Tíminn - 21.11.1975, Blaðsíða 2

Tíminn - 21.11.1975, Blaðsíða 2
2 TÍMINN Föstudagur 21. nóvember 1975. Elfa Björk ráðin borgarbókavörður HHJ-Rvik. — A borgarstjórnar- Einarsdóttir fékk tvö atkvæði og fundi i gær voru greidd atkvæði þeir Björn Teitsson og Hilmar um það hvern ráða skyldi i stööu Jónsson hlutu sitt atkvæöið hvor. borgarbókavarðar. Féllu atkvæði þannig að Elfa Björk Gunnars- dóttir lilaut mikinn meiri hluta atkvæöa cða ellefu alls. Elsa Mia Ráðstefna um húsfriðun Gsal-Reykjavik — Húsfriðunar- ráöstefna hefstá morgun kl. 9.30 i Hátiöasal Háskóla Islands, en að ráðstefnunni standá Arkitekta- félag tslands, Samband isl. sveitarfélaga og umhverfisneind Reykjavikurborgar. Ráðstefnan hefst með ávarpi Birgis tsleifs Gunnarssonar, borgarstjóra, en að þvi loknu flyt- ur Dr. Kristján Eldjárn, forseti tslands, ræðu. Á ráðstefnunni verða ennfrem- ur fluttir fyrirlestrar um ýmsa þætti húsfriðunarmála, en ráð- stefnunni lýkur á sunnudag. Umsækjendur voru alls fimm. Elfa Björk stundaði nám i al- mennri og enskri bókmennta- fræði við háskólann : Stokkhólmi og lauk einnig prófi frá háskólan- um i verzlunartæknilegri ensku. Af þvi loknu hóf hún nám við Stockholms Stads biblioteks Biblioteksskola, en þar komast jafnan færri inn en sækja um skólavist. bannig var Elfa Björk ein af tólf umsækjendum sem inn komust, en 170 sóttu. Að prófi loknu 1967 starfaði hún við Borgarbókasafn Stokkhólms allt til 1974, þegar hún kom heim og hóf störf við Borgarbókasafn Reykjavikur, þar sem hún hefur byggt upp þjónustu safnsins við fatlaða og blinda, þ.e. „Bókin heim”. Að undanförnu hefur hún unnið að þvi að koma upp tal- bókasafni handa blindu fólki og sjónskertu. Ráðstefna um verka- lýðsmál á vequm SUF SJ-Reykjavik. Helgina 29.og30. nóvember efnir Samband ungra fra msóknarmanna til ráðstefnu um verkalýðsmál að Hótel Hofi, Rauðarárstig 18. Þetta er fyrsta Asgeir Eyjólfsson er formaður undirbúningsnefndar verka- lýösráðstefnunnar. Vængir hefja áætlunar- flug til Súgandafjarðar — vetrareinangrun Súgfirðinga rofin BH—Reykjavik. — Sl. sunnudag lenti flugvél frá Vængjum hf. i Rcykjavik á hinum nýja flugvelli á Suðureyri við Súgandafjörð, og er þar með hafinn nýr kafli i stórbættum samgöngumálum við þetta afskekkta byggðarlag, sem fram til þessa hefur verið einangrað að heita má allan vet- urinn, nema á sjó. Timinn ræddi af þessu tilefni viö sveitarstjórann á Suðureyri, Sigurjón Valdimarsson, og skýrði hann okkur svo frá, að fulibúin væri nú 480 metra merkt braut, en búið væri að byggja undir 525 metra alls. Ætlunin er, að brautin verði 600 metrar að lengd. — Þetta skiptir alveg sköpum fyrir okkur að fá þennan flugvöll, sem er að heita má við þröskuld- inn hjá okkur, uppi á hjöllunum, skammt ofan við bæinn, undir fjallinu Spilli, sagði Sigurjón. Til þessa hefur þurft að fara yfir Bontsheiði og Breiðdalsheiði til tsafjarðar til þess að komast i samband við umheiminn, og það hefur verið timafrekt og erfitt ferðalag urn vetrarmánuðina, oft á þrem farartækjum, svo að minnstur