Tíminn - 02.12.1975, Síða 20

Tíminn - 02.12.1975, Síða 20
Þriðjudagur 2. desember 1975. Á ENSKU í VASABROTI t fyrir yóóan mai $ KJÖTIÐNAÐARSTÖO SAMBANDSINS Neyðar brezkum heilbrigð- ismálum Reuter/London. Astandið i heilbrigðismálum Bretlands hefur aldrei verið eins alvar- legt og nú, en sem kunnugt er hafa brezkir læknar neitað með öllu að vinna nokkra yfir- vinnu vegna ágreinings við stjórnvöld landsins. Talsmaö- ur brezku stjórnarinnar á þinginu sagöi i gær, að hætta væri á þvi, að sjúklingar létust unnvörpum vegna þess, að ekki væri hægt að veita þeim næga aöhlynningu. I gær tilkynntu 11 þúsund læknar með sérfræðimenntun, að þeir myndu einungis sinna brýnustu neyðartilfellum. Eru þeir með þessu að mótmæla þeirri áætlun Barböru Castle, heilbrigðisráðherra brezku verkamannaflokksstjórnar- innar, að taka fyrir það, að sjúkrarúmum verði haldið frá fyrir þá sjúklinga, sem eru reiðubúnir til þess að greiða fyrir sérstakar læknismeð- ferðir, og taka rúmin i þess stað til almennra nota. Sérfræðingarnir óttast, að meö þessu kunni að draga stórlega úr tekjuöflunarmögu- leikum þeirra. Ákvörðun sér- fræðinganna kemur i kjölfar ákvörðunar 19 þúsund sjúkra- húslækna, sem hafa neitað að sinna öðru en brýnustu neyðartilfellum. Þeir krefjast hærri launa fyrir störf sin, og segjast ekki bera meira úr býtum fyrir 120 klukkustunda vinnu á viku heldur en strætis- vagnastjórar geri. Friðargæzlusveitirnar í Golanhæðum: ísrael fordæmir afstöðu öryggisráðsins — ætlar ekki að taka þátt í viðræðum um palestínuvandamálið í næsta mánuði Reuter/Jerusalem. israelska stjórnin hafnaði i gær samþykkt öryggisráðs Samcinuöu þjóð- anna, þar sem gengið er að þeirri kröfu sýrlenzku stjórnarinnar, að framlenging dvalar friðargæzlu- sveita samtakanna i Golanhæð- um verði þáttur i viðræðum um palestinuvandamáliö. Þá sagði israelska stjórnin, að loknum sex klukkustunda skyndi- lundi, sem boðað var til vegna ákvörðunar öryggisráðsins, að israelska stjórnin gerði sýrlenzku stjórnina ábyrga fyrir öllum þeim skæruliðaárásum, sem gerðar yrðu á Israel frá Sýrlandi. Mikil reiði er nú i ísrael vegna ákvörðunar öryggisráðsins, og telja flestir, að bandariska stjórnin hefði átt að beita neitunarvaldi sinu til að koma i veg fyrir samþykkt tillögunnar. Þá kom sýrlenzka stjórnin saman til fundar i gær til að ræða um samþykktina og i lok fundar- ins sögðu talsmenn stjórnarinnar að samþykkt öryggisráðsins hefði gjörbreytt pólitiskum viðhorfum i Mið-Austurlöndum. Sögðu tals- mennirnir, að boð það, sem nú verður væntanlega sent PLO, samtökum Palestinuaraba, um að taka þátt i viðræðum á vegum S.Þ. um frið i Mið-Austurlöndum væri enn einn ávinningur þeirrar samvinnu, er tekizt hefði með sýrlenzku stjórninni og PLO. Þeir sögðu og að lita mætti á samþykkt Vestur-Þjóðverjar bjóðast til að miðla mólum í deilu íslendinga og Breta — viðleitni í þá átt að standa við skuldbindingar sínar við íslendinga, segir Einar Ágústsson utanríkisráðherra Þ.O.