Tíminn - 10.12.1975, Síða 2

Tíminn - 10.12.1975, Síða 2
2 TÍMINN Miövikudagur 10. desember 1975. KORONA BUÐIRNAR Herrahúsið Aðalstræti4, Herrabúðin við Lækjartorg Mesta sauðfjárslátrun í sögu Kaupfélags Borgfirðinga JE Borgarnesi. — Um þessar mundir er aö ljúka samfeildri haustslátrun hjá Kaupfélagi Borgfiröinga I Borgarnesi. Hófst hdn meö stórgripaslátrun 1. sept- ember. Sauöfjársiátrun hófst 9. september og stóö samfellt til 5. ndvember. Frá þeim tfma og nú til 9. desember, hefur staöiö yfir stórgripaslátrun. Þetta varö mesta sauöfjár- siátrun, sem um getur hjá Kaup- félagi Borgfiröinga, en alls var slátraö 81.068 fjár, og innlagt kjöt varö 1.171.974 kg. Næst þessu varð slátrunin 1969, þá var slátrað 79.462 kindum — kjötmagn var 1.075.859 kg, og haustið 1974 var slátrað 74.673 kindum, kjötmagn 1.096.433 kg. ■ Nú i haust var meðalkrokkþungi dilka 13,94 kg, en haustið 1974 14,03 kg. Þyngsti dilkur i haust vó 33,6 kg eigandi Jón Sigvaldason Ausu. Þyngstu tvilembingarnir undan sömu á vógu samtals 49,2 kg. Báðir voru jafnþungir, 24,6. Eig- andi er Guðrún Halldórsdóttir Asbjarnarstöðum. Þyngsti hrútur var frá Öskari Halldórssyni Krossi og vó 55,7 kg. (kropp- þungi). Þó að bændur á félagssvæði KB séu ekki nema á milli þrjú og fjögur hundruð, reyndust sauð- fjárinnleggjendur 1.930 talsins, og koma þar þvi margir við sögu, bæði ungir og gamlir. Innleggj- endum hefur verið greitt upp i andvirði sauöfjárinnleggs, um fjögur hundruð milljónir króna. I haust hefur verið slátrað hjá KB um eitt þúsund nautgripum, þar af yfir sex hundruð fullorðn- um, 330 hrossum og folöldum, og allmiklu af svinum. Vegna þrengsla I frystihúsinu varð að flytja mikið af kjöti til Reykjavikur i sláturtiðinni, jafn- óðum og til féll. Nú hafa verið fluttar út um fimmtiu þúsund gærur frá i haust, mest til Pól- lands, en nokkuð til Sviþjóðar. 1 haust var tekið i notkun nýtt og vandað reykhús, sem byggt er á- fast við frystihúsið. Inspector scholae í MR segir af sér vegna deilu um kaffisjálfsala ÁLIT STANGVEIÐIFÉLAGS REYKJAVÍKUR: Háskaspil að greina í sundur veiðihlunn- indi og landeign gébé—Rvik — Sá einstæöi atburö- ur geröist i Menntaskóla Reykja- vikur nýlega, aö inspector scholae, Skafti Haröarson, sagöi af sér. Þetta er i fyrsta skipti sem slikt gerist i menntaskóla hér. DeUuefniö var kaffisjálfsaii, sem HÁSKÓLA- MENN SEMJA BH-Reykjavik. — Samningar voru undirritaðir í gær milli Bandaiags háskólamanna og fuiltrúa rikisvaidsins um kjör há- skólamenntaðra manna. Nýi samningurinn er til tveggja ára og tekur gildi 1. júli næstkomandi. Um stórfelldar kauphækkanir er ekki aö ræða, en hins vegar timasetning samningsins á þann veg, aö Bandalagi háskólamanna gefist tækifæri til að fylgja öðrum eftir, veröi um stórfelldar hækk- anir á launum annarra launþega aö ræða eftir á áramótin. inspector haföi dregiö aö fjar- lægja. Tóku þá nokkrir athafna- samir ungir sveinar I skólanum það til bragös aö fjarlægja sjálf- salann upp á eigin spýtur, en inspector taldi þaö gróflega framboriö vantraust, svo aö hann sagöi af sér án tafar eöa frekari umsvifa. Nánari málsatvik'eru þau, að á fundi skólafélagsins i byrjun desember var samþykkt að fjar- lægja kaffisjálfsala i kjallara skólans, og kom það i hlut inspec- tor scholae aö sjá um að þvi yrði framfylgt. Þegar átta dagar voru liðnir.