Tíminn - 10.12.1975, Side 1

Tíminn - 10.12.1975, Side 1
Leiguf lug—Neyöarf lug HVERTSEM ER HVENÆR SEM ER FLUGSTÖÐIN HF Simar 27122-11422 Í61W PRIMUS HREYFILHITARAR í VÖRUBÍLA OG VINNUVÉLAR 283. tbl. — Miðvikudagur 10. desember 1975 —59. árgangur HF HÖRÐVR GUNNARSSON SKÚLATÚNI 6 - SÍMI (91)19460 Brezku skipstjór- arnir æfir yfir verndarskipum FORMAÐUR LÍÚ: Gsal—Reykjavlk — Varöskipiö Þór kom um kl. 9 i gærmorgun að átta brezkum togurum út af Langanesi, og hættu togararnir veiöum er Þór nálgaöist. Varð- skipið hélt siöan togurunum frá veiðum til kl. 2 í gær, en þá höföu togaraskipstjórarnir beöiö um herskipavernd, og kom þá frei- gátan Brighton á vettvang. Rétt i þann mund er togararnir voru aö hefja veiöar á ný, klippti Þór á báöa togvira Hulltogarans St. Giles, 49 sjómilur út af Langanesi og er þetta I annaö sinn á örfáum dögum aö togarinn missir vörpu sina fyrir tilverknaö varðskips. Varöskipiö Týr var einnig á þessum slóöum og neitaði freigát- an togurunum að hefja veiðar, þar til Lloydsman kæmi einnig á vettvang, en hann hafði elt Þór eftir klippinguna. Að sögn Landhelgisgæzlunnar reyndi brezka freigátan itrekað að sigla á varðskipiö Týr, en árekstri tókst að forða. Eftir atburðina I gær, sögöu brezku togaraskipstjórarnir að ekki væri ljóst, með hvorum aðil- anum brezku freigáturnar væru! Leggur til að hluta þorskveiðif lota ns verði lagt um óramót OÓ—Reykjavik — Aöalfundur Landssambands Isl. útvegs- manna hófst I Reykjavik I gær, og sitja hann 100 fulltrúar viös vegar af landinu. 1 ræöu, sem Kristján Ragnarsson, formaöur samtak- anna, flutti I fundarbyrjun, lagöi hann til, aö þegar um næstu ára- mót veröi hluta af þorskveiðiflot- anum lagt, og aö fleiri fiskiskip Guðni krefst rannsókn- ar á „ofsóknunum" og leggur viðskipti sín fram til rannsóknar veröi ekki keypt til landsins. Þessar tillögur miöast við, að ekki verði veitt meira af þorski en fiskifræðingar leggja til, þar sem þorskstofninn er augljóslega i mikilli hættu vegna ofveiði. Kristján sagði Timanum i gær- kvöldi, að það væri skynsamlegra að sinni hyggju, að skipuleggja heildarveiðina þegar i ársbyrjun og miða aflann við tiltekið magn. Það myndi valda miklu meiri erfiðleikum að stööva allan flot- ann, þegar kæmi fram i ágúst, september, þegar búið verður að veiða allt það magn sem ráðlegt er að taka af þorski. Er þvi raun- særra að athuga málið vel i byrj- un og stöðva einhvern hluta fíot- ans strax i ársbyrjun. Af sjálfu leiðir að litið vit er i frekari kaup- um áfiskiskipum en þegar er orð- ið. Ekki kvaðst Kristján mæla með að einhver ákveðinn hluti fiski- flotans yrði bundinn, heldur hlyti að verða eðlilegast að dreifa leyfilegu veiðimagni til fiskiskipa sem viðast um land til að jafna afkomu skipanna og vinnslu- stöðva og vinnuafls i landi. Otto Schopka, fiskifræðingur, flutti greinargott erindi um ástand þorskstofnsins á fundin- um. 9 Gsal—Reykjavik — Ég mun snúa mér til saksóknara rikisins og krefjast opinberrar rannsóknar, sem leiöa mun I ljós, aö þaö eru bankastjórar Seölabankans, sem eru höfundar og stjórnendur þessara ofsókna, og munu þeir veröa dregnir til ábyrgöar gagn- vart réttvlsinni fyrir öllu þvi mannorðs- og fjártjóni, sem þess- ar gerræöislegu aögeröir þeirra óumflýjanlega valda, segir Guöni Þórðarson, forstjóri Sunnu og Air Viking, I bréfi, sem hann lagöi fram á fundi meö fréttamönnum I gær. — Ég mun sjálfur krefjast rannsóknar á öllum bankavið- skiptum mínum og fyrirtækjum þeim, sem ég veiti forstöðu, til þess að fá tækifæri til að sanna óheilindi þau, sem aö baki þess- ara ofsókna liggja, segir enn fremur i bréfi Guöna. A fundinum i gær kvað Guðni Sjá greinargerð Guðna þá fullyrðingu Seðlabankans, að ekki væru nægar tryggingar fyrir skuldum Air Viking við Alþýöu- bankann, algjörlega ranga. Hann sagði, að trygging fyrir skuldun- um væri einkum fólgin i veðsetn- ingu eigin fasteigna, en bruna- bótamat þeirra væri um 100 mill- jónir kr. — og sú trygging væri nægjanleg. Hins vegar neitaði Guöni að svara þvi, hve skuldir fyrirtækja hans væru miklar, og kvað það ekki siö I okkar við- skiptalifi, að forstööumenn fyrir- tækja ræddu skuldamál þeirra. Þá tók Guðni það skýrt fram, aö fyrirtækin skulduðu ekki óeðli- lega miklar fjárhæðir. Um skuld- ir Air Viking viö Alþýðubankann sagði Guðni, að þær væru einkum varðandi rekstur fyrirtækisins, i vlxlum og hlaupareikningsyfir- drætti. Er h?