Tíminn - 02.12.1975, Qupperneq 9
Þriðjudagur 2. desember 1975.
TÍMINN
9
Útgefandi Framsóknarflokkurinn.
Framkvæmdastjóri: Kristinn Finnbogason. Ritstjórar:
Þórarinn Þórarinsson (ábm.) og Jón Heigason. Rit-
stjórnarfulltrúi: Freysteinn Jóhannsson. Fréttastjóri:
Helgi H. Jónsson. Auglýsingastjóri: Steingrimur Gisla-
son. Ritstjórnarskrifstofur i Edduhúsinu við Lindargötii,
simar 18300 — 18306. Skrifstofur I Aöaistræti 7, simi 2650P
— afgreiðslusimi 12323 — auglýsingasimi 19523. Verð I
lausasöiu kr. 40.00. Askriftargjald kr. 800.00 á mánuði.
Kaðaprent fi'.f;
Tilmæli um
rétt viðbrögð
Viðskiptaráðuneytið gaf nýlega út tilmæli um
herta framkvæmd á verðstöðvunarlögum. í viðtali
við Timann sagði ólafur Jóhannesson, viðskipta-
ráðherra, að tilgangurinn væri að hægja á verð-
bólgunni næstu fjóra mánuðina. — Það er
meiningin með þessu, að nú verði að segja stopp,
sagði ráðherrann.
í viðtali við Timann, sem birtist i sunnudags-
blaðinu kvaðst Georg Ólafsson verðlagsstjóri vilja
vekja sérstaka athygli á tvennu i þessum tilmæl-
um viðskiptaráðuneytisins. — 1 fyrsta lagi er nú
einungis heimilt að taka inn i verð vöru og þjón-
ustu erlendar hækkanir, enda ekki á okkar valdi að
hafa áhrif á þær. Og þá aðeins hækkanir eftir 20.
nóvember.
í öðru lagi er ætlazt til þess, að engar breytingar
verði á verðlagningu vöru og þjónustu hins opin-
bera. Og á þetta er lögð rik áherzla.
Verðlagsstjóri gat þess jafnframt, að verð-
stöðvun ein saman leysti ekki allan vandann. — En
ef samhliða henni verða gerðar aðrar nauðsynleg-
ar ráðstafanir, getur hún orðið veigamikill þáttur i
þvi að draga úr verðbólgu, sagði verðlagsstjóri.
Og hann gat þess, að þar væru honum efst i huga
væntanlegir kjarasamningar um eða upp úr ára-
mótunum. Um þetta atriði fórust honum orð á
þessa leið:
— Það skiptir meginmáli, að ekki verði um
verulegar kauphækkanir að ræða, þvi að slikt
myndi aðeins bjóða upp á nýja kollsteypu.
Það er nauðsynlegt, að menn ihugi, að til eru
fleiri kjarabætur en beinar launahækkanir, og svo
verður að tryggja það, að fyrirtæki geti á einhvern
hátt mætt einhverri kauphækkun, til dæmis með
vaxtalækkun þeim til handa.
í framangreindu viðtali við viðskiptaráðherra
gat hann þess, að þessar aðgerðir sneru ekki hvað
sizt að hinu opinbera. — Það hafa verið hækkanir á
ýmissi opinberri þjónustu, sem eru meiri en hið al-
menna verðlag hefur hækkað, sagði ráðherrann.
Og verðlagsstjóri sagði: — Það er nýtt, að nú
mega ráðuneyti enga ákvörðun taka um verð-
hækkanir, án samráðs við viðskiptaráðuneytið.
Ég tel mjög þýðingarmikið, að engar hækkanir
verði leyfðar hjá þvi opinbera, nema þær séu fyrst
bornar undir einn aðila, sem hefur heildarsýn yfir
málin, sagði verðlagsstjóri að lokum.