án þess að þetta væri gert, tóku aðrir sig til og framkvæmdu verkið, án þess að ræða við in- spector, sem taldi sér misboöið og sagði af sér, eins og áður er sagt. Hófust nú fjörugar umræður um þetta mál meðal nemenda i skólanum, sem lauk með þvi að mikil undirskriftasöfnun hófst, og skrifuðu 70% nemenda undir þá áskorun til inspector scholae, Skafta Harðarsonar, að hann tæki þegarviðstörfum á ný. Lét Skafti undan þessari traustsyfirlýsingu oghefurá ný tekið við störfum in- spector scholae i MR. JH—Reykjavik — Stangveiöifé- lag Reykjavikur varar strang- lega viö þvi I samþykkt, sem gerö var á aðalfiyidi félagsins á laug- ardaginn, að veiöiréttur i ám og vötnum veröi skilinn frá eign á iandi. Þær raddir hafa aö undan- förnu heyrzt allviða i þéttbýli, að svipta beri bændur og aöra land- eigendur eignarrétti á veiði og veiðihlunnindum á afréttum, og jafnvel i löndum lögbýla. Þaö er gegn þessum hugsunarhætti, sem samþykkt Stangveiöifélags Reykjavikur beinist. í samþykktinni segir, að það myndi hafa vondar afleiðingar, ef þannig yrði greint á milli veiði- réttar og annars eignarréttar, og væri þá lokið þeirri varðstöðu landeigenda um veiðihlunnindin, sem á undanförnum árum hefur stuðlað að viðhaldi og aukningu veiðistofnsins og komið hefur fram I siaukinni laxgengd siðustu áratugi. — saksókn- ari lætur senda sér skjöl gébé Rvik — Viö höfum skriflega fariðþess á leit viö bæjarfógetann i Vestmannaeyjum, aö hann afli tiltekinna gagna og sendi okkur, sagöi Þóröur Björnsson rikissak- sóknari viö blaöamann Timans, um deilumáliö sem reis milli bæj- arstjórans og minnihluta bæjar- stjórnar, svo sem frægt er orðiö. Rikissaksóknari tekur enn- fremur fram i bréfi sinu til bæjar- fógetans, að að svo stöddu muni ekki verða gerð krafa um að mál- ið sæti dómsrannsókn. Upplýsingar þær, sem rikissak- sóknari fer fram á að fá, eru m.a. skjöl úr gerðabók bæjarstjórnar- fundar i Vestmannaeyjum, sem fjallaði um málið fyrir nokkru svo og önnur skjöl, sem varða launagreiðslur og þóknun til bæj- arstjórans. — Verður þvi ekki tekin ákvörðun um meðhöndlun þessa máls, fyrr en gögnin hafa borizt frá Vestmannaeyjum, sagði rikissaksóknari. í framhaldi af þessu er skir- skotað til reynslu manna erlend- is, þar sem annað fyrirkomulag hafi leitt til hnignandi veiði. Með breytingum á eignarrétti á veiðihlunnindum væri samstarfi stangaveiðimanna og bænda um fiskrækt stefnt i mikla tvisýnu, svo að ekki sé meira sagt. Enn aukasýning á Hákarlasól VEGNA mikillar aðsóknar verð- ur leikrit Erlings E. Halldórsson- ar HAKARLASÓL sýnt ennþá einu sinni á fimmtudagskvöld á Litla sviði Þjóðleikhússins. Auka- sýningin á sunnudaginn var átti að verða siðasta sýning verksins, en þá bar svo við, að aftur var húsfyllir, og verður verkið þvi sýnt i allra siðasta sinn á fimmtu- dagskvöld kl. 20.30. Brezka varpan kærð Gsal-Reykjavik — 1 gær- morgun var tekiö fyrir i Sakadómi Reykjavikur rannsókn vegna ætlaðs ólög- legs útbúnaöar á botnvörpu b/v Port Vale GY-484 hinn 2. desember s.l. Dómarinn Ilaraldur Henrýsson lagöi fram kæru Landhelgisgæzl- unnar, skýrslu skipherra Ar- vakurs og skoöunarskýrslu. Siöan fóru fram vitnaleiösl- ur. Tveir menn voru dóm- kvaddir til að lýsa gerð og ástandi netsins og I álitsgerð sinni, segja þeir, að pokinn sé hnýttur úr tvöföldu gervi- efni, og bæði byrði pokans séu klædd hlif. 011 skjöl þessa máls eru nú komin til dómsmálaráðu- neytis og utanrikismála- ráðuneytis. Þá mun sjávarútvegsráðuneyti kæra þennan útbúnað brezka tog- arans fyrir Norðaustur-At- lantshafsfiskveiðinefndinni. VESTMANNAEYJAR: EKKI KRAFA UM DÓMSRANNSÓKN AÐ SVO STÖDDU

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.