Tíminn - 20.11.1975, Síða 12
12
TÍMINN
Fimmtudagur 20. nóvember 1975.
LÖGREGLUHA TARINN
71 Ed McBaÍn Þýðandi Haraldur Blöndal
^ J
— Þú meinar að það komi fyrir sjálfan mann.
— Já.
Þeir þögðu um stund.
— Það er sannarlega sárt, sagði Genero. — Ég vona
bara að ég sleppi héðan fljótt. Ég hlakka til að komast
aftur til starfa.
— Flýttu þér ekki um of, svaraði Carella.
— Hvenær útskrifast þú?
— Líkast til á morgun.
— Líður þér ekki vel?
— Jú, mér líður prýðilega.
— Brotnuðu rifbeinin?
— Þrjú rifbein.
— Nefið lika?
— Já, einnig nefið.
— Það er harkalegt, sagði Genero. — En þú ert nú líka
leynilögreglumaður.
— Mmmm.
— Ég skrapp á stöðina um daginn, sagði Genero. — Ég
tók vaktina á meðan strákarnir komu hingað að
heimsækja þig. Þetta var áður en þessi skothríð byrjaði.
Áður en ég varð fyrir skotinu.
— Hvernig kunnir þú við þann vitlausraspítala, spurði
Carella brosandi.
— Ég held mér hafi tekizt sæmilega til. Auðvitað er
margt sem læra þarf, en þá kemur starfsreynslan til
skjalanna.
— Rétt er nú það, svaraði Carella.
— Ég ræddi drjúga stund við Sam Grossman....
— Hann er mikill ágætis maður.
— Ja.'. á rannsóknarstof unni. Við bárum saman bækur
okkar vegna hótunarbréfanna. Sam er ágætis náungi,
sagði Genero.
— Hann er það.
— Svo kom strákgopi með enn eitt hótunarbréf ið. Ég
kyrrsetti hann á stöðinni þar til strákarnir komu aftur.
Líklega hefur mér tekizt sæmilega til, ekki satt?
— Það efast ég ekki um, svarði Carella.
— Það er eins gott að vera vel vakandi ef menn ætla að
leggja starfið fyrir sig ævilangt.
Carella jánkaði þessu og reis á fætur. Hann kveinkaði
sér svolítið þegar þunginn færðist á fæturna og sagði
svo: — Mig langaði að sjá hvernig þér heilsaðist.
— Mér líður bærilega. Þakka þér fyrir að ómaka þig
niður.
— Það var nú minnst, svaraði Carella brosandi og
gekk í átt til dyra.
— Berðu þeim kveðju mína þegar þú kemur á stöð-
ina....
Carella leitspyrjandi á hann eins og hann væri ekki al-
veg með á nótunum.
— Ég bið að heilsa þeim öllum, sagði Genero til
skýringar. — Cotton, Hal, Meyer og Bert. öllum sem
voru með mér þegar þetta gerðist.
— Auðvitað.
— Enn einu sinni þakka ég þér fyrir að koma til
min....
— Minnstu ekki á það.
— ....Steve... En Genero komst aldrei lengra með það
sem hann var búinn að tæpa á eins og köttur kring um
heitan graut, því Carella var farinn út.
XXX
Lögmaður Di Filippi var maður að naf ni Irving Baum.
Hann var allmóður þegar hann kom á stöðina og spurði
þegar hvort skjólstæðingur sinn hefði fengið fulla vit-
neskju um lagalegan rétt sinn. Þegar hann var fullviss-
aður um að stjórnarskrárbundin persónuréttindi manns-
ins hefðu í engu verið skert kinkaði hann stuttlega kolli
og fór úr þungum Homburg frakka sínum og tók ofan
samstæðan hatt, og kom því snyrtilega fyrir á skrif borði
Meyers. Þar næst spurði hann leynilögreglumennina um
hvað málið snerist. Baum var hinn geðugasti maður, hár
og yfirskegg silfurgrátt. Augun voru brún og samúðar-
rík. Ef menn töluðu við hann kinkaði hann kolli á uppörv-
andi hátt, eins og hann væri að hvetja menn til að halda
áfram máli sínu. Meyer f lýtti sér að segja honum að lög-
reglan ætlaði alls ekki að leggja f ram kæru af neinu tagi,
heldur ætti aðeins að af la upplýsinga. Baum sá alls enga
ástæðu til þess að skjólstæðingurinn hjálpaði ekki við
upplýsingaöflun í hvívetna. Hann kinkaði kolli til Di
Filippi og sagði svo: — Þér er óhætt að svara spurning-
um þeirra, Dominick.
— Allt í lagi, herra Baum, svaraði Di Fillippi.
