Tíminn - 16.12.1975, Blaðsíða 20
20
TÍMINN
Þriðjudagur 16. desember 1975
Unnt á að vera að draga úr
verðbólguhraðanum um helming
Hér birtist kafli úr ársskýrslu
OECD, þar sem fjallað er um
efnahagsmálin hér á landi.
Inngangur
Hins mikla búhnykks 1973 gætti
i islenzku efnahagslifi fram á árið
1974, en i kjölfar hans sigldi vax-
andi verðbólga, sem komst upp i
40%. Á árinu 1975 hefir slaknað
verulega á eftirspurn og umsvif-
um, en verðbólguöflin hafa
magnazt. Halli i utanrikisvið-
skiptum er jafnframt mikill, en
hefir þó minnkað. bessi óhag-
stæða framvinda á sér að miklu
leyti erlendar orsakir, sem is-
lenzk stjórnvöld hafa ekki á valdi
sinu. Hækkun neyzluvöruverð-
lags fram á mitt ár 1974, fjórföld-
un oliuverðs i árslok 1973 og mikil
verðhækkun útfluttra fiskafurða
fram i byrjun árs 1974 lögðust á
eitt um að ýta undir miklu örari
verðbólguvöxt en aðrar aðildar-
þjóðir bjuggu við. Umskiptin i út-
flutningsverði fiskafurða ásamt
örri hækkun innflutningsverðlags
ullu snöggri og alvarlegri versn-
un viðskiptakjara. Rýrnun við-
skiptakjaranna, frá þvi þau voru
bezt i ársbyrjun 1974 og til miðs
árs 1975, nam 32%, og áhrif þeirra
á viðskiptajöfnuð mögnuðust
mjög við það, að úr útflutningi
dró vegna piinnkandi eftirspurn-
ar á erlendum markaði. Erlendir
áhrifaþættir ullu miklu, en inn-
lend framvinda átti einnig rikan
þátt i að auka vanda jafnvægis-
leysisins bæði inn á við og út á við.
Hér má einkum benda á ófull-
nægjandi stjórn peningamála og
þann verðbólguhvata, sem staf-
aði af hefðbundnum ráðstöfunum
til að halda uppi tekjum i sjávar-
útvegi.
Uggvænlegast við núverandi
ástand er hin öra verðbólga, sem
nemur 50% á ári. 1 siðustu skýrslu
Efnahags- og framfarastofnunar-
innar var dregið i efa, að skipulag
efnahags- og fjármálastjórnar
fengi við svo öra verðbólgu ráðið
og þær alvarlegu félagslegu og
efnahagslegu afleiðingar, sem
hún gæti haft. Framvindan á
liðnu ári bendir til, að ráð-
stafanirnar hafi ekki komið að þvi
haldi, sem þær gerðu á fyrri
röskunarskeiðum, þegar verð-
bólgan var til muna minni.
Margskonar mikilvægar stefnu-
ákvarðanir hafa verið teknar
undangengna 18 mánuði til þess
að hamla gegn verðbólgunni, nú
siðast i júni og júli i ár. Meðal
annars má nefna strangari höml-
ur en áður á útlánaaukningu,
frestun á greiðslu verðlagsbóta á
laun i sex mánuði, hækkun
óbeinna skatta og lækkun opin-
berra útgjalda. En draga má i efa
að jafnvel þótt vel takist til um
framkvæmd þessara ráðstafana,
að þær dugi til þess að leysa þann
vanda, sem stjórnvöld eiga við að
glima. Úrslitum ræður i þessu
efni hver niðurstaðan verður i
kjarasamningunum, sem gerðir
verða i lok ársins.
Fyrsti hluti skýrslunnar fjallar
um framvindu eftirspurnar, at-
hafnasemi, verðbólgu og
greiðslujafnaðar. Gerð er grein
fyrir minnkandi eftirspurn 1975,
orsökum verðbólguskrúfunnar og
hallanum i utanrikisviðskiptum. 1
öðrum hluta skýrslunnar er svo
vakin athygli á framkvæmd og
áhrifum efnahagsstefnunnar. Að
lokum er i þriðja kaflanum vikið
stuttlega að horfunum á árinu
1976 og nokkrum stefnuatriðum i
þvi sambandi.