-Reykjavik , Samkvæmt Reutersfréttum i gær, mun Wischnewski aðstoðarutanrikis- ráðherra Vestur-Þýzkalands, hafa boðizt til þess að miðla málum i deildu Isiendinga og Breta vegna utfærslu islenzku fiskveiðilandhelginnar i 200 milur. Einn þáttur i hinu nýgerða Orkuróðstefnan: Wilson krefst sér- staks sætis fyrir samkomulagi islenzku og vestur-þýzku rikisstjórnanna gerir ráð fyrir þvi, að Vestur-- Þjóðverjar beiti sér fyrir þvi að bannið við tollaívilnunum til handa Islendingum á mörkuð- um EBE rikjanna, svokölluð „bókun 6” verði úr gildi felld, enda fellur samningur Is- lendinga og Vestur-Þjóðverja sjálfkrafa úr gildi innan fimm mánaða, verði tollaivilnunin ekki komin til framkvæmda. Bretar geta hins vegar beitt sér fyrir þvi, að ivilnanir þessar komi ekki til framkvæmda, og þvi er Vestur-Þjóðverjum hag- ur i þvi, að samkomulag takizt með Bretum og íslendingum. Einar Agústsson, utanrikis- ráðherra, sagði, er Timinn leitaði álits hans á frétt þessari, að sér hefði ekki borizt tilkynning frá Vestur-Þjóðverj- um um málið og þvi vissi hann ekkert meira heldur en fram hefði komið i fréttum i gær. Hann sagði þó, að það væri vottur þess,. að Vestur-- Þjóðverjar vildu sýna viðleitni i þá átt að efna skuldbindingar sinar samkvæmt hinu nýgerða samkomulagi við Islendinga. Að öðru leyti kvaðst hann ekkert geta tjáð sig um málið að svo stöddu. Rhodesia: Bretland Reuter/Róm. Leiðtogar Frakk- lands og Vestur-Þýzkalands reyndu I sameiningu i gær að fá Harold Wilson, forsætisráðherra Breta ofan af þeirri kröfu, að Bretland fái sérstakt sæti á orku- ráðstefnunni, sem hefst i Paris siðar í þessum mánuði. Málefni þetta var helzta um- Wilson. ræðuefnið á leiðtogafundi EBE sem hóísl i Rom i gær. Fundinum lýkur á morgun. Talsmaður Hel- muts Schmidt, kanslara Vest- ur-Þýzkalands, sagði, að Schmidt og D’Estaing, Frakklandsforseti ætluðu i sameiningu að beita áhrifum sinum á Wilson til þess að fá hann til að falla frá þessari kröfu, en Wilson hefur mjög verið gagnrýndur af öðrum Evrópu- leiðtogum fyrir þá ósveigjanlegu afstöðu, sem hann hefur tekið i þessu máli. Brezkir embættismenn létu hafa það eftir sér, við setningu fundarins í gær, að Wilson væri síðuren svo reiðubúinn til þess að fallast á málamiðlunarsam- komulag. Rök Bretanna eru þau, að þeim beri sérstakt sæti á ráð- stefnunni, þar sem Bretland sé eina land EBE rikjanna, sem kalla megi umtalsverðan oliu- framleiðanda, og hafa þeir þvi visað á bug öllum málamiðlunar- tillögum, sem gera ráð fyrir þvi að þeir eigi fulltrúa i sendinefnd EBE rikjanna á ráðstefnunni, sem hefst 16. desember n.k. Ef ekki tekst að ná samkomulagi um þetta atriði gæti það orðið til þess að fresta þyrfti ráðstefnunni. D’Estaing og Helmut Schmidt leggja hins vegar alla áherzlu á það að ráðstefnan geti hafizt 16. desember vegna hins mikla hlut- verks, sem hún gegni. Samkomulag um viðræður milli hvítra og svartra veldur deilum Reuter/Salisbury. Ian Smith for- sætisráðherra Rhodesiu og Joshua Nkomo, leiðtogi afrfskra þjóðernissinna, undirrituðu i gær samkomulag, sem gerir ráð fyrir ,þvi að liafnar verði innan tiðar viðræður til að leysa deilumál hvitra manna og svartra i Rhodesiu. 