Tíminn - 03.12.1975, Side 19
Miðvikudagur 3. desember 1975.
TÍMINN
19
Landsþing
iðnverkafólks:
Fráleitt að
styrkja enn
frekar sam-
keppnis-
aðstöðu
erlends
iðnvarnings
Mó-Reykjavik — Annað þing
landssambands iðnverkafólks
var haldið dagana 29. til 30. nóv.
sl. i Reykjavik. Þingið sátu 36
fulltrúar frá þrem félögum. I lok
þingsins var Björn Bjarnason
Reykjavik kosinn form. sam-
bandsins til næstu tveggja ára.
A þinginu voru samþykktar
ályktanir um kjaramál, fræðslu-
mál og iðnaðarmál. Þar segir
m.a.: Þingið litur svo á, að i
launakjörum iðnverkafólks verði
að taka meira tillit til starfs-
þjálfunarog starfsmenntunar, en
verið hefur til þessa. Slik breyting
myndi leiða til meiri stöðugleika i
vinnuafli iðnaðarins, og gera
hann þar með hæfari i samkeppn-
inni við erlenda framleiðslu.
Þá var talið nauðsyn að koma á
fót þjálfunarnámskeiöum fyrir
iðnverkafólk.
Einnig segir i ályktununum. —
Alvarlegar vanefndir hafa ver-
ið á loforöum rikisvaldsins við
inngönguna i EFTA um stuðning
við iðnaðinn til að mæta harðn-
andi samkeppni erlends iðnvarn-
ings, sem hóflaust flæðir inn i
landið. Þingið telur þvi fráleitt að
styðja frekar en gert hefir verið
samkeppni erlends iðnvarnings
frá löndum Efnahagsbandalags-
ins, með fyrirhuguðum tolla-
lækkunum, nú um næstu áramót.
Tollamál iðnaðarins þarfnast
rækilegrar endurskoðunar til að
auðvelda uppbyggingu hans, og
vart getur það talizt sæmandi, að
iönaðurinn njóti ekki sambæri-
legra kjara á rekstrarlánum og
landbúnaður og sjávarútvegur.
Hóskólabíó:
Endursýnir
3 vinsælar
myndir
gébé—Rvik — Háskólabió hefur
nú ákveðið aö taka til endursýn-
ingar þrjár vinsælar kvikmyndir,
og sýna þær hverja á eftir ann-
arri. Háskólabíó hefur áður tekið
upp slikar endursýningar á
nokkrum myndum i röð, og hefur
þetta mæizt vel fyrir hjá kvik-
myndahúsgestum. Myndirnar
verða aöeins sýndar i stuttan
tima, eða þrjá daga hver, og eru
gestir kvikmyndahússins beðnir
að hafa það i huga, ef þeir vilja
ekki missa af myndunum.
Þessar þrjár myndir eru: A
valdi óttans, gerð eftir sam-
nefndri sögu eftir Alistair Mac-
Lean, en sagan hefur komið út i
isl. þýðingu og hefur hlotið
geysilegar vinsældir eins og kvik-
myndin. önnur myndin er Guð-
faöirinn sem er ein þekktasta
mynd sem gerð hefur verið á
seinni timum, en sem kunnugt er
hlaut hún fjölda Óskars-
verðlauna. Framhald þessarar
myndar, Guðfaðir II, verður
væntanlega tekin til sýningar i
Háskólabiói i byrjun næsta árs,
en sú mynd hefur einnig hlotið
fjölda verðlauna og mikla aðsókn,
þar sem hún hefur verið sýnd.
Þriðja og siðasta myndin, sem
Háskólabió tekur til endursýning-
ar, er bandariska myndin Málaðu
vagninn þinn, en kvikmyndahús-
inu hefur borizt fjöldi áskorana
um að sýna myndina aftur. Þetta
er bráðfyndinn og smellinn söng-
leikur eftir Lerner og Loewe höf-
unda „My fair lady”. Að lokum
skal þess getið, að þetta eru allra
siðustu forvöð að sjá þessar þrjár
myndir, þvi þær verða allar send-
ar úr landi að þessum sýningum
loknum.
ii—
JÓLABINGÓ
Jólabingó Framsóknarfélags Reykjavikur verður haldið i Sig-
túni sunnudaginn 14. des. kl. 20.30.
Fjöldi stórglæsilegra vinninga.
Nánar auglýst siðar.
Happdrætti Hóskólans:
Tæpar 400 millj.
í vinninga
Miðvikudaginn 10. desember
verður dregið i 12. flokki Happ-
drættis Háskóla íslands. Að þessu
sinni verða dregnir út 31,500 vinn-
ingar að fjárhæð 397,800,000 krón-
ur, eða tæpar 400 milljónir króna.