Horfur og aögerðir.
Horfur 1976.
Tiltækar upplýsingar um fram-
vindu efnahagsmála benda til
þess, að árið 1975 verði Islending-
um erfitt. Búizt er við verulegri
minnkun bæði eftirspurnar og
framleiðslu, halli á viðskiptum
við útlönd verður mikill, enda
þótt hann ætti að minnka, og
verðbólgan verður enn erfið við-
fangs. Viðskiptakjör hafa enn
versnað að mun, annað árið i röð.
Þegar meta á horfurnar á árjnu
1976 virðist rikjandi hneigð i utan-
rikisviðskiptum skipta mjög
miklu máli. Innflutningur minnk-
aði mikið á fyrri hluta ársins 1975,
fyrst og fremst vegna minnkandi
eftirspurnar innanlands. Inn-
flutningsverð í dollurum hækkaði
um 10% frá meðalverði árið 1974,
og sýnist því innflutningsmagn
hafa minnkað um 17% á fyrri
hluta ársins 1975, og er það í sam-
ræmi við spá opinberra aðila. Þar
sem búizt er við, að innlend eftir-
spurn haldist slök siðari hluta
ársins og kunni jafnvel enn að
minnka, er sennilegt, að spáin um
16 1/2% samdrátt innflutnings-
mangs gangi eftir.
Meginvandinn er fólginn i stöðu
útflutningsins, sem hefir verið
mun veikari en stjórnvöld höfðu
gert sér vonir um. Langvarandi
togaraverkfall um mitt ár dró úr
fiskafla, og sömu áhrif höfðu afla-
takmarkanir á sildveiðum i
Norðursjó og markaðsbrestur
fyrir frysta loðnu i Japan. Þetta
voru meginforsendurnar fyrir
lækkun fyrri framleiðsluspár úr
4% i 2% fyrir 1975. Birgðir fisk-
afurða til útflutnings eru miklar
og þvi veltur aukning útflutnings
1975 einkum á aukningu eftir-
spurnar á heimsmarkaði á siðari
hluta ársins, en hún er mjög
óviss. Útflutningur minnkaði að
magni á fyrstu fimm mánuðum
ársins um nálægt 6% og útflutn-
ingsVerðið var um 5% lægra en
meðalverðið 1974. 1 spám frá i
april var gert ráð fyrir 13 1/2%
aukningu útflutnings, en fram-
vindan á fyrra helmingi ársins
veldur þvi, að þessi spá hefir nú
verið lækkuð í 5 1/2%. Útflutning-
ur fiskafurða hefir goldið minnk-
andi eftirspurnar á heimsmark-
aði, en þar á ofan hafa mörg riki
beitt ýmiskonar verndaraðgerð-
um fyrir eigin sjávarútveg, sem
hafa valdið auknum erfiðleikum.
Þar á meðal má nefna verulega
aukna styrki til sjávarútvegs,
hækkaða innflutningstolla á fisk-
afurðum, innborgunarskyldu við
sjávarafurðainnflutning, útflutn-
ingsstyrki og beint löndunarbann.
Með hliðsjón af þessu og fram-
vindunni að undanförnu kann að
teljast nokkur bjartsýni að spá 5
1/2% magnaukningu útflutnings.
Af þessum sökum er óliklegt að
viðskiptajöfnuðurinn 1975 batni
eins mikið og gert er ráð fyrir i
töflu 7.
Horfur um innflutning á árinu
1976 hljóta að fara að verulegu
leyti eftir þvi, hvernig tekst til um
framkvæmd tekjustefnunnar,
sem mörkuð var með hinum hóf-
sömu kjarasamningum i júni sl.
og mörkuð verður i desember.
