Tíminn - 10.12.1975, Qupperneq 7

Tíminn - 10.12.1975, Qupperneq 7
Miðvikudagur 10. desembcr 1975. TÍMINN 7 Kjararáð verzlunarinnar í Vinnu veitendasambandið Hinn 1. desember s.l. var undir- ritaður samningur milli Kjara- ráðs verzlunarinnar, sem heildarsamtök vinnuveitenda i verzlun, og Vinnuveitendasam- bands tslands um aðild Kjararáðs verzlunarinnar að Vinnu- veitendasambandinu. Samkvæmt samningnum skal verkaskipting Vinnuveitendasambands íslands og Kjararáðs verzlunarinnar vera þannig: Vinnuveitendasamband Islands fer með þau mál, sem lúta að HIÐ alkunna snilldarverk Hen- riks Ibsen ÞJÓÐNtÐINGUR, sem bjóðleikhúsið hefur sýnt frá þvi i fyrravor, verður sýnt i siðasta sinn i kvöld. Sviðsetning Baldvins Halldórssonar á verkinu hefur hlotið góða dóma gagnrýnenda, svo og leikur Gunnars Eyjólfs- launasamningum og samskiptum aðila vinnumarkaðarins. Kjararáð verzlunarinnar fer með öll sérmál aðildarfélaganna við opinbera aðila og stjórnvöld hverju sinni i samvinnu við Vinnuveitendasamband tslands. Aðildarfélög Kjararáðs verzlunarinnar eru Félag ísl. stórkaupmanna, Kaupmanna- samtök tslands og Verzlunarráð íslands. Þótt ýmsir félagar i þessum samtökum hafi áður ver- ið orðnir félagsmenn i Vinnu- sonar i aðalhlutverki leiksins, Stokkmann lækni, en með sýn- ingu þessari halda þeir upp á 25 ára leikafmæli sitt. Með önnur helztu hlutverk fara: Rúrik Haraldsson, Valur Gislason, Þóra Friðriksdóttir, Ævar R. Kvaran o.fl. veitendasambandi tslands, ýmist sem beinir meðlimir eða með að- ild að sérgreinafélögum innan Vinnuveitendasambandsins, er ljóst, að með fyrrgreindum Samningi hefur orðið veruleg fjölgun félagsmanna Vinnu- veitendasambands tslands. Jóhann Heigason Þjóðníðingur í síðasta sinn í kvöld Vasaljós — Handljós — Rafhlöður með segulstáli handljós og margar fleiri gerðir. Einnig 12 v bílryksugur og ýmis rafhlöðuknúin smátæki SENDUM GEGN PÓSTKRÖFU Venjuleg VASALJOS OG RAFTÆKI FALKINN Suðurlandsbraut 8 Simi 8-46-70 Hvað líður samning- um við Færeyinga? Þannig er spurt. Það ætti að vera ástæðulaust, að tefja út- gerð Færeyinga vegna óvissu um veiðar við tsland. Það hefir óneitanlega greiðzt úr mestu flækjunni með samningunum við V-Þjóðverjaog Belga. Bret- areruúrleik — Norðmenneftir sem litlu skiptir. Það fer ekki á milli mála, að það er stórt tap fyrir færeyska útgerð, að fá ekki samninga strax. Það kemur úr hörðustu átt að íslendingar skuli ekki skilja þennan vanda Færeyinga og flýta samningum. Færeyingar eru þolinmóð þjóö. Kannski er hún hæversk- ari og tillitssamari í þessu máli en efni standa til. Hafa menn nokkru sinni orðið vitni að meiri andstæðum en hógværð Færeyinga, handhafa siðferðislegs réttar, og ofstækis- fulluofbeldi réttlausrar ótindr- ar innrásarþjóðar. þeirrar sömu, brezku þjóöar.sem drápu Bda og háðu Opium-striðið við Kina? Mættu nú tslendingar draga hér nokkurn lærdóm af. Vaent- anlega hafa i'slenzk stjórnvöld „tekið frá” nú þegar verðskuld- aðan hlut Færeyinga á íslands- m iðu m. Það skiptir ekki Breta sem þjóð neinu, hvort þeir draga milljónir þorska úr islenzkum sjó eða engan. Hinsvegar er það Færeyingum lifsnauðsyn að halda áfram fiskveiðum við ts- landeins og áður. Það