Tíminn - 25.11.1975, Síða 20
Þriðjudagur
25. nóvember 1975.
METSÍkUUEKUR
Á ENSKU í
VASABROTI
Q
GSÐI
fyrirgódan inai
$ KJÖTIÐNAOARSTÖÐ SAMBANDSINS
Baskahéruð Spánar:
Borgarstjóri skotinn
Reuter/Oyarzun, Spáni — Vopn-
aöir menn rcðust inn á hcimili
borgarstjórans i Oyarzun, sem cr
borg i Baskahéruðunum i norður-
liluta Spánar, og skutu hann til
bana. Segir i fréttum frá Spáni i
gær, að borgarstjórinn hafi verið
aö horfa á sjónvarpiö, er atburður
þessi átti sér stað.
Borgarstjórinn hét Antonio
Echeverria Albisu, 33 ára. Arás-
armennirnir beittu vélbyssum viö
ódæðisverkiö.
Echeverria var fluttur i sjúkra-
hús eftir árásina, en reyndist
látinn, er þangað kom. Oyarzun
er í um 15 km fjarlægð vestur af
borginni San Sebastian, ekki
mjög langt frá frönsku landa-
mærunum. Enn hefur ekki verið
leitt i ljós, hverjir bera ábyrgð á
dauða borgarstjórans, og enginn
hefur enn sem komið er lýst yfir
ábyrgð vegna morösins. Þá er og
ekki ljóst af þeim fréttum, sem
borizt hafa, hve margir eru
viöriðnir mál þetta.
Hernaðararmur þjóðfrelsis-
hreyfingar Baska. ETA, gaf út
yfirlýsingu að lokinni aftöku
skæruliðanna fimm 27. sept. sl.,
þar sem allir þeir, sem gegndu
opinberum stöðum i Baskahéruð-
um Spánar, voru varaðir við og
þeim sagt að segja lausum störf-
um sinum innan tveggja mánaða.
1 yfirlýsingunni sagði ETA enn
fremur, að samtökin tækju ekki
ábyrgð á þeim opinberu starfs-
mönnum, er ekki segðu störfum
sinum lausum.
Hægrisinnar i Baskahéruðun-
um hafa gert árásir á stuðnings-
menn ETA. T.d. var veitinga-
hússeigandi einn, bróðir eins af
fyrrverandi leiðtogum ETA, skot-
inn til bana ekki langt frá Bilbao i
siðasta mánuði.
Arafat í vináttuheimsókn í Moskvu
Reuter/Moskvu —Yasser Arafat,
leiðtogi frelsissamtaka Pale-
stinuaraba (PLO), er kominn til
Moskvu i vináttubeimsókn, að þvi
er sovézka íréttastofan Tass
skýrði frá i gær.
Tass sagöi, að Vadim Rumy-
antsev, aöstoðarforstjóri þeirrar
deildar sovézka kommúnista-
flokksins, sem sér um samskipti
við erlenda flokka, hefði tekið á
móti Arafat við komuna til
Moskvu i gær, auk annarra
l'lokksleiðtoga og embættismanna
i sovézka stjórnarráðinu.
Tyrkneska stjórnin
andstæð hugmyndum
um sjólfstætt
ríki Kýpurtyrkja
Reuter/Ankara — Rauf Denk-
tash, leiðtogi Kýpurtyrkja, leitaði
i gær eftir stuðningi tyrkneskra
stjórnvalda við þeirri hugmynd
að Kýpurtyrkir lýsi yfir stofnun
sjálfstæðs rikis á noröurhluta eyj-
unnar. Hins vegar er talið, að Sul-
cyman Demirel, forsætisráð-
hcrra Tyrklands, hafi ekki veitt
neitt ákveðið svar við þessari
heiðni Denktash.
Að loknum 90 ininútna samræð-
um við Denktash sagði Demirel,
að stjórn hans væri hliðholl þeirri
skoöun, að komiö yrði á laggirnar
sambandsriki Grikkja og Tyrkja
á Kýpur.
Er talið, að hugmynd þessi eigi
að vera eins konar málamiðlun
gagnvart tillögu Kýpurtyrkja.
En liann bætti við: „En þetta er
ákaflega viðkvæmt og mikilvægt
málefni, og þess vegna er ekki
hlaupið að þvi að taka ákvarðanir
um það.”
'\
Denktash
Brezku blöðin
segja afla
togaranna engan
FB—Reykjavik — Þegar Timinn
hafði samband viö Helga Agústs-
son, sendiráðsritara i London,
siðdegis i gær, sagðist hann biða
eins og aðrir spenntur eftir niður-
stöðum fundar brezkra ráðherra
og forystumanna i sjávarútvegi,
sem hefjast átti kl. 18. Ekkert
hafði frétzt um það, um hvað sá
fundur myndi fjalla, nema að
sjálfsögðu, hvort herskipin koma
til aðstoðar brezku togurunum viö
Island.