Gert er ráð fyrir, að ráðstöfunar-
tekjur einstaklinga minnki veru-
lega á siðari helmingi þessa árs,
og ætti það að draga úr innflutn-
ingseftirspurn fram á árið 1976.
Ef gert er ráð fyrir, að kjara-
samningar i desember verði hlið-
stæðir samningunum, sem gerðir
voru i júni i sumar, og haldið
verði áfram að hamla gegn eftir-
spurn, kann innflutningur 1976 að
verða minni en 1975. Sé gert ráð
fyrir að innflutningsverð hækki
litið eitt meira I dollurum 1976 en
1975 er ekki ósennilegt, að verð-
mæti innflutnings 1976 verði svip-
að og 1975 eða litið eitt meira. Bú-
izt er við, að eftirspurn á heims-
markaði aukist á næsta ári og
gæti þá orðið um að ræða umtals-
verða aukningu á verðmæti út-
flutnings Islendinga. Aukningar-
innar kann að gæta i magni út-
flutningsvara fyrst og fremst, en
verð útflutningsvöru kynni að
hækka likt og verð innfluttra
vara, og þá héldust viðskiptakjör-
in óbreytt. Verði um einhverja
umtalsverða aukningu útflutn-
ings að ræða, eins og gert er ráð
fyrir, þá ætti viðskiptahallinn að
minnka frá þvi, sem nú er.
Miklu ræður einnig um fram-
vindu efnahagsmálanna hvernig
gengur að draga úr hinni öru
verðbólgu, sem rikt hefur. Gert er
ráð fyrir, að enn hægi á launa-
hækkunum siðari hluta ársins
1975, en rauntekjur hafa minnkað
verulega og þvi gæti svo farið að
mikil áherzla verði lögð á að
vinna það, sem tapazt hefur, upp i
kjarasamningunum undir lok
ársins. Verði sú raunin, og veru-
legum kjarakröfum fáist fram
gengt, yrði ekkert lát á þrýstingi
til kostnaðarhækkana innan-
lands. Slik framvinda gæti knúið
stjórnvöld að nýju til verulegrar
gengislækkunar, sem yki á vand-
ann. Ákvarðanir um stuðning við
sjávarútveginn og þrýstingur
eftirspurnar og kostnaðarhækk-
ana ræður mestu um, hvort unnt
verður að komast hjá gengis-
lækkun eða ekki. Verði aðstoð við
útveginn i lágmarki, haldið fast
við þá stefnu að hafa hemil á
eftirspurn og tekjuaukningu hald-
ið innan ramma verðhækkana,
mætti draga verulega úr verð-
hækkunum, sem að undanförnu
hafa verið fast að 50%, i reynd
mætti ná verðbólgunni niður um
helming á næsta ári. En þetta
verður ekki auðvelt verk og tekst
ekki nema með óskoruðum stuðn-
ingi atvinnurekenda og launþega.
Niðurstaða næstu kjarasamn-
inga ræður greinilega úrslitum
um innlenda eftirspurn á árinu
1976. Veruleg minnkun rauntekna
i ár hefir sennilega i för með sér,
að litil breyting verður á neyzlu
framan af næsta ári. Leiði kjara-
samningarnir til óbreyttra raun-
tekna yrði framhald á minnkun
einkaneyzlu, sem þá hefði varað
um það bil hálft annað ár. Gert er
ráð fyrir, að samneyzla i ár verði
óbreytt að raungildi frá árinu
1974. Frumvarp til fjárlaga fyrir
árið 1976 gefur til kynna, að sam-
neyzluútgjöld verði svipuð og i ár.