Við Islendingar höfum nú búið við verðhömlun
siðustu fimm árin. Vegna mikilla kostnaðarhækk-
ana, erlendra og innlendra, hefur þó reynzt ógern-
ingur að halda verðlagi stöðugu. Það er reynsla
annarra þjóða, að verðstöðvun komi þvi aðeins að
tilætluðum notum, að hún standi tiltölulega stutt i
senn, eins og nú skal vera hér. Að undanförnu
hefur nokkuð dregið úr hinni öru verðbólgu hér á
landi, og tilmæli viðskiptaráðuneytisins eru til-
mæli um það, að allir bregðist nú rétt við, svo að
unnt verði að fylgja þeirri þróun eftir.
Það getur styrkt pólitíska stöðu hans
VVilliam O. Douglas og frú
Stevens hefur yfirleitt látið
litið á sér bera, ogerþviekki
þekktur nemg i þröngum hópi.
Hann gekk undir hjartaupp-
skurð fyrir nokkrum árum og
er talinn hafa fengið fullan
bata. Hann er kvæntur, og
eiga þau hjón fjögur börn á
aldrinum 26 ára til 12 ára.
Þ.Þ.
FYRIR skömmu lét elzti mað-
urinn i hæstarétti Bandarikj-
anna, William O. Douglas, af
störfum sökum heilsubrests,
enda orðinn 77 ára gamall.
Hann hafði átt sæti i réttinum
siðan 1939, eða i meira en 35
ár. Douglas hafði unnið sér
það orð að vera frjálslyndast-
ur allra þeirra dómara, sem
áttu sæti i réttinum á þessum
tima, og sýndi hann það ekki
aðéins i dómsúrskurðum sin-
um, heldur á margan hátt ut-
an réttarins. Þannig skrifaði
hann bækur, sem vöktu umtal
og deilur sökum róttækni og
nýtizkulegra skoðana, og birti
greinar i blöðum, sem voru
umdeild sökum róttækra
kenninga, m.a. i kynferðis-
málum. Þetta gekk svo langt,
að sú hreyfing myndaðist i
fulltrúadeild Bandarikjanna
fyrir nokkrum árum, að eðli-
legt væri að deildin ákærði
Douglas fyrir afglöp og krefð-
ist úrskurðar öldungadeildar-
innar um að hann væri óhæfur
til að vera hæstaréttardómari.
Samkvæmt stjórnarskránni
má vikja forsetanum og
hæstaréttardómurum frá með
þessum hætti og var slik máls-
sókn hafin á hendur Nixon, en
hann kaus að segja af sér
embætti, eftir að fyrirsjáan-
legt var, að fulltrúadeildin
myndi ákæra hann, og öld-
ungadeildin siðan sakfella
hann. Sá sem stóð fyrir um-
ræddri hreyfingu gegn
Douglas dómara, var enginn
annar en Ford, núverandi for-
seti. Hún fékk ekki nægar
undirtektir meðal þing-
manna, og lognaðist þvi út af.
Það kom i verkahring Fords
nú að taka á móti lausnar-
beiðni Douglas og þakka hon-
um vel unnin störf. Þetta fórst
Ford sæmilega, enda mátti
flest gott um Douglas segja
sem dómara, en ýms verk
hans utan réttarins voru um-
deilanleg, og það var fyrst og
fremst gegn þeim, sem Ford
hafði beint gagnrýni sinni og
talið ósamboðin hæstaréttar-
dómara.
ALLMIKLAR umræður
spunnust um það i Bandarikj-
unum, hvern Ford myndi til-
nefna sem eftirmann Douglas.
Þannig er nefnilega ástatt i
hæstarétti, að þar eru nú tald-
ir fjórir ihaldssamir dómarar,
en dómararnir eru alls niu. Ef
Ford yrði við áskorunum
ihaldssamari republikana um
að skipa ihaldssaman mann
eftirmann Douglas, var orðinn
John Paul Stevens
tryggur ihaldsmeirihluti i rétt-
inum. Það var talin veruleg
freisting fyrir Ford að lát-und-
an þessum þrýstingi, þar sem
það hefði getað bætt stöðu
hans meðal ihaldssamari
kjósenda i væntanlegri keppni
hans við Ronald Reagan i
prófkjörunum.
