslands. A stjórnarfundi Kaupmanna- samtakana skarst i odda milli Sveinsogannarra stjórnarmanna um verðlagsmál, og var Sveinn ósammála hinum um álangingu á vörum, og sagði sig þvi úr Verðlagsnefnd. ER BIFREIÐIN í LAGI? Þannig geta akstursskilyrði orðið og þvi er nauðsynlegt að halda athyglinni vakandi og gæta ýtrustu varkárni. gébé-Rvik. —Nú er vetur fyrir al- vöru genginn i garð, og þar með sá timi sem akstursskilyröi verða hvað erfiðust og hættulegust, eins og hin mörgu alvarlegu um- ferðarslys undanfarnar vikur hafa sýnt. Þau höfðu reyndar komið til áður en akstursskilyrði urðu eins og þau geta orðið verst að vetrarlagi, með snjó og hálku samfara dimmviðri. Skyndilcgar veðrabreytingar gera ökumönn- um og öðrum vegfarendum crfiöara fyrir og aldrei er hægt að gera ráð fyrir sömu aksturs- skilyrðum langan tima dag hvern. Það er ekki nóg að öku- maöurinn sé viðbúinn þessum breytingum, heldur verður hann einnig að gera ráðstafanir til að bifreiðin sem hann ekur sé vel út- búin. Bifreiðaeigendum var leyfilegt að setja neglda hjólbarða undir bifreiðar sinar 15. október, s.l. en það er ekki skylda að nota neglda hjólbarða, einnig má nota snjóhjólbarða með grófu mynstri og keðjur. En sama gildir um sjóhjólbarða og neglda, þeir þurfa að vera á öllum hjólum. Það getur lika verið nauðsynlegt að hafa meðferðis snjókeðjur, þegar hjólbarðarnir, hverju nafni sem þeir nefnast, valda ekki leng- ur þvi hlutverki, sem þeim er ætlað. Hjálpartæki eins og rúðuþurrkur og rúðusprautur er nauðsynlegt að séu i lagi, þegar bleyta og slabb er á götum. En oft setjast óhreindini, svo sem ’tjara og annað á framrúðuna, og er þá nauðsynlegt að hreinsa rúðurnar sérstaklega, þvi þá gera rúðuþurrkurnar litið gagn. Ýmis efni til þessa fást á benzin- stöðvum, þar sem einnig fá má is- vara á rúðusprautur. 31. október s.l. lauk ljósaskoðun 1975 og ættu samkvæmt þvi allar bifreiðar að vera með ljós I lagi. Könnun, sem gerð var eftir þennan tima, leiddi hins vegar i ljós, að þriðjungur bifreiðaeig- enda hefði látið undir höfuð leggjast að færa bifreiðar sinar til skoðunar. Þetta er vitavert kæruleysi, einmitt á þessum árstima þegar mikilvægast er að þessi öryggistæki bifreiðarinnar séu i lagi yfir skammdegis- timann. Umferðarráð vill benda öku- mönnum á mikilvægi þess að ökuljósin séu notuð utan ljósa- tima ef slikar aöstæður eru fyrir hendi, eins og þoka, rigning, snjókoma eða stórhrið. Þessar aðstæður gera það að verkum að útlinur bifreiða slævast til muna. ÞANNIG NOTUM VIÐ LJÓSIN STÖÐUUÓS. Þegar bifreiðin er stöðvuð ö illa lýstri akbraut. Einnig þeg. ar stanzað er við gatnamót vegna umferðar, sem ó for- gang, eða við umferðarljós. LÁG LJÓS I slæmu skyggni, s.s. þoku, rigningu, snjókomu o. fl. I myrkri, þegnr götulýsing er góð. IRA ddir hugrekki íslendinga Stjórnmáladeild frska lýð- veldishersins (Professional Sinn Fein), sem berst gegn stjórn Breta á Norður-lr- landi og vill sameina það Irska lýðveldinu, sendi i gær Geir Hallgrimssyni forsætis- ráðherra orðsendingu, þar sem segir m.a., að þvi er fregnir frá skrifstofu sam- takanna i Dublin herma: „Onnur smáþjóð dáir hug- rekki fslendinga á örlaga- stundu. Lýöveldissinnar hafa ætið barizt gegn ihlutun Breta um innanrikismál á trlandi. Það er von okkar að þið munið ekki heldur láta undan gervisósialistum, sem leitast við að skera á liflinu islenzku þjóðarinnar.” NotiÖ NATIONAL Hl-Top rafhlöðurnar í vasatölvurnar frá okkur Utioim*1 H|-ToP NOVW oliuekli SKRIFSTOFUTÆKNI H.F. Tryggragöiu — Simi 28511 ilfil#

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.