timinn fer i sjálfa flug- ferðina frá Isafirði. Nú má heita, að flugvél lendi við húsdyrnar hjá okkur og við getum stigið um borð og flogið til Reykjavikur. Við inntum Sigurjón eftir þvi, á hvaða dögum yrði flogið milli Suðureyrar og Reykjavikur. — Áætlunin er ekki tilbúin ennþá, en væntanleg næstu daga. Ég geri ráð fyrir, að flogið verði á þriðjudögum, fimmtudögum og laugardögum. Gáfu tíu milljónir í sjóð til sér- menntunar kennara vanheilla barna A aldarafmæli Thorvaldsens- félagsins i hófi á Hótel Borg á miðvikudagskvöld afhenti for- maður félagsins, frú Unnur Ágústsdóttir, mennttamála- ráðherra skrautritað skjal með eftirfarandi texta: „Konur i Thorvaldsensfélaginu i Reykjavik hafa ákveðið i tilefni aldarafmælis félagsins að stofna sjóð, til þess að stuðla að sér- menntun þeirra, sem kenna og leiðbeina vanheilum börnum. Stofnfé sjóðsins er 10 milljónir króna og ber að ráðstafa þvi og ávaxta i samræmi við skipulags- skrá, sem sjóðnum verður sett i samráði við menntamála- ráðherra.” Undir þetta ritar stjórn félagsins en hana skipa: Unnur Ágústsdóttir, formaður, Svanlaug Bjarnadóttir, varaformaður, Evelyn Þ. Hobbs, ritari, Sigur- laug Eggertsdóttir, gjaldkeri og Júliana Oddsdóttir. Menntamálaráðherra þakkaði og sagði m.a.: ,,Með þakklátum huga hef ég móttekið ykkar höfðinglegu gjöf. Hún skal verða meðhöndluð á þann hátt, sem þið mælið fyrir um. A bak-við slika gjöf er mikill góðhugur og mikið starf og glögg- ur skilningur á sárri þörf. — Mun hér og rætast það, sem skrifað stendur, að eins og maðurinn sáir mun hann upp skera. Margt gott mun leiða af gjöf þeirri, sem hér er fram borin.” — Hefur Hugvallargerðin verið kostnaðarsöm? — Það er búið að verja 9 milljónum i flugvöllinn. Fjórar milljónir voru á fjárlögum 1974 og fimm á árinu 1975, og nú eru þeir peningar búnir, en þaðer talsverð vinna eftir. Það verður ekki gert meira að sinni fy rr en ný fjárveit- ing fæst. Flugvöllurinn kemur auk þessa að gagni varðandi flugferðir til Isafjarðar? — Já, það er flugfélagið Ernir á tsafirði, sem það annast, og er ætlunin að það verði skiðaflugvél, sem flýgur til okkar i vetur, þrisvar í viku. — Ég vil að lokum, sagði Sigur- jón Valdimarsson, sveitarstjóri á Suðureyri, taka það sérstaklega fram, að flugsamgöngur þrisvar i viku við Reykjavik eru byggðar laginu mikils virði. Hvort unnt verður að halda þeim uppi svo oft hlýtur i framtiðinni að ráðast af þvi, hve mikil flutningaþörfin er, hversu rika ástæðu Súgfirðingar sjá til þess að notfæra sér þessa þjónustu Vængja hf, sem ég tel hina mikilvægustu. Sigurjón Valdimarsson sveitar- stjóri. ráðstefna um verkalýðsmál, sem haldin hefur verið i nokkur ár, á vegum Framsóknarflokks- ins, og hvetja þeir, sem staðið hafa að undirbúningi hennar, menn eindregið til að taka þátt i henni. Ráðstefnugestum utanaf landi gefst kostur á að búa á hótelinu um helgina með sér- stökum afsláttarkjörum. Ráðstefnan hefst kl. 10 á laugardag með þvi að Ólafur Jóhannesson viðskiptaráð- herra, formaður Framsóknar- flokksins flytur ávarp. Þá