— Megum við vita fullt nafn og heimilisfang, spurði
Meyer.
— Dominick Americo Di Fillippi, Norður Anderson-
götu 365 Riverhead.
— Starf?
HVELL
G
E
I
R
I
D
R
E
K
I
K
U
B
B
U
R
Stórar loðnar
leðurblökur! z
blökur aö^|
; Drek.i ií
7 Þau hefðu aldrei
átt að fara þarna inn
Djúpt inni í (P&
hellinum,
ráðast leðurM^
ARR/
Z/15-
visindamannT 'Hefur
sem eyðir æfi /hannveitt1
sinni i leit að r eitthvað?A
kiarnorkunni./
mí
5-2ð
Fimmtudagur
20. nóvember
7.00 M o r g u n ú t v a r p .
Veðurfregnir kl. 7.00, 8.15 og
10.10. Morgunleikfimi kl.
7.15 og 9.05. Fréttir kl. 7.30,
8.15 (og forystugr. dagbl).
9.00 og 10.00. Morgunbænkl.
7.55 Morgunstund barnanna
kl. 8.45: Guðrún Guðlaugs-
dóttir les „Eyjuna hans
Múmínpabba” eftir Tove
Jansson i þýðingu Stein-
unnar Briem (19). Til-
kynningar kl. 9.30. Þing-
fréttirkl. 9.45. Létt lög milli
atriða. Við sjóinnkl. 10.25:
Ingólfur Stefánsson sér um
þáttinn. Morguntónleikar
kl. 11.00: Búda-
pest-strengjakvartettinn
leikur Kvartett nr. 9 í C-dúr
op. 59 nr. 3 eftir Beethoven /
Edwin Fischer og
kammersveit hans leika
Rondó i D-dúr (K382) fyrir
pianó og hljómsveit eftir
Mozart / David Oistrakh og
hljómsveitin Philharmonia
undir stjórn hans leika
Fiðlukonsert nr. 3 i G-dúr
(K216) eftir Mozart.
12.00 Dagskráin. Tónleikar.
Tilkynningar.
12.25 Fréttir og veðurfregnir.
Tilkynningar. A frlvaktinni.
Margrét Guðmundsdóttir
kynnir óskalög sjómanna.
14.30 Vettvangur Umsjón:
Sigmar B. Háuksson. I
áttunda þætti er fjallað um
ofnæmi.
15.00 Miðdegistónleikar
Vladimir Ashkenazy leikur
Fantasiu fyrir pianó i C-dúr
op. 17 eftir Robert
Schumann. Robert Tear,
Alan Civil og hljomsveitin
„Northern Sinfonia” flytja
Serenöðu fyrir tenór, horn
og strengjasveit eftir
Benjamin Britten, Neville
Marriner stjórnar.
16.00 Fréttir. Tilkynningar.
(16.15 Veðurfregnir). Tón-
leikar.
16.40 Barnatlmi: Guðmundur
Magnússon kennari
stjórnar Undirheimar
hafsins.
17.30 Framburðarkennsla I
ensku
17.45 Tónleikar. Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
19.00 Fréttir. Fréttaauki.
Tilkynningar.
19.35 Lesið I vikunni Haraldur
Ölafsson talar um bækur og
viðburði liðandi stundar.
*19.50 Ida Handel leikur fiölu-
lög
20.05 Leikrit „Músagildran”
eftir Agöthu Christie
Þýðandi: Halldór
Stefánsson. Leikstjóri:
Klemenz Jónsson. Persónur
og leikendur: Mollie Ratson
Anna Kristin
Arngrimsdóttir, Giles
Ratson ... GIsli Alfreðsson,
Kristófer ... Sigurður
Skúlason, Frú Boyle ...
Guðrún Stephensen,
Metacef major ... Ævar
Kvaran, Ungfrú Caswell ...
Helga Bachmann,
Paravicini ... Róbert
Arnfinnsson, Trotter ...
Þorsteinn Gunnarsson, Sál-
fræðingur ... Klemenz
Jónsson, Rödd i útvarpi ...
Ævar Kjartansson, Rödd ...
Anna Guðmundsdóttir.
22.00 Fréttir
22.15 Veðurfregnir. Kvöldsag-
an: „Kjarval” eftir Thor
Vilhjálmsson. Höfundur les
(17).
22.40 Krossgötur. Tónlistar-
þáttur I umsjá Jóhönnu
Birgisdóttur og Björns
Birgissonar.
23.30 Fréttir i stuttu máli.
Dagskrárlok.
BEKKIR *
I
!
I
OG SVEFNSOFARl
vandaðir og ódýrir — til I
sölu að öldugötu 33.
| ^Upplýsingar I sima 1-94-07.^