*m var inntur eftir þvi, hvort yfirdráttur á hlaupareikn- ingi væri með vitund bankastjór- anna, kvað hann svo vera. Hins vegar væri enginn slikur skrifleg- ur samningur til, enda tiökaðist slikt ekki. — Ég trúi þvi ekki, að bankastjórum Alþýðubankans hafi verið vikið úr starfi um sinn vegna viðskipta minna við bank- ann, sagði Guðni. Þvi, hvort bankastjórarnir hefðu notið sér- stakra friöinda hjá Sunnu, svar- aði Guðni neitandi. Um sviptingu ferðaskrifstofu- leyfis Sunnu sagði Guðni, að hún ætti sér enga stoð i lögum, og aö þaö væri fljótræðisverk sam- gönguráðuneytisins, sem ekki myndi koma til. Guðni sagði, aö hann vissi ekki um nein vanskil ferðaskrifstofunnar, og hjá ráðu- ' neytinu lægju ekki fyrir neinar upplýsingar um vanskil Sunnu. Kvað hann þar með engan grund- völl fyrir leyfissviptingu. SJAVARAFLI MEIRIEN í FYRRA OÓ—Reykjavik — Fyrir liggja bráöabirgöatölur um fiskafla tslendinga á tiu fyrstu mánuöum þessa árs. Nemur heildaraflinn á tima- bilinu 1. jan. til 31. okt. 912385 lestum, en var á sama tima áriö 1974 878812 lestir. Aflinn skiptist þannig, aö þorskafli togara er i ár 155095 lestir, en var I f.yrra 131653 lestir, þorskafli báta er I ár 221747 lestir, en var á sama timabili á fyrra ári 225515 lestir. Slldar- og loönuafli er I ár 523101 lestir, I fyrra 499125 lestir. Annar afli er 12442 lestir, var i fyrra 22519 lestir. Utanríkisróðherra til Brussel Callaghan óskar eftir viðræðum EINAR Agústsson, utanfæikis- ráöherra, fer utan i dag, mið- vikudag, til fundar utanrikis- ráðherra Atlantshafsbanda- lagsrikjanna i Brussell. Callag- han utanrikisráðherra Brel- lands, hefur óskað eftir viöræð- um við Einar Agústsson, og féllst utanrikisráðherra á þaö að ræða við brezka utanrikis- ráðherrann, en ekki er um neins konar samningaviðræður aö ræða. BÁTUR SÖKK Á ÍSAFJARÐARDJÚPI gébé Rvik — Vélbáturinn Glaö- ur tS 101 sökk á mánudag eftir aö hafa tekiö hastarlega niöri á Breiöaskeri i tsafjaröardjúpi fram af Þernuvlk. Tveir menn voru á bátnum og sakaöi ekki. Annar þeirra, Július Arnórsson, sagöi aö ágætis verður heföi veriö, þegar óhappiö varö, en niöamyrkur. —Viö höföum bara fariö of nærri skerinu, sagöi hann, og tekið skakka stefnu, en þarna er mikiö af skerjum, sem erfitt er aö varast. Báturinn var tryggöur, en veiöarfærin ekki, og er þetta þvi mikið tjón fyrir bræöurna Júllus og Jónatan Arnórssyni, sem voru skipverj- ar og eigendur bátsins. Sjópróf fara fram á tsafirði I dag. Þetta er annar báturinn, sem tsfirö- ingar missa á einni viku. — Óhappiö varð klukkan rúmlega fimm á mánudaginn, sagði Július, og vissum við ekki fyrri til en báturinn tók mjög hastarlega niðri á Breiðaskeri. Hefur siða hans eða botn laskazt mjög við þetta, þvi að feikna- mikill leki kom að bátnum. Við kölluöum i nærstaddan bát, Margréti Helgadóttur, sem kom þegar á vettvang. Við höfðum gúmmibátinn tilbúinn við siðuna, en til þess kom aldrei að við þyrftum að nota hann. Og Július heldur áfram: — Margrét Helgadóttir tók okkur þegar i tog, þvi að Glaður fest- ist aldrei á skerinu, en aðeins fimmtán minútum siðar lagðist Glaður á hliöina og sökk skyndi- lega. Margrét var þá svo ná- lægt, að við gátum farið yfir i hana og vöknuðum ekki einu sinni. Július Arnórsson sagði, að báturinn hefði verið tryggöur en það hefðu veiöarfærin ekki verið, og væri þetta þvi til- finnanlegt tjón fyrir þá bræöur. — Viö vorum með tvö troll, sem hvort um sig kostar um 200 þús- und krónur, og svo voru það hlerar og virar. Tjónit nemur þvi a.m.k. 600 þúsund krónum, sagði hann. Vélbáturinn Glaður ÍS 101 hefur stundað rækjuveiðar undanfarið, en báturinn var 22 lestir að stærð úr eik og furu og var smiðaður i Danmörku 1936. Þetta er annar báturinn, sem Isfirðingar missa á stuttum tima, en s.l. föstudag kviknaði i bátnum Ólafi, eins og kunnugt er af fréttum i blaðinu. Þá tókst að draga hann til haínar, en hann skemmdist svo mikið i eld- inum, að hann er talinn ónýtur.

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.