Tíminn - 14.12.1975, Blaðsíða 7

Tíminn - 14.12.1975, Blaðsíða 7
Sunnudagur 14. desember 1975. TÍMINN 7 Bækurnar frá Almenna bókafélaginu Bjarni Benediktsson: Land og lýðveldi III. bindi AAeð þessu bindi er lokið merku rit- gerðasafni, sem ugglaust verður mönnum því dýrmætara, sem lengra líður, bæði sem einstakt heimildarrit og verðug minning um einn ágætasta son íslands á þessari öld. Verð m/sölusk. kr. 3.360.- öll þrjú bindin m/sölusk. kr. 5.520.- Krislmann {.uðmunílsson Stjörnuskipið Geimferöasaga Guðmundur Daníelsson: Óratóría 74 Saga úr sjúkrahúsi með skopteikning- um Halldórs Péturssonar. Höfundur bregður skoplegu Ijósi á harðvítugt og tvísýnt stríð upp á líf og dauða við menn og máttarvöld, og hvernig honum tekst að lifa af heila þjóðhátíð tvennar kosningar og tvo holskurði á einu og sama sumrinu. Verð m/sölusk. kr. 2.640.- Guðmundur Hagalín: Segið nú amen séra Pétur Nýstárleg og áhrifamikil skáldsaga um hvernig mannleg náttúra, fjár- hyggja og kynkvöt búa mönnum örlög. Aðalpersóna sögunnar hin glæsilega og geðríka Herborg Bjarnadóttir er einhver eftirminnilegasta kvenlýsing Hagalíns. Verð m/sölusk. kr. 2.640.- Kristmann Guðmundsson:: Stjörnuskipið GEIMFERÐASAGA Vísindaskáldskapur hefur rutt sér mjög til rúms á bókmenntasviðinu og hlotið almennar vinsældir. Þessi nýja saga er spennandi og ákaflega fjör- lega rituð um lífið á hinum ólíkustu stöðum í himingeimnum. Verð m/sölusk. kr. 2.400.- Jóhanna Þráinsdóttir Útrás // Jóhanna Þrdinsdóttir: Útrós Útrás er fyrsta frumsamda bók höfundar, en áður hefur hún birt smá- sögur í tímaritum. Skáldsagan útrás er raunsæ og hispurslaus lýsing á lifi ungrar ekkju, sem missir mann sinn af slysförum, eftir hjónaband, sem byggzt hefur á gagnkvæmri blekkingu. í beyskju sinni og ráðleysi varpar hún sér út í hringiðu skemmtanalffsins og kemst þá í kynni við ýmsar dekkri hliðar lífs- ins, fyrst hér heima og síðan í Banda- rikjunum. Sagan er gáskafull og bráðskemmti- leg en um leið umbúðalaus lýsing, sem ber í senn svip af þjóðfélagsádeilu, ástarsögu og djörfum bókmenntum. Verð m/sölusk. 2.520.- Jorge Luis Borges: Suðrið Smásagnasafn, valið og þýtt hefur Guðbergur Bergsson. Sögurnar eru sprottnar úr suðuramerískum jarð- vegi en eiga erindi við fólk hvar í heiminum sem er. Borges er í hópi virtustu skálda sem nú eru uppi og mikill aðdáandi forníslenzkra bók- mennta. Verð m/sölusk. kr. 2.280.- Dusko Popov: Njósnari nasista í þjónustu breta Bókin lýsir einstæðum njósnaferli höfundar. Þjóðverjar töldu hann fær- asta njósnara sinn en i reynd njósnaði hann f yrir breta og lif ði í stöðugri líf s- hættu. Hann varaði við árásinni á Pearl Harbor löngu áður en hún var gerð en FBI trúði honum ekki. Popov var mikill gleðimaður og f yllyrt er, að hann sé fyrirmyndin af James Bond. Verð m/sölusk. kr. 2.280.- iooold A/'coney Hindenburgslysiö Michael Mooney: Hindenburgslysið Hindenburgloftfarið var tákn um mátt og megin nasismans — þar til sprengingin mikla varð 6. maí 1937 við Lakehurst í Bandarík j unum og Hindenburg brann til ösku og 36 manns fórust í augsýn hjálparvana áhorf- enda. Hvað gerðist? Var það skemmdar- verk. Þessum spurningum og mörgum fleiri svarar þessi spennandi bók. Verð m/sölusk. kr. 2.280.- MENNOG HILTGUNT ZASSFNHAUS Hiltgunt Zassenhaus: AAenn og múrar Þýðandi Tómas Guðmundsson. Heillandi frásögn um fórnfýsi og hetjulund ungrar stúlku í síðustu heimsstyrjöld. Hún var kölluð engill fanganna og hér rekur hún minningar sinar frá þessum örlagaríku árum, sem hverjum lesanda hljóta að verða ógleymanlegar. Verð m/sölusk. kr. 2.640.- ALMENNA BÓKAFÉLAGIÐ Austurstræti 18 — Bolholti 6

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.