Tíminn - 10.12.1975, Blaðsíða 19
Miövikudagur 10. desember 1975.
TÍMINN
19
Punktar
BEST TIL
CHELSEA?
Erlendur og Strandamaðurinn
sterki eru byrjaðir að æfa
með KR-ingum
miklar líkur eru á því, að þessir
sterku frjálsíþróttamenn gangi
í raðir KR-inga
ALLAR likur eru á því, að Vesturbæjarliðinu KR bætist
verulegur liðsstyrkur á næstunni en hinir kunnu kastar-
ar, Erlendur Valdimarsson og Strandamaðurinn sterki,
Hreinn Halldórsson, eru nú byrjaðir að æfa með KR-ing-
um, sem hafa komið sér upp mjög góðri æfincjaaðstöðu
fyrir frjálsíþróttamenn sína í KR-húsinu. Þar hefur
verið komið upp netum, til þess að kastarar geti æft af
krafti yfir vetrarmánuðina.
— Já, það eru miklar likur á
þvi, að ég gangi i raðir KR-inga —
úr þvi verður skorið fljotlega,
sagði Erlendur Valdimarss. Það
þarf auðvitað ekki að fara um það
mörgum orðum, að þeir Erlendur
og Hreinn, sem eru nú þegar bún-
ir að tryggja sér farseðilinn á
Ólympiuleikana i Montreal,
myndu styrkja frjálsiþróttalið
KR-inga verulega, en þessir tveir
snjöllu kastarar eru i höpi litrik-
ustu frjálsiþróttamanna okkar.
Eins og við höfum sagt frá áður,
hefur Þingeyingurinn Guðni
Halldórsson.sem er einn efnileg-
asti kringlukastari og kúluvarp-
ari okkar, gengið i raðir KR-inga.
Karlalið KR-inga i frjálsiþrótt-
um verður öflugt i framtiðinni,
þar eru menn eins og Stefán
Hallgrimsson.fjölhæfasti Iþrótta-
maður okkar, sem hefur tryggt
sér farseðilinn til Montreal i tug-
þraut og 400 m grindarhlaupi,
Guðni Halldórsson og Bjarni
Stefánsson — og svo að öllum
likindum þeir Erlendur og
Hreinn.
Við það, sem áður hefur verið
sagt, má að lokum bæta þvi, að
likur eru á þvi, að fleiri
frjálsiþróttamenn fari yfir i KR.
Elias Sveinsson.tugþrautarkappi
og hástökkvari i tR, hefur verið
orðaður við KR, en hann hefur
einnig mikinn áhuga á að fara er-
lendis og æfa þar næsta sumar.
—sos
LONDON —
George Best,
knattspyrnu-
kappinn frægi,
sem leikur nú
með 4. deildar
liðinu Stock-
port, hefur
fengið boð frá
bandariska fé-
laginu Los BEST
Angeles Aztecs — um að koma og
leika með félaginu. Best hafði
mikinn áhuga á þessu tilboði, en
þegar hann fékk freistandi tilboð
frá einu Lundúnaliðinu — það
hefur ekki verið gefið upp hvaða
lið það er, en allt bendir til að
Chelsea hafi boðið Best að leika
með félaginu —- sagði Best, að
hann ætlaði að athuga tilboðin
nánar.
• AAARSH
TIL FULHAAA?
— þegar hann valdi landsliðshópinn sinn, sem
LONDON. — Derek Dougann,
hinn snjalli leikmaður úlfanna,
sem lagði skóna á hilluna á
siðasta keppnistimabili hefur
tekið við framkvæmdastjórastöð-
unni hjá utandeildarliðinu
Kettering B.B.C.-útvarpsstöðin
sagði frá þessu i gær, en þá var
einnig sagt, að Dougann, sem
hefur verið formaður samtaka
enskra knattspyrnumanna, láti af
þeim störfum.
mætir Rúmönum á Hampden Park
LONDON. — Rodney Marsh,
fyrrum fyrirliði
Manchester
City, mun að
öllum likindum
leik a m eð
Lundúnaliðinu
Fulham i fram-
tiðinni. Fulham
hefur boðið
Manchester MARSH
City 50 þús. pund fyrir Marsh. Ef
Marsh samþykkir að fara til Ful-
ham, þá mun hann leika með
tveimur fyrrverandi fyrirliðum
enska landsliðsins — köppunum
frægu Bobbv Mooreng AlanMull-
ery, sem komu Fulham i bikar-
úrslitin á Wembley sl. keppnis-
timabil, þar sem þeir töpuðu
(0:2) fyrir West Ham.
• DOUGAN
í NÝTT
WILLIE ORMOND, einvaldur skozka landsliðsins, kom
á óvart, þegar hann tilkynnti 17 manna landsliðshóp
sinn, sem á að leika gegn Rúmönum á Hampden Park i
Glasgow 17. desember í Evrópukeppni landsliða. Or-
mond valdi ekki Glasgow Rangers-leikmanninn Sandy
Jardine, sem hefur verið talinn liklegastur til að taka
við fyrirliðastöðu skozka landsliðsins, sem Billy
Bremner haf ði, áður en hann var settur í leikbann.
17 manna landsliðshópur
Ormond, sem mætir Rúmönum,
er skipaður þessum leikmönn-
um:
Markverðir:
David Harvey, Leeds
Jim C'ruickshank, Hearts
Aðrir leikmenn:
Martin Buchan, Man. Utd.
Willie Donnachie, Man. City
John Doyle, Ayr
Arthur Duncan, Hibernian
Archie Gemmill, Derby
Andy Gray, Aston Villa
John Greig, Rangers
Asa Hartford, Man. City
Stewart Houston, Man. Utd.
Colin Jackson, Rangers
Peter Lorimer, Leeds
Ted MacDougall, Norwich
Danny McGrain, Celtic
VVillie McVie, Motherwell
Bruce Rioch, Derby
And.v Gray og Motherwell-
leikmaðurinn Willie McVie (24
ára) eru nvliðar i hópnum. —
SOS.
ANDY GRAY....scm lék með Dundee United
i Keflavík, hefur skorað 8 mörk fyrir Aston
Villa á keppnistimabilinu. Hér sést hann á
fullri fcrð með knöttinn.
,1
Þá kom það á óvart, að Or-
mond valdi Andy Gray, hinn
marksækna 19 ára miðherja
Aston Villa, i landsliöshópinn,
frekar en Willie Pettigrew, sem
hefur skoraö 17 deildarmörk
fyrir Motherwell á keppnis-
timabilinu. Gary.sem lék með
Dundee United gegn Keflviking-
um i Keflavik, fær nú tækifæri
að spreyta sig i landsliðinu — en
hann hefur verið fastamaður i
landsliði Skota, sem er skipað
leikmönnum undir 23ja ára
aldri — skoraði t.d. ,,hat-trick"
(þrjú mörk) með þvi gegn
Dönum fyrir stuttu.
STRANDAMAÐURINN STERKI, Hreinn Halldórsson, hefur burði til að veröa kúluvarpari á heims-
mælikvarða.
EINVALDUR SKOTA
/ /
KOM A OVART