Tíminn - 10.12.1975, Blaðsíða 16
16
TÍMINN
MiOvikudagur 10. desember 1975,
LÖGREGLUHATARINN
88 Ed McBain Þýðandi laraldur Blöndal
Þetta voru orð að sönnu. Heyrnardauf i maðurinn æddi
fram og aftur, íklæddur rafvirkjasamfesting sínum.
Hann gekk fram og aftur framan við skrifborðið í einu
horni herbergisins. Ekki tuðaði hann ná refsaði, en hann
hristi höfuðið og velti vöngum eins og gamall maður,
sem fárast yfir ógnarástandi heimsins. Það kann að
vera að lögregluskjöldurinn og einkennisborðarnir á
búningi Bucks hafði hleypt í hann kjarki, því hann hætti
sér loks fram á gólfið og spurði:
— Hvað amar að þér?
— Áttugasta og sjöunda umdæmið, svaraði heyrnar-
daufi maðurinn samstundis.
— Hvað þá?
— Áttugasta og sjöunda umdæmið, áttugasta og
sjöunda umdæmið svaraði hinn óþolinmóðir.... — Hvaða
máli skiptir það þótt ég drepi borgarstjórann? Skilur þú
það ekki?
— Nei.
— Þeir sleppa undan allri ásökun, sagði heyrnardauf i
maðurinn, Hver engist ef við drepum JAAW? Getið þið
svarað því?
— Hver engist, spurði Buck.
— EKKI áttugasta og sjöunda umdæmið, svo mikið er
víst.
— Við verðum að koma okkur af stað, sagði Buck var-
færnislega... — Við eigum eftir að draga okkur niður að
götubrunninum. Við eigum eftir að...
— JAAW deyr, og hvað með það, spurði heyrnardaufi
maðurinn.... — Skipta peningarnir öllu í lífi manns?
Hvar er ánægjan?
Buck leit á hann gapundrandi.
— HVER ER ÁNÆGJAN, endurtók heyrnardaufi
maðurinn. Ef JAAW....Hann þagnaði skyndilega og augu
hans þöndust út. — JAAW endurtók hann, og röddin var
hvísllág. — JAAW, hrópaði hann yf ir sig æstur og þaut að
skrifborðinu. Þar opnaði hann miðskúffuna og tók upp
Isola símaskrána. Hann f letti í skyndi fram í miðja bók.
— Hvað er hann að gera, spurði Ahmad lágri röddu.
— Ég veit það ekki, hvislaði Buck.
— SJÁIÐ ÞIÐ ÞETTA, hrópaði heyrnardaufi maður-
inn.... — Þeir skipta að minnsta kosti hundruðum, nei
ÞÚSUNDUAA.
— ÞÚSUNDIR af hverju eða hverjum, spurði Buck.
Heyrnardaufi maðurinn svaraði ekki. Hann laut yfir
simaskrána, fletti blaðsíðunum og rannsakaði þær af
gaumgæfn i. Svo hélt hann áfram að fletta.
— Hérn^ kemur það, tautaði hann....— Nei, þetta er
ekki nógu gott.... látum okkur sjá...... hér er enn
annar,....nei nei...biðum við....haa, frábært....nei,
hann er lengst niðri í miðbænum.... bíðum ögn, bíðum
við.. hérna...... nei. Hann tautaði þetta sundurlaust
með sjálfum sér og hélt áfram að blaða í símaskránni.
Loks hrópaði hann:
— Culver-gata. ÞARNA KEAAUR ÞAÐ. Svona er það
fullkomið.... Hann greip blýant og hripaði eitthvað á
blaðsnepil, reif hann svo úr blaðblokkinni og tróð honum
í vasann á samfestingnum.... — Af stað með okkur sagði
hann svo.
— Ertu þá tilbúinn, spurði Buck.
— Ég er tilbúinn, sagði heyrnardaufi maðurinn og
greip volt/ohm mælinn....— Lof uðum við ekki að drepa
JAAW? Lofuðum við því ekki, spurði hann sigurreifur.
— Svo sannarlega.
— Allt í lagi, þá, sagði heyrnardaufi maðurinn og
glotti.... — Við drepum TVO JAAW, og annar þeirra býr i
87. umdæminu.
Hann fór fyrstur út úr herberginu og var allur á lofti.
Skósveinar hans fylgdu á eftir.
xxx
Ungu mennirnir tveir voru búnir að rölta um göturnar
frá þvi um hádegið. Þeir fengu sér snæðing í litlu mat-
söluhúsi við Ainsley-götu og gáfu sér svo tíma til að
kaupa hálft gallon af bensíni á bensínstöðinni á horni
Ainsley og Fimmtu götu. Hávaxnari náunginn hélt á opn-
um bensínbrúsanum. Honum var kalt. Hann staglaðist á
því við hinn lágvaxna félaga sinn hversu kalt honum
væri. Sá lágvaxni fullyrti að ÖLLUAA væri kalt á svona
kvöldi. Við hverjum f jandánum átti hann von á á svona
kvöldi?
