Tíminn - 20.11.1975, Side 3
Fimmtudagur 20. nóvember 1975.
TÍMINN
3
Miklar birgðir af óseldu
óli í Straumsvík, þótt fram-
leiðsla hafi verið minnkuð
um 15% fró því í fyrra
SJ-Reykjavik — Það hefur orðið
samdráttur hjá okkur, en ekki
eins inikill og viða annars staðar.
Við liöfum dregið úr framleiðsl-
unni uni 15% á þessu ári miðað
við 1974 og eigum miklar óseldar
birgðir. Fyrirtækið Alufinance
hefur keypt af okkur ál i þeirri
trú, að það sé góð fjárfesting og
það gerir okkur kleift að halda
framleiðslunni áfram.
Svo fórust Ragnari Halldórs-
syni, forstjóra Islenzka álfélags-
ins orð.er við leituðum álits hans
vegna frétta um minnkandi eftir-
spurn eftir áli að undanförnu og
lækkað verð. I nýrri skýrslu frá
svissneska álfélaginu Alusuisse
kemur fram, að eftirspurn eftir
léttmálmum minnkaði mjög
haustið 1974, og sú þróun hefur
haldið áfram. Sala á hrááli á
fyrra helmingi ársins 1975 var
þriðjungi minni en á sama tima
1974. Afkastageta er ekki nýtt til
fullnustu, eða aðeins að 80
hundraðshlutum. 1 Evrópu eru
5% ekki nýtt, i Bandarikjunum
27% og i Japan 37%. Þrátt fyrir
þennan samdrátt i framleiðslu
hafa birgðir af óseldu áli vaxið úr
1,3 milljónum tonna um mitt ár
1974 i 3,5 milljónir tonna i septem-
berlok 1975. Núverandi birgðir
nægja eftirspurn i fjóra mánuði.
Birgðir yrðu þó fljótt eðlilegar ef
eftirspurn ykist.
Verð á hrááli hefur lækkað i
Evrópu, einkum i Þýzkalandi og á
ttaliu um allt upp i 30% i fram-
kvæmd.þótt opinberlega hafi það
ekki lækkað. Aðeins i Banda-
rikjunum hefur skráð verð hækk-
að úr 39 i 41 sent pundið. Hálfunn-
ar vörur úr áli hafa einnig átt
erfitt uppdráttar. Samkeppni hef-
ur verið hörð og sala gengið illa.
Þegar til lengdar lætur verður
framleiðslugeta álverksmiðja I
heiminum ekki nægilega mikil,
segir i skýrslu Alusuisse. Ekki er
liklegt, að byggðar verði nýjar
verksmiðjur eins og ástandið er
nú, og þvi verður ál áður en langt
um liður enn á ný sjaldséður
málmur.
Að sögn Ragnars Halldórssonar
eru fáar álverksmiðjur i bygg-
ingu i heiminum nú, — eitthvað
þrjár eða fjórar. Þær og verk-
smiðjur, sem fyrir eru, ættu þvi
að geta komizt vel af, ef bati
verður i efnahagsmálum heims-
ins á næstunni.
BREZKU SKIPSTJÓRARNIR NÁÐU EKKI
SAMSTÖÐU UM HERSKIPAVERNDINA
Gsal-Reykjavik. — i landhelgis-
gæzluflugi i gær heyrði loft-
skeytamaður Sýr á tal brezkra
togaraskipstjóra, þar sem þeir
voru að ræða þá hugmynd sina,
að lióta að snúa togurunum heim
til Bretlands, yrðu þarlend
stjórnvöld ekki við þeirri kröfu
um að senda herskip á miðin við
island innan þriggja sólarhringa.
Af tali þeirra mátti ráða að
skipstjórnarmenn allra brezku
togaranna hefðu þá ákveðið að
senda þessa hótun til Bretlands.
Það reyndist þó ekki rétt, þvi
skömmu siðar, mátti enn heyra á
tal þeirra og sögðu þeir þá, að
ákveðið hefði verið að fresta þvi
aðsenda þessa hótun. Siðar kom i
Ijós, að ástæðan fyrir þvi var sú,
að ekki náðist samstaða meðal
brezku togaraskipstjóranna um
þessa hótun. 10 togaraskipstjórar
neituðu að eiga hlutdeild að henni
og þar með var grundvöllurinn
brostinn.
Togaraskipstjórarnir ákváðu
þvi að biða átekta og sjá hversu
megnugir dráttarbátarnir þrir
yrðu við að vernda þá gegn is-
lenzku varðskipunum.
