Tíminn - 02.12.1975, Síða 13
Þriðjudagur 2. desember 1975.
TÍMINN
13
Eitt þekktasta merki á
Q^jNorðurlöndumy^Q
RAF-
SVJNNBK
EWTTERiER
SUNN3K
BATTERER
GEYMAR
Fjölbreytt úrval af Sönnak rafgeymum
— 6 og 12 volta — jafnan fyrirliggjandi
T
ARAAULA 7 - SIMI 84450
Þar sem fagmennirnir verzla,
er yður óhætt
„íslandi ailt”!
„Islandi allt” var kjörorð
það, er Ungmennafélögin tóku
sér i upphafi tilveru sinnar. Það
var á 1. áratug 20. aldar, að þau
hófu sitt heillarika starf. A milli
hafs og fjalla endurtók hugdjörf
æskan þessi fallegu orð með
huga og tungu: Vort félagsstarf
skal byggt á kristilegum grund-
velli ástar til ættarlands, gæzlu
kjörgripa þess — einkum
móðurmálsins, afneitun
áfengra drykkja, — heilbrigð
sál i hraustum likama.
Nokkru fyrr hafði Gt.-reglan
numið land með sitt gullvæga
kjörorð „trú, von og kærleikur”,
farið eldi um sveitir og sjávar-
þorp, og þannig undirbúið
jarðveg fyrir margþætt félags-
starf. Þá var vinnautn karla
nokkuð almenn, en konur — að
langmestu leyti lausar við það,
sem eflaust má þakka að þjóðin
hélt sinni vöku óveikluð. I Gt-
reglunni urðu konur góðir liðs-
menn með fullu jafnrétti, þess
er vert aðminnast á kvenna-ári.
„Islandi allt” ómaði marg-
róma, þá er örvandi hendur og
hugir æskunnar létu sér flest
mannlegt við koma, efldu þrótt
til þarfa, hugðu litt að launum,
þó að löngum stundum væri
fórnað fyrir aðkallandi verk eða
framkvæmd hugsjóna af mörg-
um þó vanmetið eða illa. En
þangað má þó rekja rætur
margs þess, er siðar kom til
batnandi þjóðarhags, og glögg
merki sýna, hvert sem litið er til
sjós og lands.
Nú, þegar ártal er skráð 1975
hafa þeir margs að minnast,
sem sáu upphaf aldar, og fylgzt
hafa með starfi og striti lands-
búa. Æskulýður sá, er við
aldarupphaf hóf sitt merki
brynjaður hugsjónum
góðskálda og fornsögufræða, er
fallinn, eða frá starfi. Aðrir hafa
tekið við, hlúð að og uppskorið.
Fullt stjórnfrelsi, er fengið og
meðferð allra mála i eigin hönd-
um. Hver áfanginn á sina sögu
og hátiðisdag. Svo var 11
hundrað ára afmæli búsetu á
Islandi haldið 1974 með veg og
sóma og ærnum kostnaði — og
nú er að liða „kvennaár”, hver
þáttaskil það markar i þjóðar-
sögu er óséð, en góðar miningar
á það og heillaóskir. Vitanlega
hefur hvert ár aldar vorrar
verið kvennaár, alveg eins og
allir heilbrigðir sveinar hafa
verið „kvennamenn” og þær
hver um sig átt sinn óskaver,
svo hefur verið og verður „með-
an land girðir sær”.
Nú er æskan betur búin að
þrótti, lærdómi og allri aðbúð en
nokkurn tima fyrr. An eigin
fyrirhafnar fá ungmenni
fullnægt öllum þörfum, einatt
meira en heilnæmt er. Svo er
heimtað fram úr hófi fé og
friðindi af foreldrum og svo
samfélaginu, en minna ber á
fórnarvilja. An peningalauna er
varla vik unnið. — Námslán,
námsstyrk, jafnvel námslaun,
sihækkandi, er samróma krafa
skólafólks, án tillits til fjár-
hagsgetu rikisins eða hvort
námið horfir til sannra heilla
eða þjóðarhags. Sumir taka svo
starf erlendis að loknu námi, ef
von er hærri launa. Sá er þegn-
skapur margra ungmenna nú.
„Þvi eru þverbrestir
i þjóðarveli,
axarsköft óteljandi,
liggja lifsgildi
litils metin
út um gjaldþrotaglæ”.
(G. Fr.)
„Allt fyrir mig”, — landshag-
ur eða þjóðarheiður kemur mér
litið við. Nú þykir ekki þörf að
sækja þrótt og þor til fornlegra
ljóða, aðrir hljómar láta hærra.