Sá hávaxni sagðist vilja fara heim. Hann fullyrti að
þeir myndu ekki f inna neinn utandyra á svona kvöldi. Til
hvers voru þeir að eigra þetta í kuldanum? Hann var
nærri f rosinn á löppunum og hendurnar tilf inningalitlar.
Því í f jandanum getur þú ekki haldið á f járans bensíninu
svolitla stund? Sá lágvaxni sagði honum að halda sér
saman, þetta væri alveg tilvalið kvöld fyrir verk þeirra.
Sennilega myndu þeir finna tvo ræfla samanhnipraða
HVELL
Þið eruð velkomin að
búa hjá okkur^
Geiri.
Lifsvenjur okkar t Jæja,
ililiil
Miðvikudagur
10. desember
7.00 Morgunútvarp.
Dagskráin. Tónleikar
Tilkynningar.
12.25 Fréttir og veöurfregnir.
Tilkynningar.
13.00 Við vinnuna: Tónleikar.
14.30 Miðdegissagan:
„Fingramál” eftir Joanne
Greenberg. Bryndis
Viglundsdóttir les þýðingu
sina (13)
15.00 Miðdegistónleikar.
16.00 Fréttir. Tilkynningar.
(16.15 Veðurfregnir)
16.20 Popphorn.
17.10 Otvarpssaga barnanna:
„Drengurinn i gullbuxun-
um” eftir Max Lundgren.
Olga Guðrún Arnadóttir les
þýðingu sina (11)
17.30 Framburðarkennsla I
dönsku og frönsku.
Tónleikar. Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
19.00 Fréttir. Fréttaauki.
Tilkynningar.
19.35 Vinnumál.Þáttur um lög
og rétt á vinnumarkaði.
Um sjónarmenn: Lög-
fræðingarnir Gunnar Eydal
og Arnmundur Backman.
20.00 Kvöldvaka. a.
Einsöngur. Sigurv. Hjalte-
sted syngur, Ólafur Vignir
Albertssonleikur á pianó. b.
Fjárgötur/hjarðmannsins
spor.Gunnar Valdimarsson
les úr minningaþáttum
Benedikts Gislasonar frá
Hofteigi fyrri liluti. c. Ort i
draumi og vöku. Ljóð og
laust mál eftir Þórunni Elfu
Magnúsdóttur. Höfundur
les. d. Dagstund við Djúp.
Hallgrimur Jónasson flytur
ferðaþátt. e. Um isienzka
þjóöhætti. Arni Björnsson
cand. mag. segir frá. f. Kor-
söngur. Telpnakór Hliða-
skóla syngur. Þóra
Steingrimsdóttir leikur á
pianó. Stjórnandi: Guðrún
Þorsteinsdóttir.
21.30 tJtvarpssagan: „Fóst-
bræður” eftir Gunnar
Gunnarsson .
22.00 Fréttir.
22.15 Veöurfregnir. Kvöld-
sagan: „Kjarval” eftir
Thor Vilhjálmsson.
Höfundur les (24)
22.40 Jazzþátturi umsjá Jóns
MUla Arnasonar.
23.25 Fréttir í stuttu máli.
Dagskrárlok.
Miðvikudagur
lO.desember
16.00 Björninn Jógi. Bandarisk
teiknimyndasyrpa. Þýðandi
Jón Skaptason.
18.25 Kaplaskjól. Breskur
myndaflokkur byggður á
sögum eftir Moniku Dick-
ens. Hundrað punda hestur.
Þýðandi Jóhanna Jóhanns-
dóttir.
18.50 Laumufarþeginn. JMynd
um ungan laumufarþega
um borð i fiskiskipi, sem fer
á veiðar i Noröur-Atlants-
hafi. Þýðandi Gréta Hall-
grims.
Hlé
20.00 Fréttir og veöur
20.30 Dagskrá og auglýsingar
20.40 Vaka. Dagskrá um bók-
menntir og listir á liöandi
stund. Umsjónarmaður
Aöalsteinn Ingólfsson.
21.50 Columbo. Bandariskur
sakamálamyndaflokkur.
Þýðandi Jón Thor Haralds-
son.
22.50 Færeyjar. Dönsk
fræðslumynd um land og
þjóð. M.a. er viötal við
William Heinesen um skáld-
skap i eyjunum, gamlan og
nýjan. Lesin ljóð og kveðið.
Einnig er rætt við nokkra
Færeyinga um tengslin viö
Danmörku. Þýðandi Jó-
hannes Helgi. Þulur Krist-
inn Reyr.
24.00 Dagskráriok