Tíminn - 27.11.1975, Blaðsíða 1
Landvélarhf
PRIMUS
HREYFILHITARAR
í VÖRUBÍLA OG VINNUVÉLAR
HF HÖRDDR QUNNARSSON
SKÚLATÚNI 6 - SÍMI (91)19460
RÆÐA
UTANRÍKIS-
RÁÐHERRA
A ALÞINGI
í GÆR O
Slökkviliðsmenn björguðu þessum manni nær mcðvitundarlausum út um þakglugga á húsinu, en
hann hafði freistazt til útgöngu niður s.tiga, en orðið frá að hverfa sökum elds. Timamynd: Röbert.
NÝIR VERKTAKAR í
BYGGÐALÍNUNA TIL
AÐ FLÝTA VERKINU
til þess, að ekki hafi verið hægt að
komast að stiganum úr öðrum
herbergjum rishæðarinnar, og
haft er eftir þeim, sem lifði af
brunann, að hann hafi i fyrstu
freistað þess að komast að stigan-
um, en hafi orðið frá að hverfa.
Ekki er vitað til þess, að aðrir
en þessir fjórir, — sem áður er
um getið — hafi verið i húsinu er
eldurinn kom upp, enda eru eink-
um skrifstofur á öðrum hæðum
hússins, sem er þriggja hæða
steinhús og ris.
Það óhapp varð, er sjúkrabill
kom á vettvang, að hann ók á
band, er strengt hafði verið til að
bægja fólki frá, með þeim
afleiðingum að bandið slóst i
Arnþrúði Karlsdóttur lögreglu-
mann og handleggsbrotnaði hún.
Litlar skemmdir urðu á húsinu,
utan hvað rishæðin er verulega
skemmd.
Vakt var við Óðinsgötu 4 i nótt.
að Hitatæki hf. stóð ekki við sinn
hluta áætlunarinnar. Að sögn
Valgarðs Thoroddsen rafmagns-
veitustjóra mun RARIK þó ekki
stefna fyrirtækinu þar eð ástæður
þess, að verkið dróst svo mjög á
langinn, eru margþættar, og þvi
ekki nema að hluta til hægt að
saka fyrirtækið um tafir við verk-
ið. Sagði Valgarð, að þessi verk-
hluti hefði verið mun erfiðari i
framkvæmd en ráð hefði verið
fyrir gert I byrjun.
Verkhluti sá, sem Hitatæki hf.
tók að sér, var að sjá um bygg-
ingu undirstaða undir stálmöstur
á Holtavörðuheiði og Grjóthálsi.
Samkvæmt upphaflegri áætluri
var við það miðað, að sá verkhluti
væri fullbúinn i lok september-
mánaðar, en nú fyrst — i lok
nóvember—er.þeim hluta verks-
ins lokið. Þessa dagana er verið
að aka grjóti að undirstöðunum,
en innan tiðar verður byrjað að
reisa möstrin.
Timinn innti Guðmund Sæ-
mundsson, sem hefur umsjón
með verkinu fyrir hönd RARIK,
eftir því, hve kostnaður af völdum
áðurnefndra tafa væri orðinn
mikill.
— Lagning llnunnar er nú orðin
verulega mikið dýrari en áætlað
var. Hins vegar hef ég engar
handbærar tölur um það, sagði
Guðmundur.
Rafmagnsveiturnar stefna að
þvi að tengja linuna við dreifi-
kerfið i Vestur-Húnavatnssýslu i
febrúarlok, en samkvæmt áætlun
er gert ráð fyrir þvi, að linan
Þrír létust í eldsvoða
að sögn varðstjóra hjá slökkvi-
liðinu voru tveir þeirra i
herbergjum, en sá þriðji á sal-
erni. Mennirnir þrir voru látnir,
er komið var með þá á sjúkrahús.
Þannig háttar til i þessu húsi,
að allmörg einstaklingsherbergi
eru i rishæð hússins og hafa þau
veriðleigðútum langt árabil. Svo
sem áður er frá greint, sáust
fyrstu eldtungurnar koma út um
þakglugga er sneri út að Óðins-
götunni, en liklegt er talið, að i þvi
herbergi hafi eldurinn komið upp.
