Tíminn - 17.12.1975, Side 1
PRIMUS
HREYFILHITARAR
í VÖRUBÍLA OG VINNUVÉLAR
HF HÖRÐVR 6UNMRSS0N
SKÚLATÚNI 6-SÍMI (91)19460
Fjallaðum kæru Islendinga
í Öryggisráðinu í gær
OÓ-Reykjavik — öryggisráðið
fjallaði i gær um kæru islands
gegn Bretum og ásiglingar
brezkra skipa á Islenzk varðskip
innan islenzkrar fiskveiðilögsögu
og landhelgi. Ingvi Ingvason am-
bassador hjá Sþ. flutti mál is-
lands í ráðinu og rakti I stórum
dráttum ástæðurnar fyrir út-
færslunni. Benti á að þegar hafi
verið samið við Belga og V-Þjóð-
verja og sagði að íslendingar
hefðu einnig viljað sýna
samningslipurð við Breta. Bretar
hefðu verið of kröfuharðir og þvi
hefðu samningar ekki náðst.
Benti ambassadorinn á að
Bretar hafi brotið harkalega full-
veldisréttindi Islands með árás á
varðskip innan islenzkrar lög-
sögu.
Brezki sendiherrann i ráðinu
svaraði og gaf allt aðra skýringu
á atburðunum, sem kunnar eru af
fréttum frá Bretlandi. I ræðu
sinni hélt hann því fram að Is-
lendingar vildu láta minnkandi
þorskafla bitna á útlendingum
einum.
Brezki sendiherrann, sem er i
forsæti i öryggisráðinu, vék úr
sæti meðan málið var tekið fyrir,
en fulltrúi Tanzaníu stjórnaði
fundi.
Fundurinn hófst um kl. 16,00 að
staðartima, eða kl. 21,00 að Isl.
tima. Stóð fundurinn i 45minútur.
Övist er hvenær næsti fundur
verður um málið. Sennilega mun
gangur mála verða sá að fulltrúar
beggja aðila senda ræðurnar til
stjórna sinna og biða frekari
fyrirmæla. Einnig munu meðlim-
ir ráðsins hefja óformlega
samningaviðræður um hvernig
með málið skuli fara.
Hans G. Andersen ambassador,
og Hörður Helgason, skrifstofu-
stjóri utanrlkisráðuneytisins, eru
staddir i New York og munu
fylgjast náið með málinu.
Tómas Karlsson varafastafull-
trúi hjá Sþ. sagði I gær, að Is-
lenzku fulltrúarnir og sendimenn
utanrikisráðuneytisins hefðu
undanfarna daga verið i viðræð-
um við einstaka aðila, sem sæti
eiga i öryggisráðinu og skýrt
málstað Islendinga, og reynt að
komast að viðhorfum þeirra, sem
um málið eiga að fjalla. Hafa
engin skýr svör fengizt frá þeim
Hækka útsvör
um fjórðung
á næsta óri?
um hvernig þeir muni taka á mál-
inu.
I ráði er að íslendingarnir haldi
blaðamannafund i dag. Þar verð-
ur málið kynnt og lagðar fram
myndir af atburðunum á Seyðis-
firði. Engar myndir voru hins
vegar lagðar fram hjá öryggis-
ráðinu i gær.
Hafísinn í mynni
önundarfjaroar
I gær var farið I Iskönnunarflug
með TF-SVR og reyndist Isinn
vera sem hér segir:
Frá Kópanesgrunni liggur mjó
isspöng uppundir Gölt og þaðan
norðurmeð landi, skammt inn
fyrir deildarhorn. Isspangir eru I
mynni Önundarfjarðar og Súg-
andafjarðar. lshrafl er á fjörum
frá Gelti og innfyrir Deildarhorn.
tsspöngin er vlðast 3 til 5 sjómilur
á breidd og viða greiðfært I gegn-
um hana. Jakahrafl er I 7 til 8 sjó-
milna fjarlægð frá Straumnesi.
