Tíminn - 20.11.1975, Blaðsíða 6

Tíminn - 20.11.1975, Blaðsíða 6
6 TÍMINN Fimmtudagur 20,nóvember 1975. ,,Herra forseti. Þetta mun vera i fyrsta sinn, sem Islenzkur landbúnaðarráð- herra situr aðalráðstefnu Mat- væla- og landbúnaðarstofnunar Sameinuðu þjóðanna. Þó hefur Island verið meðlimur stofnunar- innar frá upphafi og bæði lagt til hennar marga sérfræðinga og sömuleiðis þegið aðstoð sér- fræðinga hennar við tækniþróun landbúnaðarins. Mér er það þess vegna mikil ánægja að vera hér til að kynnast betur störfum og viðhorfum stofnunarinnar og til að kynna fyrir kollegum minum og fræðimönnum um landbúnað og fæðuöflun, lifsbaráttu þjóðar minnar og það hlutverk, sem hún geturgegnt i fæðuöflun heimsins. Aðeins 3% af landinu ræktað fsland er eyja nyrzt i Atlants- hafinu, rétt við héimskautsbaug- inn. Island er nyrzta sjálfstæða rik heimsins. Veðráttan þarna er rft óblið og óvægin. Sjórinn kringum landið er ekki leikvöllur til listisiglinga, heldur hættulegur, a.m.k. á vetrum þeim er hann stunda. Landið sjálft er eldfjallaeyja með öflugum eld- gosum að meðaltali fimmta hvert ár. t siðasta eldgosi, fyrir tveim árum, lá nærri að eyðilegðist bezta verstöð landsins, svo að flytja varð alla ibúana burtu það- an i bili. Einungis f jórði hluti landsins er hulinn gróðri, um 3% af landinu er ræktað, hitt eru hraun, jöklar, eyðisandar og fjöll. En þetta erlandið okkar, þarna fæddumst við og þarna höfum við kosið okkur að lifa, og af þessu landi og hafinu umhverfis það verðum við að afla okkur lifs- viðurværisog tekna til að geta lif- að og miðað lifsviðurværi okkar við það, sem gerist i nútima þjóð- félagi. Þetta hefur ekki alltaf ver- ið auðvelt, en islenzku þjóðinni, hefur þrátt fyrir fæð sina (en ibúarnir eru um 200 þús. manns), tekizt að halda þarna uppi sjálf- stæðu menningarþjóðfélagi. Háðari fiskveiðum, en nokkur önnur þjóð Með nútfma tækni hefur okkur tekizt að koma okkur upp land- búnaði, sem sér fyrir öllum okkar þörfum i kjöti, m jólk og að mestu i grænmeti, og nokkuð umfram það, sérstaklega i sauðfjárafurð- um. Við höfum komið okkur upp fiskveiðiflota, sem sér okkur fyrir útflutningsvöru til að afla okkur gjaldeyris til annarra þarfa. Á ts- landi býr matvæla- og land- búnaðarþjóð, eða öllu heldur fiski- og landbúnaðarþjóð. Við er- um háðari fiskveiðum en nokkur önnur þjóð. Allt að 70-80% af út- flutningstekjum okkar koma frá fiski og fiskafurðum. Ef fiskurinn bregzt okkur, þá er stoðunum kippt undan efnahagslifi þjóðar- innar. Aðrar þjóðir geta þolað sveiflu i aflamagni ogfiskverði og hafa ráð á að borga styrki með fiskiðnaði sinum. Hjá okkur byggist efnahagurinn fyrst og fremst á fiski, og sá atvinnuvegur verður a.m.k. ennþá að standa undir styrkjum, ef illa gengur á öðrum sviðum. Við vonumst til i framtiðinni aðgeta notað raforku úr fallvötnum og jarðhita til að byggja upp iðnað, og renna þann- ig fleiri stoðum undir efnahagslff- ið. Auk þess að við getum eflt landbúnað sem arðbæra útflutn- ingsatvinnu. 200 mílurnar Herra forseti. Ég hef notað tima minn hér til að sýna fram á, hversu mjög þjóð min byggir af- komu sina á hafinu kringum land okkar, og til að vekja athygli á þvi, að þegar ágengnin i fiskinn á miðum okkar er orðin svo geig- vænleg, að heilar fisktegundir hafa horfið og aðrar eru á hraðri leið með að hverfa, þá er ekki um annað að ræða en gripa til þess ráðs að vernda fiskstofnana um- hverfis Island fyrir ofveiði. Aðrar þjóðir hafa ef til vill efni á þvi að biða eftir alheimssamkomulagi um skiptingu hafsins, en okkar eyja i' Atlantshafinu hefur ekki efni á þvi, að fiskurinn við