Opinber fjárfesting verður hins
vegar mikil áfram, einkum orku-
framkvæmdir. Fjármunamynd-
un einkaaðila yrði sennilega slök
áfram. Aukist einkaneyzla litið
má búast við frekari samdrætti i
fjárfestingu i iðnaði. Fjárfesting i
ibúðarhúsnæði eykst varla svo
um muni. Gangi þessar hug-
myndir um hina ýmsu þætti inn-
lendrar eftirspurnar að mestu
eftir, ætti eftirspurn að haldast að
mestu óbreytt á næsta ári, eða ef
til vill að minnka litið eitt. Sú
aukning útflutnings, sem getið
var um hér á undan, kæmi fyrst
fram i minnkun birgða en siðan i
framleiðsluaukningu, svo fremi
að afli leyfi. Á þessum forsendum
mætti þvi vænta nokkurrar aukn-
ingar vergrar þjóðarframleiðslu
á næsta ári, ef til vill sem svaraði
hálfri minnkuninni á yfirstand-
andi ári.
Efnahagsaðgeröir.
Verðbólgan er án efa erfiðasti
vandinn, sem islenzk stjórnvöld
eiga i höggi við. Siðan i striðslok
hefir verðbólgan verið meiri á Is-
landi en i nokkru öðru aðildarriki
OECD(en allt fram að hinum öra
vexti verðbólgunnar upp i um
50%, sýnast ráðstafanir, sem
beitt hefur verið til að hamla gegn
afleiðingum verðbólgunnar, hafa
gefizt tiltölulega vel. En hin öra
aukning verðbólgunnar að undan-
förnu ýtir undir efasemdir um, að
slikar gagnráðstafanir kæmu að
haldi, eins og áherzla var lögð á i
skýrslu Efnahags- og framfara-
stofnunarinnar i fyrra. Reynslan
á þvi ári, sem siðan er liðið, bend-
ir til að þær hafi ekki nægt, og við-
gangur verðbólgunnar hafi valdið
alvarlegum erfiðleikum i efna-
^hagsstjórn, sem kunni að út-
heimta stóraukna áherzlu á það
markmið, að auka stöðugleika
verðlagsins.
Sennilega er erfiðara fyrir ís-
lendinga en flestar aðrar þjóðir
að meta sveiflur i ytri skilyrðum
þjóðarbúsins, einmitt vegna
mikilvægis utanrikisviðskipta og
einhæfni útflutningsins. Af þeim
ástæðum er einmitt nauðsynlegt,
að gagnráðstafanir séu i senn
kröftugar og sveigjanlegar. Eins
og bent hefir verið á i fyrri skýrsl-
um Efnahags- og framfarastofn-
unarinnar um Island, sýnist brýn
þörf á mjög bættri efnahags-
stjórn ef takast á að draga varan-
lega úr verðbólguhraðanum.
Fyrst og fremst er þörf á að
draga úr þeim miklu áhrifum,
sem hinar stóru tekjusveiflur i
sjávarútvegi hafa á hagvöxt og
verðbólgu, en þar er að finna
meginástæðu óstöðugleikans.
Skyndileg tekjuaukning i þessum
atvinnuvegi elur á kröfum um
tekjuauka i öðrum atvinnuveg-
um, sem ef til vill er enginn fótur
fyrir. A hinn bóginn hafa hefð-
bundnar ráðstafanir til viðhalds
tekna i sjávarútvegi, þegar á
bjátar, ýtt mjög undir verðbólg-
una. Verðjöfnunarsjóður fisk-
iðnaðarins, sem stofnaður var i
upphafi þessa áratugs til þess að
jafna tekjusveiflur i sjávarút-
vegi, var spor i rétta átt. En
sjóðnum hefur verið beitt með
þeim hætti, að áhrif hans urðu litil
á uppgangsárunum 1971-74. Arið
1973 voru greiðslur i sjóðinn til
dæmis of litlar til þess að koma i
veg fyrir stóraukningu tekna i
sjávarútvegi og þar af leiðandi
kröfur um samsvarandi tekju-
auka i öðrum atvinnugreinum.