Er þetta stærsti dráttur, sem
fram hefur farið i happdrætti á
íslandi til þessa. Til samanburðar
má geta þess, að i fyrra voru
dregnar út 176 milljónir króna i
desemberdrættinum. Þessi geysi-
lega veltuaukning varð vegna til-
komu „FIMMFALDA TROMP-
MIÐANS”, sem byrjað var að
selja i byrjun þessa árs.
Hæsti vinningur á TROMP-
MIÐA f þessum flokki verður tiu
milljónir króna og þar að auki
koma tvær milljónir króna á
hvorn heilmiðanna, E, F, G og H.
Geturþvi samimaðurinn unnið 18
milljónir króna i þessum eina
drætti, ef hann á TROMPMIÐ-
ANN og FERNUR af sama
númerinu.
Auk þessa verða 9 vinningar á
500,000 krónur, 9 vinningar á
200,000 krónur og 18 aukavinning-
ar á 100,000 krónur. 2,430 við-
skiptavinir eiga kost á að hreppa
50,000 krónur. 21,015 geta öðlast
10,000 krónurog 5,000 króna vinn-
ingarnir verða samtals 8,010.
Drátturinn mun hefjast klukk-
an eitt og honum mun ekki ljúka
fyrr en eftir miðnætti. Yfir 40
manns munu vinna að fram-
kvæmd þessa störa dráttar, þvi
allt þetta starf er mjög timafrekt
og mikil nákvæmnisvinna. Dag-
inn eftir verða svo lesnar próf-
arkir að vinningaskránni, sem
vonandi verður tilbúin á föstudag.
Útborgun vinninga hefst svo
miðvikudaginn 17. desember.
Verður borgað út daglega frá kl.
10 til kl. 16 (einnig i hádeginu) i
AÐALSKRIFSTOFUNNI i
Tjarnargötu 4.
Á jörðu hér
— síðasta bók Ólafs Tryggvasonar
Nýkomin er út hjá Skuggsjá
bók Ólafs Tryggvasonar A jörðu
hér, sem er sjöunda og siðasta
bók hans, en ólafur andaðist á
Akureyri i febrúar á þessu ári.
t formála tekur Kristján frá
Djúpalæk svo til orða um höfund-
inn: Fárra manna er svo djúpt
saknað. Ótrúlega margir stóðu i
þakkarskuld við hann. Ólafur var
vitur maður og kærleiksrikur.
Hann var einnig gæddur þeim
sjaldgæfa eiginleika að geta miðl-
að sjúkum og vanmáttugum
læknandi orku. Þessi orkubrunn-
ur átti ekki aðeins uppsprettu i
hans eigin inni, heldur gat hann
ausið af þeim lifgefandi lindum
sem guðir gefa kjörbörnum sin-
um vald til að fylla ker sitt i, til
svölunar hinum aðframkomnu.
Ólafur var kominn um sextugt,
er hann fór að skrifa bækur, en
hann kom fram sem fullveðja rit-
höfundur strax með fyrstu bók
sinni. — Ólafur var maður si-
starfandi, en aldrei var hann svo
önnum kafinn, að hann væri ekki
reiðubúinn að ganga frá verki til
ólal'ur Tryggvason
að liðsinna sjúkum og sorgmædd-
um, annaðhvort með persónu-
legri snertingu eða helga þeim
hugleiðslustund úr fjarska. Þessi
þjónustustörf i anda Krists stund-
aði hann lengst af ævi, og hin sið-
ari ár hafði hann opna lækninga-
stofu og viðtalstima eins og lækn-
ir, og það með óvefengjanlegum
árangri.
6. hljómleikar Sinfóniunnar:
Vladimir Ashkenazy stjómar
gébé Rvik — Sjöttu reglulegu tón-
leikar Sinfóníuhljómsveitar is-
lands verða haldnir f Háskólabfó
fimmtudaginn 4. desember kl.
20:30. Stjórnandi er Vladimir
Ashkenazy og einleikari
rúmenski pianósnillingurinn,
Radu Lupu, sem leika pianókon-
sert Nr. 4 eftir Beethoven. önnur
verk á efnisskránni verða Eg-
mont forleikurinn eftir Beethoven
og Sinfóniu nr. 1 eftir Brahms.
Einleikarinn Radu Lupu er
fæddur I Rúmeniu árið 1945.
Píanónám hóf hann aðeins sex
ára gamall, og kom fyrst fram
opinberlega tólf ára. Seytján ára
aðaldri vannhann til námsstyrks
viðTónlistarskólann í Moskvu, en
á námsárunum vann hann 1.
verðlaun I Van Cilburn keppninni
1966 og Enescu keppninni 1967.