var höfð- inglegt tilboð að bjóða Bretum 65 þúsund tonn. Hversu mörg tonn verða Færeyingum boðin, — vér Wðum átekta, Utanriksráðherra vor sagði i viðtali við erlenda fjölmiðla: „Sextiu og fimrn þúsund tonna tiihoöiö til Breta heyrir fortið- inni til”. Þessi fáu orð ráðherrans urðu þjóðfleyg um leið og þau voru töluð. Heimóttin flýði i aldanna skaut. Stolt þjóð reis til við- náms. Það var sem að heimta úr helju mátt og megin þjóð- stofnsins. Það er háþrýstisvæði yfir islenzku þjóðinnii dag. Hún veit, að hún er i vörn gegn sið- lausu ofbeldi, stefndu gegn lifi tveggja litilla þjóða og svöngum heimi. Hetjur varðskipa vorra heyja jiessa vörn, sem getur kostað margan lifið hvern næsta dag. Hvernig getum við þá i slikri önn stórviðburöa hugsaö svo smátt, að láta það skipta máli, hvort minni máttar en við fá fiskinum fleira eða færra, af þvi sem.við erum að verja. Lát- um Færeyinganafá þrjátiu þús- und tonn, ef þeir þurfa þess með — i stað fimmtán eða tuttugu. Þeirháfa beðið afhroð viö veiði- bannið i Norðursjó.Sigur okkar er enginn og málstaðurinn rýrnar, ef þetta reyndist of dýrt. Færeyingar eru hugrakkir menn. Við munum Klakksvlkur- umsátrið,sem vakti heims at- hygli. 1 lifsbaráttunni eru þeir hetjuþjóð. Þeir lögðuokkur lið i fyrri þorskastriðum, svo munu þeir enn gjöra. En stjórnmála- kringumstæður hasla þeim völl. 7. des. 1975 Jóhann M.Kristjánsson P.S. Ekki skyldi ætla að órann- sökuðu máli að nein sifjabönd tengimigvið brezka.þótt skyld-' leika nokkurs gæti i þrákelkni minni fyrir fiskveiðiréttindum ! Færeyinga við tsland. Ekki er það heldur sú ástæða* að ég tali eða skrifi i umboði Færeyinga i þessu máli. Utan- aðkomandi áhrif, ef nokkur eru, kæmu þá frá islendingum sjálf- um, þvi þeir vilja flestir hlut Færeyinga sem stærstan i hverju máli. — J.M.K. Geimtugg — ný Ijóð eftir Jóhann Helgason ÚT ER komin fyrsta ljóðabók Jó- hanns Helgasonar, en hún ber nafnið Geimtugg og er tileinkuð timanum, sem ekki er til. Jóhann er af öðru þekktur en ljóðagerð, þvi hann hefur um árabil verið starfandi sem hljómlistarmaður, bæði heima og erlendis. t Geimtuggi eru 27 ljóð, sem öll eru myndskreytt af Pjetri Stefánssyni, en Pjetur og höfund- ur gefa bókina' út. Mansöngur MANSÖNGUR nefnist ný ljóða- bók eftir Hannes Þórðarson, sem höfundur hefur nýgefið út. t bók- inni eru 31 ljóð, en hún er prentuð i prentsmiðjunni Odda hf. AUGLÝSIÐ í TÍMANUM Texas Instruments SR 50 A SR 51 Tl 1500 Tl 2500 II VASATOLVUR m ÞORf SÍMI S1500-ÁRMÚLA11 ■N NÝJA fótboltaspilið Snjöll nýjung! Spilið er tilvalin gjöf til barna á aldrinum 5 til 15 ára, en það hefur sýnt sig að fullorðnir hafa ekki síður gam- an af þessu spili. Fæst í Kaupfélögunum um allt land Heildsöludreifingu annast Frímerkjastöðin h.f. Skólavörðustíg 21A, sími 21170 Komið er á markaðinn nýtt fótbolta- spil hannaðaf Ragnari Lár, teiknara. Spilið er í senn einfalt og bráðsnjallt, svo snjallt að erlendur sérfræðingur í spilum hefur gefið þvi bestu meðmæli og lýst yfir að hugmyndina hafi hann ekki áður séð i neinni mynd. Við vonumst til að spilið fari sigurför um landið, og vonandi síðar meir út um hinn stóra heim.

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.