strend- ur hennar, lifsbjörgin okkar, sé veiddur svo ákaft, að fisk- stöfnarnir minnki stöðugt, svo hætta erá, að þeir hverfi. Við urð- um að taka til okkar ráða og stöðva þessa rányrkju til þess að tryggja þjóð okkar framtiðarlifs- möguleika. Við höfum ný lýst yfir 200 milna fiskveiðilögsögu, og gerum það i anda þeirrar stefnu, sem mörkuð hefur verið á hafréttarráðstefn- unni. Viö höfum alltaf verið ánægð með að vera eyriki án sameigin- legra landamæra við nokkra þjóð, og þess vegna lausir við landa- mæradeilur. En hluti af landi okkar er hafið, vegna þess að það er okkur sem kornakrar annarra þjóða. Það verðum við að verja. t fyrstu áttu Islendingar aðeins litla, opna báta og veiddu inni á fjörðum og vikum, sem þá voru fullir af mörgum tegundum fiskj- ar. Síðan komu erlendir togarar ogveiddu inni i fjörðunum, svo að enn i dag er hvergi arðvænleg veiði I fjörðum landsins. Það er stutt siðan við færðum fiskveiði- lögsögu okkar út i 4 milur og lok- uðum fjörðunum. Næsta skref i fiskvernd okkar var að færa fisk- veiðilögsöguna út i 12 m Dur, og þá i 50 milur, en ekkert hefur dugað. Fiskurinn hefur minnkað, og það er hætta á, að það verði ekki nóg- ur fiskur handa okkur einum, ef svo fer sem horfir. Fiskstofnar í hættu Herra forseti. A þessari ráð- stefnuhefur verið rætt um fram hald á þeim samþykktum, sem gerðar voru á Alþjóðamatvæla- ráðstefnunni 1974. Við viljum tryggja aukna matvælafram- leiðslu og koma upp matvæla- forðabúrum. Skerfur Norðuratlantshafsins til þessara mála er fiskur, ógrynni af fiski, þvi að i hafinu kringum ísland voru ein auðug- ustu fiskimið I heimi. Við viljum ekki að það sé framlag Islendinga til fæðuöflunar i heiminum að horfa upp á eyðileggingu þessar- ar matvælagullkistu. Ein af þeim fiskitegundum, sem nóg var til af, var hin svokallaða íslandssild — ljúffengurog næringarmikill rétt- ur á borðum og undirstaða fram- leiðslu á næringarriku mjöli og lýsi. Sildin var ein af undirstöðu- framleiðsluvörum okkar og margra annarra þjóða. Og hvar er þessi ótæmandi Islandssild? Og hver veiðir hana núna? Svarið er einfalt: Hún var nær horfin, en vegna friðunaraðgerða okkar er von til að hún sé á uppleið aftur. Hvað með þorskinn, sem kalla mætti hveiti hafsins? Samkvæmt útreikningum fiskifræðinga, þá er nú búizt við, ef ekki verður tekið i taumana, að á næstu árum verði ekki hægt að veiða jafnmikinn þorsk á miðunum kringum Island og íslendingar veiða einir núna. Með öðrum orðum: Þorskurinn er i mikilli hættu, einnig er ýsan og lúðan i hættu. Við stöndum and- spænis gegndarlausri rányrkju i sjónum, þar sem allir veiða eins mikið og hægt er með öllum til- tækum ráðum. Við íslendingar getum ekki horft upp á þetta. Hvorki vegna sjálfra okkar, sem byggjum lifsafkomu okkar á fisk- veiðum, né heldur vegna framtið- ar matvælaframleiðslu i heimin- um. Skerfur til að stuðla að aukinni matvælaframleiðslu Ég vil hér með lýsa yfir, að það skref, sem Islendingar hafa nú tekið með útfærslu fiskveiðilög- sögunnar i 200 milur frá ströndum landsins, er okkar skerfur til að stuðla að aukinni framleiðslu matvæla i heiminum, og til að vernda fiskistofna og þar með auka fiskveiðar siðar. Að okkar dómi mátti ekki draga að stfga þetta skref, það var alltof mikið i húfi til þess að hægt væri að biða eftir alls herjar samkomulagi. Samkomulagsleiðin er að visu að okkar dómi æskileg, en það er til litilsgagnsað vernda fiskinn eftir að hann er horfinn úr sjónum. Þótt við miðum að þvi að nýta þetta svæði sjálfir til að uppskera fisk, vinna hann og selja, þá erum við með þvi að tryggja áfram- haldandi auðlegð