Lupu settist að i London og
kvæntistbrezkri stúlku. Hann var
fljótlega eftirsóttur pianóleikari,
og er nú kominn i fremstu röð
ungra pfanóleikara i Evrópu og
Bandarikjunum.
Vladimir Ashkenazy hefur ný-
lokið tónleikaför til Höfðaborgar
og Nairobi I Afriku. Siðan hélt
hann tónleika með Izthak Perl-
mann i Brííssel og Paris, og
skömmu fyrir komuna til Reykja-
vikur nú, lauk hann við að leika
inn á hljómplötur ásamt Perl-
mann allar fiðlusónötur Beethov-
ens.
O Áætlanagerð
framkvæmda i flugmálum þýddi
það tvöföldun á framkvæmda-
fénu.
Að lokum sagði framsögu-
maður, að þróun flugmála hefði
verið mjög ör á siðustu árum og
sitthvað áunnizt. Hins vegar væri
þvi ekki að leyna, að litlu fé hafi
verið varið til þessara mála, og
þvi litið fé til skipta.
En áætlanagerð, eins og sú sem
hér væri fyrirhuguð ætti að
tryggja það, að sem bezt nýting
næðist úr þvi litla fé, sem til flug-
mála er varið.
ISÉÉSPIS
Kanarí-
eyjar
Þeirsem áhuga hafa á ferðum til
Kanaríeyja (Teneriffe) í febrú-
ar, gefst kostur á ferð hjá okkur
19. febrúar (24 dagar).
Gððar íbúðir, góð hótel. Sérstak-
ur afsláttur fyrir flokksbundið
f ramsóknarfólk.
Hafið samband við skrifstofuna
sem fyrst, að Rauðarárstíg 18.
Sími: 24480.
Reykjanes-
kjördæmi
Kjördæmisþing framsóknarmanna i Reykjaneskjördæmi verður
haldið i Félagsheimili Kópavogs, efri sal, sunnudaginn 7. desem-
ber og hefst kl. 10.00 f.h.
Jón Skaftason alþm. ræðir stjórnmálaviðhorfið og Hjálmar Vil-
hjálmsson fiskifræðingur ræðir um ástand fiskistofnanna og
svarar fyrirspurnum.
Formenn flokksfélaga eru beðnir að huga að kjöri þingfulltrúa i
félögum sinum og leggja fram kjörbréf i upphafi þings.
Stjórn K.F.R.
Kópavogur
Freyja, félag framsóknarkvenna i Kópavogi heldur aðalfund
sinn að Neðstutröð 4, fimmtudaginn 4. des. kl. 20.30. Venjuleg
aðalfundarstörf.
A fundinn mætir Jón Guðlaugur Magnússon, bæjarritari, og
segir frá bæjarmálum og svarar fyrirspurnum. — Stjórnin.
Framsóknarfélag Reykjavíkur
Kristján Friðriksson flytur erindi sitt, Hag-
keöju, sem fjallar um nýskipan efnahags-
mála, einkum sjávarútvegs- og iðnaðarmála
á fundi i Framsóknarfélagi Reykjavikur
miövikudaginn 3. des. kl. 8.30 að Hótel Esju.
Fundurinn er opinn öllum áhugamönnum um
efnahagsmál.
Framsóknarfélag Reykjavikur.
Framsóknarfélag
Kjósasýslu
Aðalfundur félagsins verður að Fólkvangi Kjalarnesi miöviku-
daginn 3. des. kl. 20. Dagskrá: Inntaka nýrra félaga. 2. Laga-
breytingar. 3. Venjuleg aðalfundarstörf. Kosning fulltrúa á kjör-
dæmaþing Jón Skaftason mætir á fundinum. Kaffiveitingar fyrir
þá sem óska. Félagar eru hvattir til aö mæta vel og stundvislega.
Stjórnin.
Keflavík
Félag ungra framsóknarmanna i Keflavik heldur aöalfund sinn
fimmtudaginn 4. des. kl. 20.30 i Framsóknarhúsinu, Austurgötu
26.
Dagskrá: Venjuleg aðalfundarstörf. Kosning fulltrúa á kjör-
dæmisþing. önnur mál.
Mætið vel ogstundvislega. , Stjórnin.
Viðtalstímar
alþingismanna
og
borgarfulltrúa
Framsóknarflokksins
Þórarinn Þórarinsson, alþingismaöur, verður til viötals á skrif-
stofu Framsóknarflokksins að Rauðarárstig 18 laugardaginn 6.
des. kl. 10-12 fyrir hádegi.