Tíminn - 10.12.1975, Side 9
Miðvikudagur 10. desember 1975.
TÍMINN
9
Þrautseigja einstaklingsins
í hamslausum átökum
tímans
Erlingur Davíðsson. Konan frá Vínarborg.
Bókaútgáfan Skjaldborg, Akureyri.
Maria Jiittner er austurrisk
kona, sem var um skeið fyrir
nokkrum árum kennari við Tón-
listarskólann á Akureyri. Hún
undi sér hér vel og var mikilsmet-
inn kennari. En heimþráin dró
hana aftur til ættarslóða hennar i
Vinarborg.
Upphaflega leitaði hún hingað
sér til heilsubótarinýju og hreinu
loftslagi vegna ofnæmissjúk-
dóms, og henni varð að von sinni,
þvi að sjúkdómurinn hvarf. Hér-
lendis mun hún hvarvetna hafa
verið aufúsugestur, merkileg
kona, f jölreynd og vel mennt. Hún
er fiðluleikari og hefir kennara-
próf i forn- og miðaldaþýzku. Hún
er- viðförull ferðamaður og nátt-
úruskoðari. Erlingur Daviðsson
hefur skráð sögu þessarar konu
eftir munnlegri frásögn hennar
og dagbókum. Og veruleikinn
reynist hér sem oftar skáldskap
sögulegri.
Maria Jöttner hefur ratað i
miklar raunir um dagana og farið
meö sigur af hólmi eftir þeim
skilningi, sem vér hljótum að
leggja i mannlega viðleitni. Þess
vegna horfir hún með umburðar-
lyndi og gamansemi til baka á þá
tvisýnu baráttu, sem hún varð oft
að heyja sem einstaklingur i þeim
stórviðrum.sem gengið hafa yfir
hið forna keisaraveldi, þar sem
hún fæddist, og kvistaðist á
hennar dögum i mörg þjóðlönd,
þó að kjarni þess sé enn við lýöi
kringum Vinarborg, og það sé enn
á vissan hátt stórveldi i ljóma
þeirrar borgar. Þó að frú Júttner
sé enn ekki nema rúmlega
miðaldra kona i nútimaskilningi,
hefur hún lifað og þolað tvær
heimsstyrjaldir, harðstjórn Hitl-
ers, grimmilega hersetu eftir sið-
ara strið, auk annarra hörmunga,
sem gengu yfir land hennar á
þessum tlma. Fyrsti kapituli bók-
arinnar hefst þannig: „Faðir
minn, Leopold, ólst upp á hrakn-
ingi og varð snemma að yinna
fyrir sér. Móðir hans, hún amma
min, varð barnung herfang rúss-
neskra hermanna og eignaðist
son, sem enginn vissi um föður
að. En þessi drengur lagði land
undir fót, fjórtán ára gamall,
gekk yfir Slésiu, þvert yfir Ung-
verjaland, vesturhluta
Tékkóslóvakiu og alla leið til Vin-
arborgar I atvinnuleit......” í
einum svip bregður hér ljósi á
merkingu og einkenni bókarinn-
ar: þrautseigju einstaklingsins i
þeim hamslausu átökum timans,
sem kasta honum til og frá, en fá
ekki bugað hann, hreinskilni og
æðruleysi sögukonunnar, grein-
argóðan stil höfundar. Að visu
fer þvi farri, að allir kaflar bók
arinnar fjalli um strið og af-
leiöingar þess. Konan frá
Vinarborg er saga um gleði jafnt
sem raunireinnar konu, um per-
sónulega atburði i lifi hennar.
Andrúmsloft Vinarborgar leikur
um frásögnina, og þrátt fyrir
alvöruna er það léttlyndi, sem
þykir einkenna Vinarbúann,
sjaldan langt undan.
Erlingur Daviðsson hefir gerzt
mikilvirkur rithöfundur. Hann
hefur, þegar þetta er ritað, sent
frá sér sex bækur, allt verk, sem
byggð eru á viðtölum og kynningu
við margs konar fólk. Hann er
ágætur höfundur, skýr, gagn-
orður og afdráttarlaus, með rika
tilfinningu bæði fyrir sérkennum
fólks og lifsbaráttu.
Kristján Karlsson
Réttarvernd
samtök um réttarstöðu einstaklinga.
Stofnfundur samtakanna verður haldinn I kvöid, miðviku-
dag 10. desember, að Hótel Esju og hefst kl. 20,30.
Frummælendur verða séra Sigurður Haukur Guðjónsson
og Thor Vilhjálmsson, rithöfundur.
Allir velkomnir.
Undirbúningsnefndin.
WolFI .
sapphne'76
1/2" heimilisborvélin
ÞDRr
SÍMI S15aa ÁRMÚLA'i1
TVÖFÖLD EINANGRUN
| 420 WATTA AFLMIKILL MOTOR
__ 4
SKIPAUTGCRB RIKISINS
AA.s. Esja
fer frá Reykjavik
þriðjudaginn 16. des. vestur
um land til Akureyrar.
Fimmtudag og föstudag til
vestfjarðahafna, Norður-
fjarðar, Sigiufjarðar, Ólafs-
fjarðar og Akureyrar.
Vörumóttaka:
fimmtudag og föstudag til
Vestfjarðahafna, Norður-
fjarðar, Siglufjarðar, Ólafs-
fjarðar og Akúreyrar.
AUGLÝSIÐ
í TÍMANUM
Hið vinsæla
Framsóknarfélags Reykjavíkur
verður í Sigtúni við Suðurlands-
braut sunnudaginn 14. desember.
Fjöldi glæsilegra vinninga
Forðizt biðröð og tryggið yður miða í tíma, forsala aðgöngumiða
er ó skrifstofu Framsóknarflokksins að Rauðarórstíg 18
föstudaginn 12. desember fró kl. 9-5 og laugardaginn 13.
desember kl. 10-12