Tíminn - 30.12.1975, Blaðsíða 2
2
TÍMINN
Þriðjudagur 30. desember 1975.
Jón Steffensen (lengst t.h.) er sjöundi visindamaðurinn, scm verðlaun lilýtur úr Ásusjóði. Hér eru allir
verðlaunahafar samankomnir, að undanteknum Sigurði heitnum Nordal, sem hlaut verðlaunin fyrstur
manna. Timamyndir G.E.
Jón Steffensen
Sporvagninn Girnd sýndur d ný
Núna um helgina hefjastaftur sýningar I Þjóðleikhúsinu á Sporvagn-
inum Girnd, en þær hafa legið niöri siðan í byrjun desember vegna
undirbúnings fyrir jólafrumsýninguna. Þetta alþckkta og vinsæla leik-
rit Tennessee Williams er nú sýnt i fyrsta skipti á Islenzku leiksviöi, en
hér hefur það fengið mjög góðar viðtökur cins og reyndar alls staðar
annars staöar þar sem það hefur verið sýnt, enda almennt talið til
merkari leikrita I ameriskum bókmenntum.
Aðsókn hefur verið mjög góö og eru þegar orðnar 15 sýningar á leikn-
um. Lætur nærri að um 8 þúsund manns hafi þegar séð hann. Næsta
sýning, 16. sýningin, er svo á laugardagskvöld 3. janúar.
Gagnrýnendur báru mikið lof á þessa sýningu og leik aöalleikend-
anna, Þóru Friöriksdóttur, Erlings Gislasonar, Margrétar Guðmunds-
dóttur og Itóberts Arnfinnssonar. Einkum þykir Þóra Friðriksdóttir i
hlutverki Blance hafa unniö einn mesta leiksigur á leikferli sinum.
Þaö er Gisli Alfreðsson, sem er leikstjóri Sporvagnsins, en leikmynd
er eftir Birgi Engilberts.
Myndin er af Margréti Guðmundsd. og Þóru Friðriksdóttur i hlut-
verkum sinum.
prófessor hlaut
heiðurslaun úr
Ásusjóði
HHJ-Rvik. — Jóni Steffensen
prófessor og dr. med. voru á
sunnudaginn veitt heiðurs-
verðlaun úr sjóði Asu Wright fyrir
margþætt störf i þágu læknisfræði
og fyrir rannsóknir á islenzkri
mannfræði.
Jóni voru afhent verðlaunin —
tvö hundruð þús. kr.,silfurpening-
ur og heiðursskjal — við athöfn i
Norræna húsinu. Við það tækifæri
komst dr. Sturla Friðriksson for-
maður sjóðsstjórnar ,m.a. svo að
orði um Jón og ástæðurnar fyrir
þvi, að ákveðið var að veita hon-
um þessi heiðursverðlaun:
,,Hann hefur unnið að mörgum
trúnaðarstörfum i þágu lækna,
unnið að uppbyggingu Háskóla
Islands og einstökum stofnunum
hans og sinnt ýmsum félags-
málum og stjómarstörfum. Hann
hefur verið formaður i lækna-
félaginu Eir og Visindafélagi ís-
lendinga. Og formaður Hins is-
lenzka fornleifafélags hefur hann
verið siðan 1961.
Jón Steffensen hefur með
mikilli samvizkusemi og
kunnáttu verið giftusamur
uppfræðari. Og mun hann hafa
verið kennari flestra lækna sem
nú starfa á landinu. En samfara
kennslustörfum hefur prófessor
Jón Steffensen alltaf sinnt veiga-
rniklum visindastörfum á sviði
mannfræða. Hann hefur skýrt frá
niðurstöðum af rannsóknum sin-
um og athugunum i fjölda rit-
gerða, sem að miklu leyti hefur
nú verið safnað saman i bók-
inni Menning og meinsemdir,
sem gefin var út á vegum Sögu-
félagsins. Jón Steffensen hefur af
kostgæfni rannsakað þær
mannfræðiminjar, sem völ hefur
verið á hér á landi i hans tið.
Hann hefur borið saman eðlís-
einkenni Islendinga og nágranna-
þjóða og með þvi fært okkur
aukna vitneskju um uppruna Is-
lendinga, likamsþroska þeirra,
sjúkdómasögu, lækninga-aðferðir
og mannfjölda á landinu á ýms-
um timum. Með visindastarfsemi
sinni og þeim rannsóknaraðferð-
um, sem hann hefur beitt.hefur
honum tekizt að leggja af mörk-
um drjúgan þátt til þekkingar
okkar á tildrögum landnáms,
sögu Islendinga og afkomu og
heilsufari þjóðarinnar i landinu.
Fyrir uppfræðslustörf i læknis-
fræði og veigamikil mannfræðileg
visindastörf eru prófessor Jóni
Steffensen veitt Ásuverðlaun
ársins 1975.”
