Tíminn - 02.12.1975, Page 4
4
TÍMINN
Þriöjudagur 2. desember 1975.
Gerald Ford
Gerald Ford, hinn 62 ára
Bandarikjaforseti, vakti á sér
athygli I boöi hjá blaðamanni I
Washington fyrir látlaus galla-
buxnaföt og frjálsar matarvenj-
ur. Hann þurfti að fara
snemma, af þvi að hann hafði
störfum að gegna. Hann barm-
aði sér yfir að geta ekki tekið
★
þátt i kvöldverðinum og fékk
um leið spaghettidisk i hendurn-
ar til að borða á leiðinni. Ford
tók þakklátur við matnum og
flýtti sér að brynklædda for-
setabilnum ásamt konu sinni
Betty og borðaði góðgætið á
leiðinni að Hvi'ta húsinu.
★
Söngleikur um Goldu Meir
Golda Meir, 77 ára gömul og
fyrrverandi israelskur forsætis-
ráðherra á að verða titilhlut-
verk i söngleik. Poptónskáldið
Lionel Bart er búinn að vinna
um tima að söngleik um ,,lif og
baráttu” Goldu Meir fyrir
Israel. Verkið heitir i smiðum
„Golda”. Fyrstu sjö Goldu-lögin
eru tilbúin og átti að leggja þau
fyrir fyrrverandi forsætisráð-
herrann i nóvember. Bart fékk
hugmyndina af minningum
Goldu Meir „Lif mitt”. — Stór-
kostlegt efni fyrir söngleik með
raunverulegan og sannan bak-
hjarl. Barter að visu bjartsýnn
( — hún gefur okkur blessun
sina og samþykkir söngleikinn,
sagði hann), en samþykki eftir-
launakonunnar er ekki talið
öruggt: Golda Meirerekki hrif-
in af Pop-tónlist.
Kjötsúpan nýtur
hylli á ný
Ernst Birsner forstöðumaður
Burda eldhússvinnustofunnar
segir: — Það nýtur æ meiri hylli
i samkvæmum að bera fram
hugvitsamlega kryddaðan
súpupott i staðinn fyrir dýra
kjötrétti —. Sunnudagsmatar-
venjur breytast lika. Hjá mörg-
um fjölskyldum er búin til
bragðgóð kjötsúpa i staðinn fyr-
ir timafreka steik. Meðal fólks
af hærri þjóðfélagsstigum
kemst meir og meir i tizku að
bera á borð karngóðan sveita-
mat i stað dýrindis krása.
„Spar-kanzlari” Þýzkalands
Helmut Schmidt, sem er hvort
sem er mjög hógvær i mataræði
(uppáhaldsréttur hans er
grjónagrautur), lætur sér ekki
muna um það að biðja um
baunasúpu með pylsum við
opinber tækifæri. Hannelore
kona hans er sama sinnis. Varn-
armálaráðherránn Georg Leber
er súpuvinur. Utanrikisráðherr-
ann Hans-Dietrich Genscher
gæðir sér á pylsum i félagsskap
kvikmyndaleikarans Gert
Fröbe.
uBCa
<§>
DENNI
DÆMALAUSI
„Ég sagði þér að hann væri
sleðahundur. Þú þarft ekkert að
sýna honum það.”