Niðurstaðan varð sú hjá
Ford, að hann valdi i sæti
Douglas mann, sem bandarisk
blöð telja frjálslyndan ihalds-
mann, en öllu réttara væri að
segja, að hinn nýi dómari
flokkist hvorki til hægri né
vinstri, heldur leitist við að
vera óháður og þræða meðal-
veginn, að svo miklu ley.ti sem
það samræmist lögunum. Val
Fords á honum hefur þvi yfir-
leitt mælzt vel fyrir. Frjáls-
lyndir menn hafa talið það vel
ráðið, en hinir ihaldssömu
geta heldur ekki gagnrýnt
það. Yfirleitt hefur þvi Ford
þótt sýna hyggindi i þessu vali
sinu, og er það þvi liklegt til
að auka álit hans.
Ford varð talsvert fyrir
þeim þrýstingi, að skipa bæri
konu isæti Douglas. M.a. lýsti
kona hans yfir þvi, að hún
hvetti mann sinn eindregið til
þess. Nokkrar konur munu
lika hafa komið til athugunar,
en engin þeirra þótti hafa
næga reynslu. Aðalástæðan
var sú, að þær höfðu ekki
gegnt dómarastörfum. Þótt
margar konur i Bandarikjun-
um hafi lokið lögfræðinámi,
hafa þær yfirleitt ekki sótzt
eftir dómarastörfum.
HINN NÝI hæstaréttardóm-
ari, John Paul Stevens, er 55
ára að aldri, fæddur i Chicago
20. april 1920. Hann er kominn
af þekktum ættum þar, Hann
vann sér gott orð sem náms-
maður, en tafðist nokkuð við
laganám sitt sökum þess, að
hann var kvaddur i herinn 1942
og var i flotanum næstu þrjú
arin, þar sem hann hlaut
ýms heiðursmerki fyrir fram-
göngu sina. Laganáminu iauk
hann þvi ekki til fulls fyrr en
1947, og var hann efstur
þeirra, sem útskrifuðust sam-
tim is hon um. Að ná m inu loknu
var hann aðstoðarmaður eins
af hæstaréttardóm urum
Bandarikjanna um tveggja
ára skeið, en vann siðan sem
meðeigandi þekktrar lög-
fræðiskrifstofu i Chicago. Um
skeið stundaði hann kennslu
við lagadeild háskólans i
Chicago, og öðru hvoru tók
hann að sér sérstök verkefni
fyrir opinbera aðila. Hann
hefur unnið sér sérstakt orð
sem mikill fræðimaður varð-
andi þann þátt löggjafarinnar,
sem fiallar um ólöglegar
hringamyndanir. Hann hefur
skrifað allmargar ritgeröir
um þau efni.
Arið 1970 skipaði Nixon hann
i þýðingarmikið dómaraemb-
ætti i Chicago, og hefur hann
unnið sér svo mikið álit i þvi
starfi, að skipan hans i hæsta-
rétt hefur yfirleitt mælzt vel
fyrir, eins og áður segir. Stev-
ens hefur haft litil eða engin
afskipti af stjórnmálum, en þó
verið talinn helzt hallazt að
republikönum. Meðal þeirra.
sem urðu einna fyrstir til að
fagna útnefningu hans i
hæstarétt, var Adlai Steven-
son, öldungadeildarmaður frá
Illinois, en hann er demokrati.
Fullvist þykir, að öldunga-
deildin muni staðfesta útnefn-
ingu Stevens samhljóða, eða
nær samhljóða.
ERLENT YFIRLIT
Ford heppnast val
hæsta rétta rdóma ra
FJ.