Einn stigi liggur niður frá rishæð-
inni og er herbergið, sem talið er,
að eldurinn hafi komið upp i, á
móts við hann. Þannig bendir allt
Gsal-Reykjavik — Þrir menn lét-
ust i eldsvoða i Reykjavik i gær,
er cldur kom upp i rishæð hússins
nr. 4 við Óðinsgötu. Mennirnir
þrir, sem létust voru allir ein-
bleypir og á miðjum aldri. Nöfn
þeirra verða ekki birt að svo
stöddu.
Það var kl. 18:44 að Slökkviliði
Reykjavikur var tilkynnt um eld i
rishæð hússins að Óðinsgötu 4.
Þegar fyrstu slökkviliðsbilarnir
voru á leiðinni, bárust þær fréttir,
að eldtungur stæðu út úr þak-
glugga Óðinsgötumegin og var
þvi allt slökkviliðið kvatt út.
Reykkafarar héldu strax inn i
húsið og hafizt var handa um að
koma stigabilnum fyrir.
Brátt fréttist af manni, sem var
á rishæðinni og var honum bjarg-
að út um þakglugga og i sjúkra-
hfl. Að sögn sjónarvotta virtist
maðurinn mjög illa brunninn, en
við rannsókn á sjúkrahúsi i gær-
kvöldi reyndust brunasár hans
minni en i fyrstu var talið og er
hann nú i engri hættu.
Slökkviliðsmenn fundu siðan
þrjá menn á rishæðinni og
verði komin á áfangastað — sem
er Varmahlið i Skagafirði — i lok
næsta árs.
Að sögn Guðmundar Sæmunds-
sonar er búið að reisa tréstaura-
linuna norður i Hrútafjörð, og að
mestu leyti vestur til Blönduóss.
Hins vegar er öll frágangs- og
strengingarvinna eftir, svo og
lagning tréstauralinu frá
Blönduósi i Varmahlið.
Fyrirtækin sem tóku við áður-
nefndu verki á Holtavörðuheiði og
Grjóthálsi eru Aðalbraut og
Bjarni Hannesson, en auk þess
hélt Hitatæki hf. áfram með hluta
verksins, og hefur lokið þeim
hluta fyrir nokkru.
Innan tiðar verður byrjað að
reisa möstrin á Holtavörðu-
heiði fyrir linuna norður, en
bygging undirstaða fyrir
möstrin hefur dregizt um tvo
mánuði og verktakafyrirtæki
það, sem sá um þann verk-
hluta, hefur verið sett út úr
verkinu. Myndin var tekin á
Holta vörðu heiði fyrir
skömmu, og sýnir eitt
mastranna og undirstöðuna.
Timamynd: MÓ
Gsal-Reykjavik — Verktakafyrir-
tækið Hitatæki hf. sem tók að sér
einn verkhluta við lagningu raf-
magnslinunnar norður i Skaga-
fjörð, hefur verið sett út úr verk-
inu og tvö önnur verktakafyrir-
tæki verið ráðin i þess stað til að
flýta framkvæmdum, sem höfðu
tafizt um tvo mánuði, sakir þess
Útvarpsum-
ræður um
landhelgina
Mó-Reykjavik— Samnings-
uppkastið við Þjóðverja var
rætt á Alþingi i gær og stóðu
þingfundir enn er Timinn fór
i prentun i nótt.
Kl. 20. i kvöld verður út-
varpað frá Alþingi umræð-
um um samningsuppkastið.
Geir Hallgrimsson forsætis-
ráðherra tekur fyrstur til
máls. Fyrir Framsóknar-
flokk tala Einar Ágústsson
og Þórarinn Þórarinsson.
Fyrir Alþýðuflokk: Benedikt
Gröndal og Sighvatur Björg-
vinsson, fyrir Samtök frjáls-
lyndra og vinstri manna
Karvel Pálmason og Magnús
Torfi Ólafsson, fyrir Alþýðu-
bandalag: Lúðvik Jósepsson
og Gils Guðmundsson, fyrir
Sjálfstæðisflokk: Geir Hall-
grimsson og Gunnar Thor-
oddsen.