Tíminn - 03.12.1975, Page 11

Tíminn - 03.12.1975, Page 11
Miðvikudagur 3. desember 1975. TÍMINN 11 »g nú árið 1973 nam um 3 tonnum á hvern landsmann. Nú er olían leifar gróðurs, sem batt orku sólarinnar fyrir milljónum ára. Sýna má fram á, að oliunotkun okkar árið 1973 jafngildir þvi orkumagni, sem gróður á 1 1/2 hektara bindur á ári hverju við góð skilyrði. Olíunotkun landsins svarar þvi til orkunáms gróðurs á svæði.sem er þrisvar sinnum stærra en öll tún á íslandi I dag. Ilöl'um við bætt hegðun okkar? Hvað er nú sameiginlegt með beitarbúskap forfeðra okkar og nútfma þjóðarbúrekstri hinna þróuðu landa, sem við getum talið okkur með? Jú, það er að reisa öflun lifibrauðsins á rányrkju — með því að nema meira úr auðæfaforða veraldar en okkar kynslóð ber. I stað þess að beita fénu á móana sunnan við bæinn ogmeð þeirri afleiðingu, að eftir stóð flag eitt og rofaborð, og að rifa hris til eldmetis uppi i hlið, gerum við nú strandhögg i orku- lindir jarðar og aðxar innistæður, sem óhjákvæmilega leiðir einnig til auðnar og uppblásturs innan fárra áratuga. Þaö, sem skilur þessa búskaparhætti, er á hinn bóginn álit okkar og mat á þeim. Beitina á móann sunnan við bæinn og hrisrifiö teljum við i flesta staði ámælisvert. Hin beitaraðferðin— beitin á auðlindirnar úti i heimi — er litin augum velvildar, og er raunar opinberlega viðurkennd, þvi hún þjónar þvi markmiði, sem við höfum sett þjóðfélaginu, að skapa meiri framleiðslu, auka hagvöxt og þjóðartekjur. Augljóst ætti þvi öllum að vera, að við erum ekki hótinu skyn- samari eða betur staddir en for- feður vorir, sem okkur hættir oft til að áfellast, þá rætt er um meðferð landsgæða. Það sem á hinn bóginn liggur hér að baki, er sú náttúr mannsins að vílja sifellt hagræða siðgæðislegri viðmiðun þannig, að hún henti þörfum hans og löngun á hverjum tima. Að siðustu Að höndum hefur nú borið hálf- gerða kreppu i efnahagsmálum hins þróaða hluta heimsbyggðar- innar. Flestir lita á hana sem timabundið fyrirbrigði, þótt margt bendi hins vegar til þess, að hún sé varanleg, verði lifs- máta og mati verðmæta — fyrst og fremst náttúruauðlinda — ekki breytt innan tiðar. Við ís- lendingar erum betur staddir en flestar aðrar þjóðir, sakir hinna verðmætu orkulinda, sem við ráðum enn yfir, en ætla má, að orkan verði mjög verðmætur gjaldmiðill i framtiðinni. Þetta leysir okkur engan veginn undan þeirri kvöð að athuga stöðu okkar með hliðsjón af nýtingu náttúru- auðlinda. Við eigum þáttt orkusó- un iðnrikja, og tökum mun stærri hlut úr sameiginlegum orkusjóði heims en okkur ber. Þegar öll kurl eru komin til grafarinnar, er það ekki hið fjár- hagslega mat, sem lagt verður á arðsemiiðju einstaklingsins, heldur það, hvernig iðja hans samrýmist lögmálum þeim, er náttúran og umhverfi okkar lýtur. Fjárhagslegur ábati stend- ur nefnilega i dag æöi oft i beinu sambandi við rányrkju auðlinda og bruðl með auðæfi náttúrunnar. Sé málið skorað af þessum sjónarhóli, kann þvi svo að fara, að smábúskapur norður á Ströndum og lambakjötsfram- leiðsla á Landmannaafretti teljist, þrátt fyrir allt, ámóta „þjóðhagkvæm” störf og álbræðsla fyrir sunnan Hafnar- fjörð eða bilasala i Reykjavik — jafnvel þótt f'lytja "þurfi út eilitið af lambakjötinu af Landmanna- afrétti fyrir „lélegt” verð? Kort úr íslenzkum handritum STOFNUN Árna Magnússonar á Isiandi hefur hafið útgáfu á lit- prentuðum kortum með lýsingum úr islenzkum miðaldahandritum. 