sjávarins i Norðuratlantshafinu sem stór- virkt forðabúr matvæla til gagns fyrir mannkynið i heild, en þvi verðum við einnig að setja okkur sjálfum ákveðnar reglur um fisk- veiði og friða sum svæði alger- lega fyrir allri fiskveiði. Matvæla- og landbúnaðarstofn- un Sameinuðu þjóðanna er ekki einungis landbúnaðarstofnun, hún lætur fiskimál einnig til sin taka, og við munum halda áfram að auka samstarf okkar og stuðn- ing við fiskveiðideild FAO. Við viljum styðja FAO i þvi að vernda fiskistofna með skynsamlegri nýtingu auðlinda hafsins. Uppgræðsla og stöðvun landeyðingar Herra forseti, þótt ég hafi lagt áherzlu á fiskveiðimál og sér- staklega fiskverndarmál vegna nýafstaðinna aðgerða okkar i þessum málum, þá þurfum við ekki aðeins áð gæta fiskimiðanna við ísland, heldur einnig landsins sjálfs. Land okkar er eins og ég sagði áðan jarðfræðilega ungt land. Gróðurlendi eru viða mjög viðkvæm gagnvart ofbeit, sem getur skaðað þau, auk þess skaða sem vatn og vindur valda. Jarðvegs- og gróðureyðing hafa verið ógnandi á Islandi siðustu aldir.en nú höfum viðleitazt við á siðustu árum að snúa vörn i sókn i þeim málum. Með eigin fjárframlögum, starfi innlendra sérfræðinga og samstarfi þeirra við sérfræðinga frá FAO og nýtingu tækninnar hefur mikill árangur náðst i stöðvun landeyðingar og i upp- græðslu. Á 1100 ára afmæli búsetu á ís- landi á s.l. ári ákvað þjóðin að verja 1 milljarði íslenzkra króna til landgræðslu svo Islendingar geti, þrátt fyrir erfiða veðráttu, lifað blómlegu manndóms- og menningarliíi eins og áður var gert, og við höfum á mörgum sviðum rannsókna og visinda náð ágætum árangri. Landbúnaður okkar er fyrst og fremst framleiðsla búfjárafurða, sem byggjast á nýtingu grass og gróffóðurs, beitarogheygjafar að mestu án samkeppni við fæðu- tegundir, sem ella mætti nota til manneldis. Þetta hefur mikla þýðingu fyrir framtiðarþróun búfjárfram- leiðslu og við Islendingar viljum leggja áherzlu á, að gróður og landsvæði, sem ekki eru hentug til framleiðslu matvæla til beinn- ar neyzlu, verði nýtt til búfjár- framleiðslu, en leitazt verði við að draga úr notkun matarkorns, sem hörgull er á i heiminum, til búfjárframleiðslu. 1 þessum mál- um höfum við þegar gott sam- starf og aðstoð frá FAO og viljum i samstarfi við bræðraþjóðir okk- ar á Norðurlöndum vinna að þessu verkefni. Framlag íslands Smáar þjóðir, sem búa á svæð- um, sem ekki henta sem bezt til landbúnaðarframleiðslu, geta kannski ekki lagt mjög stóran skerf til matvælaframleiðslu heimsins. Við Islendingar erum þó staðráðnir I þvi að beita þekk- ingu okkar og þeim dugnaði, sem við eigum yfir að ráða til að vera að minnsta kosti ekki öðrum til byrði, heldur hitt að uppskera úr ökrum lands okkar og hafs eins mikil matvæli og aðstæður leyfa, án þess að misbjóða náttúrunni. Það verður okkar framlag i baráttunni við hungrið i heimin- um. Við treystum á skilning ykk- ar á vandamálum okkar og þeim ráðstöfunum, sem við höfum orð- ið að gera og ég vil fullvissa ykk- ur um einlægan ásetning okkar I þvi að taka sem öflugastan þátt i samstarfi þjóðanna um að efla matvælaframleiðsluna og að styðja hið mikla starf, sem FAO vinnur i þessum efnum. Herra forseti, ég vil að lokum leyfa mér að þakka fráfarandi aðalforstjóra, Dr. Adeke Boerma, árangursrikt starf fyrir FAO og ánægjulega heimsókn til lands mins s.l. sumar og um leið óska hinum nýkjörna aðalforstjóra góðs gengis. Takk fyrir herra forseti. GÆRUFÓÐRUÐ KULDASTÍGVÉL MEÐ GÚMMÍSÓLA. Svört og brún. Verð kr. 7.960.— SKÓSEL, Laugaveg 60, sími 21270.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.