Tíminn - 10.12.1975, Side 15

Tíminn - 10.12.1975, Side 15
Miðvikudagur 10. desember 1975. TÍMINN 15 Neyzluvatnsathuganir austanfjalls Sunnudaginn 23. nóvember sl. var greint frá þvl hér i blaöinu i forsiðufrétt, aö viötækar athug- anir hafi verið geröar á neyzlu- vatni I ölfushreppi sl. sumar og komið I ljós, aö vatn á allmörg- um bæjum hafi reynzt ónothæft. Síöar i fréttinni er það haft eftir Páli Péturssyni tæknifræö- ing, sem er formaöur Heilbrigö- is- og umhverfisnefndar ölfus- hrepps, aö þetta væri I fyrsta skipti sem sllk könnun væri gerö á Suðurlandi. Eftir aö hafa lesið þessa full- yröingu tæknifræöingsins, vil ég benda á, að 29. marz 1971 sam- þykkti heilbrigöisnefnd Gaul- verjabæjarhrepps á fundi sinum þann dag, áskorun til hrepps- nefndar Gaulverjabæjarhrepps, aö „hún láti rannsaka neyzlu- vatn allra heimila I hreppnum hiö fyrsta.” Hreppsnefndin brást vel viö þessari áskorun og lét sérfræði- lega athugun fara fram á neyzluvatnsbólum allra heimila i hreppnum, 36 aö tölu. Kom þá I ljós að ónothæft vatn var á 13 bæjum. Fljótlega eftir að könn- un þessi var gerö, var hafin undirbúningur að allsherjar vatnsveitu I hreppnum. Siöar komu nágrannahreppar til samstarfs i þessu efni. Nú er svo komiö málum, aö allsherjar vatnsveita er nær fullgerð I öll- um sveitabyggöum I Flóanum. Hvort sú könnun á neyzlu- vatni, sem gerð var hér I Gaul- verjabæjarhreppi fyrir nokkr- um árum, er sú fyrsta á Suöur- landi, vil ég ekkert fullyröa um, hins vegar má ætla að hinar umfangsmiklu vatnsveitufram- kvæmdir, sem unnið er aö um þessar mundir, hér I Flóanum, séu þær mestu, sem fram- kvæmdar hafa verið I dreifbýli til þessa. Stefán Jasonarson, Vorsabæ. Litskrúðugt hefti ICELAND REVIEW Nýtt hefti Atlantica & ICE- LAND REVIEW er komiö út, fjöl- breytt og litskrúðugt að vanda. Er þetta fjórða hefti 13. árgangs. Hollenzk—ameriskur náttúru- fræðingur Diederik C.D. Jong, skrifar grein um Safari-ferö með Olfari Jakobsen, og er hún skreytt með myndum af gróður- fari. Þær eru teknar af greinar- höfundi og Gunnari Hannessyni. Þá skrifar Aðalsteinn Ingólfsson um Steinunni Marteinsdóttur, og myndir af nokkrum verka hennar eru bæði I litum og svart/hvitu. Haraldur Bessason prófessor skrifar um íslenzku tunguna, sem enn lifir I Kanada. Rekur hann nokkrar meginástæður til þess að islenzka þjóðarbrotinu hefur tek- izt aö viðhalda islenzkunni betur en ýmsum öðrum innflytjendum vestra — og nefnir hann einkum blaðaútgáfu og starf kirkjunnar. Þá birtist litmyndaserla af hörpudiskaveiðum á Breiðafirði, en myndirnar tóku þeir Guð- mundur Ingólfsson og Sigurgeir Sigurjónsson. Þjóðsaga I þýðingu Alan Boucher er myndskreytt I grafik af Eddu Sigurðardóttur — og ritstjórinn, Haraldur J. Ham- ar, skrifar um blaðaútgáfu á Is- landi. Mynd á kápu er eitir Gunnar Hannesson, en Gisli B. Björnsson sá um útlit og uppsetningu blaðs- ins. Umferðarbreytingar á Laugavegi BH-Reykjavlk. — Borgarráð og borgarstjórn hafa fjallaö um til- lögur umferðarnefndar um skipu- lagsbreytingar á umferð um Laugaveg milli Rauöarárstigs og Snorrabrautar. 1 borgarstjórn voru þær samþykktar sl. fimmtu- dag, en I borgarráði sl. þriðjudag hafði Albert Guðmundsson lýst sig mótfallinn einni þeirra. Tillögur umferðarnefndar eru svohljóðandi: 1) Bannað verði að stöðva og leggja ökutækjum að norðan- verðu við Laugaveg frá Hlemmi að Snorrabraut. 2) Hægri beygja af Laugavegi til norðurs á Snorrabraut verði eingöngu ætluð strætisvögn- um. 4) Stöðumælar verði settir upp að sunnanverðu við Laugaveg. 5) Bifreiðastöður verði bannaðar á Laugavegi vestan Snorra- brautar á um 15 m löngum kafla næst gatnamótunum. Leikfangahúsið Skólavörðustíg 10, sími 14806 Gufuvélarnar komnar aftur. Vinsamlegast pantið timanlega fyrir jól. Fisher Price leikföng. Tonka leikföng. — Póstsendum. og Smiðjuvegi 6 i Kópavogi glóðarkerti I fyrir flesta dieselbíla flestar dráttarvélar og aðrar vinnuvélar og dieselvélar til sjós og lands. Póstsendum hvert á land sem er ARMULA 7 - SIMI 84450 KJORGARÐI og SMIÐJUVEGI6

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.