Frú Ása Guðmundsdóttir
Wright gaf Visindafélagi ts-
lendinga peningagjöf á hálfrar
aldar afmæli félagsins hinn 1.
desember, 1968. Skyldi stofnaður
sjálfstæður verðlaunasjóður með
höfuðstólsem ekki á að skerða, en
vextir sjóðsins skulu standa
undir fjárveitingum og viður-
kenningargjöfum. Er i stofnskrá
gertráð fyrir að verðlaunaveiting
úr sjóðnum fari fram við
opinbera athöfn, þar sem einnig
skal skýra frá ástæðum fyrir
verðlaunaveitingunni. Að tilmæl-
um gefanda er stjórn sjóðsins
skipuðþremur mönnum, þeim dr.
Kristjáni Eldjárn, dr. Jóhannesi
Nordal og dr. Sturlu Friðrikssyni.
Sjóðurinn var stofnaður til
minningar um eiginmann,
ættingja og venzlamenn Ásu.
Flóð vestan lanas
og norðan um jólin
— vegir skemmdust og
rafmagnsstaurar brotnuðu
FB—Reykjavik. Færð var viðast
hvar allsæmileg i gær, þegar
blaðið hafði samband við Vega-
gerðina. Hins vegar var veðurspá
á þann veg, að búast mátti við
skafrenningi, og þá er allt útlit
fyrir að færð spillist á nýjan leik.
Á annan dag jóla gekk mikið
vatnsveður yfir vestanvert land-
ið. Þá flæddi Hvitá yfir bakka
sina og yfir veginn. Vegurinn
varð þó fær aftur á hádegi á
laugardaginn. Einnig rann áin
yfir bakka sina við Kljáfoss og
varð efri leiðin einnig ófær um
tima. Nokkrar vegaskemmdir
urðu i dölum Borgarfjarðar, en
þær hafa verið lagfærðar til
bráðabirgða.
Þá flæddi Miðfjarðará yfir
bakka sina og varð vegurinn ófær
við Laugabakka. Þarna brotnuðu
niður rafmagnsstaurar vegna is-
hröngls, og óttuðust menn um
tima að linan legðist niður á veg-
inn. Svo fór þó ekki.
Héraðsvötn i Skagafirði flæddu
yfir bakka sfna við Vallhólma, og
þar varð ekki fært aftur fyrr en i
gær.
Um færð á vegum almennt i
gær sagði starfsmaður Vegagerð-
arinnar, að allir vegir væru færir
á Austurlandi, og allt vestur i
Mýrdal. Veður var slæmt i Árnes-
og Rangárvallasýslum, en færð
var þar sæmileg. I gærmorgun
þurfti að moka veginn yfir Hellis-
heiði, og einnig þurfti að moka
snjó af vegum á Suðurnesjum.
Greiðfært var fyrir Hvalfjörð, en
erfið færð um fjallvegi á Snæfells-
nesi. Fært var i Búðardal um
Heydal. Frá Patreksfirði var fært
til Bfldudals og á Barðaströnd.
Fært var milli Þingeyrar og Flat-
eyrar. Bæði Breiðdalsheiði og
Botnsheiði voru ófærar. Fært var
frá ísafirði og inn i Djúp.
Greiðfært var um Norðurland
til Akureyrar, en ófært til Siglu-
fjarðar. I gær var verið að ryðja
snjóskriðum af veginum um
Olafsfjarðarmúla. Stórum bilum
var siðan fært allt frá Húsavik og
til Vopnafjarðar um Melrakka-
sléttu.
Lík finnst
í Viðey
FB—Reykjavik. Fyrir hálfum
mánuði hvarf að heiman frá sér
Ragnhildur Erlingsdóttir, Hátúni
10, 59 ára gömul Ekkert hefur
spurzt til hennar, þar til lik henn-
ar fannst rekið i Viðey fyrir
hádegi á sunnudaginn. Það voru
menn úr Slysavarnafélaginu i
Reykjavik og nágrenni, sem
fundu likið.
Fauk út af
veginum!
G.S.-lsafirði — Jeppi, sem var á
leið til Flateyrar á annan dag
jóla, fauk út af veginum á Bæjar-
dalsheiði. Jeppinn fór þrjár velt-
ur en lenti i mjúkum snjó og er lit-
ið skemmdur. Hins vegar rif-
beinsbrotnaði kona sem var far-
þegi i jeppanum.
Þá fór annar jeppi út af vegin-
um skammt frá Krossinum i
Bolungarvik, en i þvi tilviki urðu
engin slys á mönnum. Sá jeppi er
einnig litið skemmdur.
Dr. Sturla Friðriksson afhendir
Jóni Steffensen prófessor verðlaunin.