1 þetta sinn koma út niu kort i þremur gerðum og prýða þau lýs- ingar úr fjórum islenzkum hand- ritum: Á fimm kortum eru lýsingar úr sögu heilags Nikulás i handritinu Perg. 4 to nr. 16 i Konungsbók- hlöðu i Stokkhólmi, skrifuðu um 1400, og eru þær öðrum þræði valdar vegna þess að jólahátið fer senn i'hönd. — Heilagur Nikulás, erkibiskup frá Myra i Likia i Litlu-Asiu, var einn vinsælasti dýrlingur kaþólskrar kirkju á miðöldum. Helgi hans verður fyrst vart á 6. öld e.Kr., en breið- ist ört út eftir 1087, þegar beinum hans var rænt frá Myra og þau 'flutt til Bár á Italiu af þárlendum kaupahéðnum. Heilagur Nikulás er einkum árnaðarmaður sæfar- enda og barna, enda færir hann þeim siðarnefndu gjafir á messu- degi sinum 6. desember; Kenni- tákn hans eru oft þrir gullsekkir eða þrir sveinar, sem standa i kerlaug við hlið hans. Dýrkun heilags Nikulás varð mjög útbreidd á Islandi i kaþólskri tið. Um það bil 34 kirkj- ur eru honum helgaðar og hann er verndardýrlingur fjölmargra. Um hann hafa verið skrifaðar a.m.k. 3 islenzkar sögur og er brot úr hinni elztu til á skinni frá þvi um 1200. Sögu hans i Perg. 4to nr. 16 setti saman Bergur Sokka- son ábóti á Munkaþverá. 1 Stofn- un Arna Magnússonar er nú unnið að útgáfu á islenzkum Nikulás sögum. Mynd af Jóhannesi guðspjalla- manni er á tveim kortum Arna- stofnunar. Hún er tekin úr Skarðsbók postulasagna, sem is- lenzku bankarnir keyptu á uppboði i London árið 1965. Talið er að Skarðsbók hafi verið skrifuð i Helgafellsklaustri fyrir Orm lögmann Snorrasoná Skarði á Skarðströnd laust eftir 1350. Þá er á einu korti lýsing úr Skarðsbók Júnsbókar, A.M 350 fol., lögbókarhandriti, sem einnig er kennt við Skarð á Skarðs- strönd. Sú bók er talin veglegust allra Jónsbókarhandrita, og lýs- ing hennar er eins og bezt gerist i íslenzkum handritum. Að Skarðs- bók var verið að vinna 1363, en óvister hve lengi hún var i gerð. Að lokum er á einu korti lýsing úr Flateyjarbók, GKS 1005 fol. Þar er sýnt fall Ólafs Helga Haraldssonar Noregskonungs á Stiklarstöðum árið 1030. Að Flat- eyjarbók var unnið á siðustu ára- tugum 14. aldar, og voru upphafs- starfir og myndir dregnar af Magnúsi presti Þórhallssyni. Kortin verða til sölu á almennum markaði og verzlunarstjórar sem óska eftir að fá þau til sölu geta snúið sér til Ámastofnunar. Leitarflugið 3. útgáfa hinnar vinsælu Árna-bókar LEITARFLUGIÐ, hin vinsæla unglingabók Armanns Kr. Einarssonar, hefur nú verið gefin út I þriðja skipti hjá Prentverki Odds Björnssonar hf. á Akureyri. Arni og systurnar i Hraunkoti eru sögupersónur, sem allir islenzkir unglingar kannast við. Leitar- flugið er áttunda bindið i þessu ritsafni Ármanns, sem notið hefur geysilegra vinsælda. Bókin er 171 bls. að stærð og er gefin út og prentuð hjá Bókafor- lagi Odds Björnssonar hf. Teikningarnar i bókinni eru eftir Halldór Pétursson, en kápu- myndina gerði Max Weihrauch. •oooooooooooooooooooooooo• SKIÐA- jakkar SKÍÐA- buxur SKIÐA- skór SKÍÐA- hanzkar SKÍÐA- gleraugu SKÍÐA- stafir Aldrei meira úrval Póstsendum Sportval I, ... Hlemmtorgi — Simi 14390 00000000000000000000000®'

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.