verða fimm erindi. Þórarinn Þórarinsson alþingismaður tal- ar um Framsóknarflokkinn og verkalýðshreyfinguna, Egill Sigurgeirsson hæstaréttarlög- maður talar um vinnulöggjöf- ina. Halldór Asgrimsson al- þingismaður flytur erindi um skattamál og launþega, Axel Gislason verkfræðingur um at- vinnulýðræði og samvinnu- rekstur, Daði Ólafsson formað- ur Sveinafélags bólstrara um skipulagsmál verkalýðs- hreyfingarinnar og heildar- kjarasamningana. Ráðstefnugestir skiptast sið- an i fjóra umræðuhópa eftir fjórum siðasttöldu erindunum. Frjálsar umræður verða einnig. Og á sunnudag, en þá hefst ráð- stefnan einnig kl. 10 að morgni, verður greint frá áliti umræðu- hópa i fundarlok. — Ég tel, að mjög sé vandað til framsöguerindanna á ráð- stefnunni, sagði Ásgeir Eyjólfs- son formaður undirbúnings- nefndar i viðtali við Timann. Þau mál, sem rætt verður um, eru öll ofarlega á baugi hjá verkalýðshreyfingunni nú og hljóta að koma til athugunar á næstunni. Ég vil eindregið hvetja fólk til að nýta sér þetta tækifæri og býst við þátttakend- um viðs vegar að af landinu. Þeir, sem hug hafa á að sækja ráðstefnuna, eru beðnir um að hafa samband við skrifstofu Framsóknarflokksins i sima 24480. 60 FRETTAMENN FRÁ TÍU LÖNDUM HHJ — Hérlendis eru nú staddir 50-60 erlendir blaða- útvarps og sjónvarpsmenn frá 10 löndum vegna Evrópumeistarakeppni i Monopoly, sem fram fer á Hótel Loftleiðum þessa dagana. Þar á meðal eru menn frá BBC, Reuters-fréttastofunni, Times, Guardian, Daily Mirror, Sun og Playboy, svo að nefndir séu nokkrir fjölmiðlar. Sá blaðamað- ur, sem lengst er að rekinn vegna þessarar keppni, er hingað kom- inn alla leið frá Astraliu. 15-20 manns keppa um Evrópu- meistaratitilinn i Monopoly, en að keppninni hér lokinni verður Fyrirlestur um þorskfisk Næstkomandi mánudag, 24. nóvember 1975 kl. 20.30 heldur Ólafur Karvel Pálsson, fiski- fræðingur, fyrirlestur i stofu 201, Arnagarði. Fyrirlesturinn fjallar um rannsóknir á lifnaðarháttum þorskfisksungviðis i tsafjarðar- djúpi. Fyrirlesturinn er opinn öll- um áhugamönnum. haldið til Bandarikjanna, þar sem heimsmeistarakeppnin fer fram i Washington. Aðalgatan á Suðureyri opnuð umferð BH—Reykjavik. Aðalgatan á Suðureyri við Súgandafjörð var nýlega opnuð fyrir umferð, eftir aö lokið var við að steypa alla götuna, sem er 260 metrar að lengd. Að verki þessu var unnið siðari hluta sumars, en vinna féll niður um skeið vegna slagveðurs. Að þvi er Sigurjón Valdimars- son, sveitarstjóri á Suðureyri sagði blaðinu i gær var byrjað á undirbúningi að steypuvinnu við Aðalgötu i ágúst sl., og var undir- búningsvinnunni að mestu lokið i septemberbyrjun, en óheppilegt tiðarfar i þeim mánuði kom i veg fyrir frekari framkvæmdir. Hins vegar hagaði veðri þannig i októ- ber, að unnt var að steypa, og gekk það verk mjög vel. NotiÓ NATIOÍMAL Hl -Top rafhlöð í vasatölvurnar frá okkur olivekli NOVU^ SKRIFSTOFUTÆKNI H.F. Tryggyagölu — Sími 28511 M Utiona' Hi-ToP MATIGNAL M Hí-Top 'lk jjí án^Jife

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.