Tíminn - 31.12.1975, Síða 8

Tíminn - 31.12.1975, Síða 8
8 TÍMINN Miðvikudagur 31. desember 1975. INNLENDUR FRÉTTAANNÁLL 1975 Vetur konungur var ekki vægur f upphafi ársins og miklar stór- hríðar geisuðu. Þessi mynd var tekin á Egilsstöðum i byrjun janúar og lýsir vel þvi ástandi, sem var viða um land. Tima- mynd: Jón Kristjánsson, Egils- stöðum. Janúar ARAMÓTIN voru óvenju frið- samleg og engin stórslys áttu sérstað, né teljandi óhöpp. Lög- reglumenn áttu þvi náðuga nótt. En Skaftá beljaði fram af mikl- um þunga og er talið að i Skaft- árhlaupinu, sem stóð yfir ára- mótin hafi 200 til 220 milljónir teningsmetrar af vatni og aur runnið til sjávar. Enslys, óhöpp og mikið óveð- ur settu svip sinn á janúarmán- uð. Hörmulegt slys varð á Kjal- arnesi, þegar þar hrapaði þyrla til jarðar og með henni fórust sjö manns. Þyrlan var á leið vestur á Snæfellsnes með starfsmenn RARIK. Þyrlan virtisthrapa stjórnlaust til jarð- ar og mikill eldur gaps upp þeg- ar hún rakst i jörðina. Tugmilljónatjón varð i elds- voða, þegar flugskýli Flugfé- lags Islands á Reykjavikurflug- velli brann til kaldra kola. MikiII óveðurskafli var að heita má allan mánuðinn. Gif- urlegt fannfergi var viða um land og þök sliguðust undan snjó Hörmulegt slys varð á Kjalar- nesi 17. janúar, þegar þyrla hrapaði og með henni fórust sjö manns. Timamynd: Róbert. snjóflóðanna, svo og til að greiða skuldir Viðlagasjóðs vegna eldgoss i Vestmannaeyj- um. Þing Norðurlandaráðs haldið i Reykjavik. Ragnhildur Helga- dóttir kjörinn forseti ráðsins og er hún fyrsta konan sem gegnir þvi starfi. Þetta er 23. fundur ráðsins og orkumál eru þar i öndvegi. Einnig er rætt um nor- ræna samvinnu og fyrirhugaða stofnun norræns fjárfestinga- banka. Gjaldeyristekjur Islendinga af þinginu um 25 millj. króna. Þingið er haldið I Þ jóðleikhús- inu,og þvi liggur starfsemi þess niðri á meðan. Þrir leikflokkar fara þvi frá Þjóðleikhúsinu út á land á meðan á þinginu stendur og sýna við góðar undirtektir. Loðna er um allan sjó allt frá Austfjörðum og vestur fyrir Garðskaga. Góð veiði. Deilur verða um bræðsluskipið Norglo- bal,sem er á miðunum og bræð- ir loðnu. Verkalýðsfélög fyrir norðan og austan telja, að með þvi að leyfa bræðslu i skipinu, sé verið að taka vinnu frá verka- fólki i landi. 125 listamenn fá listamanna- laun, en minni deilur verða um úthlutina en oft áður. Berklatilfelli kemur upp i nemanda við Menntaskólann á Akureyri. Fjöldi manns rann- sakaður. Garnaveiki kemur upp á í Svinavatnshreppi i A.-Hún. og i Hrútafirði. Óttazt er að veikin breiðist út. Þrjár úti- gengnar kindur finnast á Vest- fjörðum, og i Skagafirði eru haldin uppboð á hrossum, sem er mjög óvenjulegt á þessum árstima. Búnaðarþing sett. Niðurfelling bókstafsins z úr isl. ritmáli ennþá deilumáLlOO menn undirrita bréf til mennta- málaráðherra og skora á hann þunganum á Fljótsdalshéraði. Ofsaveður gekk öðru hverju yfir og milljóna tjón varð af þeim sökum. T.d. varð gifurlegt tjón undir Eyjafjöllum og sem dæmi um veðurofsann má nefna að vörubifreið tókst á loft og sner- istheilan hring i loftinu, áður en hún féll til jarðar. Mikið tjón varð á hafnarmannvirkjum á Vopnafirði og miklar skemmdir urðu á raf- og simalinum viða um land. Fólk var beðið að koma ekki nærri rafmagnslfn- um, þvi að viða voru þær svo til komnar i kaf i snjó. Snjóflóð féllu viða. Verksmiðja Hafsíld- ar og Seyðisfirði stórskemmdist i snjóflóði og 70 kindur fórust i snjóflóði á bænum Ljótsstöðum á Höfðaströnd. Fjárhús og hlaða eyðilögðust. Þrir bátar frá Hvammstanga