Heimsstriðin tvö hafa mjög
breytt um hagi þjóðarinnar um
atvinnuhætti, tækni margs
konar og fjármála-viðskipti.
Jafnframt breyttist hugsunar-
háttur á ýmsa lund. Snögglega
aukin peningavelta þótti sanna,
að menn væru rikir orðnir, og
sparsemi ekki lengur þörf.
Fljóttekinn afli var útfús, óþarft
þótti að geyma til næsta máls.
Jafnframt hrakar orðheldni,
trúmennsku og þegnskap. Jafn-
vel drngskaparheit, sem er
jafngilt eiði, er brigðult talið —
sbr. skattskýrslur. Varúð þarf,
þá vel gengur. Hugsjónaloginn
má ekki dvina þótt hagur batni.
Sannarlega er fljótt og vel
brugðið við til hjálpar, þá slys
eða óhöpp henda og margþætt
liknarstarf er unnið auk lög-
bundinna trygginga og ai-
mannabóta, en það kerfi allt er
glöggur ávöxtur hugsjóna horf-
inna brautryðjenda. Vissulega
er hjá oss félagasambönd og
einstaklingar, sem vilja fórna fé
og tima til hagsbóta og hjálpar á
ýmsan hátt. — Drottinn blessi
það allt. — En eitthvað skortir
— þjóðin er sögð illa stödd, þótt
allt sýnist leika i lyndi. Mig
minnir að i fornu merku riti
standi: „Ef óáran kemur i fólk-
ið, þá er þjóðin illa stödd.”
Er vor þjóð svo illa stödd nú?
Óhugnanleg slysatiðni er um-
töluð, róstur, gripdeildir,
ikveikjur, stórþjófnaðir
unglinga og skemmdarstörf.
Sivaxandi ölvun allt niður að
barnsaldri meðal stúlkna og
pilta er ægilegt timanna tákn.
Ó, þú þróttmikla glæsta nútima-
æska, tak þér heilshuga i munn
orðin, sem viða vermdu við ald-
ar upphaf: islandi allt”. Til
þess hjálpi góður guð.
I trú, von og kærleika.
Einar Sigurfinnsson
Hveragerði.
nú viðarklæðningu á veggi, í loft
og á gólf. Verðið er hagstætt.
Viðarþiljuveróið hið hagstæðasta
á markaðinum, vonum vió.
Nauðungaruppboð
Ms. Tungufell BA 326með tilheyrandi tækjum og búnaði,
eign Hraðfrystihúss Tálknafjarðar h.f., verður saman ber
Lögbirtingablaðið 71., 73. og 75. tbl. 1975, eftir kröfu Jóns
Ingólfssonar hdl., að undangengnu fjárnámi til lúkningar
skuldar, norskar krónur 325.336, auk vaxta og kostnaðar,
selt á opinberu uppboði, sem sett verður á skrifstofu
embættisinsá Patreksfirði kl. 14föstudaginn 12. desember
1975 og síðan á eigninni sjálfri eftir ákvörðun uppboðsrétt-
ar.
Fyrir hönd sýslumanns Barðastrandar-
sýslu
Rikarður Másson ftr.
Fóstrustarf
Fóstra óskast til að veita dagheimilinu
Tjarnarseli i Keflavik forstöðu.
Launakjör samkvæmt kjarasamningum.
Umsóknarfrestur til 15. desember.
Nánari upplýsingar veitir undirritaður.
Bæjarstjórinn i Keflavik.
É Aðstoðarl^plcni I
'Js
.feV
■:w
Aðstoðarlækni
Staða aðstoðarlæknis á Háls-, nef- og cyrnadeild
Borgarspitalans er laus til umsóknar nú þegar eða eft-
ir samkomulagi til 6 mánaða.
Reykjavik, 1. desember 1975.
V ki,.ív'w,
‘M'w ' .v- .•?;
•/£ v
h
Samkvæirt kjarasamningi Læknafélags Reykjavikur ’ '**#
við Reykjavikurborg.
Umsóknir, ásamt upplýsingum um nám og fyrri störf
skulu sendar yfirlækni deildarinnar.
Frekari upplýsingar veitir yfirlæknirinn.
m
Stjórn sjúkrastofnana
. Reykjavikurborgar.
Til sölu Land-Rover
diesel, árg. 1967. Billinn er i góðu lagi.
Verð kr. 450 þús.
Upplýsingar i sima 99-3108.
viðaiiiilfur
BYGGINGAVÖRUVERSLUN
KÓPAVOGS SF
NÝBÝLAVEGI 8 SIMI:41000
TIMBURSALAN KÁRSNESBRAUT 2