Miklar greiðslur úr sjóðnum á ár-
inu 1975 hafa hins vegar unnið á
móti áhrifum samdráttar eftir-
spurnar og haft áhrif til að halda
uppi atvinnu i útflutningsfram-
leiðslunni. Brýn þörf virðist á
verulegum umbótum á starfsemi
sjóðsins — einkum til að auka
sveiflujöfnunaráhrif hans — eða
samsvarandi ráðstöfunum ann-
ars staðar. Enda þótt verið geti,
að nokkur andstaða kunni að vera
gegn breytingum á starfsemi
sjóðsins til sveiflujöfnunar, ætti
sá félagsliegi og efnahagslegi
ávinningur, sem leiddi af slikum
ráðstöfunum að gefa fullt tilefni
til að þær séu teknar til vandlegr-
ar athugunar. Hinar miklu
greiðslur úr Verðjöfnunarsjóði
sjávarútvegsins að undanförnu
gefa tilefni til að ætla, að nú sé
tækifæri til endurskoðunar á
mögulegu hlutverki sjóðsins á
uppgangstimum.
Annað brýnt verkefni er að
gera stjórn fjármála og peninga-
mála virkari en hún nú er. 1 pen-
ingamálum má ætla, að beiting
virkari vaxtastefnu en áður, hafi
sennilega átt sinn þátt i að Seðla-
bankanum hefir tekizt að halda
aukningu útlána i nokkrum skefj-
um. Sennilega hefir lánsfjáreftir-
spurn minnkað að undanförnu, og
ekki er enn séð, að komizt verði
hjá örri útlánaaukningu, þegar
innlend eftirspurn eykst að nýju.
A þessu sviði er verulegur veik-
leiki i þvi fólginn, að Seðlabank-
inn getur ekki haft bein áhrif á
starfsemi fjármálastofnana utan
bankakerfisins, en á þetta var
lögð rik áherzla i skýrslu Efna-
hags- og framfarastofnunarinnar
i fyrra. A það var bent, að útlán
þessarra stofnana áttu rikan þátt
i hinum þunga eftirspurnar-
þrýstingi 1973 og 1974. Ljóst er, að
endurtekning á óhófsaukningu út-
O íþróttir
hömruðu þeir knöttinn i netið hjá
Pave Latchford — Bob Latchford,
Martin Dobson, Brian Hamilton,
George Telfer og Garry Jones.
Leikmenn Birmingham svöruðu
tvisvar sinnum fyrir sig —
Howard Kendall og Peter Withe
—og lauk leiknum með öruggum
sigri Mersey-liðsins, 5:2.
Hitt Mersey-liðið — Liverpool
— vann einnig stórsigur (4:0) á
laugardaginn. „Rauði-herinn”
heimsótti White Hart Lane, og
áttiJimmy Case þar stórleik —
var potturinn og pannan i örugg-
um sigri Liverpool. Mörk liðsins
skoruðu Kevin Keegan, Jimmy
Case, Phil Neal og Steve Heigh-
way.
Manchester City vann góðan
sigur (4:2) i leik gegn Coventry á
Maine Road — Alan Oakes, Peter
Barnes, Tommy Booth og Denis
Tueart skoruðu mörk City, en
David Crossog Michael Ferguson
skoruðu fyrir Coventry.
Keith Weller var hetja
Leicester, þegar liðið sigraði
(1:0) Newcastle á Filbert Street.
Úlfarnir töpuðu fyrir Middles-
borough á Molienux — 1:2 — og
útlitið er ekki gott hjá þeim. Ken
Hibbitt skoraði fyrir Úlfana úr
vitaspyrnu (1:0) en þeir Dave
Armstrong og David Mills
lána utan bankakerfisins yrði
ákaflega óæskileg, þegar aftur
fer að batna i ári. Eigi að beita
ákveðinni stefnu i peningamálum
sem virku tæki gegn verðbólgunni
virðist óhjákvæmilegt að ná betri
stjórn á þeim peningastofnunum,
sem standa utan bankakerfisins.
Fagna ber tilkynningu um, að
leggja eigi samræmda lánsfjár-
áætlun 1976 fyrir Alþingi. Með
samþykki Alþingis gæti lánsfjár-
áætlun orðið mikilvægur liður i
efldri og bættri stjórn peninga-
mála.