Eftir þvi sem komizt var næst i
gær, virðist sem brezka hermála-
ráðuneytið hafi ákveðið að senda
Nimrodþotur til njósnastarfa við
Island en sem kunnugt er gripu
Bretar til þess sama ráðs eftir út-
færslu islenzku fiskveiðilög-
sögunnar i 50 milur. Að sögn
Sigurjóns Hannessonar, sem var
skipherra Sýr i gær, gefa
Ndmrodþoturnar brezku togurun-
um upplýsingar um stöðu
varðskipanna á hverjum tima og
kvaðst hann þess fullviss að hlut-
verk þeirra yrði það sama nú —
fæ'ri svo að þær yrðu sendar á
vettvang — og i siðasta þorska-
striði. Þá komu hingað upp að
landinu tvær þotur á dag, önnur
að morgni og hin siðari hluta
dags.
Þrir dráttarbátar eða verndar-
skip eins og þeir hafa verið
nefndir biða nú úti fyrir Aust-
fjörðum eftir komu Lloydsmans
til landsins, en hann mun væntan-
legur i dag. Dráttarbátarnir,
Aquarius, Sirius og Polaris, voru i
einum hnapp úti fyrir Aust -
fjörðum i gær og biðu eftir „stóra
bróður” sinum, Lloydsman, sem
er næstum helmingi stærri en
þeir. Um borð i Aquarius er flota-
fulltrúi og landhelgisgæzlumenn
um borð i Sú i gær, heyrðu að
flotafulltrúinn fyrirskipaði öllum
brezku togurunum að hefja
veiðar á ákveðnu svæði úti fyrir
Austfjörðum.
Að sögn Sigurjóns Hannes-
sonar, skipherra, nær svæði það
sem Bretarnir hyggjast freista
þess að veiða á undir vernd.rátt-
arbátanna — frá Borgarfirði
eystra að miðunum fyrir sunnan
Hvalbak. Sigurjón sagði, að
Bretar hefðu beitt sömu
brögðum, þegar herskipin voru
hér við land i siðasta þorskastriði.
— Dráttarskipin vilja fá alla
togarana inn á þetta svæði til þess
að auðvelda þeim veiðarnar,
sagði Sigurjón.
Týr var úti fyrir Austfjörðum i
gær, en ekki kom þó til neinna á-
taka milli varðskipsins og brezku
veiðiþjófanna. Úti fyrir Aust-
fjörðum voru i gærdag 29 brezkir
togarar, flestir að veiðum fyrir
innan 50 milna mörkin, og héldu
togarnir sig aðallega á miðunum
norðaustur af Austfjörðum.
Brezku togararnir hafa hætt
þeirri veiðiaðferð, sem þeir hafa
stundað siðustu dægur, sem var
fólgin i þvi, að einn togari var að
veiðum, meðan tveir sinntu
verndarhlutverkinu.
Siðari hluta dags i gær var svo
flogið vestur með Norðurlandi, en
engir brezkir togarar sáust fyrr
en norðvestur af Kögri. Þar voru
5 brezkir togarar og einn fær-
eyskur. A Kögurgrunni voru 36 is-
lenzk skip ásamt einum Breta, og
einn brezkur togari hélt sig 48
milur norðvestur af Gelti.
Brezku togararnir voru þvi alls
36 við landið i gær, allir innan við
50 milna mörkin. 1 fyrradag voru
brezku togararnir alls 42.
Brezku veiðiþjófarnir voru 36 á miöunum kringum tsland i gær og allir fyrir innan 50 milna mörkin. Þessi
Grimsbytogari var að veiðum úti fyrir Austfjörðum i gær. Timamynd: Gunnar
Framkvæmd
ákvæða um
verðstöðvun
hert
Viðskiptaráðuneytið ritaði
verðlagsnefnd svohljóðandi
bréf i gær:
„Ráðuneytið telur nauðsyn-
legt að herða framkvæmd
ákvæða laga nr. 13/1975
þeirra, sem fjalla um verð-
stöðvun.
Ráðuneytið beinir þvi þeim
tilmælum til verðlagsnefndar,
að hún hafi hliðsjón af eftir-
farandi starfsreglum við verð-
ákvarðanir á timabilinu til 20.
marz 1976:
1. Ekki skal hækka verð á
vöru eða þjónustu frá þvi sem
það var 20. nóvember 1975,
sbr. þó 2. lið hér að neðan
Jafnframt skal óheimilt, ef
það er kaupendum i óhag, að
breyta þeim afsláttarreglum
og greiðslukjörum, sem i gildi
voru 20. nóvember 1975.
