Tíminn - 30.12.1975, Blaðsíða 5

Tíminn - 30.12.1975, Blaðsíða 5
Þriöjudagur 30. desember 197S. TÍMINN 5 Stjórnmdlaslit við Breta? Fólskulegar ásiglingar brezkra hcrskipa á islenzku varðskipin hafa aö vonum vakiö mikla og almenna reiöi meöal almennings hér. Og sú krafa veröur æ háværari, aö timabært sé aö slita stjérn- máiasambandi viö Bretland. Þessi krafa er ofur eölileg, og islenzk stjórnvöld vega þaö og meta um þessar mundir, hvort gripiö veröur til slikrar aö- geröar. Enginn vafi er á þvi, aö stjórnmálaslit yröu skoöuö sem alvarlegustu mótmæli is- lendinga viö rányrkju og of- beldi Breta gagnvart smá- þjóð, sem á allt sitt undir auð- lindum hafsins umhverfis landiö. i raun réttri er teflt um sjáifstæöi þjóöarinnar, svo aö engum þarf aö koma á óvart, þótt islendingar hafi lítiö geð til aö eiga samskipti viö þá þjóö, sem ógnar tilverurétti hennar. Kynning d mdlstað íslands En þegar Islenzk stjórnvöld vega þaöog mcta, hvort gripa eigi tii þessarar aögeröar, veröur vitaskuld aö skoöa máliö i Ijósi þess, hvort is- lendingai hafi af þvf íaun- verulegan hagnaö. Þaö er t.d. ljóst, aö þaö er afar þýöingar- mikiö fyrir málstaö okkar, aö islenzki sendiherrann i Lond- on skuli hafa tækifæri til aö túlka skoöanir tslendinga i brezkum fjölmiölum, eins og hann hefur einatt gert, nú siö- ast I brezka sjónvarpinu vegna ásigiingarinnar á Tý. Ef sendiherrann yröi hins veg- ar kailaöur heim, glötuöum viö tækifæri til aö koma skoö- unum okkar á framfæri og af þvi myndi hljótast mikill skaöi. Sannleikurinn er sá, aö ýmsir áhrifamiklir aðilar i Bretlandi hafa upp á slökastið sýnt málstaö tslendinga skiln- ing. Er þaö áreiöanlega ekki sizt þvi aö þakka, aö málstaö- ur íslcndinga hcfur veriö kynntur I Bretlandi af islenzka sendiherranum og ýmsum nArnm oftilutn Bann á brezkar vörur? Þetta er aðeins eitt af þeim atriöum, sem skoöa veröur, áöur en gripiö veröur til þcss ráös aö slita stjórnmálasam- bandinu viö Breta. En þaö eru ýmis önnur ráö til aö sýna andúö okkar á framferöi brezkra stjórnvalda. Almenn- ingur ætti ekki aö hika viö aö sniöganga brezkar vörur, sem eru á boöstólum i verzlunum, og hugsanlegt er, aö stjórn- völd setji sérstaka innflutn- ingstolla á vörur frá Bret- landi. Endurtaki þaö sig hins veg- ar, að brezk herskip sigli á Is- lcnzk varöskip verður aö ganga lengra — og slita stjórnmálasambandinu. __o n Varúð í meðferð flugelda Um þetta leyti árs fá læknar jafnan til meðferðar marga, einkum börn og unglinga, sem beðið hafa heilsutjón af völdum skrautelda og sprenginga. Svo virðist þó sem slikum tilfellum fari nokkuö fækkandi, og er gleðilegt til þess að vita. Nú, sem fyrr er full ástæöa til að vara alla viö hættunni. Það er stórhættulegt og beinlinis glæpsamlegt að kasta „kinverj- um” og öðrum álika sprengjum að fólki. Verði sprengingin nærri eyra má búast við varan- legri heyrnarskemmd, jafnvel einnig gati á hljóðhimnu. Venju- legir flugeldar geta einnig sprúngiö þegar i þeim er kveikt. Gætið þess að andlit og hendur lendi ekki i stróknum frá eld- flaug. Blinda, brunasár og varanleg örorka hefur þráfald- lega hlotizt af óaðgætni við tendrun flugelda. Foreldrar og forráðamenn barna og unglinga þurfa að vera vel á verði og reyna að sjá til þess að unga fólkið gæti fyllstu varúðar i meðferð flugelda, og hafi alls ekki sprengjur um hönd. FLUGELDAR ÚRVALIÐ ALDREI FJOLBREYTTARA FALLHLÍFARRAKETTUR RAUÐAR - GRÆNAR ; Skipa- rakettur TUNGLFLAUGAR ELDFLAUGAR STJÖRNURAKETTUR JOKERSTJÖRNU- ÞEYTARAR * rauð og blá Skipablys, JOKERBLYS BENGALBLYS RÓMÖNSK BLYS FALLHLÍFARBLYS GULL OG SILFURREGN STJÖRNUBLYS, tvær stærðir. SÓLIR — STJÖRNUGOS - BENGALELDSPÝTUR, rauðar, grænar. VAX-OTIHANDBLYS, loga Vz tíma - VAX-GARÐBLYS, loga2tíma. -HENTUG FYRIR UNGLINGA. - aaaanoa ©.acLCLCiGíQQaa caa Simi 28855 Ánanaustum ALLTAF NÆG BÍLASTÆÐI Jólatrésfagnaður Jólatrésl'agnaður fulltrúaráðs Framsókn- arlélaganna i Reykjavik verður að Hótel Sögu þriðjudaginn 30. desember kl. 15. Til skemmtunarinnar verður vandað eins og endranær. FORSALA aðgöngumiða verður að Rauð- arárstig 18 til hádegis i dag. ATHUGIÐ að aðgöngumiðarnir eru um leið happdrættismiðar. Hressingarleikfimi fyrir konur Kennsla hefst aftur mánudaginn 5. janúar 1976 i leikfimisal Laugarnesskólans. Get bætt við nokkrum konum. Upplýsingar i sima 33290. Ástbjörg Gunnarsdóttir iþróttakennari. Dregið hefur verið í happdrætti Náttúrufélags íslands Eftirtalin númer hlutu vinning: 1. Austin Mini 1975 no. 2116. 2. Snjósleöi Evinrude Skimmer no. 34204 3. Páskaferö 1976 meöSunnu tii sólarlanda no. 61524. 4. Páskaferö 1976 meöSunnu til sólarlanda no. 29319. 5. Páskaferö 1976meöSunnu til sólarlanda. no. 23148. 6. Mokkakápa frá lleklu, Akureyri no. 23884. 7. Dvöl fyrir 1 á heilsuhæli N.L.F.l. 11 mánuö no. 37139. Upplýsingar á skrifstofu N.L.F.Í. Lauga- vegi 20 b. Simi 16371.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.