Tíminn - 30.12.1975, Page 20

Tíminn - 30.12.1975, Page 20
Þriðjudagur 30. desember 1975. J METSÖLUHÆKim ÁENSKUÍ VASABROTI lí SIS-FODIJH SUNDAHÖFN GfclÐI fyrirgóéan mai $ KJÖTIÐNAÐARSTÖÐ SAMBANDSINS Rega getur ekki mætt fyrir rétti vegna sykursýki! Reuter/Buenos Aires. Dóttir Jose I.opez Rega, fyrrum velferðarráðherra i rikis- stjórn Mariu Estellu Peron, Argentinuforseta kom fyrir rétt i gær og sagði, að vegna lasleika hefði faðir hennar ekki getað mætt fyrir rétti þá um daginn til þess að svara spurningum réttarins um ákærua triði þau, er borin hafa veriö á hendur honum um þátttöku i fjárdrætti og ýmiss konar spillingu innan argentinska stjórnkerfisins meðan hann var ráðherra. Sagöi dóttir Kega, að faðir hennar þjáðist af sykursýki og gæti þvi ekki komið til Argentinu. Kega dvelst á Spáni en honum var visað úr landi i júli sl. og sviptur völd- um samkvæmt kröfu verka- lýðsleiötoga og ráðamanna he rsins. Rega var helzti ráðgjafi Mariu Estellu Peron núver- andi forseta. Indland: Kosningum frestað í eitt ár Reuter/Nýja Delhi. Stjórnar- flokkurinn á Indlandi, Kongressflokkurinn, flokkur Indiru Gandhi, forsætisráöherra, hefur ákveðið að leggja til við indvcrska þingið, að kosningum tii neðri deildar þingsins veröi frcstað um eitt ár. i áskorun, sem flokksstjórn Kongressflokksins, beindi til þingmanna efri deildar þingsins i gær, er þess fariðáleit við þing- mennina að þeir samþ. i skjóli 83. greinar indversku stjórnar- skrárinnar, að framlengja umboð neðri deildar þingsins um eitt ár og fresta þannig kosningum, sem fram eiga að fara á næsta ári. i áskorun flokkstjórnarinnar scgir, að þetta sé nauðsynlegt til þess að tryggja stöðugleika i efnahags- og stjórnmálalifi landsins i þvi umróti, sem nú eigi sér stað i þjóðiifi landsins. Til þess að frestun kosninganna tii neðri deildarinnar nái fram að ganga, þarf samþykki efri- deildarinnar, eins og fyrr segir, Indland: Enginn komst lífs af úr námaslysinu Argentína: Reuter/Chasnalla, Indlandi. Verkamenn, sem unnið liafa að björgunarstörfum i Chasnalla á Norður-lndlandi, þar sem a.m.k. 370 verkamenn lokuðust inni i námu sl. laugardag, er náman fyiltist af vatni, gáfu i gær upp alla von um að bjarga mætti mönnunum. Talið er að a.m.k. 370 verkamenn hafi látið lifið, er náinagöngin lylltust af vatni, eftir að sprenging varð i námunni. Lögreglan hélt i gær i skefjum hópi 2000 reiðra kvenna og barna, sem ráðast vildu á embættis- menn, er björgunarmennirnir gáfust upp við björgunarstörfin i gær, og sögðu ekki fræðilegan möguleika á þvi, að neinn hefði komizt lifs af úr slysinu. Talið er að vatnið hafi að mestu fyllt göngin, sem eru um 200 metra djúp. Er þetta mesta námaslys, sem orðið hefur á Ind- landi. Kona eins námaverka- mannanna, sem fórst i slysinu, reyndi að brenna sig til bana, er hún frétti, að það væri álit tals- manna félagsins, sem námuna rekur, að engin von væri um björgun. Kona þessi úðaði paraffini yfir sig, en bar siðan eld i klæði sin, inni i litilli tveggja herbergja ibúð hjónanna. Lögreglan ruddist inn i ibúðina er hún komst að þessu og tókst að slökkv eldinn i klæðum konunnar. Er hún illa særð og vart hugað lif. bað var siðvenja til foma i Norðaustur-Indlandi, að eigin- konur ættu að færa þessa fórn við bálför eiginmanna sinna, en siður þessi var aflagður fyrir meira en heilli öld, en virðist, eins og dæmi þetta sannar eiga sterk itök meðal þjóðarinnar. Rannsókn á hendur Peron óumflýjanleg? Reuter/Buenos Aires. Talsmaður argentfnska stjórnarflokksins, Peronistaflokksins, lýsti þvi yfir á þingi I gær, að hann og stuöningsmcnn hans myndu hafna með öllu kröfum um að fram fari á vcgum þingsins rannsókn, sem beint verði að Mariu Estellu Peron, forseta, og stjórnarstörfum hennar. Talsmaðurinn gaf hins vegar til kynna, aö stuðningsmenn forset- ans yrðu að rökræða kröfuna um rannsókn á hendur forsetanum við flutningsmenn tillögunnar, og að umræður um tillöguna kynnu aö fara fram á opnum fundi. Ályktanir þessar eru dregnar af yrirlýsingu, Alfredos Rodrigos, sem situr á þingi fyrir Peronista- flokkinn, en i