Isjaðar 1-3/10 að þéttleika er
40 sml. NV frá Bjargtöngum, 30
Framhald á 16. siðu.
ENN EITT
BANASLYS
í UMFERÐ:
EKIDÁ
I\AANN Á
ÞRIÐJI AAAÐURINN
í GÆZLU VEGNA
FÍKNIEFNASAAYGLS
Á ráðstefnu, sem Samband isl.
sveitarfélaga gekkst fyrir og
fjallað var um fjármál sveitar-
félaganna, flutti Ólafur Davlðs-
son, hagfræðingur, erindi og fjall-
aði þar um skattlagningu á næsta
ári. Þar kom fram, að gert er ráð
fyrir að tekjur hækki um 25%
milli 1974-1975, það er skattár
1975-1976. Ráðgert er að álagn-
ingarstofn útsvara hækki um 25-
26% og að skattvisitala hækki um
25% og má þvi gera ráð fyrir 26%
hækkun útsvarsálagningar miðað
við sama álagningarhlutfall 1976
og var 1975.
Visitala byggingakostnaðar
hækkar um 36.5%. Samkvæmt þvi
hækkar álag á gildandi fasteigna-
mati um 100% árið 1975 i 173% ár-
ið 1976. Á árinu 1975 átti að tvö-
dagar til jóla
falda gildandi fasteignamat við
álagningu fasteignaskatts, en á
næsta ári skal margfalda matið
með 2.73.
Þá kom fram i erindinu, að nú
er áætlað að verðlag á þjónustu
og vörum sé um 50% hærra 1975
en árið 1974. A siðari helmingi
þessa árs hefur dregið úr verð-
hækkun, sem svarar til 39% verð-
lækkunar' á ársmeðaltali. Það
kom greinilega fram i erindi hag-
fræðingsins, að ekki er hægt með
neinni vissu að spá um verðlags-
þróun á næstu mánuðum, en
margt bendi til að dýrtiðarþróun-
in verði hægari á næsta ári. En
þess er þó að geta að all flestir
launasamningar eru lausir um
áramót og ekkert liggur fyrir um
launaþróun á næstu mánuðum.
BH-Reykjavik. — Þriöji
maðurinn hefur verið handtekinn
vegna hass-smyglsins I Citroen-
bifreiðinni, sem sagt var frá i
Timanum i gær. Rannsókn
málsins var haldið áfram I gær,
og I gærkvöldi, þegar Timinn
hafði samband við flkniefnalög-
regluna, hafði enn ekki verið
kveðinn upp úrskurður um hvaða
efni platan torkennilega sem
fannst i bifreiðinni, hefði inni að
halda.
Leit i bifreiðinni virðist lokið,
og er hún I vörzlu lögreglunnar.
Kom ekkert frekar I ljós, en þegar
hefur verið sagt frá, en hér er um
að ræða 2.7 kiló af hassi og plötu,
dökkleita og torkennilega mjög,
sem er 1200 grömm að þyngd.
Getum hefur veriö leitt að
verðmæti þessa smygls, og að þvi
er fikniefnalögreglan tjáði okkur
Framhald á 16. siðu.
ENN EITT
BANASLYS
í UMFERÐ:
EKIÐÁ
l\AANN Á
HNÍFS-
DALSVEGI
G.S.—tsafirði. — Banasiys
varð á veginum milli Isa-
fjarðar og Hnlfsdals i gær-
morgun, er sendiferðabifreið
ók þar á mann. Maðurinn
slasaðist mikið og var fluttur
á sjúkrahúsið á lsafirði, þar
sem hann lézt kl. 2 i gær.
Hann hét Leopold Jensson og
var 61 árs gamall. Hann var
búsettur á Hnifsdal.
Leopold var á leið inn til
Isafjarðar er slysið varð.
40 HOFUNDAR
FÁ VIÐBÓTAR-
RITLAUN 2