1 samkomulagi Smiths og Nkomo, sem birt var fréttamönn- um f gær, sagði að þjóðernissinn- um yrði heitið fullu öryggi og þyrftu þeir ekki að eiga von á handtökum, þó að þeir tækju þátt i viðræðum um deilumál hvitra og svartra. Nkomo vildi ekki tjá sig um það á blaðamannafundi i gær, hvort útlögunum Muzorewa og Sithole yrði boðin þátttaka i viðræðum þeim, sem fyrirhugaðar væru. Sithole sendi frá sér ylirlýsingu i gær, þar sem hann fordæmdi samkomulag það, sem Nkomo hefði undirritað með Ian Smith. Kvaðst hann og samherjar hans ekkert vilja með samkomulag þetta gera, þar sem blökkumenn gætu alls ekki sætt sig við þau vinnubrögð sem Smith beitti, þ.e.a.s. að slá öllu á frest. Kvaðst hann hafa fengið nóg áf sliku sið- ustu 11 árin. Sithole sagði, að yfirlýsing hans hefði verið undirbúin i samráði við Muzoreva, en hann vildi ekki segja frá þvi, hvar biskupinn héldi sig. Sithole sagði, að blökku- menn gætu ekki frekar treyst lof- orðum Smiths en músin loforðum kattarins. Það getur enginn treyst loforðum manns eins og Ian Smith, forsætisráðherra Rhodesiu, sagði Sithole að lokum. öryggisráðsins sem mikið reiöarsiag fyrir þá stefnu, sem Henry Kissinger hefði beitt sér fyrir til að koma á friði smátt og smátt i Mið-Austurlöndum. tsraelska stjórnin sagði að loknum fundi sinum i gær, að hún ætlaði ekki að taka þátt i viðræð- um öryggisráðsins um Palestinu- vandamálið, sem fram eiga að fara i næsta mán. Sagði i yfir- lýsingu israelsku stjórnarinnar, að öryggisráðið hefði gefizt upp lyrir kúgunum sýrlenzku stjórnarinnar og þvi myndu ísra- elsmenn hafna samþykktinni með öllu. Ákvörðunin um fram- lengda dvöl friðargæzlusveitanna hefði nú verið tengd alls óviðbom- andi málefni og kynni slikt að skaða allar frekari horfur á varanlegum friði i Mið-Austur- löndum. Þá var tilkynnt af hálfu isra- elskra stjórnvalda, að öryggis- ráðstafanir við sýrlenzku landa- mærin yrðu hertar að miklum mun. Yigal Allon utanrikisráð- herra israels sendi Henry Kissinger orðsendingu i gær þar sem hann fór fram á, að Bandarikjamenn héldu áfram stuðningi sinum við málstað tsra- els, en hann mun ekkert svar hafa fengið. Ólæti í Jerú- salem Reuter/Atabua, Indonesiu. Adam Malik utanrikisráð- herra Indonesiu sagði i gær, að indonesiska stjórnin héti þeim stjórnmálahreyfingum á Austur-Timor stuðningi sin- um, leynt eða ljóst, sem vildu að Austur-Timor sameinaðist Indonesiu. Indonesiustjórn hefur hins vegarskýrttekið fram, að hún ætli sér ekki að gera innrás á Austur-Timor i þvi skyni að ná henni á sitt vald. Malik taldi, að Sameinuðu þjóðirnar gætu ekki komið til hjálpar i þessu máli. Indónesía styður and- stæðinga Fretelin Reuter/Jerusalem. 20 israelskir stúdentar voru handteknir i mótmælaaðgerð- um, sem efnt var til i Jerúsa- lem I gær við skrifstofu Sam- einuðu þjóðanna i borginni. Stúdentarnir fóru þess á leit við öryggisverði, sem gættu byggingarinnar, að þeir tækju við mótmælaorðsendingu frá stúdentasamtökunum i borg- inni, og að henni yrði komið áleiðis til aðalstöðva S.þ. i New York. I fyrstu neituðu verðirnir að taka við orðsend- ingunni, en skiptu siðan um skoðun, er til handalögmála kom.

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.