yfirlýsingu hans segir, að stuðningsmenn forset- ans hafi útnefnt hann til þess að standa fyrir svörum og halda uppi vörnum fyrir forsetann, þeg- ar rannsóknartillagan kæmi til umræðu i þinginu. Formleg tillaga hefur verið lögð fram á þinginu um að opin- ber rannsókn verði hafin á stjórnarstörfum forsetans og þátttöku hennar i spillingunni innan stjórnkerfisins. bað eru tólf þingmenn, sem lagt hafa tillög- Blaðburðarfólk óskast í Kópavogi Kársnesbraut vestan Urðarbrautar og Hraunbrautar. Umboðsmaður i Kópavogi. Simi 42073. una fram og saka þeir forsetann m.a. um lélega stjórnun, spillingu og hæfileikaskort til þess að stjórna landinu. Fréttaskýrendur segja, að þó að flokkur Peronista hafi klofnað i afstöðunni til rannsóknarinnar, og stuðningsmenn forsetans séu i minnihluta i neðri deild þingsins, geti þeir engu að siður komið i veg fyrir að tillagan um rannsókn nái fram að ganga, þvi að til þess að svo geti orðið, þarf hún að njóta stuðnings 2/3 þingmanna deildarinnar. bá er það og áskilið i stjórnar- skrá landsins, að til þess að ræða megi tillöguna á opnum þingfundi þurfi samþykki 2/3 þingmanna deildarinnar. I tillögunni er for- setinn einnig sakaður um að hafa reynt að koma I veg fyrir að rannsaka mætti mál Lopez Rega, fyrrverandi velferðarmálaráð- herra. Peron hefur fram til þessa lagzt gegn þvi, að unnt væri að rannsaka mál Rega, en sl. laugardag venti hún sinu kvæði i kross og fyrirskipaði velferðar- máiaráðuney tinu að veita rannsóknanefndinni allar þær upplýsingar sem hún þyrfti á að halda. en i raun er áskorun þessi fornts- atriðieitt, þar sem fullvist má telja, að tillagan verði samþykkt, cnda ræður stjórnarflokkurinn yfir meira en 2/3 atkvæöa i efri deildinni. Ákvörðun þessa efnis kont ekki á óvart, þvi að talsmcnn stjórnar- innar hafa gcfið þetta ótvirætt i skyn um nokkra hrið. Hefur ákvöröun þessi ekki valdið teljandi ágreiningi innan flokks forsætisráðherrans, og þykir það bera vott þess, hversu traustum höndum Gandhi lialdi um stjórn- völinn. Ekki er talið óliklegt, að fram- undan séu róttækar breytingar á stjórnarskrá Indlands. Horfið veröi frá hinni brezku fyrirmynd um stjórnskipulag landsins og tekið upp forsetakerfi. Gandhi hefur þó sagt, að slikt þarfnist samþykkis þjóðarinnar. Tass: Samkomutag um aðvörunar- stoo i Smai Reuter/Jcrusalcm. Israels- menn og Egyptar komust að samkomulagi i gær um deilu þá, er þeir hal'a átt i um stærð og staðsetningu aðvörunar- stöðvar Egypta við Giddi íjallaskarðið á Sinaieyði- mörkinni. að þvi er talsmaður Sameinuðu þjóðanna skýrði frá i gær. Erfitt hjó Rolls-Royce Reuter/London. Hinar virðu- legu Rolls-Royce vélaverk- smiðjur i Bretlandi, sem nú eru i rikiseign, tilkynntu i gær, að þær hyggðust fækka starfs- mönnum sinum um 6000 og loka tveimur verksmiðjum, i Yorkshire og á Norður-ír- landi. Fyrr á þessu ári fækkaði verksmiðjustjórnin starfsmönnum um TMOO. Er þetta gert vegna rekstrar- örðugleika og samdráttar á viðskiptamörkuðum verk- smiðjanna. ekki við- riðin Opec-drásina Reuter/Moskva. Hin opinbera fréttastofa i Sovétrikjunum, Tass, bar harðlega til baka þær sögusagnir, sem komizt hafa á prent i sumum vestrænum blöð- um, að einn skæruliðanna fimm, sem tók OPEC ráðherrana I gisl- ingu, er þeir sátu á fundi f Vin, skömmu fyrir jól, hefði hlotið þjálfun slna I hryðjuverkastarf- seini f Sovétrtkjunum, er hann hefði verið þar við nám. Tass endurtók fyrri fullyrðing- ar þess efnis að það hefðu verið zionistar og heimsvaldasinnar, sem hefðu staðið að baki árásinni á Vinarfundinn. Sovétrfkin styddu ekki aðgerðir sem þessar, enda væru þær til þess fallnar aö skaða málstað frelsissamtaka Palestinuaraba. Blaðburóarbörn Tímans Timinn býður öllum blaðburðarbörnum i Reykjavik, Kópavogi, Garðahreppi og Hafnarfirði á jólatrésskemmtun Fram- sóknarfélaganna i Reykjavik að Hótel Sögu i dag 30. desember kl. 15.00. Blaðburðarbörn eru vinsamlega beðin að sækja miða i afgreiðslu Timans, Aðal- stræti 7, og i Kópavogi, Garðahreppi og Hafnarfirði til umboðsmanna Timans.

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.