STÓRHÆTTULEGUM
HVELLHETTUM OG
DÍNAMITI STOLIÐ
FB-Reykjavik. Um jólin var stol-
ið dinamiti og hvellhettum i
Kópavogi, og hefur ekki verið
hægtað finna þessa stórhættulegu
hluti aftur. Lögreglan i Kópavogi
biður alla þá, sem einhverjar
upplýsingar kunna að geta gefið,
að snúa sér þegar i stað til lög-
reglunnar. þvi að lifshætta getur
stafað af þessum hlutum.
Samkvæmt upplýsingum Kópa-
vogslögreglunnar var brotizt inn i
geymsluskúr verktaka á Kárs-
nesi i Kópavogi. Þar var stolið
dinamitiog hvellhettum )g liggur
ekki Ijóst týrir hversu miklu.
Einnig var stolið sprengihnöllum
og mæli. Vill lögreglan vekja at-
hygli á þvi, að hvellhetturnar eru
mjög hættulegar, og geta þær
meðal annars sprungið af sjálfs-
dáðum, — til dæmis ef farið er
með þær undir háspennulinur.
Það eru tilmæli Kópavogslög-
reglunnar, að hver sá, sem getur
gefið upplýsingar um innbrot
þetta, eða telur sig hafa ástæðu til
að ætla, að hann hafi upplýsingar,
sem að gagni mættu koma, hafi
strax samband við lögregluna,
rannsóknadeild, enda getur
þarna verið um hluti að ræða,
sem eru lifshættulegir þeim, sem
þá hafa undir höndum, sem og
öðrum, sem nálægt þeim eru.
Skótar og íþrótta-
menn deila um flug
eldasölu í Árbæjar-
hverfi og Breiðholti
BH-Reykjavik. — Flugeldastríð
hefur geisað undanfarna dega i
úthverfum borgarinnar, og eru
það forsvarsmenn Hjálparsveita
skáta, sem þar heyja mikla sam-
keppni við iþróttafélögin i Ár-
bæjarh verfi og Breiðholti um sölu
á flugeldum fyrir gamlárskvöld.
Telja iþróttafélögin skátana hafa
komið inn á söluvettvang sinn,
sem félögin hafi stundað um ára-
bil, auk þess sem þeir stundi
óheiðarlegar söluaðferðir til að
bola iþróttafélögunum af
markaðnum.
— Maður verður að hafa allar
klær úti til þess að afla fjár til
félagsstarfseminnar, sagði Stein-
ar Halldórsson, formaður knatt-
spyrnudeildar Fylkis i Árbæjar-
hverfi i viðtali við Timann i gær.
— Flugeldasölu erum viö búnir aö
stunda hér i hverfinu um þrjú
áramót, auk annarra leiða, sem
eru vægast sagt ekki margar.
Þetta eru yngstu iþróttafélögin i
bænum, þarna i Árbænum og
Breiðholtinu, og við berjumst i
bökkum með að halda félögunum
uppi fjárhagslega, en skátarnir
hafaekkisýnt neinn áhuga á flug-
eldasölu hérna áður, utan hvað
þeir seldu flugelda úr bil árið
1968. Núna setjast þeir að i hús-
næði, sem borgin á, og auglýsa
sérstaklega hagstætt verð á flug-
eldum, bersýnilega i þeim eina
tilgangi að eyðileggja söluna hjá
okkur, þvi að verðið hérna er
lægra en á öðrum sölustöðum.
Þetta finnst okkur ekki heiðar-
lega að farið, sizt af öllu þar sem
skátar eiga i hlut, gegn iþrótta-
félagi, sem starfar i hverfinu og
veitir ekki af sinum fjáraflaleið-
um.
— Við skátarnir i Hjálparsveit
skáta teljum okkur eiga vissan
siðferðilegan rétt á flugeldasölu
til eflingar starfsemi okkar, sagði
Arnfinnur Jónsson, aðst. sveitar-
foringi i Hjálparsveit skáta við
Timann i gær. Við byrjuðum á
þessari sölu fyrir átta árum, og
við höfum forðazt það að troða
okkur inn á fjáröflunarplön, sem
aðrir hafa helgaö sér. Við höfum
látið það gott heita þessi þrjú ár,
sem hin ýmsu iþróttafélög hafa
stundað flugeldasölu, og litið á
það sem samkeppni, sem við
verðum að sjálfsögðu að mæta.
Varðandi þetta sérstaka mál með
Árbæjarhverfi, þá áttum við
þarna kost á húsnæði, tókum það
og settum upp flugeldasölu. Okk-
ur finnst Fylkismenn hafa tekið
þessu leiðinlega. Þeir útbjuggu og
dreifðu bréfi, með óhróðri um
Hjálparsveitina. Það er fráleitt
að tala um okkur sem óviðkom-
andi aðila i einu eða öðru hverfi.
Starfsemi okkar nær til allra
hjálparþurfi, hverjir og hvar,
sem þeir eru.