Helgi sagði, að i fréttum i Bret-
landi kæmi fram, að veiði togar-
anna væri engin, og myndi það ef-
laust hafa sin áhrif á ákvörðun
stjórnarinnar. Hann sagði enn-
fremur, aö mikið væri um land-
helgismálið skrifað, og nú eins og
i siðasta þorskastriði héldu blöðin
i London sig mest að þvi að skrifa
um einstaka atburöi á miðunum,
en tækju ekki málefnalega af-
stöðu til deilunnar. Hins vegar
væru blöðin utan London harðorð
i garð Islendinga og tækju afstöðu
i málinu. Landhelgismálið er á
forsiðu flestra, ef ekki allra, blað-
anna þessa dagana, sagöi Helgi
Agústsson.
Islenzka
sendiráðinu
hótað
Reuter/London. tslenzka
sendiráðið I London fékk i
gær tvö nafnlaus bréf, þar
sem hótaðvar, að sendiráðs-
byggingin yrði sprengd f loft
upp ef ísl. varðskipin hættu
ekki að skera á togvira
brczkra togara. Bæði bréfin
voru handskrifuð og greini-
lega frá sama aðilanum. t
siðara bréfinu var tekið
fram, að um lokaaðvörun
væri að ræða. Skotland Yard
hefur málið til rannsóknar.
Golanhæðirnar:
Israelsstjórn vill
framlengja dvöl
friðargæzlu-
sveitanna
— sýrlenzka stjórnin setur skilyrði
NTB/Reuter — Kurt Wald-
lieim, aöalframkvæmdastjóri
Sameinuðu þjóðanna, skýrði
tsraelsstjórn frá ákveðnum
skoðunum sýrlenzku rikis-
stjórnarinnar varöandi Golan-
linuna, er hann kom til Jer-
úsalem i gær til fundar viö
ráðherra úr israelsku rikis-
stjórninni. Waldheim lagði á
það áherzlu, að leysa þyrfti
mörg önnur vandamál áður en
sýrlenzka stjórnin er reiðubú-
in til þess að samþykkja
áframhaldandi dvöl friðar-
gæzlusveita Sameinuðu þjóð-
anna i Golanhæðum.
Að þvi er áreiðanlegar frétt-
ir herma, deila ísraelar og
Sýrlendingar um það, hvaða
atriði löndin tvö þurfi að koma
sér saman um, áður en hægt
verði að taka ákvörðun um
það, hvort dvöl friðargæzlu-^
sveitanna verður framlengd.
Areiðanlegar fréttir herma
ennfremur, að Sýrlendingar
vilji tengja viðræðurnar um
framlengda dvöl friðargæzlu-
sveitanna við umræður um
stöðu frelsissamtaka pale-
stinuaraba- PLO.
Utanríkisráðherra Israel,
Yigal Allon, sagði i gær, að
hann fagnaði komu Wald-
heims til íandanna fyrir botni
Miðjarðar hafs og kvaðst
vona, að árangur yrþi af til-
raunum hans til þess að miðla
málum. „Hvað ísrael viðkem-
ur,” sagði Allon, „þá erum við
reiðubúnir til þess að
samþykkja það, að friðar-
gæzlusveitirnar dveljist
áfram i Golanhæðunum.
Gert er ráð fyrir þvi, að
Waldheim haldi til Damaskus
i dag til frekari viðræðna viö
sýrlenzka ráðamenn.
Don Juan:
Alþýðan taki þótt
í stjórn Spónar
Reuter/Madrid — Don Juan, faðir
Juan Carlosar I Spánarkonungs,
lagði tjl i gær, að komið yrði á fót
fjöldaflokkalýöræöi á Spáni aö
Franco látnum, og að tekin yrðu
upp lull tengsl við Evrópubanda-
lagið.
1 yfirlýsingunni, sem upplýs-
ingaskrifstofa Don Juans birti i
gær, sagði enn fremur, að veita
ætti alþýðu Spánar aðild að stjórn
landsins, og berjast þyrfti gegn
spillingu i stjórnkerfinu. „Þetta
eru allt saman grundvallaratriði,
sem sonur hans verður að hafa að
leiðarljósi,” sagði i yfirlýsing-
unni.
Franco, fyrrum þjóðarleiðtogi
Spánar, gekk á sinum tima fram-
hjá Don Juan, er hann útnefndi
son hans, Juan Carlos, sem rikis-
erfingja, aðsér látnum. Don Juan
hefur hins vegar aldrei afsalað
sér rétti sinum til spænsku krún-
unnar. Starfsmenn á skrifstofu
Don Juans sögðu, að hann hefði
ekki óskað eftir að gefa sjálfur
persónulega yfirlýsingu á stjórn-
málaástandinu á Spáni, og þvi
hefði skrifstofan fengið fyrirmæli
um að birta framangreinda yfir-
lýsingu.
1 yfirlýsingunni sagði loks, að
Don Juan, greifinn af Barcelona,
gegndi enn hinni velþekktu og
ævarandi pólitisku stöðu, sem
sonur og erfingi Alfonso XIII, og
réttur hans i skjóli þeirrar stöðu
yrði ekki af honum tekinn.
Straufría sængurfataefnið er nú
fyrirliggjandi í mörgum mynztrum
og litum.
Einnig í saumuðum settum.
Kærkomin gjöf, hverjum sem hlýtur.
Sparið húsmóðurinni erfitt verk,
sofið þægilega og lífgið upp á litina
í svefnherberginu.
Reynið Night and Day og sannfærizt.
Samband íslenzkra samvinnufélaga
Innflutningsdeild
Sambandshusið Rvík sími28200