sukku. Miklar truflanir urðu á flugsamgöng- um. Vörulitið orðið á Raufar- höfn,og Hvammstangi og mörg önnur sveitarfélög rafmagns- laus svo dögum skipti. Upp komst um mikið smygl- mál i Reykjavfk. Tveir menn höfðu smyglað 3000 litrum af spíra. Rannsókn Geirfinnsmáls- ins haldið áfram án árangurs. Lítil eins hreyfils flugvél nauðlenti á Reykjanesbraut. Engin slys á mönnum og flug- vélin óskemmd. Rækjustríðinu við Húnaflóa var haldið fram. Nökkvi heldur til veiða. Málið sent til saksóknara. Setudómari settur. Akveðið að byggja brú yfir Borgarfjörð og hitaveitufram- kvæmdir á Siglufirði hannaðar, en vestur á Stykkishólmi var vatnsveitan auglýst á nauðung- aruppboði. Austfirðingar una illa slæm- um sjónvarpsskilyrðum og neita að borga afnotagjöldin. Forráöamenn útvarps telja sig ekki bera ábyrgð á þessum slæmu skilyrðum og bilunum. Febrúar UM MIÐJAN mánuðinn var gengið fellt um 20%. Viðskipta- kjörin eru nú 10% lakari en þau voru i haust og fjórðungi lakari en I fyrra. Þrátt fyrir ókosti hef- ur gengisfellingin örvandi áhrif á atvinnulifið segir ólafur Jó- 14. janúar varð stórbruni á Reykjavlkurflugvelli þegar flugskýli Flugfélags Islands brann. Tímamynd: Róbert. ■ ■ ■ ■ ■ hannesson viðskiptaráðherra á Alþingi. Siðar i mánuðinum var söluskatturinn hækkaður um 1%. Rennur féð til Viðlagasjóðs og verður notað til að bæta Noröfiröingum tjón af völdum Hvað er þér minnisstæðast á órinu 1975? Agúst Guðjónsson múrari: Ja, landhelgismálið, — útfærslan i 200 milur. Mér finnst’stjórnin hafa staðið sig sæmilega, en erum við ekki minni máttar i þessu málioggetum við nokk- uð gert? — Nú, þá er það kvennaárið sem hefur vakið mikla athygli, ég er meðfylgj- andi jafnrétti kynjanna. Ann- ars var þetta ágætis ár i heild. að nema þær stafsetningarregl- ur úr gildi, sem nýlega voru settar um z og fleira. Hjá Slippstöðinni á Akureyri er hafin smiði skuttogara og samningar gerðir um kaup á vatnsleiðslupipum fyrir vatns veitu i Flóanum. Hljóðar samn- ingurinn upp á 60 millj. kr. og er sá stærsti sem Reykjalundur hefur gert. Fyrirhugað er að hefja framkvæmdir i vor. A Ólafsvik er hætt að nota óvist- legar verbúðir fyrir vertiðar- fólk. Býr það nú i gistihúsi af bestu tegund, og fyrirhugað er að reka þar gistihús fyrir ferða- menn yfir sumarmánuðina. Þá er beitt i upphituðu húsnæði, sem helzt minnir á þokkalegar skrifstofur. Rækjustrið við Húnaflóa held- ur áfram. Blönduósingar vilja láta yfirheyra sjávarútvegsráð- herra i málinu, en setudómari telur ekki ástæðu til þess. A Ströndum berst gifurlegur reki á land, sá mesti siðan 1966. Óveður gekk a.m.k. tvisvar yfir i mánuðinum og eitthvað varð um skemmdir af þeim sök- um. Tafir urðu á samgöngum. Jólapósturinn barst loks að bænum Tunguseli i Sauðanes- hreppi. Bærinnaðeins 12km frá Þórshöfn. Magnús Magnússon kosinn sjónvarpsmaður ársins i Bret- landi. Maöur lést á miðunum af völdum þungs höfuðhöggs. Hálfri milljón kr. heitið hverj- um þeim, sem getur upplýst hvarf Geirfinns Einarssonar úr Keflavík. AAarz EFNAHAGSMÁL voru mikið til umræðu i mánuðinum. Langir og strangir samningafundir voru i kjaradeilum. Rikisstjórn- in lagði fram umræðugrundvöll I fimm liðum til að bæta kjör hinna lægst launuðu i þjóðfélag- inu og siðar lagði stjórnin fram frumvarp um ráðstafanir i efnahagsmálum, þar sem heim- iluð er lækkun rikisútgjalda um 3,500 millj. kr lækkun skatta og lækkun matvæla. Og þá voru laun þingmanna lika mikið til umræðu. Þingfarakaupsnefnd efndi til blaðamannafundar, og

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.