Tíminn - 11.12.1975, Blaðsíða 6

Tíminn - 11.12.1975, Blaðsíða 6
6 TÍMINN Fimmtudagur 11. desember 1975. Nýjar bœkur f ró mnm Hefnd gömlu námunnar eftir Hammond Innes Leyndardómsfull og hörkuspennandi bók eftir frábæran höfund. Sögu- hetjan er óafvitandi leidd á vit örlaga sinna á nötiylegum og dularfullum stað þar sem á sér stað barátta upp á líf og dauða. Launráð í Vonbrigðaskarði eftir Alistair MacLean Ný æsispennandi bók eftir mest selda spennubókahöfund hér á landi sem annars staðar. Að þessu sinni velur hann sér Villta vestrið sem sögusvið og reynist þar jafnmikill meistari spennu og atburðarásar og hann er í þeim sögum er gerast í heimi nútímans. Það er eitthvað sem enginn veit Endurminningar Líneyjar Jóhannesdóttur eftir Þorgeir Þorgeirsson Hnitmiðaðar frásagnir og skörp athyglisgáfa bregða birtu yfir óvenjulegt mannlíf á höfuðbólinu Laxamýri í Þingeyjarsýslu og ættmenn Jóhanns Sigurjónssonar skálds. Þetta er hlý og falleg bók sem er allt í senn: þjóðlífslýsing, safn skemmtilegra frásagna, einstakar persónulýsingar og meitlað bókmenntaverk. Ágúst eftir Stefán Júlíusson Spennandi nútímasaga um ástir, örlög og baráttu um völd. Aðalpersón- urnar eru Ágúst, ungur stjórnarráðsfulltrúi og Svava, háskólanemi og flugfreyja. Við söguna koma ráðherra, þingmenn, bæjarfulltrúar og ýmsir embættismenn. Ágúst er hugljúf ástarsaga, en hún kemur víða allnærri veruleikanum og mun sjálfsagt einhverjum þykja nærri sér höggvið. Eftirþankar Jóhönnu eftir Véstein LúSvíksson Spennandi nútímasaga úr Reykjavíkurlífinu og magnað bókmenntaverk. i þessari sögu kemur fyrir ýmislegt sem gott þætti að nota í hreinrækt- uðum skemmtisögum, en í þessari bók er hvergi slakað á ítrustu bók- menntalegum kröfum, enda er hún rituð af einum snjallasta skáldsagna- höfundi okkar í dag. Og eitt er víst: það leiðist engum lestur þessarar bókar. Vindur, vindur vinur minn eftir Guðlaug Arason Óvenjulega athyglisverð frumraun ungs höfundar, bók sem tekst á við spurningar er knýja fast á dyr nútímamannsins, spurningar um lífstil- gang, lífsgildi og tengsl við náttúruöflin. Bók sem kafar djúpt í grund- völl mannlífsins, en er um leið heillandi og listfeng frásögn. Meira af Jóni Oddi og Jóni Bjarna eftir Guðrúnu Helgadóttur Fyrri bókin um Jón Odd og Jón Bjarna vakti mikla athygli og hlaut verð- laun sem besta frumsamda barnabókin árið 1974. Þessi bók gefur hinni fyrri ekkert eftir hvað fjörlega frásögn og létta kímni snertir. Bræðurnir halda áfram að kynnast nýjum hliðum á Iffinu, gleði þess og sorg og þeir eru samir við sig í uppátækjum sinum og hugdettum. Húgó eftir Marie Gripe Þriðja og síðasta bókin af hinum margverðlaunuðu bókum um Jósefínu og Húgó, sem unnið hafa hug og hjörtu lesenda víða um heim. „Það er óblandin ánægja að lesa bækurnar um Húgó og Jósefínu ... Ég held að fullorðið fólk geti mikið lært af þessum bókum.“ Bo Strömstedt, Ex- pressen. „Höfundurinn lýsir heimi barnsins með ótrúlegri nærfærni, hlýju og kímni ...“ Finn Jor, Aftenposten. Hæðargerði á uppleið eftir Max Lundgren Sjálfstætt framhald á Áfram Hæðargerði. Bækurnar um Knattspyrnufélag Hæðargerðis eru spennandi og skemmtilegar unglingabækur, en þær eru jafnframt vandaðar. Bók þessi er í flokknum Úrvalsbækur Iðunnar. Bækur handa yngri börnum Handa yngri börnum koma út níu skemmtilegar bækur prýddar fallegum litmyndum: Tvær bækur um Albin eftir hinn frábæra listamann og barna- bókahöfund Ulf Löfgren, Albin er aldrei hræddur og Albin hjálpar til, mjög góðar og skemmtilegar bækur. — Kalli og Kata í leikskóla og Kalli og Kata á ferðalagi, stuttar, auðskildar sögur, fallegar myndir. — Benni og gæsirnar hans, stór og gullfalleg bók, skemmtilegt ævintýri. — Fjórar litlar, ódýrar og skemmtilegar bækur um Stínu snjöllu og Snata. Öldin okkar — nýtt bindi Rekur sögu áranna 1951—1960 í hinu lifandi formi nútíma fréttablaðs. Aldirnar eru nú alls 8 talsins og birta á þriðja þúsund rhyndir. Vísnasafnið — Þriðja bindi í þessu bindi er að finna yfir 700 lausavísur 250 höfunda sem hinn lands- kunni vísnasafnari Sigurður Jónsson frá Haukagili tók saman. Fyrri bindin tvö ,hafa öðlast miklar vinsældir. fró IÐUNNE

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.