Tíminn - 10.12.1975, Blaðsíða 18

Tíminn - 10.12.1975, Blaðsíða 18
18 TÍMINN Miðvikudagur 10. desember 1975. Viðar lék með lærisveinum sinum VIÐAR SÍMONARSON/ landsliðsþjálfari, í handknatt- leik, lék með lærisveinum sínum, þegar landsliðið lék æfingaleik gegn danska 2. deildar liðinu Greve í Idrett- ens Hus í Glostrup, en þar búa landsliðsmenn okkar og æfa, á meðan þeir eru í æfingabúðunum í Danmörku. Viðar lék æfingaleikinn, þar sem landsliðsmennirnir úr Víkingi, Björgvin Björgvinsson, Viggó Sigurðsson og Páll Björgvinsson, ásamt ólafi H. Jónssyni og Axel Axelssyni, voru ekki komnir frá V-Þýzkalandi. Viðar sýndi sína gömlu takta og skoraði eitt mark í leiknum, sem landsliðið vann — 32:31. Friðrik Friðriksson, vinstri- handarskyttan úr Þrótti, var drýgstur við að senda knöttinn i netið hjá Dönunum — hann skoraði 9 mörk i leiknum, en hin mörkin skoruðu þeir Jón Karls- son 7, Gunnar Einarsson 7, Stefán Gunnarsson 5, Árni Ind- riðason 3 og Viðar Simonarson eitt. Andinn er góður hjá landsliðs- hópnum, sem leikur gegn Dön- um á fimmtudaginn, en siðan tekur landslið tslendinga og Dana þátti fjögurra liða keppni, sem tvö sterk félagslið frá aust- antjaldslöndum taka einnig þátt i. Landsliðshópurinn, sem er nú i æfingabúðunum i Danmörku, er skipaður þessum leikmönn- um: Ólafur Benediktsson, Val Guðjón Erlendsson, Fram Friðrik Friöriksson, Þrótti Árni Indriðason, Gróttu Sigurbergur Sigsteinsson, Fram Björgvin Björgvinsson, Vikingi Ólafur H. Jónsson, Dankersen Páll Björgvinsson, Vfkingi Viggó Sigurösson, Vlkingi Stefán Gunnarsson, Val Axel Axelsson, Dankersen Jón Karlsson, Val Gunnar Einarsson, Göppingen Ingimar Haraldsson, Haukum Eins og sagt hefur verið frá, gat ólafur Einarsson ekki feng- ið sig lausan frá V-Þýzkalandi, þar sem hann á að leika með liði sinu — Donzdorf — um næstu helgi. — og skoraði mark, þegar landsliðið sigraði danska liðið Greve í æfingaleik 32:21 Badminton á fulla ferð KEPPNISTIMABILIÐ er að hefjast af fullum krafti hjá badminton- mönnum okkar. Fyrsta opna badmintonmótið verður haldið f Laugar- dalshöllinni 21. desem- ber, og verður það haldið á vegum T.B.R. Keppt verður i öllum greinum karla og kvenna í meist- ara- og A-flokki, svo og tviliðaleik „old boys". Opið unglingamót á vegum T.B.R. ieinliðaleik verðursiðan haldið i KR-húsinu 27. desem- ber. Auk hinna venjulegu ungl- ingaflokka verður keppt i flokki yngri en 12 ára. Þátttökutilkynningar fyrir bæði mótin verða að hafa borizt til Hængs Þorsteinssonar i sima 35770 fyrir 15. desember. VIÐAR SIMONARSON... skor- aði mark með landsliðinu. GEIR GAF EKKI KOST A SÉR Eftir að Geir Hallsteinsson hafði sýnt snilldarleik gegn Oppsal-liðinu á sunnudaginn, var hann spurður að þvi, hvort hann endurskoðaði ekki afstöðu sina til landsliösins og gæfi kost á sér — þannig að hann færi til Danmerkur og æfði og léki með landsliðinu, sem er að undirbúa sig fyrir OL-leikinn gegn Júgóslövum. Þvi miður sá Geir sér ekki fært að fara til Danmerkur, þar sem hann er hlaðinn störfum hér heima. — SOS ERLENDUR VALDIMAHSSON. á heimsmælikvarða. knnglukastarmn snjaili, sem er Nýtt knattspyrnuspil komið á markaðinn: Ég fékk hugmyndina eina síðsumarnótt" sagði Ragnar Lór, sem fann upp nýja knattspyrnuspilið NtJ ER komiö á markaðinn nýtt knattspyrnuspil, sem á örugglega eftir að veröa vinsælt. Teiknarinn kunni, Ragnar Lár, fann þetta spil upp og hannaði. — Hugmynd- ina að spilinu fékk ég eina slð- sumarnótt, þegar ég lá uppi I rúmi og var að hugsa. Myndin af spilinu birtist þá allt I einu I huga minum. Ég hentist fram úr rúm- inu og festi myndina á blað, sagði Ragnar.þegar viö spurðum hann, hvernig hann heföi fengið hug- myndina af knattspyrnuspilinu, sem er stórsnjöil. Það er ekki aö efa, að þetta spil á eftir aö ná miklum vinsældum, þvi aö það er einfalt og allir — ungir sem gamlir — hafa örugg- lega gaman af þvi. Leikreglur spilsins, sem er kallaö „Fótbolta- spilið”, eru þessar: Knettinum er stillt upp á miðju- reit vallarins. Keppendur kasta teningnum, og byrjar sá leikinn RAGNAR LAR.... sést hér með spilið sitt, sem Frlmerkjamið- stöðin h.f. hefur dreift um allt land. sem fær hærri tölu. Fyrsta kastið gildir þó ekki i keppninni sjálfri. Siðan ræður teningurinn hvert knötturinn fer. Tölurnar næst þeim reit, sem knötturinn er á, ráða hvaöa stefnu knötturinn tek- ur. Keppendur hafa sinn litinn hvor, og kastar sá keppandi teningnum, sem hefur þann lit (reit), sem knötturinn er á hverju sinni. Ef knötturinn lendir i miöjureitum aftur, þá heldur sá áfram, sem var með knöttinn (og teninginn). Þegar mark er skor- að, hefst leikur að nýju frá mark- reitnum. Keppendur geta leikið þar til annarhvor hefur t.d. skorað 5 mörk, og skipt þá um mark (hálf- leikur). Slðan getur síðari hálf- leikur einnig miðazt við 5 mörk. Að þvi loknu er markafjöldinn úr hvorum hálfleik fyrir sig lagður saman. Einnig má leika eftir klukku, t.d. vekjaraklukku, skeiðklukku eða skákklukku, t.d. 5 eða 10 minútur hvorn hálfleik. Hugmyndarikir keppendur geta einnig sett á svið mót, t.d. Is- landsmót, og keppt þá fyrir hönd hinna ýmsu félaga — SOS

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.