Tvennt virðist mestu máli
skipta um stjórn fjármála hins
opinbera. Hið fyrra er stjórn út-
gjalda hins opinbera. Umbæturn-
ar, sem gerðar voru i október
1973, veittu rikisstjórninni aukið
vald á opinberum fjármálum, en
þrátt fyrir þær er við ýmsa erfið-
leika að etja. Undangengin tvö ár
hafa rikisútgjöld umfram fjárlög
aukizt verulega, og koma þar
fram áhrif aukinnar verðbólgu.
Eins og tekið er fram hér á undan
gerði rikisstjórnin ráðstafanir i
júli i sumar til að draga úr aukn-
ingu rikisútgjalda, og virðast þær
ráðstafanir hafa verið nauðsyn-
legar i aðhaldsskyni, en til lengri
tima litið virðist þörf á allsherjar
endurmati rikjandi aðferða til
þess að ná fullu valdi á útgjöldum
hins opipbera. I öðru lagi yrði
stjórn efnahagsmála öruggari ef
samkomulag næðist um stað-
greiðslukerfi tekjuskatta, eins og
áður hefir verið bent á i þessum
skýrslum.
Auk lausnar verðbólguvandans
þarf einnig að láta ráðstafanir til
lækkunar viðskiptahallans við út-
lönd sitja i fyrirrúmi. Þótt horfur
séu á, að viðskiptahallinn 1976
verði minni en 1975, verður hall-
inn eigi að siður mikill, ef til vill 5-
6% af vergri þjóðarframleiðslu.
Gjaldeyrisstaðan er jafnframt af-
ar veik og byrði vaxta og afborg-
ana af skuldum er tiltölulega
þung og fer vaxandi. Staðan út á
við virðist þvi ekki veita neitt
svigrúm til aukningar innlendrar
eftirspurnar. Takist hins vegar að
draga varanlega úr verðbólgunni
og minnka viðskiptahallann ætti
að vera auðveldara að tryggja
fulla atvinnu. Þess ber að vænta,
að unnt reynist að halda aftur af
aukningu ráðstöfunartekna með
ákveðinni tekjustefnu og hófleg-
um kjarasamningum og hægja
þannig á verðbólguvextinum,
fremur en að enn risi ný verð-
hækkunaralda. Þeir kjara-
samningar, sem fyrir dyrum
standa, virðast gefa dýrmætt
tækifæri til að fylgja eftir umtals-
verðri rénun á hækkun verðlags
og launa að undanförnu.
svöruðu fyrir ,,boro” og tryggðu
Middlesborough-liðinu sigur.
Arsenalleikmaðurinn Peter
Storey var tekinn af leikvelli,
þegar Arsenal heimsótti Stoke á
Victoriu-leikvöllinn, þar sem
Stoke sigraði — 2:1. Geoff
Salmons og Jimmy Greenhoff
skoruðu mörk Stoke, en George
Armstrong skoraði mark Ar-
senal.
Aston Villa heldur áfram
sigurgöngu sinni á Villa Park i
Birmingham. Norwich var
fórnarlamb Villa-liðsins á laugar-
daginn. Ray Graydon og John
Deekon (2) skoruðu mörk Villa,
en þeir Martin Peters og Ted
MacDougall skoruðu fyrir
Norwich.
27. þús. áhorfendur voru á Port-
man Road, þegar Ipswich sigraði
Leeds (2:1) — Michael Lambert
og John Peddelty skoruðu mörk
Ipswich, en Duncan McKenzie
svaraði fyrir Leeds — rétt fyrir
leikslok.
Sunderland heldur sinu striki á
Roker Park — sigraði (1:0) Ox-
ford á laugardaginn, með marki
frá Ian Portcrsfield. Jonny Giles,
fyrrum leikmaður Leeds og nú-
verandi leikmaður og fram-
kvæmdastjóri W.B.A.-liðsins, var
rekinn af leikvelli á laugar^
daginn, og West Bromwich
Albion tapaði 1:2 gegn Luton i
Hattaborginni. -SOS.