Ef hafin eru sala á nýrri
vöru eða þjónustu, má ekki
verðleggja hana hærra en
verð var á. hliðstæðri vöru og
þjónustu þann 20. nóvember
1975.
2. Þrátt fyrir ákvæði 1. tl.
telur ráðuneytið að heimila
megi i eftirfarandi tilvikum
fyrirtækjum að taka inn i verð
þær kostnaðarhækkanir, sem
sannanlega hafa orðið eftir 20.
nóvember 1975:
a) Framleiðslufyrirtæki.
Heimila má að taka inn i
verð þá upphæð, sem nauð-
synleg er til að standa undir
hráefnahækkunum.
b) Þjónustufyrirtæki.
Heimila má að hækka
þjónustu, sem svarar þeirri
upphæð, sem nauðsynleg er tii
að standa undir hækkun þess
efniskostnaðar, sem er i
þjónustunni.
c) Verzlunarfyrirtæki.
Heimila má að hækka vöru-
verð, sem svarar hækkun á
innkaupsverði.
Eigi skal heimila hækkun
álagningar i hundraðstölu frá
þvi, sem hún var 20. nóvember
1975.
Hækki aðflutningsgjöld
vegna verðhækkana sam-
kvæmt heimild i liðum a-c hér
að framan, má heimila þá
hækkun inn i verð vöru og
þjónustu.
Fyrirtækjum, sem óska eftir
hækkúnum, samanber liði a-c,
ber að leggja fyrir viðkomandi
verðlagsyfirvöld verðútreikn-
inga með nauðsynlegum fylgi-
skjölum til rökstuðnings
beiðnum sinum.
Ráðuneytið hefur einnig rit-
að öllum ráðuneytum, sem
fjalla um verðákvarðanir, og
óskað þess, að itrustu
varkárni verði gætt i verð-
lagningu og að engar verð-
ákvarðanir veröi teknar nema
i samráði við viðskiptaráðu-
neytið.”
Frh. á bls. 15
Kristján Benediktsson um Ármannsfeilsmálið:
„Fróðlegt að fá lista yfir þá, sem
gáfu milljónir í byggingasjóðinn"
BH-Reykjavik. — Miklar likur
éru á þvi, að Armannsfellsmálið
svonefnda verði til umræðu á
fundi borgarstjórnar i dag, en
þá verður meðal annars fjallað
um fundargerð borgarráðs, þar
sem lagðar voru fram niður-
stöður dómsrannsóknarinnar,
en að henni lokinni sá rikissak-
sóknari ekki ástæðu til frekari
aögerða.
— Þess var aldrei að vænta, að
aðrar niðurstöður en þessar
fengjust af þessari takmörkuðu
rannsókn. Áður en málið var
tekið fyrir höfðu aöilar þess lýst
þvi yfir, að peningagreiðslur
höfðu átt sér stað, og dómari
átti siðan að komast að þvi,
hvort sambandi væri á milli
þeirra og fyrirgreiðslu. Aðilar
neituðu að aö svo væri, bæði
fyrirfram og fyrir dómi. Hins
vegar eru ýmis atriði i þessu
sambandi, sem forvitnilegt
hefði verið að veita almenningi
vitneskju um.
Þannig komst Kristján Bene-
diktsson, borgarfulltrúi Fram-
sóknarflokksins, að orði i gær,
þegar Timinn hafði samband
við hann.
—Það er upplýst, að fleiri
aðilar en Armannsfell gáfu eina
milljón króna i byggingarsjóð
Sjálfstæðisflokksins. Hitt liggur
lika fyrir, að engir aðilar gáfu
meira en eina milljón. Nú liggur
ekki fyrir hvaða aðilar það
voru, sem gáfu þessa upphæð,
eða hvaða umbun þeir fengu.
Það væri þvi fróðlegt að fá lista
yfir þá til þess að unnt væri að
gera grein fyrir þvi, hvort um
meiriháttar verzlun hefur
verið að ræða.
— Annars kemur það fram i
þessari dómsrannsókn, sagði
Kristján Benediktsson, að
Albert Guðmundsson óskar
eftir þvi að gefendurnir i þessu
tilfelli komi á hans fund til þess
að hann geti þakkað þeim, og i
beinu framhaldi af þvi er farið
að ræða úm úthlutun lóðarinnar.
— Að öðru leyti geri ég ráð fyrir,
að málið verði tekið fyrir á
borgarstjórnarfundi á- morgun,
fimmtudag. Hvað út úr þessu
kemur, er hins vegar ekki gott
að segja.