Tíminn - 03.12.1975, Page 4
4
TÍMINN
Miðvikudagur 3. desember 1975.
ORUGGUR STAÐUR
Jafnvel þótt maður hafi langan
háls, er varúðin bezt fyrir gir-
affabarniö, í allri þess vorvitni.
Það stendur þvi stillt og prútt
milli fóta mömmunnar. Regla
númer eitt: Þetta er öruggur
staöur. Regla númer tvö: Þeir
stóru hafa oftast betri yfirsýn!
Allavega hjá dýrum.
Hlífðargleraugu við kjarnorkuljósi
Sprengjuflugmenn bandariska
flughersins eiga i framtiðinni að
hafa hlifðargleraugu úr sér-
stöku gleri til þess að blindast
ekki af kjarnorkublossa. Sandia
Laboratories og Bendix sam-
steypan hafa búið til tvær teg-
undir til reynslu, eina með
kringlóttum glerjum og aðra
með ferköntuðum. Þessum
hlifðargleraugum er stjórnað af
rafauga, sem útilokar 99,9% af
kjarnorkuljósinu um leið og það
fellur á þau.
Ást í stað kláms
Unga italska leikkonan Dalila
Di Lazzaro veiddi stóran fisk.
Fyrir nokkrum mánuðum var
talað um aö hún væri orsök
skilnaðar milli Sophiu Loren og
eiginmanns hennar, C- Ponti.
Hún hefur nú trúlofazt vinsæl-
asta leikstjóra frönsku klámöld-
unnar, Just Jaeckin, sem er 35
ára gamall. Þau kynntust, þeg-
ar Dalila hafnaði tilboðinu um
aö leika aðalhlutverkið i
kvikmynd Jaeckins: „Sagan
um 0” af siðferðilegum ástæð-
um. Þetta hafði svo mikil áhrif á
leikstjórann, aö hann varð ekki
aðeins ástfanginn i Dalilu,
heldur sór að gera aldrei fram-
ar klámmyndir. Framvegis ætl-
ar hann einungis að gera saka-
málamyndir.
Vínar-gervihjartað tilbúið til notkunar
Prófessor Johann Navratil for-
stöðumaður skurðlækninga-
deildar Háskólans i Vin II,
sem er leiðandi gervihjartasér-
fræðingur i Evrópu, segir
gervihjarta sitt vera tilbúið
eftir sex ára tilraunir. Hann
sagði fyrir skömmu; — Þegar
séð er, að ekki er hægt að bjarga
einhverjum meö öðrum ráðum,
þá setjum við þaö i þegar i stað
i þann sjúkling. Þetta er ekki
staðgengill hjartans til æviloka,
heldur er það aðeins aðstoðar-
hjartahluti úr áli og gerviefni,
sem hlifir blóðinu, og á aö taka
við dælustarfi vinstra hjarta-
helmingsins i hæsta lagi i tvo
mánuði. Navratil telur flest sjuk
hjörtu hæf til endurhæfingar.
Hjartahólfið hefur verið reynt á
kálfum. Bezti sjúklingur Navra-
tils úr dýrarikinu er ung kýr að
nafni Esmeralda, sem hafði
hjartahólfið i 73 daga, og kunni
ágætlega við sitt eigið hjarta
eftir uppskurðinn.
Nektardansmær fær miða frá
aðdáanda eftir sýningu. —
Náðuga ungfrú, ég er vitlaus i
yður. Ef þér komiö ekki út með
mér i kvöld mun ég ef til vill
drepa mig. Ég bið eftir yður við
sviðsinnganginn. Siðan er PS
bætt við: — Ef þér hafið ekki
tima, látið þá eina af starfs-
systrum yöar hafa miðann.
Hjón koma til tannlæknis. —
Hvað kostar að láta taka tönn?
spyr maðurinn.
— 3.500 með deyfingu, 2000 án
deyfingar.
— Þá án deyfingar!
— Bravo, segir tannlæknirinn,
— svona eiga karlmenn að vera.
— Hvað, segir maöurinn og
segir svo við konuna: — fáðu
þér sæti, elskan!
— Einn snafs og tvo bjóra ef þú
vildir gjöra svo vel!
DENNI
DÆMALAUSI
„Kannski hann hafi ekki haft efni
á að fara til sólarlanda i vetur.
Nokkurn tima látið þér detta það
hug?”